Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1988, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988. 9 Utlönd Gorbatsjov styður Jaruzelski Mikhail Gorbatsjov lýsti yfir stuðn- ingi við Jaruzelski, leiðtoga pólska kommúnistaflokksins, í sjónvarps- viðtali í morgun á fjórða degi opin- berrar heimsóknar sinnar til Pól- lands. Jaruzelski er fylgjandi umbóta- stefnu Gorbatsjovs og telja frétta- skýrendur að það hafi átt þátt í að Gorbatsjov lýsti yfir stuðningi sínum við pólska leiðtogann. Umbótastefn- an hefur ekki átt sama fylgi að fagna í mörgum löndum austantjalds og í Póllandi. Gorbatsjov mun hitta nokkra full- trúa stjómarandstöðunnar í Póllandi í dag, auk þess sem hann mun skoða Varsjá. Reuter Mikhail Gorbatsjov áritar bók sina, Perestroijka, í opinberri heimsókn Sinni í Póllandi. Símamynd Reuter Bréf ráðherra- frúar tákn um agremmg Guimlaugur A Jónssan, DV, Lundi- Birgitta von Otter, eiginkona Kjell-Olof Feldts, fjármálaráðherra Svía, skrifaöi í gær grein í Afton- bladet, stuðningsblað ríkisstjórn- arinnar, þar sem hún gagnrýndi Ingvar Carlsson forsætisráðherra fyrir hvemig hann hefði tekið á Ebbe Carlsson-málinu. Greinin hefur vakið gífurlega at- hygli vegna þess að hún er talin geta bent til þess að alvarlegur ágreiningur sé innan ríkisstjómar- innar. Að minnsta kosti þykir mörgum ótrúlegt aö Birgitta von Otter hafi skrifað grein sem þessa án þess að eiginmaður hennar, fjár- málaráðherrann, hafi lagt blessun sfna yflr þaö. Birgitta von Otter gagnrýnir for- sætisráðherrann fyrir aö hafa gert lítið úr mistökum Önnu-Gretu Lei- jon dómsmálaráðherra í Ebbe Carlsson-málinu. Hún gagnrýnir hann sömuleiðis fyrir að hafa kennt stjómarandstöðunni um aö Anna-Greta Leijon varð að víkja úr embætti og loks gagnrýnir hún hann fyrir að meðhöndla ráöherra sfna á mismunandi hátt. Vísar hún í því sarabandi til þess að Sten Wickbom hafi engan veg- inn hlotið sama stuðning og Anna- Greta Leijon fékk er hann varð að segja af sér embætti dómsmálaráö- herra. Hafi brot hans þó engan veg- inn verið eins alvarlegt og brot. Önnu-Gretu Leijon er hún lagði blessun sfna yfir einkarannsókn Ebbe Carlssonar á Palmemorðinu. Ingvar Carlsson hefúr neitaö að tjá sig um grein Birgittu von Otter og Anna-Greta Leijon hefur sagt þaö eitt að greinin sé stórfurðuleg en auðvitað sé Birgittu von Otter frjálst að hafa þær skoðanir sem henni sýnist Bo Turesson, ritari Jafnaðar- mannaflokksins, var í gær sá eini af forystumönnum flokksins sem tjáði sig um greinina. Hann sagöist þó ekki vilja velta vöngum yfir því hvort Kjell-Olof Feldt væri sam- mála innihaldi greinarinnar. Hann viti það eitt að Feldt hafi verið með á fundi f forystu flokksins þar sem Ebbe Carlsson-raálið var rætt á sf n- um tfraa og þar hafi Ingvar Carls- son hlotið einróma stuðning fyrir það hvemig hann hafi tekiö á mál- inu. Flest sænsku dagblaöanna fjöl- luðu um grein Birgittu von Otters í leiðurum í morgun og er það mat nokkurra leiðarahöfunda að óþjá- kvæmilegt sé fyrir fjármálaráð- herrann að gefa út yfirlýsingu um hvort hann sé saramála gagnrýni eiginkonu sinnar eða ekki. Endurminningar varla kærkomin afmælisgjöf Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi: Sænski leikstjórinn Ingmar Berg- man er sjötugur í dag. Sænskir fjöl- miðlar halda upp á þessi tímamót í lífi leikstjórans heimskunna með margvíslegum hætti. Þannig flytur útvarpið sex leikrit hans þessa dag- ana og sjónvarpið sýnir sömuleiðis