Andvari - 01.01.1906, Page 108
102 Dr. Valtýr og embættisgjöldin.
stofn ní embœtti, nema brina nauðsin beri til«. Jeg
skora á doktorinn að benda á nokkuð það í grein
rainni í lirra, sem fari í bága við þessa meginreglu.
Ella heili hann maður að minni!
Enn jeg tók líka fram í firra, að »ekkert mál«
— ekki einu sinni sparnaður í embættisgjöldum —
»liefði gott af því, að það væri barið fram með öfg-
um og íkjum og vísvitandi ósannindum«. Þetta alt
varð jeg var við í hinni alræmdu Eimreiðargrein
doktorsins um embættisgjöldin, og til að leiðrjetta
það skrifaði jeg greinina í firra, og ekki til neins
annars. Ef vjer viljurn bæta mein þjóðar vorrar,
verðum vjer að sjá þau eins og þau eru. Vjer meg-
um hvorki gera of lítið úr þeim, nje beldur íkja þau
með því að líta á þau gegnum stækkunargler öfga
og ósanninda. Pennan meðalveg reindi jegaðþræða
í grein minni í firra, og vona jeg, að hver sem les
hana með köldu blóði og er ekki blindaður af floks-
hatri, muni kannast við, að mjer hafi tekist það
nokkurn veginn.
Það er annars ekki í íirsta sinni, að embættis-
gjöld vor hafa verið borin saman við embættisgjöld
Dana. Páll Briem hefur gerl það í áliktarorðum rit-
gjörðar sinnar um mentun unglinga og barna, sem
nilega hafa komið á prent í Níju Kirkjublaði. Og
hann kemst að þeirri niðurstöðu, að launabirðin hjer
á landi sje »miklu minni á mann enn í Dcmmörkua
og eftirlaunabirðin í Danmörku y>meira en þrefalt
hœrri á manna, og ef ellistirkur gamalmenna sje með
talinn, þá »fimmfalt hœrri enn hjer á landia. (Níll
Kirkjublað 1906 á 83. bls.). Pessi orð Páls Briems
kveða upp áfellisdóm ifir íkjuin og öfgum doktors
Valtýs um embæltiskostnað íslendinga í samanburði
við embættiskostnað Dana.