Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 Minning * Arni Böðvars- son cand.mag. Fæddur 15. maí 1924 Dáinn 1. september 1992 Árni Böðvarsson er allur. Eftir- minnilegur förunautur er fallinn í valinn, eljusamur, hógvær og hug- þekkur. Góðir menn munu rekja æviþráð j Árna Böðvarssonar, þeir er þekktu hann bezt. Ég nem staðar við tvær I hraðfleygar _stundir einungis, er leiðir okkar Árna lágu saman. Þær stundir þakka ég. Árin 1959 til 1961 bjó ég á stúd- entagarðinum nýja eða „Nýja- garði“, eins og hann varþá nefndur og e.t.v. enn. Þar var Ámi Böðvars- : son umsýslumaður húss og heima- fólks og nefndur „garðprófastur" að gömlum sið. Þetta var erilsamt hlutskipti og reyndi á marga eðlis- kosti, allt frá handlagni við lagfær- ingar á híbýlum stúdenta tii nær- færni, þegar ungum mönnum varð hált á brautum hamingjuleitarinn- ar. Árni sinnti hér öllu í senn af samúð, tillitssemi og þolinmæði. Hef ég oftsinnis hugsað til þessara ára og undrazt, hve fimlega honum í fórst jafnan. Hlýr var Árni í við- ! móti og hafði löngum uppi gaman- yrði, lék ýmsum strengjum íslenzkr- < ar tungu af íþrótt, sem af bar. Gott var að una tvö æskuár undir | handleiðslu þessa vingjamlega • drengskaparmanns. Sá tími i gleymdist ekki heldur óx að gildi I er frá leið. Árni Böðvarsson var reyndar aldrei fjarri þótt fjöll eða * höf bæri á milli. Jafnan var hann hveijum manni nær í fræðum sín- um, bækur hans, greinar og ritgerð- ir innan seilingar, rödd hans í Ríkis- ! útvarpinu, ávirk og uppörvandi, i mannfagnaður ævinlega að því að i hitta Árna á förnum vegi. Fyrir tæpu ári settumst við Arni f að nýju við sama borð. Hann hafði :. þá verið málfarsráðunautur Ríkis- j útvarpsins um sjö ára bil. Ekki kom í það á óvart, sem brátt varð ljóst, > að á þeim bæ hafði Árni unnið hug | allra starfsmanna og glætt lifandi ! áhuga á íslenzku máli í hveijum t kima. Ríkisútvarpið hefur um áratugi t verið gangráður talaðra orða á Is- ; landi. Þar studdi hver öndvegismað- s urinn annan í baráttunni fyrir varð- j veizlu og endurnýjun íslenzkrar ; tungu. Ef spurt er um hlutverk j Ríkisútvarpsins, gæti þetta verkefni orðið framarlega í svari: Ríkisút- varpið iðkar málvöndun og heldur henni að hlustendum sínum hvar- I vetna um landið. Öllum getur yfirsézt. En yfirsjón- ir eru ekki ásetningsbrot. Ásetning- ur Ríkisútvarpsins er að gæta tung- unnar. Áhuginn á þessu efni er heill hvarvetna innan stofnunarinn- ar. Þann áhuga eiga núverandi út- j varpsmenn Árna Böðvarssyni öðr- um fremur að þakka. Návist hans t á fréttastofum Útvarpsins og Sjón- varpsins, árverkni og ötul fram- ganga ollu því, að allir hugðu að eigin orðum eftir föngum. Aðrir ' samverkamenn í Efstaleiti og við j Laugaveg nutu ekki síður góðs af leiðsögn Árna. Einkar gagnlegar handbækur og blöðunga, sem hann sendi frá sér, gat hver og einn hag- nýtt í sínu erfiði. Árni var og ævin- lega til taks, ef álitamál komu upp. Það kann að hafa valdið undrun, er kyrrlátur fræðimaður Árni Böðv- arsson gaf sig til fullnustu að elju- verkum á öldum Ijósvakans, þar sem allt er á hraðbergi. Þess er til að geta, að eftir margra ára starf við þáttinn Daglegt mál og aðra alþýðufræðslu hafi Árni talið Rfkis- útvarpið líkt og skólana vera vett- vang mikilvægra átaka um viðgang f