Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 Herdís Þ. Sigurðar- dóttir - Minning Fædd 2. desember 1917 Dáin 3. september 1992 Elskuleg tengdamamma er dáin. Hún gerði öllum tengdamömm- um sögunnar skömm til. Ég var ekki há í hattinn þegar ég fór í fyrsta sinn með Sævari, yngsta syninum, heim til hennar. Herdís hafði orðið ekkja nokkrum mánuðum fyrr og nú hafði ég fullan hug á að „ræna frá henni“ hreiður- böggiinum. Það hlaut að vera erfitt á við- kvæmum tíma í lífi hennar. En hún heilsaði með blíðu brosi og glettni í brúnum augunum sínum. Þakkaði svo Sævari fyrir að láta það eftir sér að fá að heilsa upp á mig. Lítil kona, glettin og glaðvær. Þannig fannst mér hún þá og þann- ig man ég hana oftast. Þó æðrulaus kona sem tók því sem að höndum bar í sínu eigin lífi og þá ekki síður lífi bama sinna og barnabama. Tengdamamma var aldrei mikið fyrir ræður og formlegheit, hún tók sjálfa sig aldrei of hátíðlega. Mig langar aðeins að draga fram þann eiginleika í fari hennar sem mér fannst einkenna hana einna mest og um leið kenna okkur best. Því er ágætlega lýst í orðum Spámanns- ins: „Að gefa af eigum sínum er lítil gjöf. Hin sanna gjöf er að gefa af sjájfum sér.“ í Mattheusarguðspjalli Biblíunn- ar, 16. kafla, 26. versi, stendur: „Hvað stoðar það manninn að eign- ast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni?“ Þetta lýsir að mínu mati svo vel hennar verðmætamati. Það reyndist okkur ómetanlegt að eiga Herdísi að vini og félaga. Gott að gráta með henni, gott að hlæja með henni. Fyrir það viljum við þakka af einlægni. Þegar drengirnir okkar „húkk- uðu“ far frá Hveragerði til Reykja- víkur þótti þeim líka gott að geta komið við hjá ömmu. Þar var alltaf opið hús, líka fyrir félagana. Eftir að þeir fluttust til Noregs þótti þeim líka gott og sjálfsagt að eiga ömmu að þegar þeir fóru heim til íslands til sumarvinnu eða lengri dvalar. Það sama gildir um ömmu- stelpurnar hennar sem búa hér í Noregi og syrgja hana nú sárt eins og við hér sem eldri erum. Og þó að nú sé skarð fyrir skildi þökkum við góðum Guði fyrir allt sem hún hefur verið okkur alla tíð. Klara Björnsdóttir. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) í dag er borin til grafar amma okkar Herdís Sigurðardóttir. En hún lést þann 3. september eftir erfiða sjúkdómslegu. Hún hefur nú haldið á vit feðranna og mun þar hitta eiginmann sinn eftir margra ára aðskilnað. í hjörtum okkar munum við minnast hversu ljúft hana var heim að sækja, setjast á eldhúsbekkinn hennar góða, við eld- húsborðið og fá fréttir af fjölskyld- unni á meðan hlaðið var í mann kræsingum. Bestu og ljúfustu minningarnar um hana ömmu verða sjaldnast festar á blað með fáum orðum enda eru þær sjálfsagt best geymdar í hugum þeirra er þær eiga. En þó geta allir er hana þekktu minnst hennar fyrir hlýleika hennar og þess að aldrei mismunaði hún nokk- urri sál. Velferð hennar nánustu var ömmu alltaf mjög hugleikin og munum við bræður minnast þeirrar gæfu og þess velfarnaðar sem hún ætíð óskaði okkur og okkar nán- ustu. Með þessum fáu orðum viljum við kveðja elsku ömmu og vonumst til að Guð geymi hana í hjarta sínu líkt og við geymum minninguna um hana í hjörtum okkar. Rafn Magnús Jónsson, Guð- bergur Konráð Jónsson, Svan- ur Rúnar Jónsson og Svein- björn Bjarki Jónsson. Hún Herdís okkar er dáin. Og það svo allt of snemma. En þar sem líkaminn var orðinn lúinn og margs konar sjúkdómar og þrautir gerðu vart við sig var hvíldin eflaust besta lausnin. En sárt var að missa hana. Tengdamóðir mín var afar sér- stök kona. Hún lifði