Morgunblaðið - 16.03.1985, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1985
fclk í
fréttum
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNI
í „FREE-STYLE“ DANSI:
Forkeppni haldin um allt land
Anna Ringsted í eldhringnum.
tk ð undanfornu I kvöln munu sig-
hcfur stiiðið yf- urvegarar i for-
ir forkeppni um tit- keppninni, tíu ein-
ilinn „íslandsmeist- staklingar og tíu
ari unglinga 1985“ i m hópar, víðsvegar af
„free-style" dansi. landinu keppa til
Kepp var í Hafnar- Ht úrslita í Tónabæ kl.
firði, Reykjavik, á 20.00
Akranesi, Akureyri, Myndirnar eru
Egilsstöðum og í frá forkeppni í
Vestmannaeyjum. Tónabæ, föstu-
daginn 8. marz.
jk * (.uðlaug Arnórsdóttir.
p
Sijrurftur KjartanxNon, hann mun
keppa til úrslita.
llek-na Jónsdóttir, frá Reykjavík
Asta llirna Rat;narsdóttir.
Af áhættuleik
í kvikmyndinni
Hvítir mávar
Ahættuleikur, „stunt“ eins og
það heitir ef reynt er að
sletta á fagmálinu, er nokkuð sem
lítið hefur borið á i islenskri
kvikmyndagerð. Þó hafa slík atr-
iði sést, sbr. þegar aðalleikarinn f
Útlaganum, Arnar Jónsson, stökk
með miklum tilþrifum framan af
kletti í síðasta atriði myndarinn-
ar.
í annari íslenskri mynd, Hvít-
um mávum, sem frumsýnd verður
í dag í Reykjavík , bregður fyrir
nokkrum atriðum sem flokka má
undir áhættuleik. Ekki eru þau í
höndum aðalleikaranna, Ragn-
hildar Gísladóttur, Egils Ólafs-
sonar og Tinnu Gunnlaugsdóttur,
heldur er þar á ferð fólk sem ann-
ars vann aftan við kvikmynda-
tökuvélarnar meðan á gerð mynd-
arinnar stóð.
Júlíus Agnarsson, hljóðmaður
og yfirrótari Stuðmanna er einn
þremenninganna, sem sýndi mikil
tilþrif í áhættuleik og fórnaði
tveimur rifbeinum i þágu kvik-
myndagerðarlistarinnar. Það
gerðist er hann lét sig falla flatan
ofan af tröppum í gervi lög-
regluþjóns. „Blessuð beinin brotn-
uðu i fyrstu tökunni, sem var
kannski eins gott, því að ég dofn-
aði upp og fann mest litið fyrir
fallinu, þegar atriðið var tekið aft-
ur,“ segir Júlíus. „Annars var ég
með stuðpúða framan á maganum
sem átti að varna svona slysi, ég
er nefnilega ekki eins þéttur á
velli og ég lít út fyrir í búningn-
um!“
Júlíus kom viðar við sögu og þá
i gervi saman lögregluþjóns. f einu
atriðinu bregður löggan á leik,
smeygir sér út úr lögreglubílnum,
fram á vélarlokið, „undir bílinn"
og kemur upp að aftan — ekki
ósvipað því sem gerðist i ævintýr-
um Indiana Jones. Sem sé hálf-
gerð töfrabrögð og kannski ekki
óviðeigandi, Július lék einmitt
„töframann" í Stuðmannamynd-
inni Með allt á hreinu. „Jú, jú,
þetta eru eintómar sjónhverfingar
sem maður er í. Ætli næsta hlut-
verkið verði ekki „ósýnilegi mað-
urinn“. Þá bara mætir maður ekk-
ert á svæðið.“
En kvenfólkið lét sitt ekki eftir
liggja í áhættuleiknum. Anna
Ringsted, i búningadeildinni sá
fyrir því, þegar hún stóð inni i
eldhring, i atriði sem tekið var á
öskuhaugum Seyðisfjarðar. Leik-
myndadeildin kom þá líka við
sögu, þegar Guðjón Pedersen gerði
sér lítið fyrir og hjólaði fram af
seyðfirskum bryggjusporði. í tví-
gang. „Það eina sem ég var svolítið
smeykur við voru marglitturnar,
það er svo mikið af þeim í sjónum
þarna. Annars var þetta bara
þrælgaman," segir hann um volk-
ið.
ve
MofjfunblWiié Júlíun