Morgunblaðið - 14.02.1999, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 14. FEBRUAR 1999
Nánast nýr og sportlegur. ekinn aðeins 2.000 kni.
árgerð 1998. Metallik lakk. silfurgrár. leðurinnrétt-
ing. sóllúga. sjálfskiptur. álfelgur. hiti í sætum,
Elegance og margt tleira.
lipplýsingar í síma 575 1230 á vinnutíma.
Ráðstefna um leiðir til árangursríkari sam-
skipta auglýsenda og auglýsingastofa, haldin í
Háskólabíói, 19. febrúar kl. 9.30-1 S.30.
ÍS CS á'S Cí
Ua|;©R>Paf
Afhending ráðstefnugagna
Ráðstefnan sett
Ráðstefmistjóri, finar Sigurteon, fratnkremdasqón stefnumótunar-
og stjórnunarsviðs Flugleiða, setur ráðstefnuna.
Ingólfur Guðmundsson, formaður ÍHARK, opinberar niðurstöður
könnunar um íslenska augtýsingamarkaðinn, sem Gallup
hefur gert fyrir ÍHARK og SÍA.
Trúlofun eða skyndikynni?
Hvaða samskiptaaðferðir skila auglýsandanum bestum árangri?
Leópold Sveinsson, framkvæmdasjóri AUK auglýsingastofu.
Opið bréf til auglýsingastofa sem eru
að leita að viðskiptavini
Pétur Eiriksson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs
Flugleiða.
Pallborðsumræður
Pétur, Leópold, Ingólfur og Halldór Guðmundsson, formaður
"t SÍA, sitja fyrir svörum.
lt3D-K.EC
12.CC-13.CD
11CC1S.CC
Fyrirtækjakynning og sýning í anddyri
Háskólabíós
Hádegisverður í Sunnusal Hótel Sögu
Þórólfur Árnason, framkvæmdastjóri Tals, sem valið var
Markaðsfyrirtæki ársins 1999 af ÍHARK, mun segja frá
markaðsstarfi fyrirtækisins.
Samstarf án tára - Uppbygging
vörumerkjastefnu Nokia
Timo Suokko, framkvæmdastjóri viðskiptamála hjá SEK
8 GREY i Finnlandi, segir frá markaðssetningu Nokia
á alþjóðamarkaði.
Tilbúið í gær!
Sigurþór Gunnlaugsson, markaðsstjóri Kringlunnar og fyrrum
kynningarstjóri Sjóvá-Almennra.
Athyglisverðustu auglýsingar ársins
Léttar veitingar í anddyri
í boði Sól-Víking og Vífilfells. Sýning og fyrirtækjakynning.
Þátttökugjald
er 8.900 kr. fyrir félaga í IHARK og 12.900 kr. fyrir aðra
Innifalið
Léttur hádegisverður, kaffiveitingar og vegleg nafnspjaldamappa.
Þátttökugjaldið má greiða með VISA eða EUR0. Til að fá aðgöngumiða
á félagsverði þarf viðkomandi að hafa greitt félagsgjöld ÍHARK.
Unnt er að greíða félagsgjöld við skráningu eða við innganginn.
Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu ÍMARK
í síma 511 4888 og 899 0689. Einnig má tilkynna þátttöku
með því að skrá sig á heimasiðu: www.imark.is eða senda
tölvupóst imark@mmedia.is.
Athugið að tilkynna þátttöku sem fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður.
Ely lagði tíu þúsund dali undir á móti
þúsund dölum frá keppinautunum.
Spilamenn um landið allt fylgdust með
styrjöldinni af miklum áhuga og brids-
fréttir voru á forsíðum dagblaða.
til New York, hann tók sér far með
skipi og á skipsfjöl sá hann
kanadíska fjölskyldu spila ein-
kennilegt fjögurra manna spil.
Þetta spil var kallað brids. Ely bar
við að spila það, en leiddist það
fyrst. Ely réð sig við skjalaröðun
hjá hinum kanadíska kaupmanni
en sá svo auglýst eftir mönnum í
járnbrautarvinnu í norðanverðum
Klettafjöllum. Hann sló til og lenti
þar í vinnudeilum sem lauk með að
Ely var gert að hverfa á braut.
