Morgunblaðið - 14.02.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 B W*
DÆGURTÓNLIST
Southpark-
gengið á
Beat-
slóðin fetuð
MEÐAL skemmtilegri danssveita Bretlandseyja er
dúóið Wiseguys, sem sendi frá sér bráðgóða skífu
seinnihluta síðasta árs. Þeii- Wiseguys-menn feta Big
Beat-slóðina af fimi og íþrótt eins og hejTa niá á ný-
legri skifu þeiira.
Theo Keating, sem kallai- sig Touché, og Paul J. Eve,
sem kallar sig Regal voru miklir áhugamenn um
veggjakrot og danstónlist hvor fyrir sig. Þeir voru báðir
aó þreifa fyrii- sér sem plötusnúðar þegar þeir kynntust
í listaskóla í Clm-kenwell og ákváðu að vinna saman.
Regal var innundir hjá útgáfu og þeir félagai- sendu
frá sér fyrstu skífuna, tólftommuna Keep In Step, 1990
og fengu prýðilegar viðtökur. Touché segir að þeim
félögum hafi sýnst sjálfgefið að bara að flétta saman
bútunum sem þeir sönkuðu að sér sem plötusnúðar.
Með tímanum fóru þeir félagar að semja tónlist fyrir
aðra og útgefandinn Rene Gelston, sem átti útgáfuna
Blaekmarket Intejmational, bauð þeim að setja saman
plötu fyrir sig. Sú skífa, Lailies say Ow! kom út vorið
1994 og þá undir heitinu The Wiseguys, sem þeir hafa
notað upj) frá því.
Wall of Sound-útgáfan virta hafði nýtt sér lag með
Nýr þjóð-
ararfur
BRESKT þjóðlagapopp á sér marg-
ar ólíkar birtingarmyndir. Sumar
sveitanna sem það stunda sækja
stíft í þjóðararfinn, en aðrar eru að
skapa nýjan arf með grípandi lág-
stemmdum lögum. Á síðasta ári kom
út plata með sveitinni Belle &
Sebastian, bráðskemmtileg plata
með sérkennilegu inntaki í textum.
Saga Belle & Sebastian hefst þar
sem skoski rokkáhugamaðurinn
Stuart Murdoch hélt í pflagi-ímsferð
til Lundúna að leita að leiðtoga
rokksveitarinnar Felt. Leitin varð
árangurslaus, en
þegar hann kom
aftur heim til
Glagow fór hann í
háskóla og um leið
að skrifa sögur og
semja lög. Belle &
eftirÁrna Sebastian varð síð-
Mattfiíasson an til á kaffibar i
Glasgow í janúar
fyrir þremur árum. Murdoch og
bassaleikarinn Stuart David ákváðu
að stofna hljómsveit eftir að hafa seU
ið alla nóttina og talað um tónlist. I
kaffihúsinu fann Murdoch síðan aðra
liðsmenn í sveitina, sem er sjö
manna. Sarah Martin leikur á fiðlu,
Stevie Jackson á gítar, Chris Geddes
á hljómborð, Richard Colburn á
trommur og Isobel Campbell á selló.
Með þeim Murdoch og David var
hópurinn því sjö manna og sammælt-
ist um að hafa sveitina sem hliðarbú-
skap, hún átti aldrei að stjórna lífi
þeirra og frítíma. Reyndar var
altalað innan sveitarinnai- að ekki
myndi hún gefa út nema tvær plötur.
Ekki ber mönnum saman um hvaðan
nafnið sé komið, en flestir eru þó
sammála um að það sé fengið úr
franskri sögu, síðar teiknimynd, um
drenginn Sebastian og Belle hundinn
hans.
Þegar sveitin varð til voru þeir
Murdoch og David á námskeiði fyrir
atvinnulausa en eftir að því lauk brá
sveitin sér í hljóðver, tók upp prufur
af nokkrum lögum og hóf að leita að
útgefanda. Starfsmaður Jeepster-út-
gáfunnar heyrði upptökumar og taldi
Murdoch og félaga á að taka upp
breiðskífu sem þátt í námi hans í
tólistarviðskiptafræðum í háskóla í
Glasgow. Liður í náminu er að taka
upp og gefa út plötu, yfirleitt
smáskífu, en hjá Belle & Sebastian
varð niðurstaðan breiðskífa, tekin
upp á þremur dögum og gefin út í
1.000 eintökum. Sú er vitanlega löngu
ófáanleg og eftirsótt af söfnurum.
I kjölfai’ útgáfunnar gerði Belle &
Sebastian samning við Jeepster og
fyrsta breiðskífan, If You’re Feeling
Sinister, kom út í nóvember við góð-
ar undirtektir. Eftir stíft tónleika-
hald um veturinn eyddi sveitin næsta
sumri síðan í útgáfu á smáskífum, sú
fyrsta, Dog On Wheels, komst á
vinsældahsta í Bretlandi, önnur,
Lazy Line Painter Jane, var við það
að komast inn, en sú þriðja, 3..6..9
Seconds Of Light, var valin smáskífa
vikunnar af Melody Maker og NME
og komst inn á lista. Næstu mánuðir
fóru í að taka upp þriðju breiðskíf-
Theo „Touché" Keating og Paul J. „Regal“ Eve.
sveitinni á safnplötuna frægu Give ‘Em Enough Dope
og vildi meira. Um vorið 1995 kom svo út tólftomma
með þeim félögum Nil by Mouth / To Easy og var ekki
síður tekið en því sem á undan var komið.
