Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.09.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1992 Erfitt að fá fagfólk til Grænlands GRÆNLENSKU landstjórninni veitist nú erfitt að fá faglært fólk frá Danmörku til starfa í Grænlandi. Þar vantar bæði lækna og hjúkrunarfólk, svo og vélstjóra. Landstjórnin vill ekki, að Danirnir fái nema eina orlofs- ferð til Danmerkur annað hvert ár sér að kostnaðarlausu, en áður fyrr fengu þeir fría ferð þangað á hveiju ári. Þetta er talin ein af ástæðunum fyrir tregðunni. Á landspítalnum í Nuuk hefur reynst ókleift að ráða í 20 af 80 hjúkrunarstöð- um. Hjá rafstöðvum og verk- smiðjum er óráðið í 15 af 80 stöðum vélstjóra. Ruth Lange, talsmaður samtaka hjúkrunar- fólks, sagði í viðtali við Græn- lenska útvarpið, að nauðsynlegt væri að bæta bæði launakjör og vinnuaðstæður heilbrigðisstétta verulega, ef takast ætti að halda uppi svipuðu hjúkrunarstigi í Grænlandi og nú væri gert. Akall frá Filippseyjum MILLJÓN manna á Filippseyj- um hefur orðið fyrir fióðum og aurskriðum úr eldfjallinu Pinatubo en stjómvöld hafa ekki bolmagn til að hjálpa fórn- arlömbunum. Fidel Ramos hefur beðið um hjálp einkaaðila og erlendra vina og Bandaríkja- menn hvetja til alþjóða aðstoð- ar. Ramos hvatti þjóð sína í gær til að leggja pólitísk deiluefni á hilluna og sameinast um að tak- ast á við harmleikinn. Hann segir 200.000 fjölskyldur í nauð- um staddar eftir aurskriður og líf margra þeirra verði tæpast eðlilegt næstu þijú tii fímm ár þar sem ógn af náttúruhamför- um vofí áfram yfir. Fjármála- ráðherra hans segir ríkisstjóm- ina vanta að minnsta kosti 20 milljónir dollara til að gera við vegi, brýr og byggingar sem skemmst hafa í flóðum að und- anförnu. Flugfélög sameinast KANADÍSKA flugfélagið Cana- dian Airlines samþykkti á mið- vikudag tilboð Air Canada um sameiningu fyrirtækjanna. Nýja fyrirtækið, sem stofnað verður, verður í hópi sjö stærstu flugfé- laga í Norður-Ameríku. Tilboð Air Canada var tekið fram yfir tilboð starfsmanna eignarhaids- félags Canadian Airlines, PWA, en samþykkt þess hefði getað leitt til sammna við bandaríska flugfélagið American Airlines. Sameining kanadísku félaganna mun leiða til þess að sex þúsund manns missa atvinnu sína. Gott verð á bræðslufiski VEIÐAR á bræðslufíski við vesturströnd Jótlands hafa gengið vel á þessu ári og verð verið tiltölulega hátt. Brúttó- tekjur af þessum veiðum jukust um 50%, eða 190 milljónir dan- skra króna (1,8 milljarða ísl. kr.) á tímabilinu janúar til júlí miðað við sama tímabil í fyrra, en þá gengu veiðarnar óvenju- lega illa. Veiðst hefur ríflega fjórðungi meira af sandsíli og spærlingi jafnframt því sem verð hefur hækkað um 10%, samkvæmt upplýsingum frá sjávarútvegsráðuneytinu. Þegar á heildina er litið hefur saman- lagður afli samt dregist saman um 4% frá janúar til júlí, eða sem svarar 100 milljónum d. kr., miðað við sama tímabil í fyrra. Samdrátturinn stafar af sáratregri þorskveiði. Reuter Fjöldi aldraðra kommúnista við útför Jaroszevicz RÍKISSTJÓRN og her í Póllandi sendu ekki fulltrúa til útfarar Piotr Ja- roszewicz fyrrum forsætisráðherra og eiginkonu hans sem myrt voru á heim- ili sínu í Varsjá. Fjölmenni var þó við athöfnina í gær, um 5.000 aldraðir kommúnistar og nokkrir fyrrverandi leiðtogar landsins, kvöddu Jaroszewicz. Þeirra á meðal voru Wojciech Jaruzelski fyrrum forseti og Mieczyslaw Rakovski fyrrverandi forsætisráðherra. Menn sóttust hart eftir að taka í hönd Edwards Giereks sem var leiðtogi kommúnista sömu ár og Ja- roszewicz sat í embætti, 1970-1980. Á myndinni sést hann kasta