Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 Yerðbólgan mælist 0,5% VÍSITALA framfærslukostnaðar miðað við verðlag lækkaði um 0,1% í september 1992 frá ágúst 1992. Lækkun vísitölunnar stafar aðallega af lækkun á bensínverði, fjármagnskostnaði og orlofsferð- um til útlanda. Vísitalan í september reyndist vera 161,3 stig og lækkaði um 0,1% frá ágúst. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækk- að um 2%. Undanfama þijá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,1% og jafngildir sú hækkun um 0,5% verð- bólgu á heilu ári. Verðbólgan hér á landi er minni en í nokkru Evrópubandalagsríkj- anna. Þar var verðbólga á heilu ári að meðaltali 4,1% í júlí sl. í Dan- mörku mældist verðbólga á heilu ári 2,2% í júlí, 2,6% í Belgíu, 2,9% í Frakklandi, 3,3% í Þýskalandi og 3,7% í Bretlandi. Hæst var verðbólg- an í Grikklandi, 13,6%, og í Portúg- al, 9,6%. Sotheby’s í London Islensku frí- merkin seldust yfir matsverði ÍSLENSK frímerki voru seld fyrir 8 þúsund sterlingspund, eða rúm- ar 830 þúsund ÍSK á uppboði hjá Sotheby’s-uppboðsfyrirtækinu í London í gær. Um var að ræða frímerki vegna Alþingishátíðarinnar 1930 sem seld- ust á 5 þúsund pund, en þeim fylgdi 49 síðna bók þar sem saga útgáfu þeirra er rakin. Einnig seldist lítið íslenskt frímerkjasafn frá 1873- 1940, sem var metið á 1.800-2.200 pund, en seldist á 3.000 pund. Kynferðis- leg áreitni í tískuverslun Afgreiðslustúlka i tískuvöruversl- un við Laugaveg kærði ungan mann fyrir kynferðislega áreitni í gær. Maðurinn mun hafa komið inn í búðina og beðið stúlkuna um að máta fyrir sig þröngt pils sem hann kvaðst ætla að gefa vinkonu sinni. Er stúlkan var komin í pils- ið fór maðurinn að þukla á henni. Er stúlkan kærði manninn til lög- reglunnar kvaðst hún muna eftir honum frá í desember eða janúar sl. er hann kom inn í búðina með svip- aða ósk og þá hafi hann einnig káf- að á henni. Hann hefði þar að auki leikið sama leikinn gagnvart systur hennar og þær grunaði að hann hafi staðið að „dónalegum" símtölum til þeirra. Lögreglan hafði uppi á manni þessum og játaði hann athæfið. Rækjubáturinn Sveinn Guðmundsson GK 315 fórst skammt frá Eldey T -'r'i Sveinn'Guðmundsson GK 315 var 21 tonna eikarbátur, smíðaður í Danmörku árið 1933 og gerður út frá Sandgerði en skráður í Garði. Landhelgisgæslan stjórnaði umfangsmikilli leitað skipverjunum sem saknað er af Sveini Guðmundssyni GK 315. A annan tug bata, varðskip og 4 þyrlur tóku þátt í leitiiuii FJÖLDI báta, varðskip og fjórar þyrlur ásamt eldsneytisvél frá Vamarliðinu tóku þátt í umfangsmikilli leit að sjómönnunum þremur á Sveini Guðmundssyni GK-315, sem fórst norðvestur af Eldey á milli klukkan 14 og 15 í gær. Einn skipverjanna fórst og tveggja er saknað. Báturinn var 21 tonns eikarbátur, skráður í Garði, en gerður út frá Sandgerði, smíðaður árið 1933. Landhelgisgæslunni barst leitarbeiðni frá rækjubátnum Staf- nesi KE 130 kl. 15.10, að báturinn hefði horfið mjög snögglega en níu bátar voru þá á veiðum á þeim slóðum þar sem báturinn fórst en hann var þá á landleið og um 2 til 3 mílur frá þeim bátum sem næst- ir voru. Leitarmönnum á bátum tókst síðdegis í gær að staðsetja flak bátsins með dýptarmæli á 81 faðms dýpi. Oddur Sæmundsson, skipstjóri á Stafnesi KE 130, sem tilkynnti um hvarf bátsins til Landhelgis- gæslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að Stafnesið hefði verið um 10 mflur frá þeim stað þar sem báturinn fórst en sjómenn á rækjubátum á svæðinu hefðu þá verið famir að hafa .samband sín á milli um að eitthvað hlyti að hafa komið fyrir þar sem báturinn hvarf mjög snögglega og kom ekki fram á ratsjá en hann var á land- leið þegar síðast sást til hans. Reyndu nærstaddir bátar að kalla hann upp en án árangurs. „Þeir vissu að hann var á land- leið og það var greinilegt að það hafði eitthvað komið fyrir því bát- urinn hvarf svo snögglega. Það var gott skyggni og hafa verið svona 5 vindstig og hliðarvindur á bátinn en það er engin skýring fundin á hvað hafi valdið þessu,“ sagði Oddur. í máli hans kom fram að mikil olíubrák hefði fljótlega fundist á sjónum en gúmmíbjörgunarbátur sem var um borð í Sveini Guð- mundssyni hefði ekki flotið upp Sveinn Guðmundsson GK 315, 21 tonna eikarbátur frá Sand- gerði fórst um miðjan dag í gær. Einn maður fórst og tveggja er saknað. ' m Eldey ***** W .. $ s Eídeyjardrangur i óeirfugladrangur j .