röð af myndum hans. Fyrir nokkrum dögum sendi bóka- útgáfufyrirtækið Bra Böcker frá sér bók Önnu Bergman, einnar af dætr- um leikstjórans. Varla er það kær- komin afmælisgjöf fyrir leikstjórann því í bókinni dregur Anna Bergman upp heldur ógeðfellda mynd af leik- stjóranum sem hafi verið heldur ruddalegur í samskiptum við börn sín, kallað þau djöflana en að mestu látiö þau afskiptalaus og til dæmis aldrei gefið þeim jóla- eða afmælis- gjafir. Er ekki laust við að ýmsar lýsingar Önnu Bergman á föður sínum minni á lýsingar Ingmars Bergman á æsku hans í endurminningabók hans, Lat- ema Magica, er kom út fyrir síöast- Uðin jól. Anna Bergman er mjög berorð í bók sinni og skýrir meðal annars opinskátt frá því að hún hafi starfað sem vændiskona í London um skeiö. „Við seljum okkur öll á einn eða annan máta,“ voru viðbrögð leik- stjórans er dóttir hans skýrði honum frá því. Aðvara sandinista Brottvikning Richards Melton, sendiherra Bandaríkjanna, frá Nicaragua getur dregið dilk á eftir sér. Hér er Melton að ræða við blaðamenn eftir að hann kom til Bandaríkjanna. Símamynd Reuter Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í morgun aðvörun til stjómarinnar í Nicaragua þess efnis að þingið kynni að samþykkja að taka á ný upp hernaðaraðstoð við kontraskæruhða ef stjórnin héldi ekki í heiðri friöarsamkomulag Mið- Ameríkuríkja. Þessi ákvörðun kem- ur í kjölfar brottvikningar átta bandarískra stjómarerindreka frá Nicaragua og harðnandi afstöðu stjórnarinnar þar i landi til stjórnar- andstöðunnar. Bandaríkin hættu hemaöaraðstoð við kontraskæruliða í febrúar í vetur en hafa stutt þá fjárhagslega að öðm leyti. Sú aðstoð fellur niður í sept- ember nk. Aöstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna, Elliott Abrams, sagði í gær að hann teldi víst að fjárhagsleg aöstoð við skæm- liðana yrði endurnýjuö. Ekki er ljóst hvort hann var að tala um hemaðar- lega aðstoð. Stjóm Nicaragua hefur óskaö eftir neyðarfundi Samtaka Ameríkju- ríkja, OAS, til að mótmæla ákvörðun Bandaríkjanna að visa sendiherra Nicaragua og sendimanni landsins hjá OAS, Carlos Tunnerman, ásamt sjö öðmm fulltrúum úr landi í kjölfar brottvikningar átta bandarískra sendiráðsmanna frá Nicaragua. Að áhti fréttaskýrenda verður fjallað um þá kröfu stjómarinnar í Nic- aragua aö sendiherra Nicaragua í Bandaríkjunum fái að vera um kyrrt þar sem hann er sendimaður lands- ins hjá OAS. Sendimaður Bandaríkj- anna hjá OAS hefur óskað eftir því að Tunnerman yfirgefi Bandaríkin. Daniel Ortega, forseti Nicaragua, varaöi við hernaöaríhlutun Banda- ríkjanna í Nicaragua og sagðist ekki verða hissa þó að nú færi í hart milli ríkjanna tveggja. Reuter Sakaður um njósnir Juan Ramon Flores, sem sakaður hefur verið um að selja stjóm sandinista í Nicaragua hemaðar- leyndarmál, neitaöi öhum sakargift- um við yfirheyrslur í gær. Flores var sakaöur um aö hafa selt leyndarmál til Nicaragua og að hafa njósnað um bandaríska herstöð, Pal- merola, þar í landi. Hann á að hafa fengið leiðbeiningar um njósnastörf- in frá Nicaragua. Samkvæmt heimildum innan her- afla Honduras fundust leynileg skjöl í fórum hans þegar hann var hand- tekinn. Reuter ------ A FRABÆRU VERÐI KR. 24.600 STGR. 5 KG • HEITT OG KALT VATN • 14 PRÓGRÖMM • 500 SNÚN- INGAR • TVÖ SPARNAÐARKERFI • ÍSLENSKUR LEIÐARVÍSIR SENDUM í PÓSTKRÖFU UMBOÐSMENN UM LAND ALLT. R» SKIPHOLTI 7, SÍMAR 20080 OG 26800.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.