rekum á kistu samstarfsmanns síns. Þing kirknasambands Evrópu Kirkjur í fyrrum Júgóslavíu for- dæmi ofbeldið Á ÞINGI kirknasambands Evr- ópu sem haldið er í Prag var í gær samþykkt einróma ályktun sem send verður kirkjunum í fyrrum Júgóslavíu. Að sögn séra Þorbjörns Hlyns Árnasonar bisk- upsritara sem situr ráðstefnuna er í ályktuninni skorað á kirkj- urnar að lýsa því yfir skýrt og skorinort að þær fordæmi hryðjuverk og stuðli að samtaki og sáttum milli stríðandi aðila. í ályktuninni segir að kirkjunum beri að leggja sitt af mörkum í baráttu gegn þeirri tegund af þjóð- emishyggju sem stuðlar að mann- réttindabrotum og ofbeldisverkum. Þá eru kirkjurnar hvattar til að leggja niður þann sið að blessa vopn. Biskup Irenej frá Serbíu viður- kenndi á þinginu að serbneskir prestar orþódoxu kirkjunnar hefðu sumir hveijir blessað vopn. Það væri gamall siður í landi þeirra en engu að síður ókristilegt athæfi sem ætti að leggjast af. í meginályktun þingsins, sem lýkur í dag, föstudag, er víða fjallað um þjóðernishyggju og varað við þeirri þróun sem er víða merkjanleg í löndum Austur-Evrópu þar sem minnihlutahópar eru ofsóttir og jafnvel strádrepnir. Að sögn bisk- upsritara hefur ekkert fyrirbæri verið jafnharðlega gagnrýnt á þessu þingi eins og þjóðernishyggja og kirkjurnar eru í ályktuninni áminnt- ar um að leggja yfirgangsöflunum ekki lið, heldur þvert á móti stríða gegn þeim og stuðla að sáttum og friði milli þjóða og þjóðarbrota. ------» --------- Skipasmíðar innan EB 135 milljardar í ríkisstyrki Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ÁRLEGIR styrkir til skipasmíða innan Evrópubandalagsins (EB) eru rúmlega 135 milljarðar ís- lenskra króna eða nálægt jafn- virði 135 nýrra frystitogara. Hæst er hlutfall styrkjanna í Dan- mörku en þar fara 32% allra ríkis- styrkja til skipasmíða. Næst kemur Portúgal en skipasmíðar þar fá 27% allra ríkisstyrkja í sinn hlut. Á Spáni er þetta hlutfall 10% en mun lægra í öðrum aðildarríkjum bandalagsins. Styrkir til skipasmíða innan EB eru fyrst og fremst í formi beinna styrkja og niðurgreiddra lána auk skattaívilnana. Danir styrkja skipa- smíðaiðnað sinn árlega með framlagi sem svarar til rúmlega átta milljarða ÍSK, mest í formi niðurgreiddra lána. Önnur aðildarríki beita frekar bein- um framlögum á fjárlögum. Að jafn- aði eru styrkir til skipasmíðastöðva innan EB 34,3% af virðisauka í greininni. Þjóðaratkvæðagreiðslan um Maastricht í Frakklandi Enginn í vafa um afstöðu de Gaulles hershöfðingja París. Reuter. RÚMRI viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Maastricht-sam- komulagið í Frakklandi benda skoðanakannanir enn til að hníf- jafnt sé á mununum milli stuðningsmanna og andstæðinga sam- komulagsins. Kosningabaráttan fer því harðnandi með hveijum deginum og eru ólíklegustu aðilar dregnir fram í sviðsljósið til að lýsa yfir stuðningi eða andstöðu við Maastricht. Meðal þeirra er Antoine Pinay, sem þekktur er fyrir að hafa sem fjármálaráð- herra komið efnahagslífi Frakklands á réttan kjöl á ný í stjórnart- íð Charles de Gaulles hershöfðingja. Pinay, sem nú er hundrað ára gamall, sagði við Frakka: „Ef þið treystið mér, þá skulið þið styðja samninginn". Jafnt stuðningsmenn sem and- stæðingar Maastricht halda því raunar fram að de Gaulle hefði stutt málstað þeirra, væri hann enn á lífi. Andstæðingar sam- komulagsins benda á að í þeirra röðum sé að finna tvo fyrrum for- sætisráðherra de Gaulles, son hans og marga helstu aðstoðar- menn. Jacques Chirac, leiðtogi RPR, flokks ný-gaullista, bendir hins vegar á að hershöfðinginn studdi