Andvari - 01.01.1906, Blaðsíða 59
53
Um þjóðfundinn 1851.
lslendinga, og því kvaddi jeg biskup landsins, há-
yfirdómarann, amtmanninn í Vesturaintinu, l'orstöðu-
mann prestaskólans og yfirrjettardómára Jónassen á
fund, og skýrði þeim frá skoðun minni á málinu,
og skoraði um leið á þá að koma fram með þær
athugasemdir, sem þeir kynnu að hafa, og þær breyt-
ingar, sem þeir kynnu að vilja fara fram á; en allir
þessir menn lýstu því þá yfir, að þeir að öllu leyti
og algjörlega væru samdóma lillögu minni, og báðu
mig um að geta þessa í skýrslu minni til stjórnar-
ráðsins1.
Jeg skal því nú skýra frá þessari skoðun minni,
sem miðar til þess, að lagl verði fyrir ríkisþingið
lagafrumvarp, er i sjeu þessi aðalatriði:
1. Grundvallarlög Danmerkurríkis skulu látin gilda
fyrir ísland.
2. Jafnskjótt og lögbundin er skipun sveitarstjórn-
ar í hinum stærri hlutum konungsríkisins, skal
gjöra hana analogice gildandi fyrir ísland, þann-
ig að alþingi verði yfirsveitarstjórn hjer.
3. Á alþingi skulu eiga sæti, einn þjóðkjörinn þing-
maður fyrir hverja sýslu, svo og hiskupinn, amt-
mennirnir yfir Vesturamtinu, og Norður og Aust-
uramtinu, eða þeir embættismenn, er síðar kynnu
að koma í þeirra stað, háyfirdómarinn, forstöðu-
maður prestaskólans og landfógetinn.
4. Island sendir menn á ríkisþingið i Kaupmanna-
höfn, tvo lil fólksþingsins, og einn lil landsþings-
ins. Þangað til alþingi kemur saman, velur kon-
ungur þessa menn; en jafnskjótt og alþingi kem-
ur saman, kýs það þessa menn.
(Sökum hinna miklu erfiðleika, sem óneitan-
lega eru hjer til staðar, að finna menn, sem ekki
1) Ilér heflr Oddg. Stei»]ienssen skrifað við: »Þessu liafa þeir neitað
siðar, þeir Melsted, Sveinbjörnsson og Pjetursson.