og hrærðist fyrir aðra, hafði svo mikið að gefa. Hún talaði fátt um sjálfa sig. Þess í stað beindi hún umhyggju sinni, athygli og hugsun að börnunum í fjölskyldunni, barnabörnum sínum og bamabarnabörnum. Enda þótt hópurinn væri orðinn stór fylgdist hún gerla með hveijum og einum, bæði þeim sem voru í nágrenninu og hinum sem búsett era fjær. A heimili hennar bar hæst innramm- aðar ljósmyndir af afkomendunum skipað_ niður og haganlega komið fyrir. Á þann hátt hafði hún þá hjá sér og gat enn betur munað eftir þeirn öllum, enda voru þeir fjársjóð- ur hennar, Ekki skyldu vera jól öðruvísi en að böggull væri til handa hverjum og einum. Og hver bögg- ull varð að innihalda marga hluti. Þessar hlutlægu gjafir eru þó lítii- vægar á við það sem hún gaf þegar hún hýsti fólkið sitt á ýmsum tímum um lengri eða skemmri tíma. Mér mun aldrei gleymast þegar hún sagði upp vinnu sinni fyrir margt löngu til að gæta frumburðar míns vetrarlangt meðan við foreldramir voram við vinnu. Og þau eru ófá skiptin sem hún tók fleiri eða færri fjölskyldumeðlimi inn á heimili sitt. Hún taldi ekki eftir sér að stússa við hópinn sinn seint og snemma og jós þá úr djúpum brunni hjart- ans. Frá Herdísi stafaði hlýju sem ekki er unnt að lýsa með orðum. Og þessi ylur var auðfundinn, hún miðlaði honum hvernig sem á stóð. Hún var hvorki hávær né marg- mál, en manngæska hennar um- vafði okkur öll. Hógværð og hjarta- hlýja eru orð sem koma mér í hug þegar ég minnist hennar. Guð blessi minningu hennar. Rúna Gísladóttir. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna sem horfðu eftir þér í sárum trega. Þá blómgast enn og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson.) Tengdamóðir mín, frú Herdís Þóra Sigurðardóttir, andaðist á Landakotsspítala að morgni 3. sept- ember, eftir mjög erfið veikindi. Minning Margrét Bjarnadótt- ir frá Hraunkoti Fædd 18. mars 1904 Dáin 6. september 1992 Aðfaranótt 6. september andað- ist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn, Margrét Bjarnadóttir. Hún var fædd að Hraunkoti í Lóni. Foreldrar hennar voru Ragnhildur Sigurðardóttir og Bjami Þorsteinsson. Ragnhildur átti ættir að rekja í Lóni, systir Sveinbjargar í Bæ, sem var nafn- þekkt kona á sinni tíð, móðir Mið- húsasystkinanna í Bæ. Sigurðar Ólafssonar frá fyrra hjónabandi og Þorleifsbama af hinu síðara. Allt mesta atorkufólk og bræðurn- ir allir orðlagðir athafnamenn á sinni tíð og var Rafnkell Þorleifs- son þeirra síðastur sem kvaddi þennan heim. Bjarni átti ættir að rekja í Suðursveit og Öræfi, og eru Kvískeijabræður nafnþekkt- astir núlifandi ættingja. Böm Hraunkotshjónanna voru sex, fjór- ar dætur og tveir synir. í Hraunkoti liðu bemsku- og æskuár þessara systkina við leik og störf og þjóðleg vinnubrögð að þeirra tíma hætti. Ragnhildur var myndarleg húsmóðir og vel að sér til handanna, og var það góður skóli fyrir dætumar. Barnaskóla- nám var sótt í sveitarskóla að Stafafelli og Bæ. Bjarni var talinn mikill rösk- leika maður og fóru af frækni hans margar sögur. Ein var sú er hann var vinnumaður í Víðidal í Stafafellsfjöllum, en þar bjuggu þá í 14 ár Sigfús Jónsson bóndi og Helga systir Bjarna. Eitt sinn bar svo við að vetrarlagi í snjó og þungri færð, að húsbóndi hans veiktist hastarlega af lungnabólgu að talið var. Bregður Bjarni þá á það ráð að skreppa út að Borgum í Nesjum og hitta Þorgrím Þórðar- son lækni að máli, og ekki var staðar numið fyrr en á bæjarhlað- inu í Víðidal, með meðulin í ann- arri hendi og brotið annað skíðið í hinni. Sögumaður þótti Bjami einnig góður. Um hann segir