Andvari - 01.01.1906, Page 81
Vegir og flutningar.
75
Til gleggra yflrlits set jeg hjer samanburðarupp-
hæðir; sá flutningur, sem kostar, ef ilutt er á klyfja-
hestum ......................................... 100 kr.
kostar á kerru á vegi með halla 1 : 20 54 —
— - fjórhjólavagni á sama vegi ........ 36 —
— - kerru á vegi með lialla 1 : 12 77 —
— - fjórlijólavagni á sama vegi ........ 52 —
Kað eru því ekki smáræðis upphæðir sem spar-
ast með því að flytja á vögnum ef um mikinn flutn-
ing er að ræða, frá 23—64°/o af öflum kostnaðinum
við klyíjaflulning.
El’ skera á úr hvorl það borgi sig að leggja ein-
hvern fyrirhugaðan veg, er nú ekki nóg að vita hve
mikinn hluta af klyfjaflutnings kostnaðinum vegurinn
getur sparað mönnum; til þess að fá út hve mikinn
beinan árlegan arð vegarlagningin getur gefið í aðra
hönd, þarf að gjöra sjer grein fyrir hve mikið má
ætla að verði flull eplir hinum nýja vegi.
Kaupstaðaflutningurinn er hið fyrsta sem kemur
til greina í þessu efni. Það er nokkuð misjafnt, hve
mikið er flutt úr kaupstað af útlendri vöru á hvert
mannsbarn; í sumum sveitum nær það ekki 2 hest-
burðum á mann um árið, en í sumum er það án
efa 4. Minst er flutt þar sem aðdræltir eru örðug-
astir, sem eðlilegl er. Jeg hjrgg að ekki sje fjarri
lagi að gjöra ráð fyrir að 3 liesthurðir (600 pd.) sjeu
fluttir árlega úr kaupstað að meðaltali á livern mann
til sveita, og er þá með talinn sá trjáviður og ann-
að el'ni, sem þarf til þess að halda við liúsum og
mannvirkjum, en ekki það sem þarf þegar á að
hyggja eitlhvað upp að nýju eða hæta við. Eptir
þessu og vegalengdinni í kaupstað má nú reikna
út hjer um hil hve mikið vagnflutningur getur spar-
að hverjum einstökum. Tökum t. d. bónda með 10
manns í heimili, sem á 4 mílur í kaupstað. Hann