Morgunblaðið - 11.06.1963, Side 22
22
M O R C, U W n T. 4 Ð 1 Ð
I>riðjudagur 11. júní 1963
Lélegasti leikur
heimsóknarinnar
Þjóðverjarnir sigruðu illa
stjórnuðu landsliði
Í*ÝZKA knattspyrnuliðið Holste-
in Kiel, sem hér hefur verið
boði Fram lékk sinn síðasta leik
í gærkvöldi og- mætti þá lands-
liðinu íslenzka. Þjóðverjarnir
unnu auðveldan sigur 4 mörk
gegn 2. íslenzka liðið átti aldrei
sigurmöguleika í leiknum enda
var liðinu fyrirskipað af ráða-
mönnum að leika varnarleik.
Sennilega finnst þeim sömu ráða
m/öunura aJð lEMð Jiafi unnið
mikinn sigur með því að skora 2
mörk, en áhorfendur voru næst-
um á einu máli um að þetta væri
af Islendinga hálfu lélegasti leik
ur heimsóknarinnar. Eftir fyrri
leikjum, þar sem t.d. Fram og
KR áttu sigurmöiguleika, töidu
menn víst að landslið myndi
sýna þýzka liðinu 1 tvo heimana.
En það var nú eitthvað annað. 1
stað sóknar var liðinu stillt upp
í vörn. Óreyndir menn eins og
útherjarnir sem báðir voru vald
ir í tilraunaskyni áttu að fram
kvæma flókna leikaðferð sem
hér sézt sjaldan rg árangurinn
varð þeim til falls en fallið verð
ur þó að skrifast á ráðamennina
því án ráðlegginga hefðu báðir
ÁN EFA leikið miklu betur,
„Beittustu" menn íslands, Rík-
harður, Gunnar Felixson og Guð
jón Jónsson (mennirnir sem Þjóð
verjar hrósa mest og muna fyrir
hættulegan leik) voru eins aj
dúkkur í þessu setta kerfi ráða
mannanna.
Áframhaldandi tap
ísland hefur leikið liðlega
30 landsleiki og tapað þeim flest
Molar
I
NORÐMENN hafa þegar valið
Olympíukeppendur sína í
skíðastökki fyrir Innsbruck-
leikana 29. jan. 1964. Þeir eru
níu sem ganga undir sérstakar
æfingar sem hefjast 27. júní.
NOSKI þrístökkvarinn Odd
Begrh stökk 15.21 á móti í
Þrándheimi á sunnudag. Lisle
rud kastaði kringlunni á sama
móti 47.48.
BRASILISKA knattspyrnulið
ið Portuguesa er á keppnisferð
í Evrópu. Liðið mætti meist-
araliði Milan á heimavelli þess
í fyrradag. Braslíumennirnir
unnu leikinn 3—2. í hálfleik
stóð 1—1.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
næsta heimsmeistarakeppni í
alpagreinum skíðaíþrótta
verði í Chile 1966. Keppnin
fer fram í ágúst—september.
Ráðstöfunin hefur valdið mik-
illi óánægju víða í Evrópu.
um. Og meðan sú leikaðferð ræð
ur sem fyrirskipuð var í gær
munum við enn ævinlfega tapa —
því leikaðferðin miðar ekki að
öðru.
★ Forysta Þjóðverja
Þjóðverjarnir náðu forystu á
23. mín er Koll h. úth. skoraði
upp úr hornspyrnu.
Á 32. mín. tókst íslendingum
að jafna. Axel útherji Axelsson
gaf vel fyrir og Gunnar Felixson
afgreiddi laglega í mark Þjóð-
verjanna.
Sex mín síðar ná Þjóðverjar
aftur forystu er Martinson mið-
herji skorar eftir laglegt upp-
'hlaup og samleik við Koll út-
herja. Vörn ísl. liðsins var þarna
allstöð, svo ekki sé meira sagt.
Þannig stóð í hálfleik 2—1.
Geir markvörður Fram bjargar naumlega.
