Morgunblaðið - 16.03.1985, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ 1985
35
Minning:
Sigfús Davíðsson
fyrrv. bóndi, Lœk
Fæddur 13. febrúar 1903
Dáinn 8. mars 1985
í dag er til moldar borinn afi
minn, Sigfús Davíðsson, fyrrver-
andi bóndi að Læk í Holtahreppi,
Rangárvallasýslu. Hann var fædd-
ur 13. febrúar 1903 að Kalmans-
tungu á Hvítársiðu. Foreldrar
hans voru Davíð Sigurðsson og
Svanborg Ágústa Vigfúsdóttir.
Afi minn var elstur fjögurra
systkina, en þau sem eftir lifa eru:
Sigurbjörg, Þórdís og Sveinbjörn
sem öll eru búsett i Keflavik.
Ég veit ekki mikið um bernsku
afa, en ungur fluttist hann ásamt
foreldrum sinum að Stokkseyrar-
seli i Stokkseyrarhreppi, þar sem
yngri systkini hans fæddust. Inn-
an við fermingu fór hann að Aust-
vaðsholti í Landsveit til sumar-
dvalar en dvöl þessi varð lengri.
Svo fór að hann dvaldist þar
meira og minna fram yfir tvítugt
hjá þeim heiðurshjónum, ólafi og
Guðrúnu, sem voru honum svo
kær og hann talaði alltaf um með
mikilli virðingu. Á þessum árum
stundaði hann sjóinn á veturna,
en var í sveitinni á sumrin.
Afi minn og amma hófu sinn
búskap í Reykjavík, en sveitin
heillaði þau alltaf og fluttu þau
fljótlega að Læk í Holtahreppi.
Þrjú fyrstu æviárin mín dvaldi ég
hjá þeim og naut umhyggju
þeirra, svo og öll sumur fram yfir
fermingu.
Ég minnist afa míns sem
hjartahlýs og réttláts manns.
Hann var sívinnandi og ætlaðist
líka til mikils af öllum sem hann
umgekkst, enda lærðum við börn-
in sem vorum í kringum hann að
vinna. Verk hans bera þess líka
glöggt merki hve harðduglegur
hann var. í tvígang varð hann að
byggja upp öll húsin á jörðinni
sinni, íbúðarhús jafnt sem útihús,
og ekki má gleyma jarðræktinni
sem unnin var án stórvirkra véla
fyrstu árin. Afi var auðvitað ekki
einn að störfum, því amma var
ekki síður dugleg og svo börnin
þeirra þegar þau fóru að geta
hjálpað til. Á heimili afa og ömmu
var jafnan margt um manninn,
enda stóð það ávallt opið öllum
þeim sem koma vildu.
Afa og ömmu varð sex barna
auðið, auk þess sem þau ólu upp
tvö fósturbörn og eru þau öll á lífi.
Með þessum línum kveð ég
elskulegan afa minn sem var mér
svo kær og ég hefði svo gjarnan
viljað fá að njóta samvista við
lengur.
Elsku amma mín á nú um sárt
að binda, en eftir á hún minning-
una um góðan mann.
Megi góður guð blessa minningu
um heilsteyptan mann og veita
ömmu minni styrk í sorgum henn-
ar.
Margrét Karlsdóttir
í dag verður til mqldar borinn
frá Hagakirkju Sigfús Davíðsson
frá Læk í Holtum.
Hann fæddist í Kalmanstungu í
Borgarfirði 13. febrúar 1903. For-
eldrar Sigfúsar fluttu á Akranes
og mun hann hafa alizt upp þar að
mestu á fyrstu árum ævinnar,
nema um nokkurn tíma voru for-
eldrar hans á Stokkseyri. Um 10
ára aldur fór svo Sigfús að sumri
til að Austvaðsholti í Landsveit
sem snúningadrengur til ólafs
Jónssonar og Guðrúnar Jónsdótt-
ur, er þar bjuggu, og var hann sið-
an þar mikið viðloðandi, allt þar
til hann stofnaði sjálfur heimili.
Eftir að Sigfús óx úr grasi og
barnaskola lauk, og sumardvöl i
sveitinni, var farið að huga að
þeim verkefnum sem tiltæk voru
og mun sjórinn hafa heillað á
timabili, og stundaði hann sjó-
mennsku jafnt sem sveitastörf á
unglings- og uppvaxtarárum. Það
var varla um annað að ræða fyrir
unga menn en þessa hefðbundnu
vinnu, vertíðarstörf á vetrum og
sveitastörf að sumrinu, en Sigfús
var eftirsóttur til starfa bæði til
sjós og lands á þeim árum.
