Morgunblaðið - 30.12.1998, Side 50
50 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MINNINGAR
MORGUNBLADIÐ
+ Bogi Ingiberg
Þorsteinsson
fæddist í Ljárskóga-
seli í Hjarðarholts-
sókn 2. ágúst 1918.
Hann lést í Land-
spítalanum 17. des-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju
29. desember.
Frá ungum aldri
vissi ég að ég átti
frænda sem bjó og
starfaði á Keflavíkurflugvelli. Ör-
lögin, fátæktin og tíðarandinn hög-
uðu því svo að Bogi og Elís, faðir
minn, ólust ekki upp saman, þótt
albræður væru. Af þeim sökum
var samgangur og kynni, einkum
framan af ævi, minni en ella. Ekki
er að efa að afi þeirra, Bogi Sig-
urðsson, kaupmaður í Búðardal, og
síðari kona hans, Ingibjörg, gátu
veitt Boga betra veraldlegt viður-
væri en hann hefði notið í foreldra-
húsum. Þau reyndust honum líka
afar vel og unni hann afa sínum og
^„ömmu“ mjög mikið. Þó er víst að
aðskilnaður frá móður og föður
skiptir meira máli í æsku hvers
manns en margan grunar. Ég sá
Boga fyrst svo ég muni 49 ára
gamlan þegar hann dvaldi annan
dag jóla á heimili foreldra minna á
Hrappsstöðum í Dalasýslu. Hann
var glæsilegur, enda skartmaður í
klæðaburði. Hann var virðulegur
og framandi. Hann hafði frá
mörgu að segja og hafði lifandi
frásagnarstíl. Af honum stafaði
' 'hlýju og manngæsku. Hann lýsti
því yfír að í hönd færu erfiðari tím-
ar, síðari hluti ævinnar. Þó hafði
hann þegar lent í miklum lífs-
háska, verið bjargað helköldum úr
sjó, en séð á eftir mörgum félaga
sinna þegar Dettifossi var sökkt
árið 1945. Ég hitti Boga við ýmsi
tækifæri, en síðast fimm dögum
áður en hann Iést. Þótt líkaminn
væri farinn að gefa sig og málið
stirt, var hann enn minnugur og
skýr, kenndi mér m.a. vel gerða
ferskeytlu sem hann lærði ungur í
Dölum og fjallar um mikilvægi
góðs minnis. Hann mundi vel til-
efni þess að hann kom í Dalina í
^september 1975 og hann mundi
líka að hann hafði beðið mig að
koma til sín þennan dag.
Bogi festi rætur í Njarðvíkum
og þar undi hann sér alla tíð vel.
Hann féll vel að hópnum, hvort
sem það voru nágrannar eða aðrir
félagar. Þegar vinir hans úr
íþróttahreyfingunni héldu honum
hóf í tilefni áttræðisafmælis hans
lét hann þess getið í stuttri tölu
hve gaman væri að vera orðinn
áttræður og eiga samt svona
marga vini. Það var alveg rétt,
hann átti marga vini. Þeir sem
munu sakna Boga Þorsteinssonar
mest eru vinir hans úr körfubolt-
anum og margir munu sakna þess
- nð sjá hann ekki meðal áhorfenda
á hverjum leik eins og áður. Mig
langar að þakka öllum samferða-
mönnum og vinum Boga, en alveg
sérstaklega Inga Gunnarssyni og
fjölskyldu hans einstaka tryggð og
hjálpsemi við hann eins lengi og
hann þurfti.
Ég minnist Boga frænda míns
með virðingu.
Leifur Steinn Elísson.
Hann Bogi dó í nótt kl. 06.30,
^voru fréttirnar, sem ég fékk í sím-
ann, að morgni þann 17. desember.
Þrátt fyrir það að maður hefði
mátt vera undir þetta búinn, kom
þetta sem reiðarslag yfir mig og
fjölskyldu mína og ég veit að svo
var með fleiri, því hver vill missa
vin og eða félaga?
^ Mér er það ljúft að minnast fjöl-
*skylduvinar okkar, Boga Þor-
steinssonar, með fáeinum orðum,
er leiðir skiljast. Fyrir-
50 árum þegar hann
hóf störf á Keflavíkur-
flugvelli, var hann
hár, grannur, með
mikið svart hár, glæsi-
menni á velli. Þá þeg-
ar við kynntumst kom
fljótt í ljós að sameig-
inlega áttum við sam-
eiginlegt áhugamál,
þ.e. íþróttir. Starfs-
menn á vellinum voru
á þeim tíma um 1000
og stunduðu flest allir
einhverja íþróttina í
sölum varnarliðsins.
