Morgunblaðið - 14.02.1999, Blaðsíða 18
18 B SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
>
MANNLÍFSSTRAUMAR
LÆKNISFRÆÐI/Z/^d skýrir brjóstsviða og nábít f
Vélindabakflœði
FLESTIR kannast við óþægindi eins og brjóstsviða, nábít og uppþembu,
einkenni sem koma oft eftir máltíð og versna við að beygja sig fram eða
liggja útaf. Slík óþægindi stafa oftast af því að magainnihald nær að renna
upp í vélinda, en það er kallað vélindabakflæði. Hjá langflestum gerist
þetta sjaldan, er alveg meinlaust og viðkomandi losnar við óþægindin áður
en þau fara að valda honum áhyggjum. í slíkum tilfellum verða engar
skemmdir á slímhúð vélindans. Þeir sem fá bakflæði upp í vélinda oft og
ítrekað, geta að lokum fengið bólgu og skemmdir á slímhúð vélindans en
við það versna óþægindin verulega.
VÉLINDAÐ má m.a. skoða á röntgemnynd.
Vélindað er pípa sem flytur fæð-
una úr munni og niður í maga.
Þar sem vélindað opnast inn í mag-
ann er sterkur hringvöðvi sem
hindrar að magainnihald geti flætt
upp í vélindað. Vél-
indabakflæði verð-
ur þegar þessi
hringvöðvi starfar
ekki eðlilega. Þetta
getur gerst ef
hringvöðvinn hefur
eftir Mognús skemmst eða
Jóhonnsson slappast af ein-
hverjum ástæðum
eða ef þindarslit er til staðar. Þindin
er vöðvi sem skilur brjósthol frá
kviðarholi og við þindarslit gúlpast
hluti af maganum upp í brjósthol en
'* við það aukast líkur á bakflæði upp í
vélinda. Algengustu óþægindi við
vélindabakflæði eru brjóstsviði og
nábítur eins og áður getur en einnig
geta verið til staðar uppþemba,
hæsi, þörf fyrir að ræskja sig, næt-
urhósti og kyngingarörðugleikar en
öll þessi einkenni versna eftir mál-
tíðir og við að beygja sig niður eða
liggja útaf. Sumar fæðutegundir
auka sýrumyndun í maga og má þar
nefna mikið kryddaðan og brasaðan
mat en feitur matur hægir á maga-
tæmingu og situr því lengur í mag-
anum. Þetta eykur hættu á vélinda-
bakflæði. Sumt veikir hringvöðvann
og má þar nefna súkkulaði, pipar-
myntu, kaffí, áfengi og þó sérstak-
lega nikótín (úr tóbaki eða nikótín-
lyfjum). Offita, og þá sérstaklega
ístra, þrýstir á magann og sama
gerist á meðgöngu en þá er hring-
vöðvinn þar að auki kraftminni en
annars.
Við langvarandi bakflæði í vél-
inda geta orðið skemmdir á slím-
húðinni vegna þess að slímhúð vél-
indans er ekki gerð til að þola súrt
magainnihald. Þetta getur leitt til
bólgu, sára og blæðinga og á löng-
um tíma til örmyndunar sem
þrengir vélindað og veldur kyng-
ingarörðugleikum. Greiningin
byggist mest á sjúkdómssögu,
röntgenmyndatöku og speglun.
Einnig eru stundum gerðar mæl-
ingar á þrýstingi og sýrustigi í vél-
indanu. Við röntgenmyndatöku er
sjúklingurinn látinn gleypa skugga-
efni og síðan eru teknar myndir.
Speglun er gerð í deyfmgu með
svipuðu tæki og notað er við maga-
speglun, og þá er hægt að skoða út-
lit slímhúðarinnar, taka sýni og oft
er hægt að víkka út þrengingar ef
þær eru til staðar.
Þeir sem þjást af vélindabakflæði
geta sjálfir gert ýmislegt til að bæta
ástandið. Forðast ber að neyta fæðu
í 3 klukkustundir áður en gengið er
til náða, þeir sem reykja eiga að
hætta því án tafar, forðast ber feit-
an mat, mjólk, súkkulaði, pipar-
myntu, koffein, sítrusávexti, tómat-
vörur, pipar og áfengi (sérstaklega
rauðvín eða hvítvín). Borða á minna
í einu og forðast þröng föt. Gott er
að ræða lyfjanotkun við lækni
vegna þess að sum lyf auka hættu á
bakflæði í vélinda. Hægt er að
hækka höfðalag rúms um 10-20 cm,
ekki er nóg að nota auka kodda
vegna þess að það hækkar bara höf-
uðið. Þeir sem eru of feitir ættu að
megra sig, stundum er það allt sem
þarf. Stundum hjálpar að nota lyf
sem minnka sýrumyndun í maga
eða sem flýta magatæmingu. Ef
þindarslit er til staðar getur verið
þörf fyrir að laga það með skurðað-
gerð og einnig eru stundum gerðar
annars konar aðgerðir til að draga
úr vélindabakflæði.