Árið 1929 staðfestir Sigfús ráð
sitt og gengur að eiga Margréti
Eyjólfsdóttur ættaða vestan úr
Mýrasýslu og var það stórt gæfu-
spor fyrir Sigfús og þau bæði, því
saman hafa þau gengið síðan og
tekist sameiginlega á við þau
verkefni, sem borið hafa að, er oft
hafa verið erfið, en þau hafa leyst
með sameiginlegu átaki. Þau Sig-
fús og Margrét bjuggu í Reykjavík
fyrstu ár búskapar síns og var
Sigfús þá á togurum, en hugur
beggja var bundinn sveitinni og
sveitastörfum, svo að þau ákváðu
að festa sér jörð og fyrir valinu
varð jörðin Lækur í Holtum í
Rangárvallasýslu. Ég held að hún
hafi á þeim tíma þótt fremur
kostarýr og húsakostur lítill, svo
það hefur þurft áræði og bjartsýni
að takast á við það verkefni að
hefja búskap á jörðinni, en þau
létu ekkert aftra sér í þessum
áformum og hófu starfið með
þeim árangri, að jörðin varð að
stórbýli í höndum þeirra í þeirra
búskapartíð.
Á Læk í Holtum hefur oft verið
mannmargt hjá þeim hjónum. Þau
hændu að sér fólk, bæði börn og
fullorðna. Þeim varð 4 barna auð-
ið, auk Sigurðar, sem var elztur og
alinn upp að öllu leyti hjá þeim.
Sigurður býr á Akranesi, hans
kona er Vigdís Magnúsdóttir,
Eygló býr í Keflavík, hennar mað-
ur er Halldór Þorkelsson, Ólafur
býr á Ketilsstöðum í Holtum, kona
hans er Hólmfríður Hjartardóttir,
Davíð býr i Sumarliðabæ, kona
hans er Hlín Magnúsdóttir, Hall-
dóra er gift Karli Steinbergssyni
og búa þau í Hafnarfirði, Pálmi er
bóndi á Læk, hans kona er Vigdis
Guðmundsdóttir. Auk þess ólu þau
upp Erlu Björgvinsdóttur, sem býr
á Rauðalæk í Holtum, hún er gift
Þorsteini Runólfssyni, og Sig-
mund Eggertsson, sem hefur verið
á heimili þeirra að undanförnu.
Afkomendur þeirra Lækjarhjóna
eru orðnir býsna margir og hinn
mannvænlegasti hópur. Þegar lit-
ið er til baka yfir lifshlaup Sigfús-
ar á Læk, sem hóf búskap í miðri
kreppunni af litlum efnum, en
miklum kjarki, sést að hann hefur
lyft Grettistaki. Menn átta sig
ekki á þvi í dag við hvað var að
stríða í búskap fyrir 50 árum, þeg-
ar tækin voru nánast engin, ekki
vegir, rafmagn eða sími, sem
menn telja til sjálfsagðra hluta,
en þau hikuðu hvergi i uppbygg-
ingunni og ávallt voru sama
bjartsýnin og kjarkurinn á hverju
sem gekk. Lifsstarf Sigfúsar var
helgað jörðinni og á þeim vettv-
angi vann hann alla ævi og skilaði
hlutverki sinu með sóma. Þeir sem
tekið hafa þátt i að byggja upp
sveitir þessa lands tóku við næst-
um eins og landnámsmennirnir og
skiluðu þvi uppbyggðu eins og i
dag, aðeins á 50 árum, eiga þakkir
skildar og hafa unnið þjóð sinni
vel og skilað afkomendunum góð-
um og verðmætum hlutum.
Þegar við kveðjum að lokum
Sigfús á Læk er okkur þakklæti i
huga að hafa átt hann að samferð-
amanni um tima. Hann var góður
fulltrúi þessa timabils i sögunni.
Spor hans eru hvatning til fram-
tiðar um að yfirstiga erfiðleika á
hverju sem gengur og takast á við
verkefnin þó þau virðist vera tor-
leyst.
Ég vil að lokum óska öllu
venzlafólki Sigfúsar mínar inni-
legustu samúðarkveðjur. Ég hygg
að hann hafi verið tilbúinn til far-
arinnar. Heilsan var búin og þá er
ekki eftir neinu að bíða.