Sigríður Bene- diktsdóttir, nágrannakona hans í Byggðarholti: „Mér er enn í barns- minni hvað Bjami Þorsteinsson í Hraunkoti var gæddur góðri frá- sagnargáfu og hve hann var skemmtilegur gestur. Þá var út- varpið ekki komið til sögunnar, til að stytta fólki kvöldvökur. Þá var góður sögumaður vel þeginn á heimilinu." Nöfn Hraunkotssystkinanna voru sem hér segir: Sigríður, Guð- laug Margrét, Þórlaug og Helga. Bræðurnir hétu Ingimundur og Sigurður. Þær Hraunkotssystur þóttu mikið meyjaval á sínum upp- vaxtarárum og settu mikinn svip á samtíð sína. Þær voru snemma eftirsóttar í vistir og vinnu- mennsku, allar svo bráðmyndar- legar og duglegar. Aldrei fóru þær þó allar að heiman samtímis. Um tvítugt fór Margrét í vetrar- langa vist til Sandholtsfjölskyld- unnar í Reykjavík. Á sama tíma var Sigga systir hennar hjá ann- arri fjölskyldu í Reykjavík. Á sín- um frídögum höfðu þær systur tækifæri að skemmta sér og skoða höfuðborgina saman, en hún heill- aði ekki þessar skaftfellsku dætur meira en svo að um vorið kom Margrét aftur heim og var upp frá því stoð og stytta móður sinnar við heimilisstörfin í Hraunkoti, enda móðir hennar fremur heilsu- veil. Árið 1930 fluttist Hraunkots- fjölskyldan á Höfn og byggði sér þar húsið Hól, (einnig nefnt Holt) sem stóð innarlega í kauptúninu, og bjó þar í nokkur ár, en tvær systranna voru þá að mestu leyti fluttar að heiman. Eins og flestir Hafnarbúar áttu þau kú og nokkrar kindur og rækt- uðu kartöflur, en sú ræktun var þá mikið að fara í gang á Höfn. Ingimundur var talinn fyrir búinu, auk þess sem hann stundaði verkamannavinnu samtímis á staðnum. Þetta var afar hlýlegt og notalegt heimili og fjölskyldan samrýnd. Á Hólsárunum skiptust þær Margrét og Helga á um að annast heimilishaldið meðan önnur vann úti. Verkaskiptingin var oftast sú að Margrét var matráðskona hjá sjómönnum á Höfn á vetrarvertíð- um árum saman. Að lokinni vertíð tók saltfiskverkun við, og höfðu margir á orði að Margrét væri karlmannsígildi við þvottakarið, slík voru afköstin. Um sláttinn réði Helga sig aftur á móti í kaupavinnu í sveitina og af hennar röskleika fara engar sögur hér aðrar en þær að þá átti hún eftir að byggja upp öndvegis höfuðbólið Hjarðames í Nesjum ásamt eiginmanni sínum Eymundi Bjömssyni frá Dilksnesi, og síðar meir þeirra fjögur börn öll, sín framtíðarheimili á föðurleifðinni. Slíkt er heil landnámssaga í hveiju héraði. Margrét var sú eina af systrun- um sem aldrei giftist og ekki átti böm. En mér er kunnugt um að systrabörnin bára mikla virðingu fyrir „Möggu frænku", eins og þau kölluðu hana. Það mátti svo sann- arlega bera virðingu fyrir þeirri konu. Hún var að eðlisfari gædd ríkum mannkostum, sjálfstæð, traust og heiðarleg og afar orð- heldin. Hún var í eðli sínu gædd hjúkrunarhæfíleikum og mjög mikill dýravinur og lagði sig fram að hjálpa dýrum sem eitthvað var að, og kom það sér oft vel um sauðburðinn í sveitinni. Hennar mesta gæfa að hún sagði mér, var að fá tækifæri að hjúkra foreldrum sínum uns yfir lauk og þurfti móðir hennar svo mjög á því að halda. Hún lagði gjörva hönd á margt. Saumaskapur og hannyrðir léku í höndum hennar. Sjálf var hún smekkkona í klæðaburði, enda vel vaxin og fönguleg á fæti. Falleg kona fram á hinsta dag. Árið 1934 andaðist Ragnhildur og Bjarni 1937. 