Morgunblaðið - 11.06.1963, Blaðsíða 24
SGÖGNI
STERKog
STÍLHREINT
128. tbl. — Þriðjudagur 11. júní 1963
Síldveiði
eystra
Ægir fer í
slldarleit i dag
FYRSTA síldin á sumrinu barst
til Eskifjarðar og Reyðarfjarðar
á sunnudag. Var það véibáturinn
Gunnar SU frá Reyðarfirði, skip-
stjóri Jónas Jónsson, sem kom
með 150 tunnur til frystingar á
Eskifirði og 1550 tunnur, er fóru
í bræðslu á Reyðarfirði.
Síldin, sem var feit og falleg
veiddist á laugardag -60 — 70
sjómílur út af Bjarnarey og telur
skipstjórinn, að á þessum slóð-
um sé um töluvert síldarmagn
að ræða.
Stígandi frá Ólafsfirði fékk 700
mál á svipuðum slóðum og Hof-
fell SU 670 mál nokkru sunnar.
Fór þessi sOd í bræðslu á Reyð-
arfirði.
Síldarleitatskipið Pétur Thor-
steinsson kannaði í gær síldar ■
svæðið út af Vopnafirði og virtist
talsvert síldarmagn vera þar um
slóðir. ^
Ægir heldur í dag frá Reykja-
vík í síldarleit og rannsóknar-
leiðangur. Jakob Jakobsson, fiski
fræðingur, verður leiðangurs-
stjóri og mun stjórna síldarleit-
inni í sumar eins og í fyrra. Auk
Ægis verða Pétur Thorsteinsson
og Fanney við síldarleit í sumar.
Reykhafið var gífurlegt.
/ v/« • ■/■■■• . % ■ v'.y/w.'v■ f'
Tjðrubruni hjá Eimskip
LAUST fyrir klukkan tíu í gær-
morgun kom upp eldur í malbiks
polli á geymslusvæði Eimskips í
Borgarskála. Leki bafði komið
Kristján Aðalsteinsson í brúnni á Gullfossi við brottförinaj
frá Kaupmannahöfn á laugaróag.
Gullfoss kemur
á fimmtudag
GULLFOSS fór frá Kaup-
mannahöfn á hádegi á iaugar-
dag áleiðis til Leith og Rvík-
ur. Er hann væntanlegur til
landsins á fimmtudag.
Frá Kaupmannahöfn fóru
með skipinu 128 farþegar, og
með því er einnig fjöldi einka
bifreiða frá ýmsum löndum.
Fleiri farþegar bætast við í
Leith og verður farþegarými
fullskipað. Mikið var um dýrð
ir við brottförina frá Kaup-
mannahöfn, og margt manna á
bryggjunni til að kveðja far-
þega og skipið er það lagði
af stað í þessa fyrstu för eftir
viðgerðina.
(Rytgaard).
að tunnum, sem Reykjavíkur-
flugvöllur átti, en fluttar voru
á brott fyrir helgi. Höfðu ráð-
stafanir verið gerðar til að fjar-
lægja malbikið í gærmorgun, en
eldur úr útblástursröri krana-
bíls, er stóð skammt frá, komst
í malbikið og kveikti í.
Reykjavíkurflugvöllur fékk
sendar fyrir tveimur mánuðum
á 7. hundrað malbikstunna, en
afhending þeirra hefur dregizt á
langinn vegna þess að eigendurn
ir neituðu að taka við tunnunum,
þar sem þær voru illa úr garði
gerðar og byrjað að leka þegar
í skipi. Myndaðist stór pollur
þar sem tunnurnar stóðu í Borg-
arskála og var reynt að moka
malbikinu í önnur ílát. I gær-
morgun var ákveðið að fá jarð-
ýtu til að fjarlægja pollinn, en
tunnurnar voru fluttar suður á
flugvöll á föstudag og laugar-
dag.
Yoru tunnurnar þá svo illa á
sig komnar, að vörubílstjórar á
Þrótti neituðu að flytja þær og
varð því að leita til Hafnfirð-
inga um flutning.
Verkamenn, sem vinna í vöru-
geymslum Eimskips voru í kaffi
þegar eldurinn brauzt út. Meðal
þeirra var kranabílstjóri, er skil-
ið hafði bíl sinn eftir í gangi
skammt frá pollinum. Við hæg-
an gang vélarinnar mun hafa
myndazt sót í útblástursröri bíls-
ins, kviknað síðan í því og eld-
urinn komizt í olíu, sem rann
frá bílnum. Breiddist eldurinn
óðfluga út í malbikinu og lagði
af því feiknamikinn reyk.
Bifreiðarstjóri, sem var að aka
inn á geymslusvæðið, varð fyrst-
ur eldsins var, gerði slökkvilið-
inu viðvart og sá til þess að
kranabíllinn var fjarglægður áð-
ur áður en nokkrar skemmdir
höfðu orðið á honum.
Skammt frá malbikinu var
tunnustæða með nitro-sellulosa-
ull. Efni þetta var í eigu Máln-
ingar h.f. og er notað til máln-
ingargerðar. Slökkviliðið kom á
vettvang fáum mínútum eftir að
eldurinn brauzt út og beindist
starf þess einkum að því, að
Framh. á bls. 23
Eftir brunan.
Fiugmannaverkfallinu aflétt
Ml* flug kemst í eílilegt horf
í dag
VERKFALLI flugmanna, sem
staðið hefur tæpa viku, var af-
lótt í fyrrinótt og gáfu flugfélög-
in og Félag ísl. atvinnulugmanna
út eftirfarandi fréttatilkynningu í
gt:r.
„Aðfaranótt 10. þ.m. komst á
samkomulag milli Flugfélags ís-
lancjg hf. og Loftleiða hf. annars-
vegar og Félags ísl. atvinn-uflug-
manna hins vegar og hefur verk
falli verið aflétt frá og með
þeim degi.
Samningaviðræður um kaup og
kjör verður haldið áfram og
hraðað eftir föngum.“
Flugmenn héldu fund í félagi
sínu á miðnætti aðfaranótt mánu
dags og síðan var haldinn sáttar
fundur, er stóð til klukkan fjög-
ur um nóttina.
Báðir aðilar vildu sem minnst
um samkomulagið segja, er Mbl.
spurðist fyrir um einstök atriði
þess í gær. Blaðið hefur þó feng
ið þær upplýsingar, að krafa flug
manna um að flugfélögunum sé
óheimilt að segja upp flugmanni
nema hafa sannað á hann afglöp
eða sök í starfi, felist ekki í sam
komulaginu. Samið hefur verið
um lengingu uppsagnarfrests
eftir starfsaldri, allt að 20 árum,
og verður fresturian frá þremur
upp i tólf mánuði. Gerðardómur
mun fjalla um uppsagnarákvæð-
in.
Innanlandsflg Flugfélags fs-
lands hófst um hádegi í gær og
voru farnar fjórar ferðir. Milli
■lc idaflugið hefst í dag og mun
þá allt flug verða komið í eðli-
legt horf aftur. Straumfaxi, sem
verið hefur á Grænlandi, kom
heim í gær og mun hefja hér inn
anlandsflug. Leiguflugvél frá
danska flugfélaginu Nordair kem
ur hingað frá Kaupmannahöfn í
dag.
Loftleiðavél kom til Reykja-
víkur þegar í gærmorgun og
hélt áfram til meginlandsins. í
gærkvöld voru þrjár vélar á veg
um Loftleiða væntanlegar á leið
■sinni vestur um haf, þar af ein
leiguflugvéL