Bogi tók þátt í og spilaði í hinum
ýmsu greinum, svo sem hniti,
blaki, keilu og knattborðsleik, og
seinna meir golfi, og hóaði saman
ýmsum starfsmönnum og taldi að
hér væri kominn tími á að stofna
íþróttafélag.
Iþróttafélag Keflavíkurflugvall-
ar sem aldrei var kallað annað en
IKF, var stofnað þann 9. október
1951 og var Bogi formaður þess öll
árin og aðaldriffjöður þess.
Eins og að ofan er getið tók
Bogi virkan þátt í flestum íþrótta-
greinunum, og finnst víst öllum
það einkennilegt að hann æfði
aldrei, hvað þá spilaði, þá íþrótt,
sem átti hug hans frá byrjun og
hann hefur gefið mest, körfuknatt-
leik, en hann sem yfirflugumferða-
stjóri og sem settur flugvallar-
stjóri stóð dyggan vörð um IKF,
aðstoðaði við allar íþróttir. Ekki
voru það fáar ferðimar sem hann
keyrði okkur á keppnisleiki í
einkabílnum eða þá á Gula jeppan-
um, aldrei brást Bogi. Okkur vant-
aði knattspymuvöll, ekki var það
mikið vandamál, hann fékk Aðal-
verktaka til að aðstoða okkur eftir
að við vomm búnir að fá vilyrði
fyrir velli á svokölluðu „Nikkel-
svæði“
Bogi varð heimilisvinur okkar
strax upp úr 1953, er við fluttum í
næstu blokk við hann á Keflavík-
urflugvelli, þau kynni hafa aldrei
rofnað. Börnin og barnabömin litu
á hann sem „afa“ eða „langafa" öll
jól sem og afmæli, skírnir, ferm-
ingar, giftingar, alltaf var Bogi við-
staddur sem einn úr fjölskyldunni,
nema ef svo illa vildi til að hann
væri á sólarströnd, en það var
áhugamál hans númer tvö og em
þeir ekki fáir sem kynntust Boga
þar og nutu leiðsagnar og fróð-
leiks, því aldrei fór Bogi til nýs
lands nema að kynna sér hætti
þess og tungu, ég þekki engan sem
er eins fróður um allar sínar ferðir
og Bogi, hann var vel menntaður
og gáfaður. Síðustu dagana er við
sátum og drakkum kaffi og nutum
veitinga hjá Lillu, var hann að rifja
upp ferðir til Túnis sem hann fór á
vegum KKÍ íýrir 30 ámm og
nefndi nöfn á erlendum þátttak-
endum ásamt staðarheitum, en
það var einmitt í einni sólarlanda-
ferðinni, sem Bogi varð fyrir áfalli,
sem gerði það að verkum að hann
fékk slag og lömun, sem hann
sætti sig aldrei við.
Þrátt fyrir þá erfiðleika brást
hann samt ekki, mætti á alla
körfuboltaleiki, knattspyi’nu og
sund. Ef Bogi var ekki mættur var
ávallt fyrsta spurningin: Hvar er
Bogi? Ég veit að margir eiga eftir
að gjóa augum að stólnum í
íþróttamiðstöðinni í Njarðvík og
finnast erfitt að þar sé enginn.
Ég veit að fleiri lenda í þessum
sömu vandræðum og ég, þegar á
að kveðja - hvað á að rifja upp,
hverju á að sleppa, þær em svo
ótal margar minningamar, allar
keppnis-ferðirnar út á land, allar
samvemstundirnar á mínu heimili
með félögum á góðri stund. Þess
vegna mun ég að endingu aðeins
vilja hafa þessi orð, sem kínversk-
ur heimspekingur sagði, sem mín
lokaorð: „Sá sem uppfræðir mig
einn dag er faðir minn alla ævi.“
Ég votta öllum ættingjum og
vinum innilega samúð um leið og
ég kveð gamlan vin og ég veit að
hann Bogi mun líta eftir okkur.
Ingi Gunnarsson.
Snemma morguns þann 17. des-
ember hringdi síminn óvenju
snemma. I símanum var Jónsi
Halldórs. Hann sagði „Krissi minn,
ég vildi láta þig vita að hann Bogi
okkar dó í nótt.“ Hvílík harma-
fregn en um leið nokkur léttir því
Bogi var búinn að vera mjög veikur
síðustu árin.
Ég sá Boga fyrst sem unglingur
sem var að stíga sín fyrstu spor
sem dómari í körfuknattleik í
gamla Hálogalandshúsinu í
Reykjavík. Ég kynntist honum
nokkram áram seinna er ég flutti
búferlum til Njarðvíkur.
Bogi var loftskeytamaður á ýms-
um skipum á stríðsáranum og var
meðal annars á Dettifossi er hon-
um var sökkt í febrúar 1945. Bogi
lauk námi í flugumferðarstjórn
1947 og fór síðan í framhaldsnám í
Bandaríkjunum. Hann var skipað-
ur yfirflugumferðarstjóri á Kefla-
víkui’flugvelli 1. júní 1951 og
gegndi því starfi til 1. ágúst 1985 er
hann fór á eftirlaun.
