Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 21 SIMI 68 98 68 Hófleg bjartsýni um málefni Sýrlands og ísraels Rabin vill láta hluta Gólan- hæða fyrir friðarsamning Jerúsalem, Nikósía. Reuter. Reuter Kúrileyjastúlka við forn trélíkneski í þorpinu Gornoje á eynni ítur- up, einni Kúrileyjanna fjögurra sem Japanir krefjast þess að Rússar skili en eyjarnar hernumdu hinir síðarnefndu í seinna stríðinu. Blaðafulltrúi Jeltsíns sak- ar Japani um óbilgirni Moskvu, Tókíó. Reuter. Vjatsjeslav Kostíkov blaðafulltrúi Borís Jeltsíns Rússlandsforseta skellti í gær skuldinni á Japana vegna frestunar forsetans á heim- sókn sinni til Japans og Suður-Kóreu sem ráðgerð var í næstu viku. Sagði hann óbilgirni Japana í Kúrileyjamálinu um að kenna. Vonast hafði verið eftir því að Rússar cg Japanir næðu samkomu- lagi um framtíð Kúrileyja í Japans- heimsókn Jeltsíns en löndin hefur greint á um þær frá lokum seinna stríðsins. Japanska stjórnin hefur sett það sem skilyrði fyrir meiri- háttar efnahagsaðstoð við Rússa að samkomulag náist. Kostíkov sagði í samtali við Iz- vestíu að ósveigjanleiki leiðtoga Frjálslynda lýðræðisflokksins, er færi með stjórnartaumana í Tókíó, í afstöðunni til Kúrileyja hefði gert ferðina heldur tilgangslitla. Japanskir og suður-kóreskir leiðtogar sögðu í fyrradag að Rúss- ar hefðu gefið þá skýringu á frest- un heimsóknarinnar að Jeltsín yrði að veija hverri stundu til úrlausnar brýnna vandamála heima fyrir. Michio Watanabe utanríkisráð- herra Japans yppti öxlum í gær er hann var inntur álits á yfirlýs- ,ingum blaðafulltrúa Jeltsíns um að frestunin væri sök japönsku stjórnarinnar. Kiichi Miyazawa forsætisráðherra lét í ljós von- brigði með frestunina sem átti sér stað einungis fjórum dögum áður en von var á Jeltsín til Tókíó. Miy- azawa sagðist hafa átt símasamtal við Rússlandsforsetann þar sem hann sagðist verða fresta heim- sókninni í það minnsta um nokkra mánuði. Embættismenn í Tókíó sögðust efins um að af heimsókn- inni gæti orðið á þessu ári. YITZHAK Rabin forsætisráðherra ísraels kvaðst í gær reiðubúinn að láta af hendi land ef samið yrði um frið við Sýrlendinga. Haft var eft- ir Hafez al-Assad forseta Sýrlands að hver einasti blettur Gólanhæða þyrfti að fylgja friðarsamningum. Hvor aðili telur hinn hafa náigast samkomulag og báðir lýsa hóflegri bjartsýni um friðarviðræður. Rabin sagði í útvarpsviðtali að Sýrlandsstjórn yrði að leggja sig fram í friðarviðræðum áður en hann myndi ræða miðlun landsvæða í Gólanhæðum. Hann var hershöfð- ingi árið 1967 þegar ísrael tók hæð- irnar á sitt vald og hyggst ekki gefa Sýrlendingum þær eftir að fullu. En í viðtalinu kvaðst hann ítreka að ísraelar vildu fylgja fram samþykkt- um Öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna um eftirgjöf hernuminna svæða í skiptum fyrir friðarsamning um endalok stríðsins og opin landa- mæri milli Sýrlands og Israel auk stjórnmálasambands landanna. Sendiherra Sýrlands í íran, Ahmed al-Hassan, sagði í gær að ísraelar virtust hafa viðurkennt að Gólanhæðir tilheyrðu Sýrlandi. Af- staða Rabins í friðarviðræðum Mið- austurlanda væri heilbrigðari en fyr- irrennarans Yitzhaks Shamirs. Hassan sagði Sýrlendinga vilja semja við ísraela ásamt öðrum Ara- baríkjum, ekki sérstaklega, eins og Rabin hefur lýst vilja til. Viðræður um frið í Miðausturlöndum halda áfram í Washington næstkomandi mánudag. STÍFT NÁMSKEIÐ FYRIR KARLMENN SEM VILJA KOMAST í TOPPFORM HEFST 12. SEPTEMBER ✓ Fitumæling og vigtun ✓ Ráðgjöf ✓ Fyririestrar um rétt mataræði TAKMARKAÐUR FJÖLDI ✓ Hreyfing,stöðvaþjálfun og tækjaþjálfun ✓ Viðurkenningarskjöl ílok námskeiðs með skráðum árangri Eina varanlega leiðin að lækkaðri líkamsþyngd er aukin hreyf- ing og rétt mataræði. Við hjálpum þér að brenna fitu og kennum þér hvemig á að halda henni burtu fyrir fullt og allt. IÁTIÐ SKRÁ YKKUR • A HOTEL ISLANDI DAGANA • 11., 12. OG 18., 19, SEPT. 1992 • BORÐAPANTANIR I S: 687111 HÓTEL j/TOö HUMMEL SKÓR Verð 2.490,- Stærð 28-46 Teg. All-England Verð 6.990,- Stærð 37-48 Teg. Professional leðurskór »hummel^lP SPORTBÚÐIN Ármúia 40, sími 813555. tonlistin úr kvikmyndinni GH Pressan ★★★★ GÁ Vikan nú loksins fáanleg afftur FIÐRILDI OG LJÓN með PÍS OF KEIK er í fyrsta sæti á Vinsældalista íslands DREIFING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.