Morgunblaðið - 23.12.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1984
27
tæka fólkið, sem fékk enga nýja
spjör fyrir jólin" — þá breytist
frásögnin af kisu þessari í síðustu
erindunum:
„Hvort enn er hún til veit ég ekki,
— en aum yrði hennar för,
ef allir eignuðust næst
einhverja spjör.
Þið hafið nú kannske í huga
að hjálpa, ef þörf verður á.
— Máske enn finnist einhver börn,
sem ekkert fá.
Máske, að leitin að þeim sem liða
af ljós-skorti heims um ból,
gefi ykkur góðan dag
og gleðileg jól.“
Þessi alvarlega ábending um
vakandi og lífsnauðsynlegan vilja
til fórnarlundar og kærleiksverka
er sígild. Hún leiðir athyglina að
því ógnvænlega vandamáli, sem
við horfumst í augu við nú. Okkur
er kunnugt um milljónir barna,
sem slíða skort. Þar er jólaköttur-
inn i hrikalegri mynd, en nokkru
sinni fyrr, breyttur til samræmis
við öra þróun vopnanna úr fall-
stykkjum í atómsprengju. Skuggi
jólakattarins fellur yfir milljóna-
þjóðir þar sem hungursneyð ríkir
á tækniöld og hægur vandi væri úr
að bæta.
VI
Áminning liðinna
daga
Matthías Johannessen orti í
orðastað þeirrar kynslóðar, sem
lifði bernskuár í skugga seinni
heimsstyrjaldar:
„Ilmur óborinnar kynslóðar
fer um vit okkar og veröld
ilmur grass sem hylur kúpur
dauðra fórnardýra þar sem legsteinar
hallast eins og skuggar trjánna
eða trén vitna ein um hryllileg örlög
okkar kynslóðar
okkar sem horfðum á guðinn œpa
úr hásæti hakakrossins
okkar sem vildum búa jarðveginn undir vináttu.
Hér sitjum við og getum ekki gleymt
við þyrnar í holdi tímans
berum nálykt striðsguðsins
inn i gleði hinna óbornu:
hatrið á svívirðunni
afskræmir andlitið.
Hver getur talað um umburðarlyndi
meðan úlfurinn gerir sér bæli
í börnum okkar.
Enn er þó von: Hitler
wie er nicht war, segir Stern.
En sannarlega lifum við á myrkum tímum
Skáldið er ekki eitt um þá böl-
sýni og tortryggnina, sem birtast í
þessum niðurlagsorðum ljóða-
flokksins, Morgunn í maí. Ýmis
teikn eru á lofti, er benda til þess
að áminning liðinna daga heyrist
ekki „fyrir hrópi rokkguðsins og
hringli í gulli og olíuaurum".
Valdinu er misbeitt enn sem
fyrr, kynþáttum mismunað, fjöl-
mennum þjóöum haldið i fjötrum
fáfræði, volæðis, skoðanakúgunar
og ótta. Jafnvel fyrirfinnast dug-
andi menn í næsta nágrenni við
okkur, íslendinga, og er þá ekki
horft út fyrir hin frjálsu Norður-
lönd; menn sem misnota vinnuafl í
þriðja heiminum í krafti þess
valds, sem tæknin og auðmagnið
veitir þeim, og njóta þess, að fá-
fróður verkalýður í fjarska syngi
þeim lof fyrir sultarlaunin. Sú
skuggalega staðreynd hefur ekki
farið fram hjá íslensku kirkjunni,
sem á helstan vaxtarbrodd í
Hjálparstofnun sinni, þar sem
fylgst er með hinum þurfandi nær
og ekki síður fjær.
V
Vald fórnarlundar
Hjálparstofnun er farvegur lif-
andi vatns, sameinar hugi og
hendur til hjálpar, opinberar vald
sem á fyllsta rétt á sér, vegna þess
að það er sömu ættar og það vald,
sem Kristur hafði hér á jörð.
Hann beitti valdi sínu til andlegr-
ar umsköpunar ráðvilltra manna.