í kjölfar smáskífanna fengu þeir Touché og Regal
ýmsar beiðnir um enriurhljóðblanrianir og viðvik fyrir
aðra og tóku sér því drjúgan tíma til að vinna sína eigin
skífu sem kom út 1996, sú hét Executive Suite. Seinni-
hluta síðasta árs kom svo út önnur breiðskífan, The
Antidote, hræringur af fönki, triphop og almennu stuði.
Arfur Hluti sjömenninganna í
Belle & Sebastian.
una. Hún kom svo út haustið 1997,
heitir If You’re Feeling Sinister og
vakti á sveitinni mikla athygi, sér-
staklega vestan hafs. Skömmu fyrir
jól kom svo út platan The Boy With
the Ai-ab Strap, sem notið hefur tals-
verðrar hylli, ekki síst hér á landi.
Ein af kvíslum í bresku poppi er
upp full með trega og súrrealískri
naflaskoðun; einskonar þjóðlagatón-
list fyrir þunglynda. Felt, átrúnaðar-
sveit Murdochs, eins og áður er
rakið, dró mjög dám af þessu, og
einnig má minna á Donovan og Nick
Drake. Þær eru legíó bresku
hljómsveitirnar sem fetað hafa álíka
slóð. Þar eru þó víða tæp einstigi þar
sem táradalurinn blasir við á aðra
hönd og allmargar falla í þá gryfju
að vera bara væmnar og yfirþyrm-
andi. Belle & Sebastian hefur aftur á
móti fyrirtaks lagasmið innan sinna
vébanda sem gerir gæfumuninn.
Lostafullur Chef,
sem Isaak Hayes
leggur til rödd.
MEÐ geggjaðasta efni sem gefur að líta í sjónvarpi er þáttaröðin
um félagana í South Park, Kenny, Cartman, Kyle og Stan. Ýmsir
fleiri koma við sögu í þáttunum og þar á meðal tónlistarmenn enda
er mikið um tónlist í þeim. Fyrir skemmstu kom út diskur með tón-
list tengdri South Park.
South Park er smábær í Colorado upp fullur af sérkennilegu
fólki og furðufuglum. Rödd skynseminnar f bænum er rödd mat-
sveinsins í skólaeldhúsinu, en oftar en ekki er það sem hann hef-
ur fram að færa svo litað af óbeislaðri eðlunarfýsn að lítið er á
því að græða. Hann syngur nánast í hveijum þætti og þá oftar en
ekki lostafulla mansöngva. Dylst engum sem heyrir að þar fer
Isaac Hayes og undanfarið hefur hann átt Iag á vinsældalistum
víða um heim, Chocolate Sal-
ty Balls sem er einmitt að
finna á skífunni. Hayes
syngur þijú lög til á plöt-
unni sem Chef, þar af eitt
með Meat Loaf, en aðrir
sem koma við sögu eru t.d.
Ozzy Osbourne, Master P,
sem rappar/syngur
Kenny’s Dead og vísar í
frægt lag Curtis Mayfi-
eld, Puffy Coombs, Ma-
se, Primus, Elton John,
Devo, Ween Rancid og
Joe Strummer, en
ekki má gleyma Eric
Cartman sem syngur
á sinn sérkennilega en þó
heillandi hátt Come Sail Away.
TRYGGVI Hansen kvaddi sér
hljóðs á síðasta ári með geisla-
disknum Vúbbið erakoma, disk
með tónlist sem hann samdi
sjálfur og flutti að mestu einn,
en hann gaf diskinn einnig út
og framleiddi sjálfur heima í
stofu, aukinheldur sem hann
handlitaði umslögin. Fyrir
stuttu kom út annar diskur frá
Tryggva, Inuals dansai’, sem eins er
farið með.
Tfyggvi Hansen segir að hann sé
sífellt að fást við tónlist. „Ég er
að syngja alla daga og þá er ég með
segulbandið í gangi svo þetta dettur
inn ... það verður ekki hjá því kom-
ist,“ segii’ hann og kímir.
Það kostar mikið umstang að gera
allt sjálfur, að ekki sé talað um þegar
menn eru fai’nir að framleiða disk-
ana sjálfir heima í stofu. Tryggvi
segist og sjá fram á að annaðhvort
þurfí hann að setja upp verksmiðju
Nútíma-
leg blanda
Framleiðandi Tryggvi Hansen.
með fjölda manns á launum eða þá
að leita til útgáfu með næstu plötu.
Sú gæti reyndar komið fyrr en varir
því hann segist vera með tvær
plötur í deiglunni, aðra þjóðlega
en hina með meira rafmagni.
Á Vúbbið erakoma var sam-
bland af þjóðlegri tónlist,
hringdönsum og kvæðasöng, og
rafeindatónlist og Ti-yggvi seg-
ist reyndar kunna því mjög vel
að blanda þessu saman og gerir
það á Inuals dönsum. I framtíðinni
segist hann þó langa til að skilja bet-
ur á milli á plötum og meðal annars
verði plöturnar í vor þannig.
Ti-yggvi hefur lítið gert af því að
spila tónlist sína opinberlega, en
hann segir að það sé ekki vegna
skorts á áhuga. „Ég hef ekki fengið
mig í það að spila á öldurhúsum og
kirkjur finnst mér of formlegar þótt
góður hljómburður sé í þeim mörg-
um. Kannski ég reyni að finna mér
gott skot niðri í bæ eða sund til að
spila í eða úti í náttúrunni, ég fer
reyndar oft út í náttúruna og spila og
syng með vinum.“