Rómarsáttmálann, þegar hann var gerður árið 1957, þrátt fyrir að margir helstu stuðnings- manna hans hefðu verið á móti honum. Pierre Beregovoy forsætisráð- herra byrjaði nú í vikunni að koma fram opinberlega til stuðnings Maastricht. Líkt og margir aðrir fylgismanna samkomulagsins er rauði þráðurinn í málflutningi hans að Maastricht skipti sköpum fyrir franskt efnahagslíf. Verði samkomulagið samþykkt muni það skapa hinn sálfræðilega grundvöll fyrir efnahagslegri við- reisn en efnahagslífið steypast í glötun verði því hafnað. Margir helstu frammámanna í frönsku viðskiptalífi hafa tekið í sama streng en þó ekki allir. Þannig heldur- Jacques Calvet, forstjóri Peugot, því fram, að Maastricht þýði að yfir Frakkland muni skella holskefla japanskra bifreiða og að völdin muni lenda í höndum skrif- finna í Brussel er hafi meiri áhyggjur af verðstöðugleika en hagvexti. Eiturlyfjasalar og alnæmissjúklingar Charles Pasqua, einn helsti bar- áttumaðurinn gegn Maastricht, telur einnig að samþykkt sam- komulagsins muni hægja á hag- vexti og fækka atvinnutækifærum í Frakklandi. Því til viðbótar muni landið einungis verða að héraði innan Evrópu galopið fyrir innrás eiturlyfjasala og alnæmissjúkl- inga. „Höfnum Maastricht svo að Frakkland megi lifa,“ segir Pasqua. Á vinstri vængnum er það Jean Pierre Chevenement, fyrrum varnarmálaráðherra, sem reynir að sannfæra sósíalista um réttast sé að hafna samkomulaginu og Charles de Gaulle hershöfðingi. Hvar hefði atkvæði hans lent? hefur hann fengið Danan Holger Nilssen, sem leiddi baráttuna gegn Maastricht í Danmörku, til að vera sér innan handar í þeim efn- um. Um fimmtungur kjósenda Sósíalistaflokksins er andvígur Maastricht samkvæmt skoðana- könnunum og reynir Beregovoy nú að fá þá inná flokkslínun á ný. „Sósíalísk menning hefur ávallt verið alþjóðasinnuð. Ég skil ekki hvernig sósíalistar geti verið andsnúnir evrópskri sameiningu," segir forsætisráðherrann. Bændur harðastir í andstöðunni Sú stétt sem hörðust er í and- stöðu sinni eru franskir bændur. Um 70% þeirra ætla að greiða atkvæði gegn Maastricht-sam- komulaginu, þó að í þessu sam- komulagi um efnahagslegan og pólitískan samruna Evrópubanda- lagsríkjanna, sé ekki að finna eitt einasta orð um landbúnað og að Evrópubandalagið sé í raun efna- hagsleg lífæð þeirra. Jean-Marc Boussard hjá rannsóknarstofnun franska landbúnaðarins skýrir þetta á eftirfarandi hátt: „Þeim gæti ekki staðið meira á sama um Maastricht-samkomulagið sjálft. Það sem bændur eru að segja er: „Brussel hefur ekki verndað okk- ur. Við ætlum að greiða atkvæði gegn Brussel“.“ Franskir bændur, sem ekki eru þekktir fyrir hófsemi og umburðarlyndi, eru heldur ekk- ert að fela það að þeir setja sama- semmerki milli Maastricht og CAP, hinnar sameiginlegu land- búnaðarstefnu EB. „Ef samkomu- lagið fellur þá setur það frönsku ríkisstjórnina og framkvæmda- stjórn EB úr jafnvægi. Þá verður auðveldara að koma á endurbótum á landbúnaðarstefnunni," segir Claude Carre, leiðtogi róttæku bændasamtakanna Coordination Rurale. Skilboð hans til bænda á áróðursfundum eru eftirfarandi: „Bandarískur matur, japanskir bílar, kínversk föt og franskir at- vinnuleysingjar. Það er Maas- tricht." Stjórnmálamenn hafa hins veg- ar ekki margir tekið undir þessa röksemdarfærslu. Þegar grátandi bóndi kom fram í sjónvarpi í síð- ustu viku og kvartaði yfir því að ríkið væri að fremja „þjóðarmorð" [svo!] á bændum var svar Franco- is Mitterrands forseta þurrt og einfalt: „Bændur væru útdauðir nú þegar ef reglur EB hefðu ekki komið til“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.