Morgunblaðið - 27.08.1991, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1991
íslansþingið í Garðaskóla:
Helgi Olafsson hefur unnið
fjórar fyrstu skákirnar
Skák
Bragi Kristjánsson
FJÓRUM umferðum er lokið í
landsliðsflokki á Skákþingi ís-
lands, sem nú stendur yfir í
Garðaskóla í Garðabæ, þegar
þessar línur eru ritaðar. Helgi
Ólafsson hefur góða forystu
með 4 vinninga, en Jóhann
Hjartarson kemur næstur með
þijá.
Urslit:
2. umferð: Helgi Áss Grétars-
son — Róbert Harðarson, 'h;
Margeir Pétursson — Héðinn
Steingrímsson, 1—0; Halldór
Grétar Einarsson — Jón L. Árna-
son, 'A; Jóhann Hjartarson —
Karl Þorsteins, 'k; Þröstur Þór-
hallsson — Sigurður Daði Sig-
fússon, 1—0; Helgi Ólafsson —
Snorri G. Bergsson, 1—0.
3. umferð: Héðinn — Helgi
Áss, 0—1; Róbert — Helgi ÓL,
0—1; Jón L. — Margeir, 'h; Karl
— Halldór Grétar, 'h; Sigurður
Daði — Jóhann, 0—1; Snorri —
Þröstur, 0—1.
4. umferð: Helgi Áss — Jón
L., 0—1; Róbert — Héðinn, 1—0;
Margeir — Karl, 0—1; Halldór
Grétar — Sigurður Daði, 'h; Jó-
hann — Snorri, 1—0; Helgi Ól. —
Þröstur, 1—0.
Staðan eftir 4. umferð (Elo-stig
í sviga):
1. Helgi Ólafsson (2525), 4 v.
2. Jóhann Hjartarson (2550), 3 v.
3. -5. Jón L. Ámason (2520), 2'h v.
3.-5. Karl Þorsteins (2470), 21h v.
3.-5. Þröstur Þórhallsson (2425), 2'k
v.
6.-7. Margeir Pétursson (2540), 2 v.
6.-7. Róbert Harðarson (2310), 2 v.
8.-9. Halldór G. Einarson (2320), \'k
v.
8.-9. Helgi Áss Grétarsson (2245),
\'k v.
10.—11. Héðinn Steingrímsson (2505), 1
v.
10,—11. SigurðurD. Sigfússon (2270), 1
v.
12. Snorri G. Bergsson (2285), 'h v.
Stórmeistararnir hafa verið
mikið í sviðsljósinu á mótinu.
Helgi Ólafsson teflir manna best
og hefur lagt alla andstæðinga
sína að velli til þessa. Jóhann tefl-
ir vel að vanda og hefur þrjá. vinn-
inga. Jón L. hefur 2,'h vinning,
en Margeir hefur aðeins helming
mögulegra vinninga. Sá síðast-
nefndi missti vinningsstöðu gegn
Róbert niður í jafntefli í fyrstu
umferð og tapaði baráttuskák fyr-
ir Karli í þeirri fjórðu.
Karl og Þröstur hafa báðir teflt
vel, en erfitt verður að ná stór-
meistaraáfanga, 8V2 v.
íslandsmeistari síðasta árs,
hinn 16 ára gamli Héðinn Steingr-
ímsson, vann örugglega í fyrstu
umferð, en í næstu skák lék hann
sig í mát í erfiðri stöðu gegn
Margeiri. Töp í næstu tveim um-
ferðum hafa gert vonir hans um
síðasta áfanga alþjóðlegs titils að
engu.
Hann þarf 6‘/2 vinning f mótinu
til að hljóta titilinn. Héðinn þarf
ekki að örvænta, þótt illa gangi
enn sem komið er í þessu móti
og alþjóðatitillinn sé genginn hon-
um úr greipum. Hann er orðinn
geysisterkur skákmaður, þrátt
fyrir ungan aldur, og alþjóðatitill-
innkemur örugglega á næstunni.
Árangur Róberts Harðarsonar
er athyglisverður, og hinn bráð-
efnilegi Helgi Áss Grétarsson,
sem aðeins er 14 ára, hefur stað-
ið sig vel.