íslenzkrar menningar. Með því einu að takast þennan starfa á hendur sýndi Árni Böðvarsson Ríkisútvarp- inu virðingu sem menntastofnun svo mjög að hann gat ekki betur gert. _ Við Árni áttum dálitla gleði sam- an þá stuttu stund sem báðum varð auðið að una í Útvarpshúsinu. Ætlunin var að bæta aðstöðu mál- farsráðunautar til muna. Árni hugði gott til þessarar nýlundu, og fijór hugur hans var fullur af áformum. Nú kemur það í annarra hlut að taka upp merkið eftir mætan mann. Betur er ekki unnt að heiðra minn- ingu Árna Böðvarssonar en með því að halda fram verkunum, sem hann unni. Enginn má sköpum renna. Árni Böðvarsson var kallaður af þessum heimi á bezta aldri að því er telja verður nú á dögum ef heilsu nýtur. Fyrir sjálfs míns hönd, konu minnar og Ríkisútvarpsins, kveð ég Árna Böðvarsson og bið Guð að gæta hans og ástvinanna, sem eftir lifa. Heimir Steinsson. Leiðir okkar Árna Böðvarssonar lágu saman á síðasta ári þegar ákveðið var að Almenna bókafélag- ið hf. gæfí út bók hans, íslenskt málfar. Bókin var svo gefin út í janúar síðastliðnum og er ein ljölda bóka sem liggja eftir Árna. Það var sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur hjá Almenna bókafélag- inu að fá að gefa bók Árna út, fyrstu og einu bók sinnar tegund- ar. Áður en samstarf okkar Árna hófst þekkti ég hann eingöngu af afspurn sem traustan og góðan fræðimann. í ljós kom að þar var hvorki oflofað né ofsagt. Þó var Árni gæddur þeirri gáfu, sem svo marga fræðimenn vantar, að geta komið fræðiverki til skila þannig að allir, lærðir og leikir, gætu haft gaman af. Hann gat gert viðfangs- efnið skemmtilegt án þess að hvika í nokkru frá fræðilegum kröfum. Það lýsir Árna kannski einna best hve miklar áhyggjur hann hafði af bók sinni og viðbrögðum við henni. Það brást ekki að í hvert sinn sem við áttum tal saman eftir að bókin hafði litið dagsins ljós lýsti hann áhyggjum sínum að enginn hefði fundið neitt að bókinni: „Mér hefur ekki einu sinni verið bent á stafsetningarvillu," sagði Árni eitt sinn. Það er mikill heiður fyrir bóka- forlag að gefa út verk eftir slíkan mann. Það er sárt fyrir okkur íslend- inga, sem byggjum sjálfstæði okkar á tungu og menningu, að missa fyrir aldur fram okkar fremsta og besta varðmann íslensks máls. Árni var hugsjónamaður um varðveislu og þó ekki síst um þróun íslenskrar tungu. Hann var einn af þeim fáu málverndarmönnum sem náðu árangri án þess að hengja sig í gamlan tíma. Hann gerði sér grein fyrir nauðsyn þess að málið fengi að þróast í takt við tímann. Eg vil fyrir hönd Almenna bóka- félagsins votta Ágústu Árnadóttur, eftirlifandi eiginkonu Árna, og börnum þeirra dýpstu samúð um leið og Árna er minnst í hljóðri þökk og með virðingu. Almenna bókafélagið hf., Óli Björn Kárason. Ó, minning, minnig. Líkt og ómur fjarlægra söngva, líkt og ilmur deyjandi blóma berast orð þín að hlustandi eyrum mínum. Eins og lifandi verur birtast litir og hljómar hinna liðnu daga, sem hurfu sinn dularfulla veg út í dimmbláan Qarskann og komu aldrei aftur. (Steinn Steinarr) Hann afi er dáinn. Það er undarlegt og erfitt til þess að hugsa að hann sé horfinn okkur og komi ekki aftur. Hann á aldrei aftur eftir að koma gangandi í Kópavoginn eða Vesturbæinn á sunnudagsmorgni, hjálpa okkur með ritgerðir, skutla