Morgunblaðið - 20.10.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987
7
Leggja rör
fyrir fram-
tíðina
„VTÐ erum að leggja rör inn í
hús Pósts og síma til að tryggja
okkur greiða aðkomuleið fyrir
strengi sem lagðir verða í
framtíðinni," sagði Kristinn
Einarsson, deUdartæknifræð-
ingur hjá Póst- og símamála-
stofnun. Undanfarnar vikur
hafa starfsmenn stofnunarinn-
ar unnið við að leggja rðr í
Fógetagarðinn, Vonarstræti og
víðar í miðbænum.
Kristinn sagði að undanfarin ár
hefðu verið lögð slík rör í flestar
áttir frá húsi Pósts og síma. „Það
var nauðsynlegt að bæta við rörum
og bráðlega verður dreginn ljós-
leiðari í eitt af þessum rörum, frá
miðbæjarstöð inn í Rauðarárstöð,
sem er við Laugaveg 145,“ sagði
Kristinn. „Til þess að svo megi
verða þurfum við að ljúka við að
ganga frá 'Ijamargötu og komast
yfir Kirkjustræti, sem verður von-
andi nú í haust. En fyrst og fremst
erum við að tryggja að við höfum
nóg af rörum í framtíðinni."
Kjarnorkuáætlananefnd NATO:
Fulltrúi f slendinga
situr nefndarfund
í fyrsta skipti
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Einar
Benediktsson, fastafulltrúi ís-
lendinga í höfuðstöðvum Atlants-
hafsbandalagsins i Briissel, sitji
fund Kjarnorkuáætlananefndar
bandalagsins, sem fram fer 4.-5.
nóvember í Monterey í Kali-
fomíu í Bandaríkjunum. Verður
þetta í fyrsta skipti sem íslenskur
embættismaður situr fund nefnd-
arinnar.
Samkvæmt upplýsingum ut-
anríkisráðuneytisins ákvað
Steingrímur Hermannsson utanrík-
isráðherra að senda fulltrúa á fund
nefndarinnar að höfðu samráði við
starfsmenn utanríkisráðuneytisins
og samráðherra sína í ríkisstjóm-
inni. Mun Einar Benediktsson að
líkindum gefa utanríkisráðherra
ítarlega skýrslu að loknum fundin-
um. Fram kom í máli utanríkisráð-
herra á fundi er Samtök
áhugamanna um vestræna sam-
vinnu og Varðberg efndu til á
laugardaginn að búast mætti við
að fulltrúar íslenskra stjómvalda
myndu framvegis sitja fundi Kjam-
orkuáætlananefndar Atlantshafs-
bandalagsins.
Kjamorkuáætlananefndin kemur
saman er þurfa þykir með þátttöku
fastafulltrúa aðildarríkjanna og
Loðnuveiðar
liggja niðri
vegna veðurs
Niðurstöður október-
leiðangurs Hafrann-
sóknarstofnunar
varla
taldar marktækar
LOÐNUVEIÐAR liggja nú
að mestu niðri vegna veðurs
og slæmra skilyrða. Árleg-
um októberleiðangri Haf-
rannsóknastofnunar er nú
lokið og gekk hann erfið-
lega. Niðurstöður liggja enn
ekki fyrir, en hugsanlegt er
að þær reynist ekki mark-
tækar. Fari svo, verður
endanlegur kvóti annað-
hvort byggður á eldri
rannsóknum eða nýr leið-
angur verður farinn.
Októberleiðangurinn hófst
upp úr mánaðamótum og_ var
farinn á tveimur skipum, Áma
Friðrikssyni og Bjama Sæ-
mundssyni. Páll Reynisson
stjómaði leitinni um borð í
Bjama, en Hjálmar Vilhjálms-
son, leiðangursstjóri, var um
borð í Áma. Hjálmar varðist
frétta um niðurstöður leiðang-
ursins í samtali við Morgun-
blaðið, en sagði, að leitin hefði
verið ákaflega snúin. Veður
hefði í upphafí verið andsnúið
leiðangursmönnum og veiði-
stofninn hefði lítið verið
kominn norðan af úr ætis
göngunni. Loðnan hefði í haust
haldið sig vestarlega og væri
lítið komin inn í íslenzku land-
helgina.
A föstudag landaði Jón
Kjartansson SU 180 tonnum á
Eskifírði og Börkur NK 130 í
Bolungarvík. Á mánudags
morgun landaði Rauðsey AK
50 í Bolungarvík og voru þá
öll skipin í höfn og útlit fyrir
að þau yrðu inni einhvem tíma.
tvisvar á ári með þátttöku vamar-
málaráðherra ríkjanna. Fram að
þessu hafa 14 aðildarríki Atlants-
hafsbandalagsins átt fulltrúa í
nefndinni en íslendingar og Frakk-
ar hafa staðið utaq hennar. Frakkar
ákváðu að hætta þátttoku í hemað-
arsamstarfi NATO-ríkja árið 1966
og voru höfuðstöðvar bandalagsins
fluttar í kjölfar þessa frá Frakk-
landi til Briissel í Belgíu.
Á fundum nefndarinnar eru
kjamorkuvamir ræddar svo og önn-
ur þau mál er lúta að afvopnun og
takmörkun vígbúnaðar. Nefndin
kom síðast saman í aprílmánuði í
Stavanger í Noregi.
Sjá ennfremur frásögn af fundi
Samtaka áhugamanna um vest-
ræna samvinnu og Varðbergs á
bls. 62.
Morgunblaðið/Ölafur K. Magnússon
Starfsmenn Pósts og síma leggja rör i Fógetagarðinn.
HUTSCHENREUTHER
GERMANY
Postulín íyrir
þá rómantísku.
Listræn hönnun frá
Karli Lagerfeld.
: -' t--
KRINGLUI
11111