Hann fór ásamt fjórum félögum
gangandi yfír fjöll og fimindi áleið-
is til Edmonton. Þar sló hann í
pókerspil við sviksama náunga og
flýði með næstu lest til Calgary.
Þangað kominn sagðist hann vera
óskilgetinn sonur rússneskrar
konu af háum stigum og banda-
rísks herforingja og fékk út á það
samúð og vinnu hjá ekkju einni.
Þannig flæktist Culbertson fram
og aftur í hópi atvinnuleysingja,
glæparoanna og loddara. Loks kom
hann til Medford í Oregon sem
honum fannst helst líkjast sam-
komustað umrenninga. Þar veiktist
hann og lá á sjúkrahúsi á vegum
fátæktarstjómar. Þegar honum
batnaði og fór aftur á stjá lenti
hann í fangelsi vegna slagsmála.
Hann losnaði út að viðlögðu dreng-
skaparorði um að hafa sig á brott.
Hann fór til Sacramento og réð sig
þar til að spila póker fyrir spila-
skála en missti þá vinnu af því
hann vildi ekki gefa merkt spiL
Þannig Ufði Culbertson lífí sínu
við flakk og spilamennsku þar til
hann fór að hugsa til þess að festa
ráð sitt og finna sér góða konu.
Hann átti sér draumakonu í hugan-
um - sú kona átti að líkjast Nadyu
en það var nú hægara sagt en gert
að finna slíka konu aftur. Loks
hugkvæmdist honum að reyna að
ala upp góða eiginkonu. Hann vildi
finna átján ára stúlku, menntaða
og siðfágaða en með ómótaða skap-
gerð. Hann auglýsti eftir ungri og
fallegri konu með stór augu og
reglulega andlitsdrætti. Hann fékk
þrjú hundrað svör og Ely ákvað að
hitta allar þessar konur. Engin
þeirra kom þó heim og saman við
hugmyndir hans og svo komst lög-
regla í málið og vildi meina að Ely
hygði á hvítt mansal. Ely tók þann
kost að fara sem snarast til París-
ar, þá var hann 24 ára gamall og
fyrri heimsstyrjöldin var nýlega
skollin á.
Eugene, eldri bróðir Ely, gekk í
frönsku útlendingaherdeildina en
Ely hugðist enn á ný taka háskóla-
próf. Hann talaði þá sex höfuð-
tungumál og tók nú að hnýsast í
kínversku en hafði sálarfræði sem
aðalgrein. Jafnframt drógu spilin
hann að sér eins og segull og hann
tók að beita vísindalegum aðferð-
um við spilarannsóknir. A önd-
verðu ári 1917 fékk Ely illkynjaða
kýlaveiki en verr var hann þó leik-
inn til sálarinnar. „Eg hafði orðið
fyrir ægilegu áfalli, er trú mín á
mátt mannúðar í veröldinni brast,“
segir hann í minningum sínum.
Hann ákvað að halla sér að heim-
spekinni og tók jafnframt að
drekka ótæpilega til að deyfa
kvíðaköst sem sóttu að honum. En
vín og spil eiga illa saman. Ekki
bætti úr skák að hann tók upp
samband við konu að nafni Elvína,
hún var vændiskona sem bæði
drakk og neytti eiturlyfja. Sam-
bandi þeirra lauk þegar hún fékk
þriggja ára dóm fyrir að stela þús-
und frönkum frá auðugum Banda-
ríkjamanni og kaupa sér eiturlyf.
Ely var nú orðinn þunglyndur eftir
öll þessi vandræði og skyldi engan
kynja. Ailtaf hélt hann þó áfram að
spila og leggja undir. Loks varð
gæfan honum hliðholl, meðan hann
fór út að slást við Rúmena einn
höfðu tuttugu frankar sem hann
lagði undir tvöfaldast ellefu sinnum
og þannig sprengdu þeir bankann,
eins og kallað var. Þessi atburður
varð til þess að hann sneri við blað-
inu og ákvað að byrja nýtt h'f -
komast á réttan kjöl.
Sigurgangan hefst
Hann fór að spila til að græða og
gat eftir tvo mánuði greitt allar
skuldir sínar og átti þá nokkur þús-
und franka eftir. Kunningi hans
hvatti hann til að fara til London til
að spila brids. Þar var hann í
nokkra mánuði en fór þá til Þýska-
lands og fleiri landa í Evrópu.