21. febrúar 1934 lést Sig- urður, yngri bróðirinn, er m/b Sæbjörg fórst í fiskiróðri með allri áhöfn, þá aðeins 23 ára gamall, hinn mesti efnispiltur. Ingimundur lést 1962 á heimli systur sinnar að Hjarðarnesi. Við fráfall hennar koma upp í hug- ann ljúfar minningar frá þeim áram þegar allt lék í lyndi og hún naut sín best á gleðistundum meðal ást- vina sinna. Hún vildi hafa hópinn sinn í kringum sig. Herdís fæddist í Hnífsdal 2. des- ember 1916 og ólst þar upp. For- eldrar hennar vora sæmdarhjónin Elísabet Jónsdóttir og Sigurður G. Guðmundsson, en þau bjuggu í Ystahúsinu í Hnífsdal. Herdís var sjöunda í röðinni af ellefu börnum þeirra hjóna. í Ystahúsinu áttu því nokkur börn bernsku- og æsku- heimili. Umhverfið var hið ákjósan- legasta til leikja. Ung að árum flutt- ist Herdís svo til Reykjavíkur, og þar hitti hún mannsefni sitt, Guð- berg J. Konráðsson, ættaðan af Snæfellsnesi. Foreldar hans vora Elísabet Stefánsdóttir Hjaltalín og Konráð Jónsson, bóndi á Hallbjarn- areyri í Eyrarsveit. Þau Herdís og Guðberg gengu í hjónaband árið 1937. Börn þeirra urðu fjögur. Þau era Guðlaug Elísabet, Þórir Sigurð- ur, Jón Konráð og Sævar Berg. Barnabörnin era 19 og barnabarna- börnin 14. Þau hjónin bjuggu lengst af við Ásgarð í Reykjavík. Herdís missti mann sinn í nóvember 1968, lést hann langt fyrir aldur fram aðeins 52 ára. Varð það Herdísi þung raun enda var samband þeirra afar kært. Seinna keypti hún íbúð við Gnoðar- vog, litla íbúð sem hún hafði svo fallega og þar leið henni vel. Herdís var falleg kona, með blik í augum og hlýtt viðmót. Hún var yfirlætislaus og hógvær fyrir eigin hönd. Aðrir í fjölskyldunni höfðu ávallt forgang. Herdís var góð og kærleiksrík amma og ástrík móðir, einnig var hún okkur tengdabörn- unum sem besta móðir. Ég veit að hennar er nú sárt saknað af öllum ástvinum stórum sem smáum. Síðustu vikurnar var Herdís mjög veik, ástvinir hennar hafa reynt að létta henni róðurinn með návist sinni eftir bestu getu. Ég votta börnum hennar og öðram ástvinum innilega samúð. Sigurborg Sveinbjörnsdóttir. Árið 1940 lá leið Margrétar til Norðfjarðar. Tilgangur ferðarinn- ar var að heimsækja Sigríði systur sína og aðstoða hana í sængur- legu, en Sigríður var þá gift og búsett í Neskaupstað. Þetta varð ekki bara heimsókn því Norðfjarð- arár Margrétar urðu átján. Þar lagði hún görva hönd á margt. Var um tíma ráðskona á sjúkra- húsinu í Neskaupstað. Tvær vetr- arvertíðir var hún ráðskona í Sandgerði við báta frá Eskifírði og eitt sumar vann hún í mötu- neyti hjá síldarverksmiðju við Eyjaijörð. Aftur var haldið á Norð- fjörð, þar sem hún svo opnaði og rak sjálfstæða matsölu síðustu tíu árin sín þar. Þegar hér var komið sögu átti hún eignina skuldlausa, seldi og flutti aftur til Homafjarð- ar. Við komuna til Hafnar kaupir hún neðri hæðina í Garði, gamla kaupmanns- og læknishúsinu, sem er á besta stað í bænum. Þar kem- ur hún sér upp notalegu heimili. Mátti þar sjá fallega handavinnu hennar eigin handa prýða tvær samliggjandi stofur, þar sem áður var fyrsta landsímastöðin á Höfn. Má vel vera að þar hafí einnig sveimað um loftin huglægur and- blær hinna þriggja kaupmannsd- ætra sem þar réðu tökkum og tól- um um langan aldur og þekktar voru fyrir söng sinn og gleði. Enn tekur Margrét við mat- reiðslustörfum við endurkomuna á Höfn og nú í mötuneyti KASK þar sem hún starfaði um alllangt skeið. Síðan var frystihúsið á Höfn hennar starfsvettvangur meðan heilsan entist, en það kom að því að kraftar tóku að bila 'og þar við bættist sjúkdómur sem kom í veg fyrir að hún gæti verið lengur ein í húsi og voru það krampaköst. Árið 1981 flytur hún á Skjól- garð, heimili aldraðra á Höfn, þar sem hún fékk þægilega litla íbúð og lét hún sína íbúð ganga upp í þá vistarveru. Góðir vinir hennar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.