Morgunblaðið - 23.12.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984
21
Skák
J ólaskákþrautir
Margeir Pétursson
Jólaskákþrautirnar í ár eru aó
venju úr ýmsum áttum og mismun-
andi erdóar. Eftir jólin í fyrra
komu ýmsir spekingar að máli við
mig og tjáðu mér að jólaþrautirnar
hefðu verið það léttar að jaðraði
við lítilsvirðingu við andlegt at-
gervi. Þrautirnar í ár voru valdar
með þessa gagnrýni í huga, en eru
þó ekki það strembnar að þær
ættu að valda miklum andvökum.
Nr. 1 og 2 eru báðar eftir einn
frægasta skákdæmahöfund allra
tíma, rússneska skógarvörðinn
A.A. Troitzky. Yfir háveturinn
var lítið að gera í skógarvörzl-
unni og þa sá mörg snilldin
dagsins ljós, svo sem þessi tvö
skemmtilegu dæmi sanna.
Hinar fjórar þrautirnar eru
allar úr tefldum skákum og ætti
þeim sem fylgjast reglulega með
hinum daglega skákþætti í Mbl.
ekki að verða skotaskuld úr því
að leysa þær.
Hvítur á leik og vinnur í
fyrstu fimm þrautunum, en í
þeirri sjöttu á hvítur leik og
tekst að halda jafntefli. Lausn-
irnar birtast fljótlega eftir jólin.
Góða skemmtun og gleðileg jól.
^ ..m «
lÉ wím Æm. Æm.
k WB ***** *
* Hl!
V 1
&
m wm.
m.....
mm. w/æ
m
wm.'má im
WM .™
'rn,
VC-481
Framhlaöiö tæki á
mjög hagstæöu veröi, og
tovi fylgir fjarstýring
sem gerir þér kleift að
skoða myndefniö
hratt i báöar áttir,
ogfrysta myndina (,,pause“).
Tækið hefur 7 daga upptökuminni, er útbúiö
rakaskynjara, og sjálfvirkri endurspólun.
Þetta úrvalstæki er umfram allt, einfalt í allri
notkun.
Aðeins
39.800
Stg.
HLJOMBÆR
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999
HLJÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI