Morgunblaðið - 09.09.1984, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1984
123
Sjötugur:
Klemens Tryggvason
hagstofustjóri
Það er merkileg tilviljun, að
Hagstofa íslands skuli vera jafn-
gömul Klemensi Tryggvasyni, sem
á sjötugsafmæli á morgun. Þetta
er tilviljun af því tæi, sem virðist
þaulhugsuð, eins og sagt er á tung-
um sumra grannþjóða okkar.
Klemens Tryggvason varð hag-
stofustjóri árið 1951 og hefur því
gegnt því starfi í næstum 34 ár, en
hann tók við af Þorsteini Þor-
steinssyni, sem verið hafði for-
stöðumaður Hagstofunnar frá því
hún var stofnsett árið 1914. Sjötíu
ára starfssaga Hagstofunnar
skiptist því sem næst til helminga
milli tveggja hagstofustjóra. Það
er því ekki að undra, að Hagstofan
og Klemens Tryggvason séu óað-
skiljanleg í hugum flestra, sem nú
eru á starfsaldri.
Klemens hefur gegnt þessu
vandasama og ábyrgðarmikla
starfi með miklum sóma og jafnan
átt óskorað traust þeirra fjöl-
mörgu aðila, sem þurfa að byggja
á tölfræðilegum upplýsingum frá
Hagstofunni. Um þetta ætti ég að
geta talað nokkuð af eigin reynslu,
því síðast liðin tuttugu ár hef ég í
daglegum störfum haft mikil
skipti við Hagstofuna og Klemens
Tryggvason. Þar er skemmst frá
því að segja, að í þeim viðskiptum
hefur jafnan ríkt trúnaðartraust
svo hvergi ber skugga á. Klemens
er ákaflega ósérhlífinn maður og
jafnan tilbúinn til að aðstoða
aðra, ef um er að ræða verk sem
hann telur vert að vinna. Mér er
það einkar minnisstætt frá fyrstu
starfsárum minum, hve gott var
til hans og leita fyrir nýgræðing í
starfi, sem hann tók ávallt vel og
sem jafningja. Klemens er einhver
hégómalausasti maður, sem ég hef
kynnst, þótt hann skorti ekki
metnað til vel unninna verka.
í hagstofustjóratíð Klemensar
hafa orðið gagngerar breytingar á
störfum Hagstofunnar. Skýrslu-
vélar hafa stöðugt orðið mikilvæg-
ari í starfseminni, frá því gata-
spjaldavélar voru teknar þar í
notkun eftir 1951. Vél- og tölvu-
væðing hefur flýtt vinnslu og birt-
ingu ýmissa hagtalna, en hvort
tveggja, flýting á söfnun og birt-
ingu upplýsinga, er afar mikils
virði. Eg ætla hér alls ekki að
reyna að lýsa þeim breytingum og
framförum, sem orðið hafa á
störfum hagstofunnar þau 34 ár,
sem hún hefur notið forystu
Klemensar, en vil þó nefna einn
þátt þessara framfara, sem ég tel
einna mestan ávöxt hans mikla
starfs. Hér á ég við heildarskrárn-
ar þrjár, sem Hagstofan annast,
og eru nefndar þjóðskrá, fyrir-
tækjaskrá og nemendaskrá.
Stofnun og rekstur þessara
skráa, er að ég held, mikilvægasta
breytingin í starfsemi Hagstof-
unnar frá • því Klemens tók við
starfi hagstofustjóra. Hagstofan
hefur í vaxandi mæli orðið skrá-
setningarstofnun, sem sífellt skrá-
setur gjörvalla landsbyggðina.