Þessi glæsilegi bill er nú til sölu, innfluttur nvr af
umboði. Ekinn 50.000 km, árgerð 1997, einn eigandi.
6 cvl.. sjálfskiptur, grænsansaður. ABS bremsur,
spólvörn, loftpúðar og m.fl.
Upplýsingar í síma 575 1230 á vinnutíma.
liXEHÐ'
P»C-n!o/..
HAND
CREAM
Nýjung! Þýsk gæðavara
lr{Ei>ID
Með því að nota TREND naglanæringuna
færðu þínar eigin neglur sterkar og heiibrigðar
svo þær hvorki klofna né brotna.
TREND handáburðurinn
með Duo-liposomes.
Ný tækni í framleiðslu |j
húðsnyrtivara, fallegi i 1
1 teygjanlegri, þéttari húð.
Sérstaklega græðandi.
íiÉjlIÉ
EINSTÖK GÆÐAVARA \
li\E!SD
Fást i apótekum og snyrti-
vöruverslunum um land allt.
_______j Ath. naglalökk frá Trend fást í tveimur stærðum
Áth. Ándlitskremin frá Trend fást i tilboðspakkningum.
Leitið upplýsinga. Útsölustaðir: Ingólfsapótek, Kringlunni,
Rima Apótek, Grafarvogi.
Ekta augnahára- og augnabrúnalit-
ur, er samanstendur af litakremi og
geli sem blandast saman, allt í ein-
um pakka. Mjög auðveldur í notk-
un, fæst í þremur litum og gefur
frábæran árangur.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone. Þessi (svarti) gamli góði með stóra
_______burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.
TANA Cosmetics Einkaumboó: S. Gunnbjörnsson ehf., s. 565 6317
ÞfÓDLÍFSÞANKAR/Mi ekki líta á sorphirðu sem samfé-
lagslegt vandamálf
*
Abyrg umhvetfisstefna
FYRIR skömmu hitti ég frænda minn á ættarmóti og hóf hann umsvifalaust
máls á „ábyrgri umhverfisstefnu", sem hann nefndi svo og var mikið niðri fyr-
ir. „Við sátum við eldhúsborðið hjónakomin að sötra morgunkaffi,“ sagði hann.
„Við vorum að fletta Mogganum og ósköp lítið ft-amundan nema að horfa í
gaupnir sér, enda við orðin ellilífeyrisþegar. Small þá ekki í bréfalúgunni -
sem venjulega þýðir að hið opinbera hafi ekki alveg gleymt okkur. I glugga-
póstinum, sem lá á víð og dreif um forstofugólfíð, lá innan um bréfm saman-
brotinn upplýsingableðill, stansaður á köntum til þess að fylgja útlínum ný-
tískulegs sorpbfls sem skreytti bleðilinn framanvert. Ég tók hann upp og sá að
hann var prentaður á gæðapappír og vandað tfl hans í hvívetna - verldð enda
unnið á viðurkenndri auglýsingastofu. Væntanlega hefm- þetta verkefni verið
unnið eftir tilboðsreglum lýðræðisins og undir mottóinu „betri nýting, meiri
spamaðm-“. Bleðillinn reyndist vera frá borgarstjóranum sjálfum í Reykjavík."
Og frændi hélt áfram: „í bleðlin-
um talar borgarstjórinn, frú
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrir
hönd hreinsunardeildar gatnamála-
stjóra og virðist helst vera að bjóða
upp á nýtt þjón-
ustugjald á niður-
greiddu verði.“ Nú
gerði frændi minn
andhlé og tautaði
síðan lágt: „Þetta
ætti Helgi Hjörvar
að kynna sér.“ Svo
sótti hann í sig
veðrið á ný. „Sam-
eflir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
kvæmt bleðlinum eigum við hjónin
sem sé að greiða gjald sem heitir
sorphirðugjald - en við fáum það víst
frítt vegna þess að borgaryfirvöld
ætla að lækka fasteignaskattinn að
sama skapi - eða svona hérumbil.
Þetta skilgreinist í bleðlinum sem
breyting á fyrirkomulagi sorphirðu
eða sem ÁBYRG UMHVERFIS-
STEFNA. Samkvæmt bleðlinum
virðast þeir sem vinna í sorpinu eiga
að fá meiri peninga fyrir minni vinnu
til þess að geta sparað meira og geta
víst helst ekki unnið sitt starf nema
eitthvað sé til sem heitir sorphirðu-
gjald,“ og nú glotti frændi minn.
En þetta ólíkindalega bros hvarf
þegar hann minntist á Gunnu
frænku okkar sem býr í blokk. Sam-
kvæmt bleðlinum virtist hún sem sé
„liggja illa í því“. í umræddum
bleðli er að sögn frænda rætt um
sambýli þar sem allir eru sameigin-
lega um einn gám, en þannig háttar
einmitt til í blokk Gunnu frænku.