★ Jafnað.
Á 4, mín. síð. hálfleiks jafnar
ísl. liðið. Bergsveinn Alfonsson
sem kom _ inn í stað Ellerts
Schram sem valinn var meiddur
í úrvalsliðið átti skot að marki
og markvörður hálfvarði, knött-
urinn barst til Gunnars Felix-
sonar og hann fékk jafríað 2—2
með laglagu skoti.
Þremur mín. síðar ná Þjóð-
verjar enn forystu. Koll útherji
skoraði af stuttu færi eftir lag-
legt spil og samleik allt inn í
vítateig ísl. liðsins.
Á 41. mín. síð hálfleiks kórón-
uðu Þjóðverjar sigur sinn yfir
íslenzka landsliðinu er Podlieh
varamaður skoraði auðveldlega
eftir laglegt spil af stuttu færi.
Þjóðverjar voru alltaf með
undirtök í þessum leik þrátt fyr
ir að þarna væru beztu menn
ísl. knattspyrnu. Þýzki mark-
vörðurinn hafði sinn rólegasta
leik í heimsókninni og gefur það
nokkra hugmynd um gang leiks
ins, því þó t.d. KR léki algera
varnartaktik gegn Þjóðverjunum
þú komu þó sóknarlotur sem'
komu markverðinum í vanda. Nú
skeði slíkt ekki. Við mörkin tvö
réði hann engan veginn, — og
hafði varnarleikaðferðinni verið
hafnað og sótt að marki Þjóð-
verja með 5 manna framlínu,
hefði mátt vænta sigurs og slíkt
hefði verið kærkomið ísl. knatt-
spyrnu nú. •
Á Liðin
Þjóðverjarnir áttu sinn bezta
Frá Siglufjarðarskarði. Þarna er hægt að vera á skíðum allan ársins hring. — Ljósm. S. K.
Guðjón, Gusmar Felix-
son og Ríkharður heztir
— ENGINN íslenzkur knatt-
spyrnumaður er afgerandi
beztur í mínum augum, en
þrjá íslenzka knattspyrnu-
menn mun ég lengi muna, þá
Gunnar Felixsson KR, Guðjón
Jónsson Fram og Ríkharð
Jónsson ÍA. Að mínurev' dómi
skera þeir sig úr þeim fjölda
knattspyrnumanna, sem ég
hefi séð, en hins er og að gæta
að ég hefi lítil kynni haft af
knattspyrnumönnum ykkar og
er því illa dómbær um hæfi-
leika þeirra svo að túlka megi
skoðun mína sem endanlegan
dóm.
Þannig komsf fararstjóri
þýzka liðsins Gorgas að orði
er fréttamaður Mbl. hitti hann
á heimili þýzka sendiherrans
Hirsfield s.l. laugardag.
„En það er okkur sérstök
ánægja að hafa komið hingað,
bætti hann við. Okkur hefur
verið tekið sérlega vel og það
er okkur ánægja að taka á
mótí Framliðsmönnum næsta
ár á Kilarvikunni.
Heimsóknin er sem sagt
gagnkvæm. Fyrir þessa heim-
sókn fara Framarar utan og
njóta áreiðanlega ekki síður
en Þjóðverjar hér.
Hann kvaðst hlakka til þess
ar Framarar kæmu út næsta
sumar og þar myndu þeir
leika 4 leiki í 4 borgum.
Þýzki fararstjórinn lét
mjög vel yfir móttökum hér.
Hann kvaðst lítil sem engin
kynni hafa haft af ísl. knatt-
spyrnu áður en hann kom hing
að og sá grunur sinn hefði stað
fest að knattspyrna hér væri
á þroskastigi, leikmennina
skorti tækni. Samt væru hér
mörg efni í góða knattspyrnu-
menn sem án efa gætu náð
langt með réttri tilsögn.
Gorgas sagði að enginn
þýzku leikmannanna væri
160% atvinnumaður. Slíkt
væri ekki leyfilegt í Kiel.
