Morgunblaðið - 20.10.1987, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987
5
Helgi J. Halldórsson
HelgiJ. Hall-
dórsson cand.
mag. látinn
HELGIJ. Halldórsson cand. mag.
lést 13. október síðastliðinn tæp-
lega 72 ára að aldri.
Helgi Jósep Halldórsson fæddist
17. nóvember 1915 á Kjalvararstöð-
um í Reykholtsdal. Foreldrar hans
voru Halldór Þórðarson bóndi þar
og kona hans Guðný Þorsteins-
dóttir.
Helgi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1939 og kennaraprófi ári síðar.
Hann lagði stund á íslensk fræði
við Háskóla íslands og lauk þaðan
cand. mag.-prófi 1945.
Sama ár tók hann við starfi kenn-
ara í íslensku og ensku við Stýri-
mannaskólann í Reykjavík og
gegndi því starfi þar til hann varð
sjötugur árið 1985. Síðustu tvö ár
var Helgi stundakennari við skólann
og kenndi í forföllum.
Auk kennslunnar stundaði Helgi
ritstörf. Hann tók saman Enska
lestrarbók handa sjómönnum sem
kom út árið 1954. Meðal annarra
verka hans eru Þættir úr sagnfræði
íslandsklukkunnar og lögmál skáld-
verksins, sem birtist í Á góðu dægri
árið 1951, og Skýringar við Gerplu
sem komu út árið 1956.
Af þýðingum Helga má nefna
skáldsöguna Smaragðinn eftir Josef
Kjellgren, Hús skáldsins, rit um
skáldverk Halldórs Laxness eftir
Peter Hallberg, og Gift og Götu
bemskunnar eftir Tove Ditlevsen.
Þá flutti hann þætti um íslenskt
mál í Ríkisútvarpinu um nokkurt
skeið og gerði þætti um myndlíking-
ar í íslensku máli fyrir sjónvarp.
Eftirlifandi kona Helga er Guð-
björg Guðbjartsdóttir. Þau gengu í
hjónaband 24. febrúar árið 1945
og eignuðust fjórar dætur.
Sambýlisfólk
ákært í
Svefneyjamáli
MAÐUR og kona hafa verið
ákærð fyrir brot gegn ákvæðum
í 22. kafla hegningarlaganna,
sem fjallar um skírlífisbrot. Mál
fólksins, sem er sambýlisfólk,
hefur manna á meðal verið kall-
að Svefneyjamál.
Mál þetta hófst í sumar, þegar
fólkið var kært fyrir að hafa brotið
af sér gagnvart stúlkum, sem voru
hjá þeim í sumarbúðum í Svefneyj-
um. Maðurinn var handtekinn og
sat í gæsluvarðhaldi um tíma og
bæði honum og konunni var gert
að sæta geðrannsókn. Rannsóknar-
lögregla ríkisins sendi málið til
ríkissaksóknara í byijun september
og síðastliðinn föstudag var ákveðið
að höfða opinbert mál á hendur
fólkinu.
Guðmundur L. Jóhannesson, hér-
aðsdómari í Hafnarfírði, fer með
málið. Hann kvaðst í gær ekki vera
búinn að birta sakbomingunum
ákæruna og því gæti hann ekki tjáð
sig nánar um hana.
Við getum hjálpað þér.
í Síðumúlanum er málningarvöruverslun, þar sem
persónuleg þjónusta og fagleg ráðgjöf hefur verið
á oddinum frá upphafi,
jafnt fyrir atvinnumenn
og þá sem hjálpa sér sjálfir.
Við eigum ótrúlegt úrval
af málningarvörum, gólfefnum, parketi,
veggfóðri, jám- og smávöru auk allra efna
og áhalda til að vinna verkið.
Að velja réttu efnin og vinna vel úr þeim,
- þar kemur okkar reynsla þér til góða.
Síðumúla 15, sími (91)-84533
- Réth Liturinn!
Þd Byriar Snemma
Letitna AðRetta Lttnum