Morgunblaðið - 30.12.1998, Síða 70
•70 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Forvitnilegar bækur
Ógæfu-
menn og
mann-
vonska
Red Meat eftir Max Cannon.
Boxtree, London, árið 1998, 110
bls.. Bóksala stúdenta. 1.186 kr.
ÓGÆFUMENN, mannvonska
og kaldhæðni einkenna þessar
teiknimyndasögur. Með svörtum
húmor sem er mjög langt frá því
að vera pólítískt réttum megin
við strikið, verður bókin virkilega
fyndin. Persónurnar eru annað
hvort fráhrindandi og viðbjóðs-
legar eða eins og bandarískir út-
hvei’físbúar frá 1950.
Þarna birtast kunnuglegar
fígúrar eins og mjólkurpósturinn
síbrosandi, einkaspæjarinn með
hattinn og úthverfapabbinn með
vatnsgreitt hár og pípu. Aðrar
minna huggulegir karakterar era
á sveimi en allar persónurnar
eiga þó sameiginlegt að vera
meira eða minna geðveikar.
Fígúraraar breytast sama og
ekkert á milli myndaramma og
virðast frosnar í ógæfu eða góð-
borgaragleði. Texti karakteranna
er skrýtnari en gengur og gerist
og aldrei það sem maður á von á.
Utkoman er drepfyndnar og ófyr-
irsjáanlegar teiknimyndasögur
sem ættu að vera til á hverju
heimili.
Elsa Eiríksdóttir
MESTI NULIFANDI DÆGURLAGA-
SÖNGVARI BANDARÍKJANNA?
Söngvarinn
síbrosandi
ÞAÐ KOM eins og þruma úr
heiðskíru lofti þegar Frank
Sinatra lýsti því yfir árið 1965
og enturtók þráfaldlega í viðtöl-
um eftir það að Tony Bennett
væri besti söngvari sem hann
hefði hlustað á og bróðirinn sem
hann hefði aldrei eignast.
Bennett kallar Sinatra, sem
lést fyrr á árinu, besta vin sinn,
fyrirmynd og hetju, þótt vegir
þeirra hafi ekki oft legið saman.
Báðir ólust þeir upp hjá ástríkum
ítölskum fjölskyldum í skugga
Manhattan. Hún átti síðar eftir
að liggja fyrir fótum þeirra.
Sinatra ólst, upp í Hoboken í New
Jersey og Bennet í Astoria í Qu-
eens og báðir urðu frægir fyrir
að syngja það sem Bennett kallar
„hina miklu bandan'sku
söngvabók" sígildra laga.
Báðir unnu á táningsaldri sem
sendlar fyrir fjölmiðlafyrirtæki
og voru reknir fyrir leti. „Ef ég
hefði verið fljótari í förum ynni
ég örugglega ennþá hjá Associ-
ated Press,“ segir Bennett. Nú
hefur hann bryddað upp á
nokkru sem Sinatra gerði aldrei;
hann hefur skrifað ævisögu um
50 ár í sýningarbransanum og
honum tókst það án þess að
halla á neinn fyrir utan forráða-
menn plötufyrirtækja að sjálf-
sögðu.
Lagið um San Francisco
Lítið fer fyrir slúðri í bókinni
enda er Bennett of mikill heið-
ursmaður til þess að fara niður
á það plan. Aftur á móti eru í
bókinni, sem nefnist Hið ljúfa líf
eða „The Good Life“, óvænt tíð-
indi um vinsælasta lag Bennetts
„I Left My Song in San Franc-
isco“. Hann skildi það nefnilega
eftir í tvö ár. Ekki þó í San
Francisco heldur undir skyrtum
í kommóðuskúflú í New York.
Bennett, sem hét áður Ant-
hony Dominick Benedetto, segir
frá þessu í viðtali í þriggja her-
bergja hótelsvítu í Beverly Hills
sem státar af risastórum flygli.
Hann lítur á píanóið og segir:
„Ég spila ekki. Ég syng.“ Síðan
hefur hann upp raust sína fyrir
Ijósmyndarann og klykkir út
með: „Þá er það búið, að-
eins eitt lag á hvern
viðskiptavin."
„Tveir lagahöfund-
ar, George Cory og
Douglas Cross, sum unnu fyrir
Billie Holiday, hittu lagasmið
minn, Ralph Sharon, og gáfu
honum lagið vegna þess að þeim
fannst gaman að vera í félagi
við söngvara og fá þá til að
hlusta á nýjar lagasmíðar," seg-
ir Bennett. „Ralph gerði ekkert
með lagið í fyrstu, í svona tvö
ár. Hann lagði það í kommóðu-
skúffu og mundi eftir því á síð-
ustu stundu þegar við fórum
á tónleikaferð árið 1961
vegna þess að við áttum að
spila í San Francisco í
fyrsta skipti og vildum
spila eitthvað fyrir heima-
menn,“ rifjar Bennett
upp.
Lagið tekið undan skyrt-
ununi
„Ralph tók upp lagið
undan skyrtunum sinum
og við æfðum það á Vapo-
urs-veitingastaðnum í Hot
Spings í Arkansas og bar-
þjónninn, sem var eini mað-
urinn í salnum, sagði: „Ég
myndi kaupa plötuna.“ Þá
vissi ég að við vorum með eitt-
TONY Bennett er bróðirinn sem Frank Sinatra eignaðist aldrei.
hvað í höndunum. Þetta var lag-
ið sem gerði mig að heimsborg-
ara. Ég ferðast til San Franes-
isco tvisvar á ári og er eins og
arabi með olíulind. Ég elska
borgina. Þetta varð uppáhalds-
lagið mitt enda hefur það kennt
mér mikla Iexíu.“
Bennett segir að lagið hafi
vakið mikla lukku á þessum
fyrstu tónleikunum á Fairmont-
hótelinu og vakið áhuga plötuút-
gefenda sem gáfu það út á bak-
hlið lagsins „Once Upon a
Time“. Bennett var látinn kynna
hitt lagið þar til hljómplötufyrir-
tækið drukknaði í beiðnum um
„San Francisco“. Það grasseraði
í grasrótarhreyfingum, varð lof-
söngur hermanna í Víetnam og
er aðdráttarafl fyrir fjölmarga
ferðamenn til San Francisco enn
þann dag í dag.