Blessuð sé minning hans.
Sæmundur Jónsson
t
Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
KAROLÍNA MARÍA FRIOBJARNARDÓTTIR,
Hjarðarhóli 22,
Húsavik,
andaöist i Sjúkrahúsl Húsavíkur fimmtudaginn 14. mars.
Gunnlaugur Sigurösson,
Sveinn Bjarklind. Geróur G. Bjarklind,
Eiöur Gunnlaugsson, Karl Gunnlaugsson,
Sólveig Gunnlaugsdóttir, Hermann Ágústsson,
Sigrlöur Gunnlaugsdóttir, Hreinn Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaölr og afi,
KRISTBERGUR JÓNSSON,
Laug,
Biskupstungum,
lést 14. mars i Sjúkrahúsi Suöurlands, Selfossi.
Jón Kristbergsson,
Hrefna Kristbergsdóttir,
Guömann Kristbergsson,
tengdabörn og barnabörn.
Móöir okkar, t ÁSTA EINARSDÓTTIR,
Skaftahlíó 6,
Reykjavlk,
er látin. Sígrlöur Kristín Ragnarsdóttir, Hafdfs Ragnarsdóttir Critelli.
t
Bróöir minn,
JÓNASGUÐMUNDSSON
fró Flateyri,
lést á Elliheimilinu Grund 6. mars.
Jaröarförin hefur farið fram i kyrrþey aö ósk hins látna.
Magnús Guömundsson.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
JÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR
fró Hamrahólí,
andaöist á heimili sinu, Eyjum i Kjós, aöfaranótt fimmtudagsins 14.
mars.
Guörún Tómasdóttir, Magnús Sæmundsson,
Guöjón Tómasson, Margrét Eínarsdóttir.
t
Ástkær móöir min,
LÁRA J. SCHRAM,
Vesturgötu 36 B,
veröur jarösunginfráDómkirkjunnimánudaginn 18,marskl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Jónlna Vigdls Schram.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir sýnda samúö og vinarhug viö andlát
og jaröarför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur, afa og
langafa,
BJÖRNS JÚLÍUSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistfólks á Dvalarheimilinu Hlið,
Akureyri, og lækna og starfsf ólks lyf Jadeildar Fjóröungssjúkrahúss-
ins á Akureyri fyrir góöa aöhlynningu i veikindum hans.
Snjólaug Hjörleifsdóttir,
Jóhanna M. Björnsdóttir
Hjörleifur Björnsson,
Rósa Björnsdóttir,
Sigrún Björnsdóttir,
Július Björnsson,
Jófrióur Björnsdóttir,
Daniel Björnsson,
Árni Björnsson,
Ólafur Björnsson,
Björk Guömundsdóttir,
Ármann Sigurjónsson,
Valgeir Stefánsson,
Lisbeth Bjömsson,
Kristinn Helgason,
Guóný Guölaugsdóttir,
Þórey Agnarsdóttir,
Lilja Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug
víö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og
afa,
GUNNARS HALLDÓRS SIGURJÓNSSONAR
loftskeytamanns,
Álfaskeiói 57,
Hafnarflrói.
Gertrud M. Sigurjónsson,
Þór Gunnarsson, Ásdls Valdimarsdóttir,
Sigurjón Gunnarsson, Þorbjörg Bernhard,
Ludwig H. Gunnarsson, Guörún Jónsdóttir
og böm.
t
Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför konu minnar, móöur,
tengdamóöur og ömmu,
ÁGÚSTU MAGNEU RAFNAR,
Suóurhólum 28.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar 14-G á Landspitalanum
fyrir góöa umönnun.
Jóhanna Hjálmtýsson,
Þórunn Rafnar, Hallgrfmur Jónsson,
Hildur Padgett, James Padgett,
Stefán Jóhannsson, Katrfn Árnadóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginkonu
minnar, móöur okkar og tengdamóöur,
RAGNHEIÐAR BOGADÓTTUR,
Frakkastfg 6A.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki Hafnarbúöa fyrir frábæra
umönnun i veikindum hennar.
Gunnar Ólafsson,
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Björn R. Einarsson,
Ragnheióur Gunnarsdóttir, Bragi Hannesson,
Elisabet Gunnarsdóttir, Júllus P. Guöjónsson,
Ólafur Gunnarsson, Elsa Benjaminsdóttir.
I
\
i
;