okkur á milli bæja, keyra okkur út á flugvöll, leggja okkur lífsreglurnar og brýna fyrir okkur virðingu fyrir þeim verð- mætum sem mölur og ryð fær ekki grandað. Það verður erfitt að fylla þetta tómarúm. Afi var okkur barnabörnunum ákaflega hlýr og skilningsríkur. Umburðarlyndi hans gagnvart okk- ur var ótakmarkað. Hann hafði allt- af tíma til að hlusta á okkur og i tala við okkur og hann talaði við okkur eins og jafningja sína. Það var alltaf hægt að leita til hans þegar eitthvað bjátaði á, það gerði fordómaleysi hans gagnvart börn- um og unglingum. Hann hlustaði á skoðanir okkar og bar virðingu fyr- ir þeim þó svo að hann væri þeim ekki alltaf sammála. Og dinti okkar umbar hann jafnvel þegar við viss- um að við hlytum að hafa gengið fram af honum. Hann hafði trú á okkur og því sem við tókum okkur fyrir hendur, trúði því að við mynd- um standa okkur og var alltaf tilbú- inn að styðja við bakið á okkur. Afí var mikill bókamaður og kenndi okkur að lesa og meta bæk- ur og bera virðingu fyrir þeim. Hann var óþijótandi að lesa fyrir okkur þegar við vorum yngri, lána okkur bækur þegar við urðum eldri og ótal bækur gaf hann okkur. Bókasafn hans gátum við gengið í að vild og sótt þangað fróðleik og visku sem og til hans sjálfs. Afi veiktist í febrúar á þessu ári. Vorum við þá báðar í Frakk- landi við nám og reyndum að styrkja hvor aðra í sorginni. Okkur þótti þá sérstaklega vænt um bréfa- sendingar afa svo og símtöl hans, sem stöppuðu í okkur stálinu, því að þrátt fyrir allt var alltaf stutt í gamanið. Dauðastríðið var erfitt - en hann barðist hetjulega. Hann tók veikindum sínum af æðruleysi og aldrei, jafnvel ekki undir lokin, missti hann húmorinn. Síðustu dag- ana átti afi orðið erfitt með að tjá sig, en alltaf fagnaði hann okkur þegar við komum og væntumþykjan sem streymdi frá honum fór ekki fram hjá neinum. Orð eru lítils megnug en við erum þakklátar fyr- ir að hafa fengið að vera hjá honum síðustu stundirnar. Inn í frið hans og draum er forinni heitið. (Snorri Hjartarson) Elsku amma, Kolla, pabbi og mamma. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Arndís og Tobba. Þegar Árni Böðvarsson stóð á flugvellinum í Arlanda fyrir utan Stokkhólm á leið frá þingi norrænna málvísindamanna á Álandseyjum, fór þar ungur maður í anda og að líkamsburðum. Það er einkenni hinna bestu manna að viða stöðugt að sér nýrri þekkingu og nýrri lífsreynslu og miðia henni samferðamönnum af gleði og rausnarskap. Þannig kynntumst við Árna Böðvarssyni í starfi málfarsráðunautar Ríkisút- varpsins. Ávallt var hann boðinn og búinn að leiðbeina um hvaðeina af sínum þekkingarbrunni, um notkun málsins, bókmenntir, sögu og um lönd og þjóðir. Árni bjó í tvígang hjá okkur í Stokkhólmi og urðu þær samvistir okkur öllum til gleði, ekki síst ung- um sonum okkar sem urðu strax sérstakir vinir Árna. Maður hefði getað ætlað að maður sem hefði jafn giftudijúgan fræðimannsferil að baki væri farinn að rifa seglin og léti sér nægja að líta með vel- þóknun yfir farinn veg. Svo var ekki með Árna. Hann varðveitti þann hæfileika vísindamannsins og barnsins að gleðjast yfir hverri nýrri uppgötvun og reynslu. Við gengum saman um skógana og um Sigtún, hið forna konungssetur Svía. Þar bjó Freyr, guð árgæsku og gróð- urs, eitt