Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988. 11 Utlönd Bush með meira fylgi en Dukakis Nýleg skoðanakönnun í Bandaríkj- unum, sem gerð var á vegum CNN sjónvarpsstöðvarinnar og USA Today dagblaðsins, sýnir að George Bush, varaforseti Bandaríkjanna og frambjóðandaefni repúblikana i for- setakosningunum sem fram fara í haust, nýtur meira fylgis Banda- ríkjamanna en Michael Dukakis, for- setaframbjóðandi demókrata í for- setaembættið. Bush hlaut 47 prósent atkvæða en Dukakis 44prósent í könnuninni sem gerð var dagana 6.-10. júlí sl. Þetta er í fyrsta sinn í margar vikur sem skoðanakannanir sýna Bush í fremstu víglínu. í síðustu skoðana- könnun, sem gerö var í júní, hlaut Bush 38 prósent en Dukakis 45 pró- sent. Skoðanakannanir síðustu vik- ur sýna flestar aukningu á fylgi Bush. Þó er ein könnun, sem gerð var á vegum New York Times dag- blaðsins og CBS sjónvarpsstöðvar- innar, sem setur Dukakis á toppinn með 47 prósent atkvæöa en Bush 39 prósent. Dukakis biðlar nú til minnihluta- hópa, einkum blökkumanna, í kjöl- far vals hans á Lloyd Bentsen, hvít- um Texasbúa, sem varaforsetaefni. Dukakis hunsaði blökkumanninn Jesse Jackson sem keppti við Dukak- is um útnefningu demókrata til for- seta og taldi sig hafa rétt á stöðunni vegna góðrar frammistöðu í forkosn- ingum. Reuter George Bush, forsetaframbjóðandaefni repúblikana, nýtur meira fylgis Bandaríkjamanna en keppinautur hans, demókratinn Michael Dukakis. Bush sést hér ásamt dr. Henry Zelaya, einum leiðtoga stjórnarandstöðunn- ar í Nicaragua. Símamynd Reuter Úrkoman eins og blek í þerripappír Anna Bjamason, DV, Denven Þrátt fyrir nokkra rigningar- skúri á suðurhluta þurrkasvæð- anna í Bandaríkjunum á mánudag- inn og að spáð sé einhverri úrkomu á norðursléttunum og i miövestur- og suöausturhéruðunum í dag, fimmtudag, er barátta bændanna enn spuming um líf eða dauöa, áframhaldandi búskap eða gjald- þrot. Stjómvöld i Washington hafa nú komist að þeirri niöurstöðu að komuppskera þessa árs verði 26 prósent minni en í venjulegu ár- ferði, hveitiframleiöslan verði 16 prósent minni og framleiösla haframjöls dragist saman um 32 prósent og verði því minni en hún hefur nokkru sinni verið frá þvi áriö 1874. Stjórnvöld telja aö þetta muni valda um 1% hækkun á mat- vörum en ýrasir aðrir spá nú 4-5% haekkun. Úrkoman í Kentucky og Ohio á raánudag mældist 2-3 sentimetrar en hún hvarf í skrælnaða jöröina eins og blek í þerripappír. Þá hafði ekki komið deigur dropi úr lofti á þessum svæðum í 31 dag og vantaði dag upp á metárið 1924 þegar ekki rigndi í 32 daga. Við úrkomuna lækkaöi hitinn um 15 stig, eða úr 36-38 stigum á cels- íus í 21-23 stig. Svona rigning má sín lítils. Langvarandi úrkomu er þörf. Nú er ástandið verst í miö- hémðum Illinois og Indiana, þar er engrar vætu von. LAUSAR KENNARASTÖÐUR Tvo kennara vantar að Reykholtsskóla í Biskups- tungum. Meðal kennslugreina íþróttir. Upplýsingar veita Unnar Þór í síma 98-68831 og Þor- finnur í síma 98-68863. Rakarastofan Klapparstig Sími 12725 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Tímapantanir 13010 Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina maí og júní er 15. júlí nk. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Nýkomnar rafmagnsvindur 200 kg lyftigeta. Fylgibúnaður: gálgar, hlaupabraut, hjóla- vagn og vinnupalla- festingar. Verð aðeins kr. 75.000,00 með fylgibúnaðinum. Góð greiðslukjör. Aðeins örfáar vindur eftir. Pallar hf. VESTURVÖR 7 • S. 42322 RENNIBEKKIR TIL AFGREIÐSLU Ríkisstyrkir gætu riðið baggamuninn Talið er að þurrkarnir og afleiöing- ar þeirra geti haft úrslitaáhrif í for- setakosningimum í Bandaríkjunum sem fram fara þar í landi í haust. George Bush, forsetaframbjóð- andaefni repúblikana, á undir högg að sækja í landbúnaðarhéruðunum og telja margir að taki stjómvöld ekki á honum stóra sínum í þessu máli komi þaö til með að skaða sigur- líkur Bush en hjálpa Michael Dukak- is, forsetaframbjóðandaefni demó- krata. Það rigndi lítið eitt á þurrkasvæð- unum í byijun vikunnar en ekki er talið að það hafi verið nægjanlegt til að koma í veg fyrir stórfelldan upp- skembrest. Nú standa margir bænd- ur frammi fyrir gjaldþroti í kjölfar þessara þurrka. Hvert þó í þreifandi! Regndansinn hefur áhrif. - Hinir miklu þurrkar, sem staðið hafa yfir í miðrikjum Bandaríkjanna og hugsanleg áhrif þeirra á fylgi Bush varaforseta, hafa hér orðið teiknaranum Lurie efni í skopmynd. L 900 BM Hæð i miðlínu 159 mm Lengd á milli odda 900 mm M/fylgihlutum kr. 214.315,- m/söluskatti L 450 Hæð i miðlinu 102 mm Lengd á milli odda 450 mm M/fylgihlutum kr. 88.163,- m/söluskatti HAGSTÆTT VERÐ rsteinsson &ionnsonhf. ARMÚLA1 - SÍMI68-55-33 Umsjón Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Steinunn Böðvarsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.