Sumarið 1921 sneri hann aftur til
Bandaríkjanna til fundar við föður
sinn og yngri bróður og hélt áfram
að spila brids og fór að setja saman
Culbertson-sagnkerfið. Það kerfi
reyndist honum svo vel að hann
tapaði nánast aldrei. Hann komst í
samband við konu sem kenndi
brids og gerðist aðstoðarmaður
hennar jafnframt því sem hann
spiiaði við valið fólk. I einu slíku
samkvæmi hitti hann Josephine
Dillon sem einnig var bridskennari
og slyngur spilari. Hún var ekkja,
aðeins rösklega tvítug að aldri og
afar fógur. Nú vom örlög Ely Cul-
bertson ráðin. Hann unni sér ekki
hvíldar, sífellt reyndi hann að telja
hinn fagra mótspilara sinn, Jo, á að
giftast sér, en hún vildi það ekld.
Hann kenndi henni sagnkerfi sitt
og þau æfðu sig vel og rækilega að
spila eftir því og bám það saman
við önnur kerfi á nánast vísindaleg-
an hátt.
Og nú hófst sigurganga Ely Cul-
bertsons. Þau Jo spiluðu og reyndu
kerfið hans og vöktu fram á nætur
við nýjar og nýjar gátur sem aldrei
þrýtur í brids. Oft lýsti Jo því yfir
að hún væri hætt að spila við Ely -
en hélt því þó áfram. Svo kom að
því að þau tóku að spila við mjög
sterka spilara og unnu þá. „Ennþá
hafði mér ekki tekist að vinna í höf-
uðspili lífs míns. Þar dugði ekkert
kerfi. Ég þreytti þar leik við and-
stæðing, sem var mér ofjarl, það
var efinn sem tekið hafði huga Jo
fastatökum, þó ég einn ætti hjart-
að,“ segir hann í minningum sín-
um. Loks kom þó að því að Jo gaf
sig og þau giftust. Vinum Jo leist
ekki á þetta hjónaband og spáðu
því skammlífi - en það entist furðu
lengi. Þau hjón eignuðust tvö böm,
Bláa bókin kom út og þau urðu rík
í kölfar þess.
I samfleytt fjögur ár hafði spila-
gæfan leikið við Culbertson þegar
þeirri mislyndu dömu snerist hug-
ur og óheppnin tók að elta hann
þar til hann varð algerlega pen-
ingalaus. Jo kenndi brids og rak
mikinn áróður fyrir því að Ely færi
að kenna líka, fuUyrti að þá fæm
þau að efnast. Hann vildi það ekki
og hún sá íyrir þeim meðan
óheppnin varði og einnig í veikind-
um Elys. Þegar hann fór að skríða
saman veiktist hún og var nærri
dáin. Sú lífsreynsla varð til þess að
enn sneri Ely við blaðinu og ákvað
nú að leggja næstu tíu árin stund á
kennslu í brids. Þau hjón kenndu
eftir Culbertson-kerfinu og það
kallaði aftur á nauðsyn þess að
endurskoða kerfið, gera það ein-
faldara og láta það sanna yfirburði
sína. Auk þess sem þau Jo skomðu
á helstu bridsspilara heimsins að
mæta sér og ynnu oftast stofnuðu
þau fjögurra manna sveit með
tveimur öðrum mjög sterkum spil-
umm, þeim Waldemar von Zed-
twitz og Theodore Lightner. Jafn-
framt því að kenna spilaði Culbert-
son í spilaklúbbum. Fyrsti stórsig-
ur hjónanna var í Los Angeles,
mikið var lagt undir og eftir það
einvígi gat Jo fengið sér ný föt og
Ely keypti sér bíl, sem honum
gekk ekki vel að aka í fyrstu. Arið
1927 fæddist dóttir þeh-ra, Joyce
Nadya. Gamli Elias Culbertson
lést skömmu síðar og í apríl 1929
fæddist þeim hjónum sonurinn
Brace. Meðan á öllu þessu stóð hélt
Ely áfram að þróa kerfið sitt og
loks í framhaldi af öllu saman
skrifaði Culbertson eins og fyrr
kom fram hina frægu Bláu bók -
kennslubók í kerfínu hans, sem síð-
ar varð undirstaða að Standard-
kerfinu. Fleiri eintök seldust af
Bláu bókinni en dæmi vom til áður
um nokkra bók í Bandaríkjunum.
