Morgunblaðið - 14.02.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
Líkur taldar á að
Gaul hafi sokkið eftir
árekstur við skip
STÓR dæld, fjöldi rispa og gat á
kinnungi flaks breska togarans
Gaul hafa orðið til þess að gefa
kenningum um að hann hafi ekki
bara farist af völdum óveðurs byr
undir báða vængi.
Gaul fórst með allri áhöfn, 36
manns, í fárviðri í Barentshafi 8.
febrúar 1974 og í næstu viku verða
því 25 ár liðin frá slysinu. Ekkert
neyðarkall barst frá togaranum á
sínum tíma og óvissa var sögð um
slysstaðinn. Fannst flakið ekki fyrr
en í leiðangri breskra sjónvarps-
manna sumarið 1997.
Opinber rannsóknarleiðangur var
sendur á vettvang í fyrrasumar og
námu neðansjávarmyndarvélar þá
alls um 40 stundir af kvikmyndum
af flakinu. Rannsóknir á þeim hafa
leitt skemmdir á skipsskrokknum í
ljós og hafa þær vakið mikla athygli
HJÓNIN Bob og Elisabeth Dole
hafa að sögn bandarískra fjöl-
miðla augastað á íbúðinni við hlið-
ina á sinni í Watergate-bygging-
unni í Washington, en hún er í
eigu fjölskyldu Monicu Lewinsky.
Bob Dole bauð sig fram gegn
Bill Clinton í forsetakosningun-
um árið 1996 og talið er líklegt að
Elisabeth Dole muni sækjast eft-
ir því að verða forsetaefni
Repúblikanaflokksins í kosning-
unum á næsta ári.
í heimahöfn skipsins í Hull á
Englandi.
Að sögn breska blaðsins Hull
Daily-Mail er dældin á kinnungnum
fimm til sex fetum yfir sjólínu og
gat er á stálbyrðingi, sem var þó
sérstaklega styrktur til siglinga í ís.
Ljóst þykir að skipið hafi lent í
árekstri en hvort það var við kafbát,
annars konar skip eða eitthvað ann-
að er óljóst.
Ættingjar áhafnar Gaul höfðu
vonast til að lík þeirra væri að finna
í flakinu, en engar líkamsleifar er
að finna á myndböndunum. Hefur
það orðið til að kynda undir kenn-
ingar um að áhöfnin hafi verið tekin
föst og flutt til Rússlands en grun-
ur hefur lengi verið um að Gaul hafi
ekki verið að veiðum í Barentshafi,
heldur í einhvers konar njósnaleið-
angri.
Dole hefur til þessa yfirleitt
hent gaman að því þegar fjöl-
miðlar hafa spurt hann að því
hvernig honum þætti að vera ná-
granni Monicu Lewinsky.
Pegar Lewinsky-málið stóð
sem hæst á síðasta ári sagði
hann eitt sinn að hann myndi í
framtíðinni ganga mjög hratt
fram hjá íbúð hennar til að koma
í veg fyrir að hann gengi i flasið
á henni, en slíkt mætti hæglega
mistúlka.
Læknar
sanni
hæfni sína
London. The Daily Telegraph.
SÉRFRÆÐINGUM á sjúkrahús-
um og heimilislæknum verður
gert að sanna hæfni sína reglu-
lega og sýna að þeir hafi fylgst
með þróuninni f læknavisindum,
samkvæmt reglum sem bresk
heilbrigðisyfirvöld hafa lagt til.
Læknar sem standast ekki
kröfurnar eiga á hættu að missa
starfsleyfið, jafnvel þótt þeir
hafi lokið endurmenntun, sam-
kvæmt tillögunni. Stofna á sér-
staka nefnd sem á að skera úr
um hvort læknarnir séu enn
hæfir til að gegna störfum sín-
um.
Ekki hefur verið gengið frá
reglunum í smáatriðum, en Iík-
legt er að endurmatið á hæfni
læknanna fari fram á fimm ára
fresti. Gert er ráð fyrir því að
reglurnar taki gildi eftir tvö ár
og stefnt er að því að þær nái
síðar til allra lækna í Bretlandi.
Samkvæmt núgildandi reglum
þurfa sérfræðingar á breskum
sjúkrahúsum ekki að sanna
hæfni sína formlega eftir að þeir
fá starfsleyfið. ÆMast er til að
þeir fylgist með þróuninni í
læknavísindum en mál nokkurra
vanhæfra skurðlækna hafa orðið
til að yfirvöld telja nú þörf á
strangari reglum. Breskur
hjartaskurðlæknir var t.a.m.
sviptur starfsleyfinu í júní eftir
að 29 börn, sem hann skar upp,
höfðu dáið, eða um helmingi
fleiri en sérfræðingar telja eðli-
legt. Öðrum hjartaskurðlækni
var bannað að skera upp börn í
þijú ár vegna sama máls.
Kaupir Dole íbúð
Lewinsky?
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1999 B 13 ,
Holl og bragðgód jurtakœfa
Þrjár liúffengar
bragðtegundir!
Fæst í flestum
matvöruverslunum
Dreifing: Heilsa ehf.
S:5B3 3232
Fyrir öskudaglnn!
Vsrslanlr
tg IpSiMci
Mikið úrval af
góðu gotti
fyrir káta krakka
Mllii PÓRÐUR SVEINSSON & CO. ehf.
sími: 525 2660
Nú getur þú pantað sendingu heillaskeyta á Intemetinu.
Þú ferð einfaldlega inn á heimasíðu Símans, á slóðina
www.simi.is/ritsiminn, skrifar viðeigandi texta og velur
mynd sem þú vilt hafa á heillaskeytinu.
Síðan sér Síminn um að koma skeytinu til viðtakanda.
SÍMINN
Heillaskeyti Símans eru skemmtileg leið til að gleðja vini
eða skyldmenni á afmælisdögum eða öðrum merkisdögum.
Lífís Lífeyrissöfnun
Tvöfalt öryggi
tvöföld ástæða
Lífís Lífeyrissöfnun
tvinnar saman á
hagkvæman hátt
2,2% lífeyrissparnað
og tryggingar
tengdar lífi og heilsu.
Lífís
Fjárhagsvernd fyrir lífið
Hafðu samband og'kynntu þér málið.
Lífís Lífeyrissöfnun. Sími 560 5000.
I íinthbanki ívlamK
flí w
LANDSBRÉF HF. vAimUWCllfLtt ISAWS Bt