Andvari - 01.01.1906, Qupperneq 54
48
Um þjóðl'imdinn 1851.
arins, og gjörðist það fyrst á þessuin fundi, að hjá-
lagl brjef1 var samið og senl forseta fundarins, amt-
manni Melsted, og leyfi jeg mjer einnig að senda
brjef lians um þetta. í fyrnefndu brjefi undirrituðu
af 33 fundarmönnum felast hinar svæsnustu að-
dróttanir bæði til forsetans og mín sem konungsfull-
trúa, og jeg verð að tjá mig alveg samdóma amt-
manni Melsteð um, að það sje algjörlega nauðsynlegt,
að stjórnin sjái okkur fyrir algjörðri uppreisn, því
án þess getum við ekki eins og vera ber uppfyllt
stöðu okkar, sem í sjálfu sjer er þegar ærið vanda-
söm; en þar eð málið, eins og ávikið er, snertir sjál-
an mig eins og amtmann Melsteð, skal jeg ekki fara
lleiri orðum um það, en læt mjer nægja að bera það
fram fyrir stjórnina og' íela það liennar rjettlátu úr-
lausn; einungis vil jeg taka það fram, að meðal
þeirra, sem hafa undirskrifað, verður að telja þá Jón
Guðmundsson, assessor Cliristiansson, prófast Stephen-
sen, prófast Halldór Jónsson og Jón Sigurðsson, bæði
í þessu máli, og að öllu leyli meðan á fundinum
stóð, hafa sýnt mesta og skaðvænasta starfsemi.
Þessir sömu menn hafa eptir því sem jeg heli
frjett (þar eð lögreglustjórinn í Reykjavík, assessor
Christiansson, sjálfur er einn meðal þeirra, þá fæ jeg
auðvitað engar upplýsingar frá honum um það, sem
gjörist), síðar Jialdið ýmsa fundi, bæði stærri og
minni, sumpart bjá Jóni sýslumanni Guðmundssyni,
sumpart hjá assessor Ghristiansson, og hafa á þeim
komizt að þeirri niðurstöðu, sem raunar kemur al-
veg heim við það aðalatriði, sem tekið er fram í
nefndarálitinu, að ísland sje sjálfstætl ríki, sem ein-
ungis haíi konung sameiginlegan með Danmprku2.
l) lirjef þetta er prentaö í Sunnanfara.
a) Iljer hefir Oddgeir Stephensen ritaö utan máls á dönskit »þetta
stendur hvergi í nefndarálitinu, lieldur þaö gagnstæða; Island
er í þvi viðurkennt liluti aí' ríkinu«, og er þetta rjett hermt.