Morgunblaðið - 11.06.1963, Síða 1
50. árgangur
128. tbl. — Þriðjudagur 11. júní 1963
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Sjálfstæðisflokkurinn jók
fylgi sitt úr 39,77° í 41,47°
Viðreisnarflokkarnir hafa stuðning
55,7%þjóðarinnar,en höfðu 54,9%
HEILDARNIÐURSTAÐA alþingiskosninganna sl.
sunnudag er sú, að íslenzka þjóðin hefur vottað við-
reisninni traust og sýnt, að hún stendur að miklum
meirihluta að baki þeim umfangsmiklu umbótum á
efnahagskerfi þjóðarinnar; sem í viðreisnarráðstöfun
unum fólust og kýs, að áfram sé haldið þeirri ábyrgu
utanríkisstefnu, sem Viðreisnarstjórnin hefur fylgt.
I*að er ekki aðeins, að viðreisnarflokkarnir hafi hald-
ið velli, heldur hafa þeir nú einnig stærri hluta þjóð-
arinnar á bak við sig. en áður, þar sem hlutfallstala
þeirra hækkaði í 55.7% úr 54.9% í síðustu kosning-
um. Þrátt fyrir þessa atkvæðaaukningu misstu flokk
arnir einn þingmann, fengu nú 32 þingmenn,
en höfðu áður 33, sem ekki hefur þó áhrif á þing-
meirihluta þeirra. Samkvæmt yfirlýsingum forystu-
manna viðreisnarflokkanna, Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins, fyrir kosningar, mun samsteypu-
stjórn þessara flokka fara áfram með völd næsta
kjörtímabil og halda áfram því mikla uppbyggingar-
starfi, sem hafið var á síðasta kjörtímabili. Með vali
sínu hefur íslenzka þjóðin lagt grundvöll að áfram-
haldandi sókn til aukinnar velmegunar og að
frjálsara, heilbrigðara og réttlátara þjóðfélagi.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut
í þessum kosningum ein-
hverja hagstæðustu útkomu,
sem hann hefur hlotið um
langt skeið, eða 41,4%
greiddra atkvæða, en í síð-
ustu kosningum hlaut hann
39.7% greiddra atkvæða. —
Þrátt fyrir þessa háu hlut-
fallstölu fjölgaði þingmönn-
um flokksins ekki, og hefur
hann nú 24 þingmenn, eins
og áður.
Alþýðuflokkurinn má einn
ig mjög vel við kosningaúr-
slitin una, þó að hlutfalls-
tala hans sé nú nokkru lægri
en í síðustu þingkosningum
og hann hafi misst einn þing-
mann, þar sem síðustu þing-
kosningar voru flokknum ó-
venju hagstæðar. Alþýðu-
flokkurinn hefur nú 8 þing-
menn, en hafði áður 9.
Þó að Framsóknarflokkur-
inn hafi unnið verulega á,
bætt við sig tveim þingsæt-
um og aukið hlutfallstölu
sína nokkuð, tókst honum
ekki að fá það „stöðvunar-
vald“ í íslenzkum stjórnmál-
um, sem hann stefndi að og
verður að sætta sig við að
vera utan ríkisstjórnar þetta
kjörtímabil. Framsóknarflokk
urinn hefur nú 19 þingmenn,
en hafði áður 17.
Tilraun kommúnista til að
leyna fylgistapi sínu meðal
þjóðarinnar með kosninga-
bandalaginu við „Þjóðvarnar-
flokkinn“ misheppnaðist al-
gerlega og minnkaði fylgi
þeirra úr 19.4% í 16%. Er
sérstök ástæða til að fagna
fylgistapi kommúnista, sem
áréttar, að fylgi þeirra meðal
þjóðarinnar minnkar nú jafnt
og þétt. Þingmenn kommún-
ista eru nú 9, en voru áður 10.
Á kjörskrá voru nú við
kosningarnar 100.573, en at-
kvæði greiddu 90.945, eða
90,4%. Er það sama þátttaka
og 1959.
Atkvæðatölur flokkanna og
hlutfallstölur þeirra (í svig-
um atkvæðatölur og hlutfalls-
tölur í síðustu kosningum)
eru sem hér segir:
Alþýðuflokkur 12793 atkv.,
eða 14,2% (12909 atkv., eða
15,2%).
Framsóknarflokkur 25220
atkv., eða 28,2% (21882 atkv„
eða 25,7%).
Sjálfstæðisflokkur 37116
atkv., eða 41,4% (33800 atkv.,
eða 39,7%).
„Alþýðubandalag" 14274
atkv., eða 16% (16504 atkv.,
eða 19,4%, Þjóðvörn meðtal-
in).
Óháðir, utan flokka 143
atkv., eða 0,2%.
Um kosningaúrslitin er
rætt í forystugrein blaðsins í
dag, og úrslitin í einstökum
kjördæmum eru á bls. 2.
Tvær
togarasölur
TOGARINN Fr-eyr seldi í gssr-
morgun 261 lest fyrir 165.500
mörk í Brejnerhaven. Þá seldi
Jón forseti í Hull 135 lestir fyrir
rúm 8 þúsund sterlingspund.
Bjarni Benediktsson.
Sjálfsagt að Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokkur starfi saman áfram
segir Bjarní Benediktsson
formaður Sjálfstæðisflokksins
MORGUNBLAÐIÐ hafði í
gærkvöldi samband við
Bjarna Benediktsson, for-
mann Sjálfstæðisflokksins,
og spurði hann um álit
hans á kosningaúrslitun-
um. Bjarni Benediktsson
sagði:
„Stjórnin hefur blotið
ótvíræða traustsyfirlýs-
ingu kjósenda. Vegna óhag
stæðra hlutfalla í einstök-
um kjördæmum hefur að
vísu eitt þingsæti tapazt,
en starfhæfur meirihluti
helzt á Alþingi. Er það í
fyrsta skipti, að stjórn,
sem starfað hefur áður
heilt kjörtímabil, hlýtur
fylgisaukningu og veruleg-
an meirihluta allra kjós-
enda.
Ég tel sjálfsagt að stjórn
arflokkarnir haldi áfram
samstarfi, svo sem þeir
lýstu báðir yfir fyrir kosn-
ingar. Eins og dómur þjóð-
arinnar sýnir, þá telur
hún, að stjórnin hafi unn-
ið heillarík störf, en marg-
ur vandi er enn óleystur
og munum við enn sem
fyrr leggja okkur fram að
verða þess trausts verðir,
sem okkur liefur verið
sýnt.
Sjálfstæðisflokkurinn hef
ur nú unnið einn sinn
mesta kosningasigur og vi!
ég í nafni flokksins þakka
öllum þeim, sem hlut eiga
að því að sigur hefur unu-
izt“.
Vantar 17
FRAMSÓKNARFLOKK-
URINN fær nú 19 þing-
menn út á aðeins 28,2%
kjósenda. Sjálfstæðisflokk
urinn til dæmis fær hins
vegar ekki nema 24 þing-
menn, þótt hann hafi
41,5% kjósenda. Þrátt fyrir
kjördæmabreytinguna er
því enn um mikið misræmi
að ræða.
Ef fullur jöfnuður hefði
átt að nást hefðu þurft að
vera 17 uppbótaþingmenn
í viðbót við þá 11, sem nú
eru kjörnir. Þetta sýnir
gleggst, að kjörfylgi Fram-
sóknarmanna er ekki í
neinu samræmi við þing-
mannatölu þeirra.