Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 félk í fréttum VIÐURKENNIN G Hrói eykur ferða- mannastraum Ferðamálanefnd ensku borgarinnar Nottingham og næsta umhverfis fékk viðurkenningu í sumar fyrir framúrskarandi frammistöðu í aukn- ingu á ferðamannastraumi til svæðisins. Það var breska Ferðamálaráðið sem veitti viðurkenninguna og formaður Ferðamálanefndar Nottingham var ekki í nokkrum vafa hverjum bæri að þakka hina frábæru útkomu. Sjálfum Hróa hetti að sjálfsögðu. Formaðurinn, hæstaréttarlögmaður að nafni Brent Charlesworth sveipaði því um sig skikkju fógetans í Skírisskógi og hélt vestur til Hollywood til fundar við Hróa hött! Sem var enginn annar en Kevin Costner sem fór með hlutverk Hróa í stórmyndinni „Robin Hood - Prince of Thieves" sem fór víða sigurför á síðasta ári. Charlesworth sagði í móttöku sem þeir ensku héldu Costner í Hollywood að engum blöðum væri um að fletta, að kvikmynd Costners hafi gert gæfumuninn. Costner var afhent viðurkenningarskjal vegna þessa, einnig „lykil ad borginni" og silfurör til merkis um frelsi Skírisskógs. Sagðist Costner vera upp með sér og glaður. Fógetinn og Hrói á góðri stundu. Átt þú mynd af Halldóri Laxness? Bókaútgáfan Vaka-Helgafell hefur beðið Morgunblaðið að birta eftirfarandi: „Meðal jólabókanna á komandi hausti verður bók með svipmynd- um frá æviferli Halldórs Laxness. Hún er gefin út í tilefni þess að nóbelskáldið átti níræðisafmæli fyrr á þessu ári. í bókinni, sem kemur út hjá forlaginu Vöku-Helgafelli, verður geysilegur fjöldi ljósmynda frá löngum ferli Halldórs Laxness en þær eru teknar bæði hér á landi og á ferðum skáldsins víða um heim. Margt af myndunum hefur verið í fórum Halldórs og fjölskyldu hans, í myndasöfnurh fjölmiðla og hjá einstaklingum hér á landi og erlendis. Við efnisöflun í bókina hefur verið leitað fanga mjög víða og mun þar meðal annars birtast fjöldi ljósmynda sem ekki hefur áður komið fyrir sjónir almennings. Þótt víða hafi verið borið niður og margt áhugaverðra mynda fundist má þó enn búast við að sjaldséðar myndir frá ferli Halldórs Laxness geti leynst í myndasöfnum fólks. Áður en endanlega verður gengið frá bókinni biður því Vaka- Helgafell þá samferðamenn Hall- dórs, sem kynnu að eiga í fórum sínum áhugaverðar ljósmyndir af skáldinu frá ýmsum tímum og frá atburðum sem tengjast rithöfund- Hann er einbeittur þessi ungi maður sem stillti sér upp ný- fermdur hjá ljósmyndara í Reykjavík árið 1915. Hann hafði einsett sér að verða rithöfundur og með penna í hendi ætlaði hann að sigra heiminn! Þetta var Hall- dór Guðjónsson frá Laxnesi í Mosfellssveit, síðar betur kunnur undir nafninu Halldór Laxnéss. arferli hans, að hafa samband við Valgerði Benediktsdóttur sem fyrst ef þar kynni að vera um að ræða myndir sem ættu erindi í bókina. Vitastíg 3 Sími 623137 Föstudagur 11. sept. Opið kl. 20-03 Fyrsta soulkvöldið haustið '92 Hinn frábæri bandaríski soulsöngvari & leikari RICHARDTODD LICEA Gunnar Þór Eggertsson, gítar Stefán Henrýsson, hljómborö Benedikt ívarsson, bassi Birgir Þórsson, trommuleikari Ingibjörg Erlingsdóttir, söngur Helena Káradóttir, söngur Þessi frábæra soulhljómsveit flytur m.a. lög eftir Percy Sledge, Wilson Picket, Sam & Dave, Arethu Franklin, Tinu Turner o.fl. í eigin útsetningum. Liðveislufélagar fá 50% afslátt í boði sparisjóðanna gegn framvísun Liðveisluskírteina. GEGGJAÐ STUÐ í KVÖLD! - soul er „inn“. Laugard. 12. sept. 17., 18., 19. sept. Magnús & Jóhann Chicagoblúsdrottningin Sniglabandið & Rut DEITRA FARR Reginalds & VINIR DÓRA PÚLSINN Hljómsveit Rúnars Þórs leikur fyrir dansi. Mætum hress á góöan dansleik. Hreystimannafélagið Aldur 20 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.