Morgunblaðið - 24.01.1999, Page 57

Morgunblaðið - 24.01.1999, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1999 57 FÓLK í FRÉTTUM Fjöldi kvenna svaraði auglýsingunni Morgunblaðið/Kristinn GUNNAR Þórðarson með einn umsækjanda í áheym. Ótrúleg viðbrögð ÁÆTLAÐ er að setja upp sýningu á Broadway á næstunni þar sem söngkonur verða í aðalhlutverki og er verið að setja saman lagaval þekktra söngkvenna á borð við Celine Dion, Whitney Houston, Madonnu og fleiri. Kristjana Geirs- dóttir móttökustjóri Broadway seg- ir að auglýst hafi verið eftir lagviss- um konum í Morgunblaðinu og viðbrögðin hafí verið þvílík að annað eins hafí vart sést. „Við bjuggumst við að nokkrar myndu hafa sam- band, en það var öðru nær. Síminn stoppaði varla og meira en sjötíu konur sóttust eftir að komast í sýn- inguna.“ Gunnar Þórðarson hefur yfirum- sjón með sýningunni og á fímmtu- dag og föstudag mættu konurnar í prufu. Hann var spurður að því hvemig það væri að vera kominn í svona kvennafans. „Já, það er alveg ótrúlegt. Ég sagði nú bara stopp þegar komnar voru 74 konur. Ég sá fram á að það færu fleiri vikur í áheymarprufur ef fleiri kæmu,“ segir Gunnar og er létt hljóð í honum. „Ólafur Laufdal er að setja af stað þessa sýningu sem á að vera með kvensöngvurum og hann bað mig að sjá um þetta. Sýningin hefur enn ekki fengið nafn og við emm ennþá að setja prógrammið saman. I gærkvöldi var ég með áheym- arprufur og þá komu nokkrar söng- konur sem voru alveg frábærar. Það kom mér skemmtilega á óvart hvað margar vom góðar." - Heldurðu að þær hafí verið búnar að æfa sig í karaokee? „Já, ég held þetta sé nú sú kynslóð. Það var greinilegt að margar voru vanar að syngja. Svona góður söngur verður ekki til á einni kvöldstund," segir Gunnar. Hann bætir því við að hann muni velja fimm til tíu söngkonur fyrir sýninguna. Munu því færri komast að en vilja. Stór skammt frönskum kai PEPSl Kentucky Fried Chi EINSTAKT TILBOÐ 1 miöi 2 myndir I í kfrUpLxtl REYKJAVIK - KEFLAVIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.