Andvari - 01.01.1906, Page 9
Kristján konungur níundi. 3
Þeir sem á komandi árum og öldum lesa sér til
sögu landsins úr alþingistíðindunum, reka augun í
það, hve hlýlegar og innilegar kveðjur fara milli
Kristjáns konungs IX. og alþingis, og vitum vér sem
nú lifum, af hve einlægum huga það er mælt. Þótt
ekki væri samltomulagið um pólitíska innihaldið í
ávarpskveðjunni, og því þá vísast alveg slept, voru
allir þingmenn samhuga um, að túlka öldungnum
lotningu og ást hinnar íslenzku þjóðar, og vissu að
honum var það gleði.
Friðrik konungur VIII, heíir nú sýnt oss hinn
órækasta vott þess, að hann vill vera oss íslendingum
slíkur sem faðir hans var. I sambandsmálum vorum
við Dani höfum vér alt traust vort og liald, þar sem
konungur vor er. Hið virðulega hoð konungs til al-
þíngismanna gefur oss beztu vonir um l'arsællega
sambúð við frændur vora og samþegna, sem lofsæll
faðir hans bar svo mjög fyrir brjósti.
Bókagerðariélög landsins, Bókmentafélagið og
Þjóðvinafélagið, gera vel í því að koma mynd hins
látna konungs vors inn á sem ílest heimili, svo að
þau geli geyml svip hins góða göfugmennis.
Pórh. Bj.
1*