Þessar skrár eru í senn undirstaða
margvíslegrar starfsemi hins
opinbera, uppspretta hagskýrslna
og grundvöllur rannsókna. Þjóð-
skráin, sem rekin hefur verið sam-
fellt frá 1953, kemur að miklu
leyti í stað manntals með eldra
lagi, en er auk þess undirstaða
næstum allrar stjórnsýslu í land-
inu. Fyrirtækjaskráin og nem-
endaskráin komu til síðar og eru
ef til vill enn ekki jafnþróaðar og
þjóðskráin, en gefa á sama hátt
tækifæri til þess að vinna heild-
stæðar upplýsingar annars vegar
um atvinnulíf og hins vegar nem-
endur og skólakerfi útfrá grunn-
einingum, fyrirtækjum og nem-
endum. Þessar skrár eru vitaskuld
á sinn hátt afkvæmi skýrsluvéla-
og tölvuvæðingarinnar, sem hefur
hvarvetna rutt sér til rúms á síð-
ustu áratugum. En heildarskrárn-
ar þrjár eru einnig vitnisburður
um framsýni og dugnað Klemens-
ar og hans glögga auga á það,
hvernig hentugast og ódýrast
myndi vera að sameina þarfir
framkvæmdavalds og skýrslu-
gerðar fyrir öruggar upplýsingar
um fólksfjölda og landshagi.
Það er lika til vitnis um það
mikla traust, sem Hagstofan nýt-
ur undir stjórn Klemensar, að hér
á landi hefur alls ekki gætt í sama
mæli og í nálægum löndum and-
stöðu við og gagnrýni á stofnun og
rekstur heildarskráa af því tæi
sem þjóðskráin er. En viða um
lönd hafa gagnrýnendur talið slík-
ar skrár fela í sér óþarfa hnýsni
um persónulega hagi manna eða
jafnvel ógna friðhelgi einkalífsins.
Ég er ekki í neinum vafa um, að
það var einkar vel ráðið að fela
Hagstofunni umsjá þessara skráa,
og jafnviss er ég um það, að sá
friður, sem yfirleitt hefur ríkt um
þær hér á landi, byggist á því
mikla trausti, sem hinn réttsýni
og vammi firrti embættismaður,
Klemens Tryggvason, nýtur hjá
alþjóð.
Eg lýk þessum orðum með inni-
legum hamingjuóskum til Klem-
ensar á sjötugsafmælinu frá mér
og samstarfsmönnum í Þjóð-
hagsstofnun. Jafnframt sendi ég
honum og konu hans, Guðrúnu
Steingrímsdóttur, bestu óskir um
gæfu og gengi um ókomin ár.
Jón Sigtirðsson.
f tilcfni afmælisins verður gefið út
afmælisrit til heiðurs Klemensi.
I>eim sem hug hafa á að vera áskrif-
endur og skrifa sig á heillaóskalista,
er bent á auglýsingar og fréttatil
kynningar í dagblöðunum, eða að
hafa samband við Almenna bókafé-
lagið.
Með kveðju,
Sigurður Snævarr.
Músikleikfimin hefst mánudaginn 24. september. ÆStyrkjandi og liökandi æfingar fyrir Æ konur á öllum aldri. Byrjenda- og ^ Æ framhaldstímar. Kennsla fer fram í Æ íþróttahúsi Melaskóla. Kennari VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS (gj STOFNAÐUR 1905
Æ Gígja Hermannsdóttir. Verslunarskóli Islands veröur settur mánudaginn 10. sept. nk. kl. 14.00 i hátíöarsal skólans. Aö lokinni skólasetningu hefst
V Upplýsingar og innritun í síma almennur kennarafundur og bekkjarlistum verður dreift til
A 13022 um helgina og virka daga í nemenda. Bókamarkaöur Sambúðar opnar í stofu 2 strax að lokinni skólasetningu og þar fá nemendur afhenta bókalista.
sama síma eftir kl. 15. Verslunarskóli íslands.
4 jk
I \*
OPIÐ HÚS
í HEKLU HF.
LAUGARDAG FRÁ KL. 10 -17 - SUNNUDAG FRÁ KL. 13 ■ 17
BILASYNING
—
—
il
" [a ii
□ Viö frumkYnnum hinn stórglæsilega □ viö kynnum space wacon. □ við kynnum rance rover vouge.
CALANT ' 85 með framhjóladrlfl. Bíl meö möguleika, sem marka stefnu Bílinn sem varö stöðutákn á íslandl.
HEIMILISTÆKJASÝNING
Rafknúin heimilistæki — Clæsilegar franskar gjafavörur
Pottar — Pönnur — Hnífapör — Matarstell — Stálföt
Lampar — Postulínsvörur
Og ótal margt fleira.
FhIhekiahf
Laugavegi 170 -172 Sími 21240