Við skulum að lokum sjá
skemmtilega skák úr fjórðu um-
ferð.
Hvítt: Helgi Ólafsson.
Svart: Þröstur Þórhallsson.
Drottningarbragð.
1. c4 - e6, 2. Rc3 - d5, 3.
d4 — Rf6, 4. cxd5 — exd5, 5.
Bg5 — c6, 6. e3 — Be7, 7. Dc2
- 0-0, 8. Bd3 - Rbd7, 9. Rf3 -
He8, 10. 0-0 - Rf8, 11. h3 -
Leikur Helga hefur verið vin-
sæll undanfarin ár, en áður var
oft leikið 11. Habl — a5, 12. a3
— Re4, 13. Bxe7 — Dxe7, 14.
b4 — Bf5, 15. Bxe4 — dxe4, 16.
Re5 — axb4, 17. axb4 — f6, 18.
Rc4 — Be6 með betra tafli fyrir
hvítan.
11. - g6, 12. Bxf6 - Bxf6,
13. b4 - Be7
í skákinni Portisch-Beljavskíj,
Linares 1989, jafnaði svarturtafl-
ið með 13. — Re6, 14. Hfdl —
a6, 15. Habl — Be7, 16. a4 —
Bd6, 17. Hel - Rg5, 18. Rxg5
— Dxg5, 19. Kfl - Be6 o.s.frv.
14. Habl - a6, 15. Hfdl -
Bd6
Þröstur hefði getað komist yfir
í stöðuna í fyrmefndri skák með
15. - Re6.
16. e4!? -
Djörf ákvörðun, því að takist
svörtum að veijast sókn hvíts, þá
verður peðið á d4 mjög veikt.
16. — dxe4, 17. Rxe4 — Bf5
Með þessum leik nær svartur
kaupum á hinum hættulega hvíta
biskupi á d3, en eftir það fá hvítu
riddararnir fijálst spil og svartur
verður veikur á hvítu reitunum,
skálínunni a2-g8, þó sérstaklega
f7. Til greina kemur 17. — Be6,
18. Rc5 - Dc7, 19. Rxe6 -
(svartur hótaði 19. — Bd5) Rxe6
o.s.frv.
18. Rc5 - Bxd3, 19. Dxd3 -
Dc7, 20. Re4 - Be7, 21. Re5 -
Rd7, 22. Dg3 -
Hótar 23. Rxg6 — Dxg3, 24.
Rxe7n— ásamt 25. Rxg3.
22. - Hac8
Eftir 22. — Rxe5, 23. dxe5 —
Had8, 24. Rd6 — Bxd6, 25. exd6
— Dd7 er svarta staðan gleði-
snauð, en hvítur gæti lent í erfið-
leikum með að knýja fram vinn-
ing.
23. f4 - Kg7, 24. Db3 -
Hf8, 25. Rc5 - Rf6?
Yfirsjón, sem leiðir til tapaðrar
stöðu í nokkrum leikjum. Nauð-
synlegt var að drepa annan hvorn
hvíta riddarann.
26. Rxf7! - Bxc5, 27. Rg5! -
Bxd4+, 28. Hxd4 - Kh8, 29.
Hbdl -
Ekki 29. Re6 — Db6 o.s.frv.
29. - De7, 30. Dc3! - c5!
Svartur getur ekki mætt
hvítum á d-línunni: 30. — Hcd8?,
31. Hxd8 - Hxd8, 32. Hxd8+ -
Dxd8, 33. Rf7+ og hvítur vinnur.
31. Hd6! -
Eftir 31. Hd7 - cxb4, 32.
Dxc8?? — De3+ vinnur svartur.
31. — cxb4,32. De5! — Dxe5
Eða 32. - Hce8, 33. Re6 - Hg8
(33. - Hf7, 34. Hd7! - Dxe6,
35. Dxe6 — Hxe6, 36. Hxf7 og
vinnur) 34. g4! og svartur á ekk-
ert svar við hótuninni 35. g5, sem
vinnur mann.