sinn ög þar hafði Ólafur Skautkonungur sinn konungsgarð. Innan um rúnasteina og klaustur- rústir ferðuðumst við í andanum um aldir og það var eins og að vera í fylgd heimamanns að njóta sam- fylgdar Árna á þessum fornhelgu stöðum. En það þurfti ekki bústaði goðanna til þess að vekja athygli Árna. Hann gladdist yfir smádýrum á skógarstígum, og sefið á vatns- bakkanum og fallnir tijástofnar urðu honum að myndefni. Við skoðuðum höll eina mikla og átti Árni ekki í neinum vandræðum með að hjálpa til við loftkastala- byggingu okkar um væntanleg hall- arkaup. Það má segja að Árni þafi lifað með okkur í öllu okkar daglega amstri Stokkhólmsveturinn fyrir ári. Öllu milli himins og jarðar var komið fyrir inni hjá Árna Bö, þar sem gestaherbergið fékk þetta virðulega heiti, og þegar aðrir gest- ir komu var talað um að þessi eða hinn fengi að gista hjá Árna Bö. Það var ævintýralegur spenning- ur í anda „dularfullubókanna" þeg- ar við, hinn síungi fræðimaður og krakkarnir, laumuðumst í rökkrinu að svignandi eplatijám við eyðibýlin og hlupum svo í skjól með ránsfeng- inn. Éplakakan bragðaðist aldrei betur en þá. Við óskum Árna Böðv- arssyni fararheilla í þeirri ferð sem nú er hafin. Elísabet Brekkan, Þorvaldur Friðriksson. Okkur langar að minnast Árna afabróður, sem okkur þótti svo vænt um. Það var grunnt á síðustu kveðjum, því hann ætlaði sér ekk- ert að fara, leit á þessi veikindi sín sem dálítinn útúrdúr í lífi sínu sem hann geymdi á ljósmyndum. Það er því erfitt að fylgja honum til grafar og óskiljanlegt fyrir börnin í fjölskyldunni sem aldrei fóru svo til Árna og Gústu að þau kæmu ekki kiyfjuð þaðan með bráðnauð- synlegan pappír í poka sem Árna og börnunum fannst synd að henda og oftast fylgdi eitthvað sætt í munninn í leiðinni. Hann hafði ótrú- legt lag á sjaldséðu gestunum í næstu götu sem nú sakna hans sárt því hann var bæði gjöfull og glettinn. Elsku Gústa, við biðjum Guð að styrkja þig og fjölskylduna á þess- um erfiðu tímum. Fjölskyldan á BoIIagötu 12. í dag er borinn til grafar tengda- faðir minn Árni Böðvarsson og mig langar til þess að minnast hans með nokkrum orðum. Þakka sam- veruna og alla hjálpina á liðnum árum því bónbetri maður en Árni er vandfundinn. Gilti það einu hvað um var að ræða; hjálp við texta, barnagæsla eða snúningar hvers kyns. Starfsævi Árna ætla ég ekki að lýsa, en hins vegar koma mann- kostir Árna vel fram í margvísleg- um áhugamálum hans; íslandi og íslenskri tungu, esperanto, land- græðslu, sígildri tónlist. Barna- menning var honum hugleikin, sem sést á starfi hans fyrir bókaútgáf- una Bjölluna. Alls þessa nutu barnabörnin, enda var hann Afi - afi með stórum staf. Störf Árna og áhugamál stuðluðu að betra mann- lífi. Veganesti hans verður okkur forði um ókomin ár. Helga Erlendsdóttir. Daginn sem skólinn var settur, 1. september, bárust þau tíðindi að Árni Böðvarsson hefði látist þá um morguninn. Þessi óþreytandi elju- maður kvaddi einmitt þann mánað- ardag sem við megum minnast hans í okkar hópi margt haustið. Það var gott að heija kennsluna við hlið Árna en hann var hjálpsamur svo af bar, glaðsinna og léttur í máli við hvern mann. Hann var eins og alþjóð veit mikill lærdómsmaður í sínum fræðigreinum og sóttum við margoft ráð til hans. Árni Böðvarsson