Morgunblaðið - 20.10.1987, Blaðsíða 63
f-
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987
63
snúa sér að því að fást við bálið, sem var í herbergi á suðvesturhlið
hússins. Siðan fikruðu þeir sig meðfram veggjum, þar til þeir fundu
manninn í svefnherbergi, fjærst eldinum.
Slökkviliðsmenn bera manninn út úr húsinu. Morgunbiaðia/Juiíus
Reykkafarar björguðu
manni úr brennandi húsi
ELDUR kom upp i húsinu
Drápuhlíð 1 aðfaranótt sunnu-
dagsins. Reykkafarar björguðu
ungum manni út úr húsinu og
liggur hann þungt haldinn af
reykeitrun á gjörgæsludeild.
Slökkviliðinu í Reykjavík var til-
kynnt um eldinn kl. 5.36 um nóttina
og var komið á vettvang tveimur
mínútum síðar. Þá logaði glatt út
um glugga á efri hæð hússins, sem
er tvílyft steinhús. Fimm íbúar
hússins komust út af eigin ramm-
leik, en slökkviliðinu var tjáð að
líklega væri maður inni í brennandi
ibúðinni. Ekki var vitað hvar í íbúð-
inni maðurinn væri.
Tveir reykkafarar voru þegar
sendir inn í íbúðina. Þeir urðu fyrst
að snúa sér að því að slökkva mesta
bálið og hindra að eldurinn breidd-
ist út. Greinilegt var að eldurinn
hafði komið upp í herbergi í suð-
vesturhomi hússins og var það
alelda. Þegar reykkafaramir tveir
voru að slökkva eldinn hmndi
pússning úr lofti næsta herbergis,
sem var einnig farið að brenna, og
mátti litlu muna að annar þeirra
yrði undir henni.
Greiðlega gekk að fást við eldinn
og eftir að hann hafði verið slökkt-
ur að mestu fóru reykkafaramir
meðfram veggjum íbúðarinnar og
leituðu að manninum, sem talið var
í gæslu
vegna
árásar
MAÐUR hefur verið úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald fram í byijun
nóvember, en hann lagði til ann-
ars með hnif aðfaranótt fimmtu-
dags.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu stakk maðurinn annan
mann í hálsinn í íbúð í Vesturbæ
aðfamótt fimmtudags. Á föstu-
dagskvöld var maðurinn úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald fram í byijun
nóvember. Honum var einnig gert
að sæta geðrannsókn.
að væri þar inni. Eftir nokkra leit
fannst hann í svefnherbergi fjærst
eldinum. Fjórtán mínútum eftir að
slökkviliðinu. barst tilkynning um
eldinn var maðurinn kominn í
sjúkrabifreið. Hann liggur nú þungt
haldinn á gjörgæsludeild.
Ibúðin, þar sem eldurinn kom
upp, er nokkuð skemmd eftir brun-
ann. Litlar vatnsskemmdir urðu á
húsinu, enda vom dælur notaðar
til að soga vatn af gólfum íbúðar-
innar. Eldsupptök em ókunn, en
rannsóknarlögregla ríkisins vinnur
að málinu.
Aflamenn
Islands
lesa Fiskifréttir
Ert þú áskrifandi?
Áskriftarsfmi 91-82300
Rexnord
//////fffffl
leguhús
SUÐURLANDSBRAUT 8
Orkin/sIa