Morgunblaðið - 30.12.1998, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 65 t
FRÉTTIR
r 1
l n| lP .vfYAfl C: nHCM
MH brautskráir 99
stúdenta á haustönn
99 STÚDENTAR frá Menntaskól-
anum við Hamrahlíð voru braut-
skráðir laugardaginn 19. desem-
ber. Þeir skiptust þannig milli
brauta að 14 brautskráðust af
eðlisfræðibraut, 36 af félags-
fræðibrautum, 32 af náttúru-
fræðibraut, 17 af nýmálabraut og
2 af tónlistarbraut. Fáeinir stúd-
entar brautskráðust af fleiri en
einni braut. Bestum heildarár-
angri náði Sólrún Melkorka
Maggadóttir, stúdent af náttúru-
fræðibraut, og hlaut hún verð-
laun frá skólanum fyrir ágætan
námsárangur. Verðlaun voru auk
þess veitt fyrir framúrskarandi
árangur í einstökum námsgrein-
um.
I ræðu sinni ræddi Lárus H.
Bjarnason rektor m.a. um alþjóð-
legt stúdentspróf og nám heyrn-
arlausra í skólanum. IB-námið
svokallaða, þ.e. nám til alþjóð-
legs stúdentsprófs, hóf göngu
sína í haust eftir að þessi fyrsti
nemendahópur hafði farið í
gegnum undirbúningsnámið sem
tekur eitt ár. Ef svo fer fram sem
horfir munu fyrstu IB-stúdent-
arnir verða brautskráðir vorið
2000. Kennsla í öðrum greinum
en tungumálum fer fram á ensku
og allar námsgreinar lúta til-
teknum ramma sem settur er af
alþjóðastofnuninni sem skipu-
leggur námið í hartnær eitt
hundrað löndum. Meginreglan er
að kennt er í hraðferðum, sem
einnig geta staðið til boða nem-
endum í hinu hefðbundna
menntaskólanámi.
Þróunarstarf varðandi nám
heyrnarlausra hefur einkum
falist í að laga tungumálanám að
þörfum og aðstæðum þessara
nemenda og að tryggja þeim
táknmálstúlkun og eftir atvikum
rittúlkun. Eitt af baráttumálum
Samtaka heyrnarlausra hefur
verið að fá formlega viðurkenn-
ingu yfirvalda á að íslenskt tákn-
mál sé þeirra fyrsta mál á sama
hátt og íslenskan er hinum heyr-
andi. Þrátt fyrir að slík almenn
viðurkenning liggi ekki fyrir hef-
ur menntamálaráðuneytið heim-
ilað brautskráningu stúdenta
með íslenskt táknmál sem kjarna
móðurmáls. I skólanum er rúm-
lega tugur heyrnarlausra og
heyrnarskertra nemenda og nú
er þeim áfanga náð að lokið hef-
ur stúdentsprófi sá fyrsti í hópi
heyrnarlausra, Ragnheiður Sara
V aldimarsdóttir.
f ávarpi til stúdenta sagði rekt-
or skólana glíma við það erfiða
verkefni að búa ungt fólk undir
framtíð sem einkenndist af hinu
óvænta og ófyrirséða og ekki
væri auðsvarað hvað væri hag-
nýtt og hvað ekki í veröld þar
sem stöðugt yrðu til ný þekking-
arsvið sem breyttu fyrri gildum.
Hann kvaðst vona að stúdents-
námið yrði lykill sem Iokið gæti
upp dyrum að nýrri þekkingu,
nýjum tækifærum og auðugra
lífi.
Sjómenn vilja hraða
framkvæmdum
við Húsavíkurhöfn
Doktorsrit-
gerð um rann-
sóknir á áfeng-
issjúklingum
•KRISTINN Tómasson varði dokt-
orsritgerð við háskólann í Ósló 12.
september sl., er byggist á rann-
sóknum, sem
Kristinn hefur
unnið að síðan
1992.
Doktorsrit-
gerðin sam-
anstendur af sex
greinum ásamt
inngangi og yfir-
liti. Hún byggir á
viðtölum við 351 sjúkling sem komu
á árunum 1991 til 1992 á Vog og
áfengismeðferðardeildir Landspítal-
ans, deild 33A og Vífilsstaði. Leitað
var aftur til sjúklinganna, 16 og 28
mánuðum eftir innlögn. Meginnið-
urstöður rannsóknanna eru eftirfar-
andi:
Alls reyndust 77% vímuefnasjúk-
linganna hafa aðra geðgreiningu.
Algengustu gi-einingar voru kvíða-
sjúkdómar 65%, þunglyndissjúk-
dómar 33%, aðrir vímuefnasjúk-
dómar 32% og andfélagsleg per-
sónuleikaröskun 28%.
