Morgunblaðið - 11.06.1963, Page 3
Þriðjudagur 11. júní 1963
M0RGTJWTtT4fílÐ
3
FRÉTTAMAÐUR og Ijósmynd
ari Morgunblaðsins heimsóttu
í gær formenn stjórnmála-
flokkanna, þar sem þeir sátu
og fylgdust með atkvæðatöi-
um í útvarpinu.
Fyrst ökum við að Háuhlíð
14 til Bjarna Benediktssonar,
dómsmálaráðherra, formanns
Sjálfstæðisflokksins. Bjarni sit
ur í stofu ásamt konu sinni,
Sigríði Björnsdóttur, og hlýðir
á síðustu tölurnar. Hann hef-
ur á orði, að tölurnar komi
heldur dræmt.
Næst höldum við til Hafn-
arfjarðar að Kirkjuvegi 7, þar
sem Emil Jónsson, félagsmála
ráðherra býr. Kona hans, Guð-
finna Sigurðardóttir, kemur
til dyra og býður okkur til
stofu. Þar situr Emil á skyrt-
unni og skrifar niður tölurnar.
Eysteinn Jónsson, formaöur Framsóknarflokksins, ásamt fjölskyldu sinni.
Formennirnir við útvarpið
„Þetta er ágæbt útvarp“, segir fór þangað í þingmanna-
Emil, ,ég fékk það að gjöf nefnd'.
í Rússlandi árið 1358 þegar ég í húsi númer 67 við Ásvalla
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
götu býr Eysteinn Jónsson,
fyrrverandi ráðherra. Hann
kemur sjálfur til dyra og býð-
ur okkur inn, en þar situr öll
fjölskyldan og hlustar með
óþreyju á útvarpið. Engar töl-
ur heyrast í útvarpinu meðan
við stöndum þar við, en úr því
glymur lagið „Lápi er og Lapi
verður listamannakrá". Dóttur
sonur Eysteins og nafni fæst
ekki til að vera með á mynd-
inni og flýr út í horn stof-
unnar. Þá segir afi: „Hvað er
þetta Eysteinn minn? Langar
þig ekki til að koma í Mogg-
anum?“
Nú liggur næst fyrir að
reyna að ná í Hannibal Valdi-
marsson, en það gengur treg-
lega. „Hann er kannski ekki
úti á landi, en örugglega ekki
í Reykjavík“, sagði sá, sem
í símann svaraði.
Emil Jónsson, formaður Alþýðuflokksins, ásamt konu sinni,
Guðfinnu Sigurðardóttur.
tu
Framámenn v/ð fjárhætfuspil
fil ágóða fyrir krabbamsinsvarnir
New York, 5. júní (AP)
í KVÖLD leggur listiskipið Rott-
erdarn úr höfn í New York í
stutta siglingu rétt út fyrir banda
ríska landhelgi. Tilgangur farar-
innar er að gefa nokkrum fram-
mönnum Bandaríkjanna tæki-
færi til að spila f járhættuspil, og
rennur ágóðinn óskiptur til
krabbameinsvarna í New York-
borg. Áætlað er að ágóðinn nemi
um 100 þúsund dollurum (kr.
4,3 milljónir).
Meðal farþega í þessari spila-
ferð eru Dwight D. Eisenhower,
fyrrverandi forseti og kona hans,
Nelson Rockefeler, ríkisstjóri í
New York og kona hans, sem
hann kvæntist fyrir mánuði,
Adlai Stevenson, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá\SÞ, hertoga-
hjónin af Windsor, Edward
Kennedy, öldungadeildarþing-
maður og fleiri. Alls eru gestir
650, og á boðstólum verða alls
kyns fjárhættuspil, allt frá rúl-
ettu í teningaspil.
Seldir verða sérstakir spila-
peningar, og rennur allt andvirði
þeirra til krabbameinsvarna. —
Vinningar eru margskonar, én
allir gefnir af ýmsum fyrirtækj-
um í New York. Þar eru m.a.
minkaskinnskápur, skartgripir,
'þróttatæki, listaverk og dýrindis
ilmvötn.