„Þetta varð gullplata og ég
fékk mín fyrstu Grammy-verð-
laun,“ segir Bennett. „Það hélst
á vinsældalistanum í 25 mánuði
en náði aldrei fyrsta sæti. Það
selst ennþá.“
Dúett með Kermit
Bennett segist hafa gefist upp
á að rita ævisögu sína fyrir
nokkrum árum vegna þess að
„mér finnst yndislegt að lesa, en
ég er enginn rithöfundur". En í
samvinnu við Will Friedwald,
sem skrifaði áður ævisögu
Frank Sinatra, varð til Hið ljúfa
líf fullt af góðum minningum og
kátum samferðamönnum þótt
stundum hafi hann rekið sig á
eins og í tveimur misheppnuðum
hjónaböndum og breyttum tíðar-
anda rokksins sem gerði hann
næstum atvinnulausan.
„Ef til vill er nokkuð af skap-
stirðum mönnum á sjötugsaldri í
heiminum en Bennett er ekki
einn þeirra," segir höfundur við-
talsins. „Hann hefði jafnvel gam-
an af því að syngja síma-
skránna."
Bennett hefur lifað tímana
tvenna. Táningsstúlkur klædd-
ust svörtu þegar hann gifti sig
árið 1954. Núna mæta sömu
konur með barnabörnin sín á
tónleika hjá honum. Vikublaðið
People hefúr lýst því yfir að
hann sé eftir andlát Sinatra
„mesti dægurlagasöngvari
Bandaríkjanna sem er á lífi“.
í upphafí áttunda áratugarins
uppgötvaði MTV-sjónvarpsstöð-
in Bennett og gerði um hann
þáttaröð. Systurstöð MTV gerði
þátt um hann og Backstreet
Boys 29. nóvember síðastliðinn.
Það sýnir vel vinsældir söngvar-
ans síbrosandi.
Síðasta breiðskífa Bennetts
nefnist Leikvöllurinn eða „The
Playground" og er það barna-
plata þar sem hann syngur m.a.
dúett með froskinum Kermit.
Talandi um barnaplötur rifjar
hann upp sögu: „Ég bjó í grennd
við [djasstrompetleikarann]
Dizzy Gillespie. Hann kom í
heimsókn einn daginn og kynnti
sig fyrir syni mínum, sem þá var
tíu ára. Hann sagði: „Sæll, ég er
Dizzy." Svo sonur minn hljóp og
náði í vatnsglas handa honum.“
Þannig er slúðrið í Hinu ljúfa
lífi; mannlegar og meinlausar
sögur af Bennett og litríkum
samferðamönnum hans í gegn-
um tíðina.
Forvitnilegar bækur
Gæsahúð
og rúmfata-
nag á and-
vökunóttum
„Superstition" Hjátrú eftir
David Ambrose.
Pan Books, árið 1997, 419 bls.
Mál og menning.1.315 krónur.
HJÁTRÚ er spennusaga um yf-
irskilvitlega atburði. Hópur áhuga-
manna um dulræna atburði kemur
saman í tilraunaskyni. Kenningin
sem á að sannreyna er sú að yfir-
náttúruleg fyrirbæri, draugar og
afturgöngur, eigi tilvist sína því að
þakka að ákveðinn hópur fólks
sameinist um að trúa á þá.
Undir stjórn sálfræðingsins Sam
Towne tekst þessum sex manna
hópi að búa til sinn eigin draug.
Draugurinn fær nafnið Adam
Wyatt og ævisagan sem þau búa til
handa honum gerist að miklu leyti
á vel rannsökuðu skeiði frönsku
byltingarinnar.
Með sameiginlegri einbeitingu
allra viðstaddra öðlast draugurinn
líf og byrjar að tjá sig með því að
banka í borð. Þau spyrja hann
spurninga og hann svarar, en hann
veit aðeins það sem þau vita sjálf,
því hann er búinn til úr hugsunum
þeirra.
Því miður grunar engan að
myrkari hugsanir þeirra og leynd-
ari eru ekki síður þáttur í þessum
heimatilbúna draugi. Þau missa
stjórn á sköpunarverki sínu og fyrr
en varir hefur draugurinn skapað
sinn eigin heim samhliða þeirra
sem sogar þau til sín og dregur þau
til dauða, eitt af öðra.
Hér er komin bókin fyrir þá sem
hafa gaman af gæsahúð og rúm-
fatanagi á andvökunóttum. David
Ambrose skapar óhugnalega
spennu líkt og í fyrri bókum sínum,
„Mother of God“ og „The Man Who
Turned into Himselí . Spenna sem
er svo einstaklega sannfærandi af
því að hann skrifar um venjulegt og
viðkunnanlegt fólk. Hryllingur sem
er svo lógískur og samofinn al-
mennri skynsemi að hann loðir
áfram við hugsanir lesandans.
Úlfur Eldjárn
Gen Halliwell var ennh Úrir
e»mþa með Kryddj