Morgunblaðið - 19.11.1989, Side 10
MCSlÉGUWBI.ÁDrt) SUNNUÐAGÖft H-9.' NÓVEMBEK 11)89
TVEIR HEIMAR
Fólkið og pólitíkusamir
eftir Önnu Bjarnadóttur.
MAÐUR um sextugt var á leið
heim eftir að hafa gengið um á
Kurfíirstendamm í vesturhluta
Berlínar í klukkutíma eftir 28
ára bið. „Ég vildi bara sann-
reyna að ég mætti það,“ sagði
hann. „En nú held ég aftur heim
til Leipzig og tek þátt í kröfu-
göngunni þar á mánudag eins
og undanfarnar vikur. Barátt-
unni er ekki lokið.“ Hann er
einn úr fjöidanum sem fékk loks
málið eftir að þúsundir flúðu
Austur-Þýskaland. Þrýstingur
borgaranna’kom því til leiðar
að valdamenn opnuðu landa-
mærin 9. nóvember og að
Kommúnistaflokkurinn er far-
inn að tala um kosningar. En
íbúar Leipzig halda mótmælun-
um áfram. Þeir gera gys að
flokknum og krefjast ftjálsra,
leynilegra kosninga.
„ Við erum orð-
vör af vana og
höfum lœrt að
lesa á milli
línanna. En nú
þorir fólk að
segja sannleik-
ann. “
Morgunblaðið á
slóðum sögu-
legra tímamóta í
Austur-Evrópu
ustur-þýska þingið gekk í fyrsta
sinn svo langt að halda leynilega
atkvæðagreiðslu mánudaginn eftir
þriggja daga fagnaðarfund þýsku
þjóðarinnar. Forseti þess og þingráð
höfðu sagt af sér. Kommúnista-
flokkurinn bauð ekki fram í embæt-
tið en hinir þingflokkarnir fjórir,
sem hafa haldið sig á mottunni
hingað til, og ein fjöldahreyfingin
af fimm, sem eiga fulltrúa á þingi,
buðu fram í þingforsetaembættið.
Alls 500 sitja á þingi, þar af eru
127 fulltrúar Kommúnistaflokksins
sem ber ábyrgð á stjórn og rekstri
landsins samkvæmt 1. grein stjórn-
arskrárinnar, 208 þingmenn hinna
flokkanna og 365 þingmenn fjölda-
hreyfinganna. 478 greiddu at-
kvæði. Það tók góða stund að telja
þau. Einn þingmaður las hvern seð-
il upphátt og fulltrúar flokkanna
fylgdust grannt með. Enginn fram-
bjóðenda náði meirihluta í fyrstu
umferð svo að það var kosið aftur
á milli dr. Manfreds Gerlachs, fram-
bjóðanda Frjálslynda flokksins, og
dr. Gúnthers Maleuda, frambjóð-
anda Bændaflokksins. Hlé var gert
á þingstörfum svo flokkarnir gætu
borið saman bækur sínar. Fundin-
um var sjónvarpað beint. Frétta-
maður austur-þýska sjónvarpsins
spurði fulitrúa Æskulýðsfylkingar-
innar hvað þeir ætluðu að kjósa.
Þeir litu undrandi á spyrjandann
og bentu grafalvarlegir á að kosn-
ingarnar væru leynilegar. Sigur
formanns Bændaflokksins lá loks
fyrir en þá höfðu nokkrir heyrst
hafa orð á að það þyrfti að tækni-
væða þingið og setja upp nútíma
tæknibúnað fyrir atkvæðagreiðslur.
Maleuda sigraði Gerlach með 16
atkvæða mun. Hann er lítt þekktur
og flestir höfðu spáð Gerlach sigri.
Ekki er ljóst hvort þingheimur
hegndi honum fyrir náið samstarf
við Erich Honecker, fv. leiðtoga
Kommúnistaflokksins og landsins,
í áraraðir eða fyrir umbótasinnaðar
skoðanir sem hann hefur látið í ljós
að undanförnu. Honecker hefur nú
verið vísað úr þingflokki kommún-
ista ásamt konu hans og fleirum
fyrrum valdamönnum. Þingið kaus
Hans Modrow, frambjóðanda
Kommúnistaflokksins, forsætisráð-
herra. Hann var einn í framboði og
aðeins einn greiddi atkvæði gegn
honum.
Úti fyrir Höll lýðveldisins, þar
sem þingið kom saman og keppni
í samkvæmisdönsum var haldin í
anddyrinu á sunnudag, var verið
að setja upp rytjulegt jólatré. Tveir
menn höfðu umsjón með því. Annar
var jafngamall Alþýðulýðveldinu og
hinn níu árum yngri. Þeir höfðu
báðir drifið sig yfir í vesturhluta
borgarinnar um helgina. ’ „Það
skreppa auðvitað allir þangað eins
fljótt og þeir geta.“ Þeir hlógu þeg-
ar þeim var sagt að ungur, einkenn-
isklæddur vörður við höfuðstöðvar
Kommúnistaflokksins hefði lýst því
yfir að hann hefði engan áhuga á
að fara þangað. „Hann segir annað
þegar hann er kominn úr búningn-
um,“ sögðu þeir. Sá eldri sá ekkert
athugavert við að þýsku ríkin
myndu sameinast. „Ibúarnir eru jú
allir Þjóðverjar," sagði hann. „Af
hveiju ættum við ekki að búa í
sama landi.“ Félagi hans var ekki
eins viss. Honum þótti vænt um
Alþýðulýðveldið. „Við þurfum að
byggja það upp,“ sagði hann. „Það
þarf að leyfa fijálsar kosningar og
auka ábyrgð einstaklingsins. Ég sé
ekki af hveiju við ættum ekki að
geta haft það eins gott í eigin landi
og íbúar Sambandslýðveldisins. Við
vinnum jafn mikið og þeir.“
Vestur-þýskir stjórnmálamenn
og fjölmiðlar endurtaka sí og æ að
samruni ríkjanna sé ekki á dag-
skrá. Hægri flokkarnir og Willy
Brandt, fv. kanslari jafnaðarmanna
og borgarstjóri Berlínar, viður-
kenna þó að það tíminn einn skeri
úr um hvenær það verði. Brandt
sagði „nú vex saman það sem til-
heyrir saman“, eftir að landamærin
voru opnuð og þingflokksformaður
kristilegra sósíalista sagði að það
ætti að halda þjóðaratkvæða-
greiðslu í báðum ríkjunum um
samrunann eftir að fijálsar kosn-
ingar verða haldnar í Alþýðulýð-
veldinu. Jafnaðarmenn og græn-
ingjar hamra hins vegar á að Aust-
ur-Þýskaland sé og verði sjálfstætt
ríki og telja ekki rétt að þýska þjóð-
in í vestri ráðleggi þeirri í austri.
61 miiljón manns býr í Sambands-
lýðveldinu en 16 milljónir í Al-
þýðulýðveldinu.
Logum samkvæmt á að halda
kosningar árið 1991 í Austur-
Þýskalandi. Hvort leiðtogar lands-
ins bíða svo lengi er óvíst. Borgar-
arnir krefjast kosninga en flokkar
og stjórnmálahreyfingar eru óund-