Um borð í skipinu eru tvær
hljómsveitir, sem leika fyrir
dansi, ef einhverjum skyldi leið-
ast fjárhættuspilin.
44 FARAST f FRAKKLANDI
— 771 SLASAST
París, 4. júní — NTB
482 umferðarslys urðu í Frakk-
landi um hvítasunnuna. 771 slas-
aðist og 44 létu lífið í slysum
þessum. Hér er þó um bráða-
birgðatölur að ræða.
STAKSTEIMR
Vilja nota verkamenn
f viðtali því, sem birtist hér
í blaðinu skömmu fyrir sl. helgi,
við einn af fyrrverandi flokks-
mönnum Kommúnistaflokksins,
Ragnar Gunnarsson, lýsti hann
m.a. hinu raunverulega viðhorfi
flokksforystunnar til verkalýðs-
ins. Þar sagði ma.:
„Aðaláhugamál þeirra (þ. e.
forystumanna kommúnista í
verkalýðshreyfingunni) virtist
mér alltaf vera það að tryggja
pólitísk völd flokksins í verka-
lýðshreyfingunni.
Þeir létu sér I léttu rúmi
liggja allt hið daglega starf, en
ruku upp til handa og fóta í sam-
bandi við kosningar og verkföll.
Svona er þetta enn þann dag í
dag. Mér fannst aftur á móti —
þó að ég liti vissulega á mig sem
talsmann flokksins og fulltrúa
— að hið daglega starf ætti að
sitja í fyrirrúmi og hið pólitiska
fylgi flokksins innan verkalýðs-
hreyfingarinnar ætti síðan að
koma sem ávöxtur þess trausts,
sem flokkurinn áynni sér vegna
starfa sinna í þágu verkalýðsins.
Þessi skoðjin hefur hvorki fyrr
né síðar átt upp á pallborðið hjá
flokksforystunni, enda held ég
að viðhorf hennar til verkalýðs-
ins verði ef til vill bezt lýst með
orðum eins þeirra manna, sem
hraktist úr flokknum á undan
mér, að hún vilji helzt nota bök
verkamanna til þess að skríða
eftir þeim í valdastólana".
Alltaf verið að
selja landið!
í lok viðtalsins segir Ragnar:
„Forystumenn „Sósíalista-
flokksins" hafa allt frá upphafi
verið óþreytandi við að tönnlast
á þeirri hættu, sem frelsi og
sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar
eigi að stafa af öllu, sem gert er.
Sama hvort það eru innlendar
efnahagsráðstafanir eða svo að
maður tali nú ekki um eðlileg
samskipti við aðrar þjóðir. Allt
eiga að vera fjörráð við pólitískt
og efnahagslegt sjálfstæði þjóðar
innar. Ég held mér sé óhætt að
fullyrða, að jafnvel innan „Sósíal
istaflokksins“ sé þorri manna
löngu hættur að hlusta á þessar
fáránlegu fullyrðingar um, að
. stór hópur af áhrifamönnum
þjóðarinnar sitji á svikráðum við
hana og bíði aðeins eftir heppi-
legu tækifæri til að „selja“ sjálf-
stæði þjóðarinnar. Þetta er plata,
sem látlaust hefur verið spiluð
frá árinu 1946, og hugmyndaflug
forystumanna Sósíalistaflokksins
ristir nú ekki dýpra en það, að
þeim kemur ekki einu sinni til
hugar að snúa plötunni við, þó
að flestir séu löngu farnir að
hlægja að þessum sölumennsku-
sögum þeirra. Enda býst ég við,
að flestir geti orðið sammála um,
að það sé ekki amalegt að hafa
slíka sölumenn í fyrirsvari fyrir
þjóðina, sem átt hafa að vera að
selja frelsi hennar og sjálfstæði
á hverju einasta ári um langt
árabil, án þess þó að við þurfum
nokkurn tíma að láta það af
hendi. Þessir miklu sölumanns-
hæfileikar, sem forystumenn
„Sósíalistaflokksins“ hafa fundið
í fari andstæðinga sinna, minna
mig helzt á söguna af karlinum,
sem alltaf var að selja sömu dúf-
. urnar, en þær flugu jafnliarðan
(til hans aftur“.