Knattspyrnumenn mættu fá
400 mörk á mánuði fyrir þátt-
töku í knattspyrnuleikjum.
Sumir þeirra sem hér eru fá
þau hámarkslaun aðrir minna,
en allir vinna fasta vinnu.
Fararstjórinn afhenti Hirs-
field sendiherra að gjöf fagran
blómavasa í þakklætisskyni
fyrir móttökur þýzka liðsins
og sendiherrann þakkaði með
fallegum orðum þar sem hann
minntist skólavistar í Kiel og
ánægjulegra daga í þeirri
borg.
leik í heimsókninni nú enda mót
staðan reikulaus og slökust nú,
Af ísl. liðinu náði enginn leik-
manna því sem hann hefur bezt
gert áður enda sennilega marg-
ir önnum kafnir við að reyna a3
framkvæma fyrirskipanir ráða-
manna í stað þess að leika eðli-
lega eins og þeim er lagið.
— A.St.
Enska
knattspyrnan
Lokastaðan í ensku deildarkeppn
inni varð þessi 1. deild.
Everton 42 25-11-6 84:42 61 stig
Tottenham 42 23-10-9 109:62 55 —
Burnley 42 22-10-10 78:57 54
Leicester 42 20-12-10 79:53 "52 —
Wolverh. 42 20-10-12 93:65 50
Sheffield W. 42 19-10-13 77:63 48 —
Arsenal 42 18-10-14 86:77 46 —
Liverpool 42 17-10-15 71:57 44 -e
N.Forest 42 17-10-15 68::69 44 —
Sheffield U. 42 16-12-14 57:59 44 -»
Blackburn 42 15-12-15 77:71 42 —
West Ham 42 14-12-16 73:69 40
Blackpool 42 13-14-15 58:64 40 —
Aston Villa 42 15-18-19 62:68 38 —.
W. B. A 42 15- 8-19 70:79 38
Fulham 42 14-10-18 50:71 38 —
Ipswich 42 12-11-19 59:78.35 —
Bolton 42 15- 5-22-55:75 35
Manchester 42 12-10-20 67:81 34 —*
Birmingham 42 10-13-19 63:83 33 -*
Manch.City 42 10-11-21 58:102 31 —
Leyton O. 42 6- 9-27 37:81 21 —.
Manchester City og Leytan Ori.
ent féllu niður í II. deild.
II. deild.
Stoke 42 20-13- 9 73:51 53 stig
Chelsea 42 24- 4-14 81:42 52 —
Sunderland 42 20-12-10 84:55 52 -.
Middlesbr. 42 20- 9-13 86:83 49 -»
Leeds 42 19-10-13 79:55 48 -.
Huddersf. 42 17-14-11 62:49 48
Derby 42 12-12-18 61:72 36 -*
Grimsby 42 11-13-18 57:64 35 -.
Charlton 42 13- 5-24 64:94 31 -.
Walsall 42 11- 9-22 54:89 31 —•
Luton 42 11- 7-24 61:84 29 —
Stoke og Chelsen flytjast upp I
1. deild, en Walsall og Luton falla
niður í III. deild.
Upp úr III. deild flytjast Nort.
hampton og ' Swindon, en niður í
IV. deild féllu Bradford, Brighton,
Charlisle og Halifax. Upp úr IV.
deild flytjast Brentford, Oldham,
Mansfield og Crewe.
Markhæstu leikmennirnir í Eng-
landi urðu þessir:
1. DEILD.
Greaves (Tottenham) 37 mörk
Harley (Manchester City) 32 ____
Baker (Arsenal) 31 __
Layne (Sheffield W.) 30 —
Law (Manchester U.) 29
Leek (Örimingham) 28 —
Pickering (Blackburn) 28 —.
2. DEILD.
Alcock (Norwich) 37 —.
Tambling (Chelsea) 34 —
Davies (Luton) 31 -•
Peacock (Middlesbrough) 31 —
O’Brien (Southampton) 31
Saunders (Portsmouth) 29 •