Andvari - 01.01.1906, Síða 55
49
Um þjóðfundinn 1851.
I'eir ætla sjer nú að gjöra þrjá sendimenn á fund
Hans Hátignar konungsins, lil þess beinlínis að skýra
málið fyrir honum, og fá hans úrskurð í því. Til
sendifararinnar hafa þeir kjörið Jón Sigurðsson, sett-
an sýslumann Jón Guðmundsson og sýslumann E.
Briem. Með því að Jón Guðmundsson er embættis-
maður í Suöuramtinu, lieíi jeg þegar fengið beiðni
frá honum urn fararleyíi til Kaupmannahafnar í
vetur; þessari beiðni hefi jeg svarað þannig, að jeg
furðaði mig á því, að hann sýndi embætti sínu svo
lilla rækt, að hann nú, þótt hann í meira en ár
hefði ekki komið nærri því, færi að biðja um svo
langt orlol’ lil að vera frá því, og að slíkt leyíi því
yrði eigi veitt honum, heldur skipaði jeg honum að
fara tafarlaust heim til embættis sins.
Hinn 14. þ. m. hefi jeg aptur fengið brjef frá
honum, þar sem hann tilkynnir mjer, að hann segi
lausri skipun sinni sem settur sýslumaður í Skapta-
fellssýslu, og að jeg innan 12 daga verði að senda
mann þangað, sem á eigin ábyrgð taki við embætt-
inu. Þessu svaraði jeg samdægris þannig, að með
því að liann væri setturtil þriggja ára af innanríkis-
stjórninni, gæti hann ekki án hennar samþykkis yfir-
gelið embættið.
Af öllu framanrituðu sjest það, að meðan að
sama hugarfar ríkir hjer á eyjunni og nú, má ekki
búast við þvi, að neitt frumvarp frá stjórninni geli
lengið rneiri hluta fyrir sjer á neinni þjóðkjörinni
samkomU; það er alveg ljóst, að þetta hugarlár aðal-
lega er sprottið frá embættismönnunum, þar sem mjög
margir þeirra meira eða minna reyna stöðugt að vinna
a móti öllum gjörðum stjórnarinnar. Efþví á að breyta
hugarfari manna til batnaðar og í meira samræmi við
'öggjöíina, þá verður það að minni liyggju einungis
^ægt á þann liátt, að stjórnin sýni það skorinort, að
4