Morgunblaðið - 20.10.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1987
INNRmJNTIL
20.0KT.
SÍMI:
621066
HVERNIG MÁ NÁ HÁMARKS-
ÁVÖXTUN SPARIFJÁR, OG ÖFUGT
- HVERNIG FÆST FRAMKVÆMDAFÉ
Á HAGKVÆMAN HÁTT?
Hvernig reiknum við út afföll, gengi verðbréfa og
raunvexti?
Hvaða skattareglur gilda um verðbréf?
Þetta og margt fleira verður fjaiiað um á námskeiðinu.
AÐALLEiÐBEiNENDUR:
Sigurður B. Stefánsson og Gunnar Helgi Hálfdánarson.
TÍMI OG STAÐUfí:
22.-23. okt. kl. 13.15-17.30 að Ánanaustum 15.
Stjórnunarfélag Islands
~= Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66 ^ .
O
<
|
5
w
>
AMNESTY-VIKA1987
FANGAMÁLI
SOMALIA
Yusuf Osman Samantar, þekkt-
ur undir nafninu „Berda’ad",
hefur verið í fangelsi í nær 18
ár, eða síðan núverandi stjóm
komst til valda árið 1968. Hann
var handtekinn nokkrum sinnum
á árunum 1969—1975.
Frá 1975 hefur hann verið í
haldi án dóms og laga vegna and-
stöðu við forseta landsins,
Mohamed Siad Barre og fyrir að
neita að ganga í hinn sósíalíska
byltingarflokk Sómalíu, sem fer
með öll völd í landinu, og er auk
þess eini löglegi stjómmálaflokk-
urinn.
í Sómalíu em í gildi lög, sem
heimila stjómvöldum að setja
menn í hald án þess að hægt sé
að afrýja varðhaldsúrskurðinum
eða fá hann endurskoðaðan. í
krafti þessara laga hefur Samant-
ar setið í fangelsi í 12 ár. Hann
er 55 ára lögfræðingur, sem lagði
stund á stjómvísindi við Rómar-
háskóla, og lauk lagaprófí í
Sómalíu. Hann var virkur í þjóð-
frelsishreyfíngunni og þegar
landið varð sjálfstætt árið 1960
stofnaði hann vinstri sinnuð lýð-
ræðissamtök Sómalíu og gerðist
aðalritari þeirra. Hann sat á þingi
þar til Mohamed Siad Barre komst
til valda með sljómarbyltingu
1969, en þá var þingið lagt niður,
stjómarskráin felld úr gildi og
allir stjómmálaflokkar bannaðir.
Yusuf Osman Samantar er
hafður í stöðugri einangrun í Lab-
atan Jirow sem er sérstakt
öryggisfangelsi í nágrenni
Baidoa. Hann þjáist af lifrarsjúk-
dómi, magasári, háþrýstingi og
vinstri fótur hans er lamaður að
mestu leyti vegna gamalla
meiðsla. Samt fær hann litla sem
enga læknishjálp. Allan tímann í
varðhaldinu hefur honum verið
meinað að fá fjölskyldu sína í
heimsókn eða vera í bréfasam-
bandi við hana. Hann fær ekkert
að lesa og fær ekki að ræða við
lögmann.
Vinsamlegast sendið kurteis-
legt bréf og beiðist þess að Yusuf
Osman Samantar verði skilyrðis-
laust látinn laus þegar í stað.
Skrifíð til:
Híb Excellency Mohamed Siad Barre,
President of the Somali Democratic
Republic,
People’s Palace,
Mogadishu,
Somalia.
■
" ■ ■
Haustlitir á Agfa litskyggnu
FRAMKÖLLUN Á AGFA LITSKYGGNUM
Nú býðst á íslandi framköllun á Agfa litskyggnum.
Agfa umboðið og Ljósmyndavinnustofan Myndverk
hafa sameinast um þessa þjónustu
við íslenskt áhugafólk um litskyggnuljósmyndun.
Verð á framköllun hverrar filmu . kr. 295
36 myndir í plastramma .......kr. 235
24 myndir í plastramma .......kr. 210
Ókeypis textaprentun á ramma ef óskað er
MÓTTÖKUSTAÐIR: í REYKJAVÍK
HRAÐFILMAN .
TÝLI,
AMATÖR,
Drafnarfelli 12
Austurstræti 3
Laugavegi 82
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN, Laugavegi 178
UTAN REYKJAVÍKUR
BÓKAVERSL. ANDRÉSAR NÍELSSONAR, Akranesi
NÝJA FILMUHÚSIÐ, Hafnarstræti 106, Akureyri
FÓTÓ UÓSMYNDAWÓNUSTA, Bárustíg 9, Vestm.
HLJÓMVAL, Hafnargötu 28, Keflavík
FILMAN SF, Hamraborg 3, Kópavogi
Litadýrd haustsins geymist vel
MEÐ AgFA.
Stefan Thorarensen
Siöumula 34 108 Reykjavik
myndverk
Ármúla 17 108 Reykjavlk