Morgunblaðið - 19.11.1989, Side 25

Morgunblaðið - 19.11.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1989 25 og sala íbúðar Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða, sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989. Hvað eru húsbréf ? Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar getur fengið „ hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út. Húsbréf eru verðtryggð og gefin út með föstum vöxtum til 25 ára. Gengi þeirra er opinberlega skráð daglega. Húsbréf eru með ríkisábyrgð og undanþegin skatti. Hvemig fer sala íbúðar fram? a \ Umsögn ráðgjafastöðvar er V \ skilyrði fyrir tilboði. Allir kaupendur í húsbréfakerfinu verða að hafa í höndum skriflega umsögn ráðgjafastöðvar Húsnæðisstofnunar um greiðslugetu sína og kaupverð íbúðar, áður en þeir geta gert seljanda kauptilboð. Seljandi fær kauptilboð. Tilvonandi kaupandi sýnir seljanda umsögn ráðgjafastöðvar og gerir honum kauptilboð með tilliti til greiðslugetu sinnar skv. umsögninni. gengið að tilboði, fer tilvonandi kaupandi fram á skuldabréfaskipti við húsbréfadeildina. Afgreiðsla húsbréfadeildar. A Húsbréfadeild metur veðhæfni íbúðar og matsverð og athugar greiðslugetu væntanlegs kaupanda. Samþykki hún kaupin, sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveð- bréfið, útgefið á nafni seljanda. seljanda. íbúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér kaupsamning og kaupandi afhendir seljanda fasteignaveðbréfið. Tilboði tekið með fyrirvara um k skuldabréfaskipti. Þegar samkomulag hefur náðst um kaupverð, samþykkir seljandi kauptilboðið með fyrirvara um skuldabréfaskipti við húsbréfadeild Húsnæðisstofn- unar. Allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar getur verið fasteignaveðbréf sem kaupandinn gefur út og seljandinn fær skipt fyrir húsbréf. Fasteignaveðbréfin geta verið tvö, ef seljandi þarf að aflétta skuldum sem kaupandi tekur ekki við, frumbréf og viðauka- bréf. Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars si. og hafa lánsrétt. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS • ' HÚSBRÉFAOEILD SUÐURLANDSBRAUT 24 -108 REYKJAVÍK SÍMI • 696900 \ * V íAí------— Kaupandi lætur þinglýsa kaupsamningnum. Seljandi lætur þinglýsa fasteignaveðbréfinu. Seljandi skiptir á fasteignaveðbréfi fyrir húsbréf. Óski seljandi eftir því að fá húsbréf, fær hann þau afhent hjá húsbréfadeildinni í skiptum fyrir fasteignaveðbréfið. Húsnæðisstofnun annast inn- heimtu fasteignaveðbréfsins af kaupanda, enda orðinn eigandi þess, þegar hér er komið. q, \ Seljandi ráðstafar húsbréfunum \ \ að vild. Seljandi getur átt bréfin, notað þau við íbúðarkaup eða leyst þau út. SAMEINAÐA/SÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.