33. fxe5 - Re8, 34. Hd7 -
Hc7, 35. Hxc7 - Rxc7, 36. Hd7
- Rb5, 37. Rxh7 - Hf5 og svart-
ur gafst upp um leið og hann lék
37. leik, því hann á gjörtapaða
stöðu eftir 38. Rf6 —■ Hxf6 (ann-
ars 39. Hh7 mát) 39. exf6 o.s.frv.
Bjarnhéðinn Elíasson
skipstjóri, Vestmanna-
eyjum - Afmæliskveðja
Svo frambærilega á hann til að
tvinna á íslenskri tungu að annað
eins bál þekkja menn varla í orð-
anna hljóðan, enda orti Ási í Bæ
slagara um Bjamhéðin Elíasson
skipstjóra þar sem segir að tvisvar
sinnum hafi hann tvinnað með
slíkum gný að talstöðin sprakk.
Bjarnhéðinn Elíasson skipstjóri og
útgerðarmaður í Vestmannaeyjum
er sjötugur í dag. Hann er sér-
kennileg blanda af sóknarhug sem
jaðrar við grimmd, gamansemi og
góðvild, en um áratuga skeið var
hann í hópi harðsæknustu sjó-
manna og skipstjóra þessa lands,
aflakló sem var veiðimaður af
Guðs náð.
Hann vílaði ekki fyrir sér pusið,
sveitastrákurinn sem kom frá
Oddhól á Rangárvöllum, sonur
Elíasar Steinssonar og Sveinbjarg-
ar Bjarnadóttur. Hann var um
árabil einn af togarajöxlunum,
síðar stýrimaðuiy hjá frænda
sínum, Sighvati í Ási, Sigga Vídó
og fleiri ofurhugum og aflaklóm,
skipstjóri hjá Ársæli Sveinssyni frá
Fögrubrekku á ísleifi III. lengst
og síðan útgerðarmaður og skip-
stjóri á eigin bát, Elíasi Steinssyni
VE 167. Eins og svo margir fasta-
landspiltarnir festi Bjamhéðinn
ráð sitt úti í Eyjum og þar hefur
hann unað glaður við sitt í storma-
sömu mannlífi og stormasömu
hjónabandi með henni Ingibjörgu
sinni, eins og hann hefur tekið
vægt til oröa, en sérstæð og hug-
ljúf er virðingin sem þeir tveir eld-
hugar bera hvor fyrir öðrum.
„Ég er nú ekki að mylja moðið
í þessa helv.djöf.andsk.,“ og svo
framvegis hefur ósjaldan verið
millikafli í hressilegum orðræðum,
ýmist um borð í lúkamum eða við
eldhúsborðið í Ásnesi og hvort sem
hefur verið í starfí eða leik hefur
Bjarnhéðinn verið hrókur alls
fagnaðar, enda kann hann að
koma orðum að hlutunum án þess
að menn eigi á hættu að drepast
úr værð eða leiðindum. Það hefur
oft hrikt í hressilega þar sem hann
hefur farið um hlöð, ekki vegna
þess að hann fari offari heldur
vegna þess að hann hefur haft svo
gaman af lífinu og lífsgildunum
sem skapa titring í mannlífinu.
Þótt hann hafi löngum haft gaman
af að skjóta nett á gesti og gang-
andi þá hefur hann haft enn meiri
unun af því þegar vinir hans og
kunningjar taka hann sjálfan nett-
um tökum og prakkaraskapurinn
hefur verið í hávegum hafður þeg-
ar færi hefur gefist. Það var ekki
alltaf mikið öryggi í svipnum hjá
ungum brúðguma sem kom í
blómabúðina hjá Ingibjörgu til
þess að sækja brúðarvöndinn, en
rakst þar á Bjarnhéðin, sem með
vel völdum orðum benti brúðgu-
manum á að nú væri hann að
gera mestu mistökin á ævinni og
enn væri hægt að snúa út úr brim-
garðinum. En sem betur fer ganga
þeir stundum í gildruna þessir
karlar og það voru svangir menn
sem fengu einu sini boð um það
í Matsstöðinni að þeim yrði send
ijómaterta með síðdegiskaffinu.