Þessar niðurstöður eru í góðu
samræmi við það sem fundist hefur
vestanhafs og austan með sambæri-
legum aðferðum. í ljósi þessa virðist
nauðsynlegt að áfengismeðferðar-
deildir geti rannsakað sjúklinga sína
gaumgæfilega með tilliti til annarra
geðsjúkdóma og hafi aðstöðu til að
bregðast við niðurstöðum slíkra
geðskoðana.
Þoití sjúklinga sem leitar áfeng-
ismeðferðar leitar sér einhvers kon-
ar eftirmeðferðar. Sjúklingar með
aðrar geðgi'einingar jafnframt og þá
sérstaklega með kvíðakastasjúkdóm
og/eða víðáttufælni leita sér frekar
eftirmeðferðar hjá sérhæfðum aðil-
um meðan aðrir leita fyrst og
fremst til AA. Þrátt fyi'ir þetta eru
batahorfur kvíðakastasjúklinga
slæmar fyi'stu 16 mánuðina eftir
innlögn. Þá hafa sjúklingar sem eru
að koma í fyrsta sinn með kvíða-
kastasjúkdóm og/eða víðáttufælni
nærri sexfalda áhættu til að leggj-
ast inn aftur á fyrstu 28 mánuðum
eftir meðferðina borið saman við
aðra sem eru að koma í íyrsta sinn.
Aðeins 16% sjúklinganna héldu
bindindi alla 28 mánuðina sem eft-
irfylgnin stóð. Batahorfur voru
einnig slæmar m.t.t. félagslegra af-
leiðinga drykkju, til dæmis varð
engin framför hjá hópnum í heild
hvað varðar atvinnuþátttöku. Tölu-
vert samspil var á milli félagslegra
afleiðinga tengdra drykkju og ann-
arra geðgreininga. Sérstaka at-
hygli vekja tengsl félagsfælni við
slagsmál óháð andfélagslegri per-
sónuleikaröskun, en slíku hefur
ekki verið lýst áður.
Þessar niðurstöður gefa hug-
myndir um hvernig meðferð mætti
þróa fyrir þennan sjúklingahóp sér-
lega í ljósi þess hve mikil framþróun
hefur orðið í meðferð vissra annarra
geðsjúkdóma.
Samband geðheilsu og hversu
mikils áfengis sjúklingarnir hafa
neytt er flókið, sérlega meðal
kvenna. Almennt var geðheilsa
þeh-ra sem gi'eindust með aðra geð-
sjúkdóma verri en hinna 28 mánuð-
um eftir meðferð. Þetta á bæði við
um þá sem héldu bindindi og þá sem
fóru að drekka aftur. Þó var geð-
heilsa þeirra sem ekki héldu bindindi
vem en þeh'ra sem héldu það.
Þannig er ljóst að aðrar geðraskanh'
en áfengisfíkn sem sjúklingamir
höfðu við komu hafa veruleg áhrif á
batahorfur sjúklinganna.
Leiðbeinandi Kristins var pró-
fessor dr. med. Per Vaglum við
Institutt for Medisinske Atferdsfag
við háskólann í Osló.
Foreldrar hans era Þórunn Þor-
kelsdóttir húsfreyja og tannlæknir
og Tómas Helgason prófessor.
Kristinn er kvæntur Þorbjörgu Jó-
hönnu Gunnarsdóttur hjúkranar-
fræðingi og eiga þau 3 börn. Hann
vinnur nú sem sérfræðingur í geð-
og embættislækningum á Landspít-
alanum.
AÐALFUNDUR Sjómannadeildar
Verkalýðsfélags Húsavíkur var
haldinn 28. desember sl. Á fundin-
um urðu miklar umræður um hafn-
armál á Húsavík. í lok umræðna
um hafnarmál var samþykkt að
árétta fyrri ályktanir sjómanna um
hafnarmál á Húsavík með eftirfar-
andi ályktun:
„Aðalfundur Sjómannadeildar
Verkalýðsfélags Húsavíkur haldinn
mánudaginn 28. desember áréttar
kröfu sjómanna á Húsavík um að
stjórnvöld hraði framkvæmdum
við Húsavíkurhöfn.
Með stækkandi fiskiskipaflota
og auknum vöruflutningum um
Arslokaferð
Hafnarg-öng’u-
hópsins
Hafnargönguhópurinn stendur
fyiir gönguferð í kvöld, mið-
vikudagskvöld írá Sjómanna-
skólanum. Mæting í ferðina er
við Hafnarhúsið að vestanverðu
kl. 20 og þaðan farið með SVR
upp að Sjómannaskóla ög litið
þar inn um kl. 20.30. Einnig er :
hægt að mæta þar í gönguferð-
ina.
Víðir Sigurðsson skóla-
meistari tekur á móti hópnum
og kynnir siglingaleiðina inn
Engeyjarsund úr turni skól-
ans. Áð því loknu verður geng-
ið frá Sjómannaskólanum suð-
ur að Tjaldhóli í Fossvogi og
með ströndinni og um Há-
skólahverfið og Hljómskála-
garðinum niður á höfn. Á leið-
inni verður kveikt lítið fjöru-
bál í Nauthólsvík. Allir vel-
komnir.
höfnina er mjög brýnt að þegar í
stað verði gripið til aðgerða til að
koma í veg fyrir að vöruflutningar
og þjónusta við fiskiskip færist í
önnur byggðarlög vegna lélegra
hafnarskilyrða á Húsavík.
Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um þýðingu þess fyrir atvinnu-
líf í Þingeyjarsýslum, beri stjórn-
völdum gæfa til að hraða fram-
kvæmdum við Húsavíkurhöfn eins
og kostur er.
Krafa sjómanna er að Húsavík-
urhöfn verði bætt þegar í stað
þannig að hún geti gegnt hlutverki
sínu sem vöru- og fiskihöfn sem
best og sé örugg sjófarendum."
Vélstjórar
vilja auknar
greiðslur
ÁRSFUNDUR vélstjóra á fiski-
skipum var haldinn hinn 28. desem-
ber sl. í Borgartúni 18 í Reykjavík.
Fundurinn ályktaði eftirfarandi:
„Vélstjórafélag íslands beinir
þeim tilmælum til Alþingis að
tryggt verði með lögum að vél-
stjórar á fiskiskipum njóti
greiðslna í styrktar- og sjúkrasjóð
Vélstjórafélags íslands á jafnrétt-
isgrundvelli við launþega í landinu.
Engin efni séu til um að mismuna
launþegum á framangi'eindan hátt
enda búi sjómenn við ein hættuleg-
ustu atvinnuskilyrði allra launþega
á landinu. Samt sem áður nemi
greiðslur útgerða í nefndan sjóð
einungis 0,7% af kaupti'yggingu
vélstjóra á fiskiskipum en á sama
tíma greiði atvinnurekendur í landi
1% af heildarlaunum launþega
sinna í sambærilega sjóði stéttarfé-
laga þeirra."
Niðurfelling
húsaleigu-
bóta í janú-
armánuði
HÚMANISTAFLOKKURINN
hefur sent frá sér yfírlýsingu þar
sem tekið er undir mótmæli Leigj-
endasamtakanna, Öryrkjabanda-
lagsins, Samtaka eldri borgara og
Félagsins Þroskahjálpar vegna
frestunar sem ákveðin hefur verið
á greiðslu húsaleigubóta. Segir að
þessi frestun þýði niðurfellingu
húsaleigubóta í janúarmánuði.
„Enn er hér gripið niður í vasa
þeirra verst settu til að bæta stöðu
ríkissjóðs. Enn tilfinnanlegra er
skilningsleysi ríkisstjórnarinnai’ á
aðstæðum fólks þar sem þessi
kjaraskerðing á sér stað rétt eftir
jólin, sem eru margri fjölskyldunni
þungbær tími fjárhagslega,“ segir í
yfirlýsingunni.
„Húmanistaflokkurinn fer fram
á að þessi ákvörðun verði felld úr
gildi tafarlaust og húsaleigubætur
verði greiddar í janúarmánuði nk.
eins og venja er. Jafnframt ítreka
húmanistar að húsaleigubætur
ættu að vera skattfrjálsar og
þannig verði gætt jafnræðis við
vaxtabætur til húseigenda, sem
ekki er greiddur skattur af.“
Landssíminn
lækkar álag
á millilanda-
símtöl úr
farsíma
LANDSSÍMI íslands hf. hefur
ákveðið að lækka álag á millilanda-
símtöl úr NMT og GSM-símum um
helming, eða úr 14,94 krónum á
mínútu í 7,47 krónur. Tekur lækk-
unin gildi 1. janúar 1999.
I fréttatilkynningu frá Landssím-
anum segir að lækkunin hafi verið í
undirbúningi um nokkurt skeið, en
forsenda hennar er einkum góð af-
koma farsímakerfanna, sem veitir
svigrúm tO að lækka álagið á milli-
landasímtöl. Eftir breytinguna mun
t.d. GSM-kerfið fá í sinn hlut af
hverju símtali til útlanda viðlíka
upphæð og af hverju símtali yfir í
GSM-kerfi Tals hf.
Sem dæmi má nefna að sé hringt
milli Islands og ýmissa V-Evrópu-
ríkja lækkar dagtaxti í GSM-kerf-
inu úr 52,94 kr. í 45,47 kr. þegar
taxtinn er 38,00 kr. í almenna síma-
kerfinu. Hliðstæð lækkun fyrir
Bretland og Norðurlönd í GSM-
kerfinu, þar sem dagtaxtinn í al-
menna símakerfinu er 33,00 kr. á
mín., er 40,47 kr. úr 47,94 kr.
HSM pappírstætarar
Leiðandi merkj - Margar stærðir
Þýzk gæði - Örugg framleiðsla
m/vsk.
m/vsk.
Kr. 123.685 m/vsk.
J. fiSTVíUDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavík, sími 533 3535
mbl.is