Morgunblaðið - 23.12.1984, Page 72
BTT NMT AilS SHAAR
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ
KL 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI, SÍMI 11633
SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Hírast í snjóhúsi um jólin
„Við enim að þessu til gamans,
til að fá tilbreytingu í jólahaldiö,
sem hefur verið með hefðbundnum
hætti í tuttugu ár,“ sögðu þeir félag-
ar Eiríkur Eiríksson og Gunnlaugur
Rögnvaldsson í samtali við blm.
Morgunblaðsins. Þeir hyggjast
dvelja í snjóhúsi um jólin í ná-
grenni Hengils á Hellisheiði.
„Við fengum þessa flugu í koll-
inn fyrir nokkrum dögum, að
sleppa öllum nútímaþægindum
og prófa hvernig það er að hírast
í snjóhýsi fjarri fjölskyldunni yf-
ir jólin. Jólasteikin verður að
sjálfsögðu með í förum ásamt
eldunarbúnaði til að gera hátíð-
armáltíð. Við finnum örugglega
góðan skafl einhvers staðar og
verðum í sérstökum göllum frá
Sjóklæðagerðinni, sem gaman
verður að prufa. Varðandi öryggi
verðum við í talstöðvarsambandi
við bæinn og með góðan viðlegu-
búnað. Við hugsum til allra á að-
fangadagskvöld. Gleðileg jól.“
DAGUR TIL JÓLA
Morgunblaðið kemur
næst út föstudaginn
28. desember. Blaðið
sendir landsmönnum
öllum óskir um
gleðileg
jól!
JóUfagnaður Verndar verður
haldinn í húsi Slysavarnafélags
íslands á Grandagarði á morg-
un, aðfangadag. Verður þar að
venju síðdegiskaffi, kvöldmatur
og kvöldkaffi.
Allir, sem ekki hafa tæki-
færi til að dveljast með
vandamönnum eða vinum á
þessum hátíðisdegi, eru vel-
komnir á jólafagnaðinn.
Húsið verður opnað klukkan
3 síðdegis.
Þekktur söngleikur færður upp:
„Litla hryllings-
búðm“ í Gamla bíói
velja jólagjöfina í ár.
Garðyrkjustöðvar:
Framleiðslan aukin um
20-30 % með koltvísýringi
AÐ UNDANFÖRNU hafa verið
framkvsmdar mslingar á koltvísýr-
ingsinnihaldi lofts í gróðurhúsum í
Garðyrkjuskólanum á Reykjum í
Ölfusi. Kom í Ijós að innihaldið er
talsvert innan við 0,03% sem er hið
náttúrulega koltvísýringsinnihald
andrúmsloftsins. Talið er mögulegt
að auka uppskeru í gróðurhúsunum
um 20—30% með því að auka koltví-
sýringsmagnið upp í 0,1% eins og
gert er víða í nágrannalöndunum
Kostnaður við slíkar ráðstafan-
ir er nokkur en til að standa undir
honum er nóg að uppskeran aukist
um 10%. A vegum Sambands
garðyrkjubænda, Garðyrkjuskól-
ans og Búnaðarfélags Islands er
vinnuhópur starfandi að þessum
málum og leggur hann til að áður
en garðyrkjubændur fari út í að
kaupa tæki til að auka koltvísýr-
inginn verði gerðar tilraunir í
Garðyrkjuskólanum og hjá fáein-
um garðyrkjubændum til að
kanna möguleikana út í ystu æsar.
Sjá „Möguleikar á að
auka gróðurhúsafram-
leiðsluna...“ bls. 71.
25. jólafagn-
aður Verndar
Gamansöngleikurinn The Little
Shop of Horrors, eða Litla hryllings-
búðin, sem farið hefur sigurfór víða
um lönd, verður frumsýndur í Gamla
bíói af Hitt-leikhúsinu 13. janúar
nsstkomandi. Söngleikurinn var
fyrst frumsýndur í New York fyrir 3
árum og er í gamansömum tón með
hrollvekjuívafi, en þráðurinn fjallar
um mannstuplöntu og sitthvað þar í
kring.
Litla hryllingsbúðin er eftir þá
Howard Ashman og Allan Menk-
en, New York-búa sem unnið hafa
í tilraunaleikhúsum og á auglýs-
ingastofu. Þeir fengu fjársterka
aðila til þess að setja upp leikinn,
því plönturnar eru mikið fyrir-
tæki. Fyrir ári var söngleikurinn
fyrst sýndur í Evrópu og nú standa
yfir sýningar í Stavanger, Kaup-
mannahöfn, Osló og London við fá-
dæma góðar undirtektir, að sögn
Páls Baldvinssonar, sem ásamt
Sigurjóni Sighvatssyni stendur að
sýningunni.