Önnur bók hans kom um sama
leyti úr prentun og seldist líka fá-
dæma vel. Jo skrifaði svo útdrátt
úr Bláu bókinni sem einnig seldist
afar vel.
Kerfisstríðið
Ekki fór hjá því að öll þessi vel-
gengni aflaði Ely Culbertson
óvina. Ymsar rógsögur komust á
kreik um hann. Ein þeirra var á
þá leið að eitt sinn hefði hann spil-
að póker við nokkrar konur í
heimboði í Pasadena. Ein frúin
átti að hafa tapað miklu og ekki
haft handbært fé svo Ely átti að
hafa tekið af henni alla skartgrip-
ina hennar. Daginn eftir átti eigin-
maður frúarinnar að hafa miðað á
Ely skammbyssu og kúgað hann
til þess að láta gimsteinana af
hendi. I sögunum var Ely talinn
viðsjárverður útlendingur, allt var
þetta mjög rómantískt og konum-
ar bundu unnvörpum tryggð við
kerfið hans. Keppinautar þróuðu
upp kerfi sem þeir nefndu Opin-
bera kerfið og töldu það hafa ým-
islegt fram yfir kerfi Culbertsons.
Það dró til styrjaldar - kerfis-
stríðsins - og allt útlit var fyrir að
það stríð yrði langt. Allir forvígis-
menn um brids í landinu höfðu
bundist samtökum um hið nýja
kerfí. Culbertson svaraði með því
að skora í Herald Tribune á flokk
frægra bridsmanna sem tekið
höfðu upp hið nýja Opinbera sagn-
kerfi að þreyta við sig þrásetu.
Ely lagði tíu þúsund dali undir á
móti þúsund dölum frá keppinaut-
unum. Spilamenn um landið allt
fylgdust með styrjöldinni af mikl-
um áhuga og bridsfréttir voru á
forsíðum dagblaða. Loks kom að
úrslitaormstunni. Einvígið skyldi
háð 7. desember 1931. Spila átti
150 rúbertur eða um þúsund spil.
Þetta einvígi var talið stórfengleg-
ur íþróttaviðburður. Leiknum
lauk með sigri Ely og Jo og
orðstír þeirra fór um allan heim -
en þau vom peningalega illa stödd
eftir mótið. Salan á bókum Cul-
bertsons hafði dottið niður en eftir
sigurinn jókst hún á ný og nokkru
síðar var gerð kvikmynd eftir
handriti Ely. Hann og Jo hugðust
hvíla sig en sá draumur rættist
ekki - erfiðara virtist að njóta sig-
ursins en ná honum. Hins vegar
tókst Ely að græða óhemju mikla
peninga á kerfi sínu og í framhaldi
af því keypti hann glæsihúsnæði
fyrir konu sína og börn. Frægðin
og auðurinn tók eigi að síður sinn
toll. Þau Ely og Jo fjarlægðust og
það leiddi til skilnaðar þeirra. Jo
kenndi taumlausum metnaði hans
um. Þau bjuggu þó áfram í húsi
sínu en hvort á sinni hæðinni. Um
eigur sínar, sem vora miklar,
stofnuðu þau hlutafélagið Culbert-
son hf. en skiptu hlutum og tekj-
um til helminga. Börn þeirra vora
níu og tíu ára þegar þetta gerðist.
Niðurstaða Ely var að hann hefði
bmgðist - alls staðar nema í fjár-
málunum. Síðar giftist Culbertson
á ný mun yngri konu og sneri sér
að þjóðmálum. Hann andaðist árið
1955, ári á undan Jo, en sagnkerf-
ið sem hann smíðaði og þau spil-
uðu eftir, lifir góðu lífi enn í dag -
að vísu nokkuð breytt. Culbertson
var óvenjulegur maður sem lifði
óvenjulegu lífi en hann bjó til
sagnkerfi sem gerði mögulegt fyr-
ir venjulegt fólk að segja á spil sín
af mun meiri nákvæmni en áður
var gerlegt. Fyrir þann grandvöll
sem Ely Culbertson lagði með
kerfinu sínu er hann eitt af allra
stærstu nöfnum bridssögunnar.