■ N —-10Hm 5 sjómllur og sagðist hann vera mjög ósáttur við það. „Þetta hefur .gerst mjög skyndilega. Það er búið að leita á stóru svæði og kemba þetta allt saman en við munum leita fram í myrkur,“ sagði Oddur. Skipveijar á Sveini Guðmunds- syni gerðu síðast vart við sig til Tilkynningaskyldunnar í Reykja- vík kl. 14.10 en engin hjálpar- beiðni barst frá bátnum þegar hann hvarf. Samkvæmt upplýsing- um Landhelgisgæslunnar var þeg- ar hafin mjög víðtæk leit á sjó og úr lofti. Leitarsvæðið var strax afmarkað samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar, sem stjóm- aði leitinni í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar þurfti að fara til lands til elds- neytistöku um kl. 18 en fór svo aftur út með hitamyndavél til áframhaldandi leitar. Um kl. 19 versnaði veður og fóru þá smærri bátar til lands. A tíunda tímanum í gærkvöldi var leit á sjó hætt en þyrla Landhelgisgæslunnar hélt áfram að fljúga yfír svæðið með hitaleitarmyndavél. Þá var varð- skipið Ægir á leitarsvæðinu í nótt en fyrirhugað var að hefja leit úr lofti um leið og birti í morgun. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri um skuldastöðu ríkisins Ekkert svigrúm til auk- imiar erlendrar lántöku JÓHANNES Nordal seðlabanka- stjóri segir að ekki sé s.vigrúm til aukinnar erlendrar lántöku, eins og efnahagsmálum þjóðarinnar sé háttað nú. „Þó að ríkishalli hjá okkur, sé á pappírnum ekki meiri en þetta, miðað við aðrar þjóðir, þá er okkar heildarskuldastaða, ef ríkið er tekið ásamt þeim stofn- unum sem það ber ábyrgð á, ekki síst þessu mikla sjóðakerfi, satt að segja áhyggjuefni og þcss vegna síður en svo svigrúm fyrir okkur til þess að auka halla ríkis- Kirkjudeilur i Kópavogi Bjarni Bragi Jónsson telur nú muni draga að leikslokum 14 Frakkar deila um Maastricht Engin í vafa um afstöðu de Gaulles 20 Átak í atvinnumálum á Akureyri_____________________ Tæplega 60 manns þegar fengið vinnu 26 Leiðari Bankar og atvinnulífíð 22 33 mm Í| JHkiszsr- —— I sfi| I Símaónæði er hægt _ aö (yrirbyKgja með nýju taiki i ’ ■ rf ===s Wm Kzæ= mga ------rSE-gLS - ' ■ tí ft 5S Fý—3-H K M ;; fcfSRwr g :: “ = s ú sa&= ». 11 Sfte= Fasteignir ► Ráðstefna um húsasótt - Char- les Bricker og Christine Schwartz frá bandaríska tímarit- inu Elle Decor segja álit sitt á ísl. byggingarlist. Daglegt líf ► Tómstundir samlyndra hjóna -Hvaða glas fyrir hvaða vín - Ferðamál á föstudegi - Haust- ferðir í Evrópuborgum - Nýjar bílategundir í Frakklandi sjóðs. Þvert á móti, þá þurfum við að draga úr honum til þess að fá vexti niður og bæta skulda- stöðuna við útlönd,“ sagði Jó- hannes í samtali við Morgunblaðið í gær. Samkvæmt yfirliti sem birtist á forsíðu viðskiptablaðs Morgunblaðs- ins í gær um afkomuhorfur ríkis- sjóða OECD-ríkjanna, kemur fram að áætlaður halli af ríkissjóði íslands á þessu ári, er með því minnsta sem gerist hjá þessum ríkjum, eða um 2% af landsframleiðslu. Seðlabanka- stjóri var spurður hvort þetta þýddi hugsanlega það að hin neikvæðu áhrif af ríkissjóðshalla væru ekki jafn mikil og af hefði verið látið: „Ég held að það sé óhætt að segja að þensluáhrif ríkisins séu heldur van- metin í okkar tölfræði, í samanburði við tölfræði annarra, sérstaklega vegna afskipta Hkisins af lánamark- aðinum, til dæmis húsnæðislánum og öllu slíku, sem verkar náttúrlega svipað og fjárlagahalli. Við höfum ekki ástæðu til þess að líta svo á að við höfum svigrúm að þessu leyti umfram aðra, því við erum náttúru- lega með geysilega miklar erlendar skuldir hjá opinberum aðilum, öðrum en ríkinu, sem ríkið er í ábyrgð fyr- ir. Ef það væri með í þessu yfirliti, þá væri ísland mun neðar á þessum lista.“ Stjórn Verktakasambands Islands hefur lagt til að framkvæmdir á vegum ríkissjóðs og sveitarfélaga aukist um sem svarar 8 milljörðum á næsta ári, eins og greint var frá hér í blaðinu i gær og leggur stjórn- in til að helmings þeirrar fjárhæðar verði aflað með erlendum lántökum. Seðlabankastjóri var spurður álits á þessum tillögum og hvaða efna- hagsleg áhrif slíkar lántökur kæmu til með að hafa, ef í þær yrði ráð- ist: „Ég hef nú ekki kynnt mér þess- ar tillögur náið, en við hjá Seðla- bankanum teljum ákaflega varhuga- vert að auka erlendar lántökur. Við erum þegar með mjög miklar lántök- ur og mikinn halla á ríkissjóði. Það er alveg ljóst að skuldastaða okkar mun versna til muna á þessu og næsta ári. Mér finnst því að svigrúm- ið til þess að við förum að halda uppi atvinnu hér á landi með erlend- um lántökum sé ekki fyrir hendi. Sama máli gegnir með innlenda lánamarkaðinn, sem er spenntur til hins ítrasta núna. Við höfum áhyggj- ur af því að vextir eru að leita upp á við út af því og ríkið er með miklu meiri halla en að var stefnt,“ sagði Jóhannes Nordal seðlabankastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.