Megas þýðir bundið mál en Ein-
ar Kárason annan texta. Leikarar
eru Leifur Hauksson, Edda Heið-
rún Backman, Gísli Rúnar Jóns-
son, Þórhallur Sigurðsson, Ragn-
heiður Elfa Arnardóttir, Harpa
Helgadóttir og Sigríður Eyþórs-
dóttir.
Plantan er leikin af Ariel Pard-
in, brúðuleikara frá ísrael. Á móti
honum leikur Björgvin Halldórs-
son rödd plöntunnar. Leikmynd
gerir Guðbjörn Gunnarsson. Guð-
munda Þóris gerir búninga. Við
frumsýningu kemur danshöfund-
urinn Idie Cowan frá New York, en
hún samdi dansana fyrir sýn-
ingarnar í London og New York.
Sóley Jóhannesdóttir danskennari
var um tíma hjá Idie í New York
og hefur hún æft dansana en Idie
mun koma um áramótin og æfa
dansana fram að frumsýningu.
Ljósameistari verður frá London,
David Hersey, en hann sá m.a. um
lýsingu í söngleikjunum Cats og
Evitu í London og New York. Lítið
rokkband undir stjórn Péturs
Hjaltested sér um hljómlistina, en
um þessar mundir er verið að
leggja síðustu hönd á hljómplötu
með tónlistinni úr verkinu og mun
hún koma út eftir áramótin.
LÍÚ er aðili að VSÍ:
Því eðlilegt að VSÍ gangi
frá samningiim við sjómenn
segir Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ
„LÍÚ hefiir verið aðili að Vinnuveit-
endasambandi íslands síðan 1970 og
allir kjarasamningar, sem gerðir hafa
verið síðan, hafa verið gerðir í sam-
ráði við það. Því finnst mér rétt að
VSÍ Ijúki samningum við sjómenn
eins og aðra,“ sagði Kristján Ragn-
arsson, framkvsmdastjóri LÍU, er
blm. Morgunblaðsins innti hann álits
á ummslum forseta Sjómannasam-
bandsins í Mbl. í gsr, þess efnis að
viðbrögð útvegsmanna við launakröf-
um vsru andstsð öllum hefðum.
„Sjómenn gerðu kjarasamninga
síðastliðið vor I samræmi við al-
menna kjarasamninga með upp-
sagnarákvæðum eins og þar voru.
Uppsagnarákvæði voru 1. septem-
ber og 1. desember, en sjómenn
nýttu sér ekki uppsögnina 1. sept-
ember, en gera það hins vegar núna.
Þeir fengu 3% launahækkun 1.
desember og hækkun á kauptrygg-
ingu og kaupliðum. Þeir fengu 10%
hækkun á kauptryggingu og kaup-
liðum frá 1. nóvember vegna kjara-
samninganna við verkafólk. Þannig
að þeir hafa fengið sömu hækkanir
og aðrir á kauptryggingu og kaup-
liðum. Þeir eru nú einir eftir í þess-
ari hringferð, sem farin hefur verið
um vinnumarkaðinn og hefur í
framhaldinu staðið til boða að fá
hækkanir til samræmis við aðra.
Við teljum þess vegna eðlilegt með
hliðsjón af því, að þeir gerðu samn-
ing, sem var í algjöru samræmi við
það, sem gerðist á vinnumarkaðn-
um síðastliðið vor, að VSl ljúki
þessu máli við þá eins og aðra.
Hitt undrar mig að forseti Sjó-
mannasambandsins geri Iftið úr
hækkun fiskverös í viðtali við blm.
Morgunblaðsins. Eg skil það svo, að
hækkun fiskverðs sé sú launahækk-
un, sem sjómenn munu byggja af-
komu sína á. Þess vegna skiptir
hækkun þess öllu máli fyrir þá. Mér
kemur því yfirlýsing forsetans ein-
kennilega fyrir sjónir vegna þess að
forystumenn sjómanna hafa allir
lýst því yfir að undanförnu, að þeir
geri sér grein fyrir því, að staða
útgerðarinnar sé með þeim hætti,
að ekkert sé af henni að hafa,“ sagði
Kristján Ragnarsson.