Andvari - 01.01.1906, Page 96
90
Dr. Valtýr og embættisgjöldin.
um vorum og Dana eða Færeiinga getur átt sjer stað,
nema því að eins að embættisgjöld vor sjeu talin
eftir nákvœmlega sömu reglum og sömu gjöld hjá
Dönum og Færeiingum.
I.
Um firra atriðið, embœttisgjöld vor Islendinga,
játar dr. V. nú, að hann hafi gert sig sekan i reikn-
ingsvillu, að því er snertir laun landritara og skrif-
stofustjóra. Aftur á móti hefur hann ekki getað bent
á eina einustu villu í mínum reikningi, Ágreiningur-
inn er hjer að eins um það tvent, hvað megi með
rjettu telja til embættisgjalda og hvernig eigi að
sundurliða reikninginn.
Sundurliðunin stendur í rauninni ekki á miklu,
því að gjöld eru gjöld, til hvaða lloks sem þau telj-
ast. Enn samt gegnir furðu, að doktorinn skuli enn
vilja telja uppliæð, sem gengur til uppbótar eftir-
launum presta og prestsekkna, í Zaunaflokki, en ekki
með öðrum eftirlaunum. Hvor okkar er það hjer,
sem »fer með útúrsnúninga og reinir að villa mönn-
um sjónir«?
Mestur ágreiningur er um liitt atriðið, hvað
megi með rjettu telja til embættisgjalda.
Dolctorinn heldur enn fram þeirri ljarstæðu, að
alla starfsmenn, sem fá nokkurt endurgjald úr lands-
sjóði, t, d. hreppstjóra, fangavörð.flskimatsmenn, um-
boðsmenn o. s. frv., beri að telja með embættis-
mönnum, og laun þeirra með embættisgjöldum ! ,)eg
fjölirði ekki um það, enn skíi'skota að eins til allra
óvilliallra, skinbærra manna, hvort slíkir starfsmenn
sjeu i daglegu máli taldir »embættismenn«. Hilí er
verra, að doktorinn dirfist í sambandi við þetta at-
riði að bera mjer á brín óráðvendni. Hann segir,
að jeg vilji telja laun starfsmanna með embættis-