Andlit hans var aldrei afksærmt
af hatri, þótt svívirðingin blasti
við honum; jafnvel af krossinum
uppi á Golgatahæðinni bað hann
fyrir þeim, sem ekki vissu, hvað
þeir gjörðu. Hann bjó yfir þeim
guðlega mætti, sem í öndverðu var
upphaf stórbrotinnar sköpunar.
Persónuleiki hans rúmaði þvílíkar
reginvíddir og samræmdi jafn-
framt andstæður', sem virtust
ósættanlegar. Hann samræmdi
þær með þeim hætti, að gagnvart
honum þagnaði öll gagnrýni.
Kristur ber hinum óbornu gleði
hins sanna frelsis. Vald hans
stjórnast aldrei af hatri, heldur
fórnarlund og fyrirgefningu. Og
fyrir anda hans, sem lifir í kirkj-
unni, verða til sveitir manna eins
og Hjálparstofnunin, er hin síðari
ár hefur skipulagt margþætt
starf. Hún lítur sér miklu nær, en
ýmsir álíta, því hér í samfélagi
okkar er hún sífeilt að koma
nauðstöddu fólki til hjálpar. Það
starf er unnið í kyrrþey. Þess
vegna beinist athygli almennings
fremur að hinum fjarlægari verk-
efnum, hvort heldur er aðstoð við
bágstadda í Póllandi og Portúgal
eða allt suður í Uganda, Ghana,
Eþíópíu eða austur á Indlandi og í
Indónesíu. Sú margþætta reynsla,
sem ötulir starfsmenn Hjálpar-
stofnunarinnar hafa öðlast í þess-
um ólíku, en hrjáðu samfélögum,
hefur sterk áhrif á kirkjuna hér á
landi. Návist Krists verður áþreif-
anlegri, svo kirkjan verður sjálf-
stæðari og sterkari gagnvart óbil-
gjörnu ráðríki stjórnmálaafla.
Þess skulum við minnast um þessi
jól, að andi Krists lifir í kirkjunni
og áhrif hans eru sterkust þar sem
hún er ofsótt. Um það vitna kúguð
trúarsystkin okkar í austan-
tjaldslöndum.
Evrópufrumsýning
Ghostbusters
Kvikmyndin sem allir hafa beðið eftir. Vin-
sælasta myndin vestan hafs á þessu ári.
Ghostbusters hefur svo sannarlega slegið í
gegn. Titillag myndarinnar hefúr verið ofar-
lega á ollum vinsældarlistum undanfarið.
Mynd. sem allir verða að sjá. Grínmynd árs-
ins.
Aðalhlutverk: Bill Murray, Dan Aykroyd, Sig-
Blaðaummæli
kvikmyndagagnrýnenda:
ourney Weaver, Harold Ramis, Rick Moranis
Leikstjóri: Ivan Reitman. Handrit: Dan Aykro-
yd og Harold Ramis. Titillag: Ray Parker Jr.
Sýningar 2. í jólum A-salur: Kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Dolby Stereo
B-salur: Kl. 4, 6, 8 og 10.
„Allir sem stóöu aö gerö „Ghostbusters“ eiga lof skiliö fyrir óvenjulega
kímnigáfu og stórhug. Þetta er frábær mynd, meö frábærum leikurum,
leikstjóra og framlelðanda,- TIME, 11. júní, 1984.
„Ghostbusters" er stórkostleg kvikmynd ... Bill Murray er óviöjafnan-
legur — hreinn snillingur, sem á engan sinn líka.“
NEWSWEEK, 11. júní, 1984.
„Þaö eru tímamót. Loksins! Loksins tókst það! Loksins tókst aö fram-
leiða ódauölega grínmynd! Klassíska kvikmynd! Hún lengi lifi!
NEW YORK MAGAZINE, 11. júní, 1984.
„Eftir aö hafa séö „Ghostbusters" er maður ekki undrandi á þeim
vinsældum sem myndin hefur fengiö. „Ghostbusters“ er hin besta
skemmtun í skammdeginu og bætir skaþiö.“ „ ...... „
D.V. Hilmar Karlsson.
Undarlegir atburðir eru að
gerast í New York. Venjulegt
fólk sem stundar venjulega
vinnu og býr í venjulegum
húsum, sér drauga á hinum
ólíklegustu stöðum: í bóka-
safninu, á hótelum, jafnvel í
ísskápum!