var einn af frumheijunum í nýjum skóla en hann réðist að Menntaskólanum við Hamrahlíð á öðru starfsári hans 1967. Hann skipulagði málfræði- kennslu skólans og kenndi einkum þá grein. Fljótlega tók bókasafn skólans dijúgan hluta starfskrafta Árna en það kom í hans hlut að skipuleggja safnið í upphafi og veita því síðan forstöðu. Hann var af- kastamikill höfundur kennsluefnis og fræðirita. Hæst ber Orðabók Menningarsjóðs sem Árni ritstýrði en óhætt er að telja hana einn burðarás íslenskrar menningar. Við minnumst með trega góðs félaga og samkennara. Við sendum fjölskyldu Árna samúðarkveðjur. Islenskudeild Menntaskól- ans við Hamrahlíð. Haustið 1945 var undirritaður við nám í íslenskri hljóðfræði við Háskóla íslands undir handleiðslu Björns Guðfinnssonar málfræðings. Ég hafði stundað þetta nám í tvo vetur og tekið próf hjá Birni og þóttist töluvert lærður. En þegar kennarinn leggur fyrir stúdentana spurningar heldur í þyngra lagi, bregður svo við að fyrir svörum verður ungur piltur mér ókunnur, nýkominn í skólann. Ég man að mér þótti heldur lítið leggjast fyrir mig líkt og Gretti þegar Hallmund- ur strauk beislistaumana úr hönd- um hans. Þarna kom fram sá ein- stæði hæfileiki Árna að bijótast til þekkingar af eigin rammleik á mörgum sviðum. Við vorum jafn- aldrar, en hann kom síðar til leiks í Háskólanum af því að hann stund- aði nám sitt utan skóla heima í sveitinni sinni. En þá var hann eins og heyra mátti þegar orðinn allvel lærður málfræðingur, þótt hann síð- an, að hætti sannra vísindamanna, héldi áfram að safna í sarpinn til æviloka. Löngu síðar spurði ég hann eitt sinn hvernig hann hefði orðið svo góður í þýsku sem raun bar vitni, en þá tungu talaði hann ágæta vel og var iðulega leiðsögumaður Þjóðveija sem ferðuðust um ísland eða stýrði íslenskum ferðaflokkum meðal þýskumælandi þjóða. „Séra Ragnar á Fellsmúla kenndi mér þýsku málfræðina svo vel að ég þurfti þar engu við að bæta,“ svar- aði Árni. En margur hefur nú haft góðan þýskukennara og þó aldrei orðið fær í máíinu. Sívökul þekking- arleit Árna kom fram í því að hálf- sextugur tók hann að stunda nám í búlgörsku við háskólann í Uppsöl- um og lauk prófi í þeirri grein vor- ið 1980. En af öllum þeim erlendu tungum sem hann stundaði hygg ég að honum hafi þótt vænst um esperanto. Kom þar fram ekki að- eins málfræðilegur áhugi hans held- ur og mannást hans og löngun til að stuðla að einingu mannkyns og friði meðal mannanna. Hann átti með Baldvini B. Skaftfell þátt í að gefa úr íslenska esperanto-orðabók (1965), og var einn aðalmanna við að undirbúa og stýra alþjóðaþingi esperantista sem haldið var hér á landi 1977 — samdi meira að segja íslenska májfræði og orðasafn til nota á þessu þingi. Aðrir munu gera ítarlegri grein fyrir þeim margvíslegu störfum sem Árni innti af höndum og þeim mörgu ritverkum sem eftir hann liggja. Hann var löngum kennari við ýmsa skóla, einkum Háskóla íslands og Menntaskólann við Hamrahlíð. Árið 1984 var hann fyrstur manna ráðinn í fullt starf sem málfarsráðunautur Ríkisút- varpsins, og gegndi hann því starfi uns sjúkdómur bugaði hann á liðnu vori. Hann birti fjölda greina og ritgerða í blöðum og tímaritum og annaðist útgáfu ýmissa merkra rita.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.