Þeir slepptu hádegismatnum í til-
efni dagsins og hámuðu síðan í
sig ijómatertuna í kaffítímanum
með glensi og gamni í hávegum
þar til magaverkirnir fóru að segja
til sín, en uppétin tertan reyndist
þá svamptætla með ijóma, sultu
og ávöxtum. Þeir höfðu víst átt
eitthvað inni hjá Einari á Fiskiðju-
vigtinni.
Það hefur verið lærdómsríkt og
hlýlegt í senn að fylgjast með þess-
um sérstæða persónuleika og njóta
leiðsagnar hans og liðveislu í föð-
urhúsum. Þar um borð tíðkaðist
að gera hlutina strax og er þá vel
og engan helvítis moðreyk. Fréttir
af styijöldum um þvera jörð voru
léttvægar miðað við þær orrustur
og rökræður sem áttu sér stað á
hversdagsvelli Eyjaskipstjóranna
og sjómannanna. Þeir kunnu að
slá um sig hvort sem var í miðri
aðgerð eða á Hótel Sögu á fundum
útvegsmanna þegar þeim þótti
vissara að leigja eins og eina hæð
til þess að hafa frið til að syngja
gömlu góðu lögin. Mörg eru þau
stóru orðin sem hafa' fallið í tímans
rás hjá eitilhörðum skipstjóra, en
allt hafa þetta verið vinir hans og
stóru orðin reyndust aðeins snerp-
an sem kynnti undir kærleikans,
hvort sem um var að ræða skip-
stjóra sem skáru hann í sjó, skip-
herra sem voru að „skipta sér af“
eða 'háseta sem vogaði sér að
malda í móinn þótt ræst væri í
brælu. Allt eru þetta vinir hans,
því fyrst og fremst hefur honum
verið annt um skipveija sína og
samferðamenn. Undir brattri bár-
unni leynist nefnilega fíngerð og
viðkvæm sál sem býr þar í ró og
næði þótt útlit hússins sé allt ann-
að. Sumir vilja lifa eftir stimpil-
klukku og gera sér dagamun ein-
staka sinnum, fara í leikhús og
annað slíkt. Þeir sem hitta Bjarn-
héðin Elíasson á góðum stundum,
þeir stimpla sig ekki út og þeir
þurfa ekki að fara í leikhús neitt
sérstaklega, því hann er einn af
samferðamönnunum sem óafvitað
hefur gert hversdagsleikann að
lífsins kómidí. Spjalltaktur hans
er samur við sig og mikið held ég
að Ólafur Ragnar, Steingrímur og
Jón Baldvin nytu þess að fá tæki-
færi til þess að svara honum þeg-
ar hann hellir sér yfir þá í út-
varps- og sjónvarpsþáttum. Ugg-
laust bjóða þau hjónakomin upp á
kaffi í kvöld og kannski finnst eitt-
hvað af flöskunum sem máttu
ekki sjást á heimilinu á lokadaginn
fyrir Ingibjörgu, nema á bak við
stóla, skápa og annað sem til féll.
Þannig hefur líf þeirra Bjarnhéðins
og Ingibjargar verið í góðu sam-
komulagi með ýmsum reglugerð-
arbreytingum. Heill þér pabbi, sjö-
tugum, haltu þínu striki.
Addi
XJoföar til
Xlfólks í öllum
starfsgreinum!
Ferðamáiaskóli ísiands
Nýtt nám á íslandi
Feröamálaskóli íslands er rekinn í samvinnu viö Félag íslenskra Feröaskrifstofa.
Tilgangur hans er að þjálfa upp fólk til starfa á ferðaskrifstofum.
Námið er stundað í dagskóla kl. 13 til 17 alla virka daga á tímabilinu október til mars.
Námsefni er að veruiegu leiti á ensku, og verða nemendur því að hafa gott vald á málinu.
Innritun og frekari upplýsingar á skrifstofu skólans frá kl. 09 til 17 alla virka daga.
® Stmi 67 14 66 ® Simi 67 14 66
Ferðamálaskóli Islands Höfðabakka 9