„Borgarstjórinn hefur fundið út að
réttlætið felist í að láta fólk í sam-
býlishúsum borga sorphirðugjald
eftir rúmmetrafjölda íbúðanna. Og
Gunna á endaíbúðina í blokkinni, sú
íbúð er stærst og hún býr þar ein
eftir að maðurinn hennar dó og
börnin fóru. Hún hendir svo sem
einni mjólkurfernu á viku og
kannski einhverju af kartöfluhýði
meðan sex manna fjölskyldan í
næstu íbúð, sem er mun minni færri
rúmmetrar, kastar mörgum pokum
af rusli og umbúðum nánast daglega
- líklega hendir sú fjölskylda a.m.k.
sexfalt meira rusli en Gunna í
hverri viku en á nú samkvæmt
bleðlinum að borga mun lægra
sorphirðugjald en Gunna.“ Frændi
sagði að sér kæmi þetta spánskt
fyrir sjónir - ekki síst með tilliti til
þess að dómsvaldið hafi nýlega
áréttað að ekki megi hafa þjónustu-
gjöld hærri en nemur raunveruleg-
um kostnaði fólks og ekki megi mis-
muna því hvað þjónustugjald varði.
„Ljósi punkturinn í þessu öllu er að
um næstu aldamót lagast þetta
sennilega - eða þannig. Þá stendur
til að vigta sorp og hirðu þess á svo
að greiða í samræmi við þyngd þess.
En skyldi þá eiga að leggja sorp-
hirðugjaldið niður eða fær þá íbúð-
areigandi, sem leigir öðrum íbúð, að
greiða áfram sorphirðugaldið ásamt
með fasteignagjaldinu meðan leigj-
andi hans greiðir sorphirðuna eftir
vigt? Ef svo er gæti svo farið að ein-
hver teldi sig vera að spara með því
að fara ekki með ruslið út í tunnu.
Það verður þá líka vissara fyrir fólk
að hafa auga með ruslatunnunni
sinni, það gæti nefnilega orðið ein-
hverjum mikil freisting að láta frá
sér sorp í tunnu nágrannans - eða
jafnvel í pappírsgáma - svona óvart.
Kannski verður þá jafnvel vissara
að kippa öskutunnunni inn í stofu
yfir nóttina svo tunnueigandinn geti
óhræddur notið lágmarkshvfldar."
Frændi minn þekkir til í Þýska-
landi og hvernig háttar sorphirðu
þar. „í litlum bæ nálægt Frankfurt
þurfa menn samkvæmt reglugerð að
flokka rusl í minnst fímm ruslapoka
innanhúss og það liggur nánast
dauðarefsing við því að setja eitt-
hvað gler- eða málmkyns í
öskutunnur eftir kl. 9 á kvöldin og
eftir hádegi á sunnudögum vegna
þess mögulega hávaða sem af þvi
gæti hlotist," sagði frændi. Hann
kvað þó fátt vera svo með öllu illt.
„Ef brugðið verður á hið þýska ráð
öðlast ellilífeyrisþegar nýja lífsfyll-
ingu, líf þeirra mun þá snúast um að
flokka sorp og verður það líklega ær-
inn starfi - nema þá að maður láti
setja arin í stofuna hjá sér og brenni
sínu sorpi sjálfur en moki svo ösk-
unni út í garð sem umhverfisvænum
áburði." - Nú hló frændi hátt.
Sagan varð ekki öllu lengri nema
hvað frændi „spekúleraði" í hvort
þetta mál hefði verið lengi í „nefnd“
hjá borginni. Og sé þetta í raun og
veru alvara borgarstjóra þá áleit
frændi að fróðlegt væri að vita hvað
borgarstjóri teldi vinnast með þessu
sorphirðugjaldi? Líka taldi hann að
fróðlegt væri fyrh’ fólk að fá að vita
hvort þeir einir ættu að borga sorp-
hirðugjald sem eiga þak yfir höfuðið.
„Er ekki sjálfsagt að líta á sorphirðu
frá heimilum sem samfélagslegt
vandamál?" sagði hann. „Væri ekki
eðlilegt að hafa sömu afstöðu til
sorphirðu eins og t.d. vandamála
þeirra sem verða fyrir slysum eða
verða fórnardýr sjúkdóma? Varla
förum við að skattleggja þá meira
sem af illri nauðsyn nýta sér Trygg-
ingastofnun umfram aðra? Ég sé
ekki að það gangi upp að fara að
vigta upp úr ruslatunnum hjá al-
menningi - öðru máli gegnir kannski
með fyrirtæki." Prændi klykkti út
með því að segja í hæðnisrómi að
meira samræmi hefði að sínum dómi
verið í að prenta þessar upplýsingar
á ómerkilegan tölvupappír í sparnað-
arskyni. „Eða bara að prenta þær
alls ekki. Svona plagg - þótt vel
hannað sé - það eykur bara við
ruslahrúguna." Og með það sneri
frændi sér að þorramatnum. Og það
má segja honum til hróss að ekki
, jók hann á ruslahrúguna" með nein-
um leifum.