Snemma fór Bogi að hafa áhuga
á félagsmálum og gegndi hann
mörgum þýðingarmiklum störfum.
Sérstaklega vora íþróttamál hon-
um hugleikin. Að telja upp öll störf
Boga við íþrótta- og félagsmál er of
langt mál. Þó vil ég minnast sér-
staklega á framlag Boga til íþrótta-
mála. Hann fékk snemma mikinn
áhuga á körfuknattleiksíþróttinni.
Hann beitti sér fyrir stofnun
Körfuknattleikssambands Islands
og var fyrsti formaður þess 1961 til
1969. Það má með sanni segja að
Bogi sé faðir körfuknattleiksins á
Islandi. Aður hafði hann ásamt
nokkram starfsmönnum á Kefla-
víkurflugvelli stofnað íþróttafélag
Keflavíkurflugvallar en það félag
keppti bæði í körfuknattleik og
knattspymu. Hann var formaður
IKF 1952 til 1959. Seinna varð
þetta félag lagt niður og stofnuð
körfuknattleiksdeild innan Ung-
mennafélags Njarðvíkur. Bogi var
formaður UMFN 1970 til 1978.
Það var á vettvangi körfuknatt-
leiksíþróttarinnar sem leiðir okkar
Boga lágu saman. Þegar ég flutti
til Njarðvíkur gekk ég í IKF til að
stunda körfuknattleik. Alltaf var
Bogi tilbúinn að hjálpa okkur
strákunum þegar aðstoðar var
þörf. Alltaf var hann tilbúinn að
keyra okkur þangað sem leikur átti
að fara fram. Það var sama hvemig
viðraði eða á hvaða tíma sólar-
hringsins var, Bogi var alltaf tilbú-
inn að veita aðstoð sína. Það era
margar skemmtilegar minningar
frá þessum tímum.
Bogi var sæmdur ýmsum viður-
kenningum fyrir störf sín í þágu
íþrótta.
Þar er helst að nefna: Heiðursfé-
lagi í Lionsklúbbi Njarðvíkur frá
1988, ævifélagi UMFN 1978, heið-
ursfélagi körfuknattleiksdeildar
UMFN 1985, afmæliskross ÍSÍ
1960, gullkross KKÍ, gullmerki
KKÍ, ISÍ, Vals, Racing Club de
Luxembourg og síðast en ekki síst
Hinn íslenska Riddarakross 1994
fyrir mikil og góð störf að íþrótta-
og æskulýðsmálum. Bogi elskaði
íþróttir. Hann sótti nær alla
íþróttaviðburði sem UMFN tók
þátt í. Sérstaklega þó körfubolt-
ann.
Þegar Bogi veiktist iyrir nokkr-
um áram var settur upp sérstakur
stóll fyrir Boga í Iþróttamiðstöð
Njarðvíkur. Þessi stóll mun verða
áfram á hverjum leik. Þó að Bogi
sé nú allur þá vitum við að hann
mun vera meðal okkar. Hans mun
verða saknað af öllum félögum
UMFN.
Elsku Bogi. Við kveðjum þig
með sorg og söknuð í hjarta. Hvíl í
friði.
Minning þín mun lifa meðal allra
félaga Ungmennafélags Njarðvík-
ur um alla eilífð.
Kristbjörn Albertsson.
Á þessari jólafóstu og yfír hátíð-
amar hefur Guð gefið oss margan
góðan veðurdag. Á morgnana hef-
ur stundum verið þrastasöngur í
grenitrjánum í görðunum á ár-
bakkanum hér á Selfossi. Um þetta
leyti dags er enn dimmt af nótt á
þessum árstíma, en staðurinn
skreyttur og lýstur upp með marg-
litum aðventu- og jólaljósum. Ölf-
usárbrú er ljósum prýdd, Tryggva-
skáli skartar líkt og glampandi
perlufesti undir endilöngu þak-
skegginu og ufsirnar á Kaupfélags-
byggingunni hafa verið auknar
óslitinni ranu örsmárra ljósa. Árið
1937 voru ekki nema um 100
manns á Selfossi, en staðurinn hef-
ur sprangið út á örfáum áratugum
og sagan af því ekkert minna en
ævintýri. Á flötinni fyrir framan
Grænumörk, þar sem merkiskonan
og skáldið frú Rósa B. Blöndals á
heima, hefur verið komið fyrir
stóra grenitré með rauðum, gulum,
grænum og bláum ljósaperum, og
er það fagurt á að sjá.
Við Austurveginn stendur gamla
Bankahúsið, vinstra megin þegar
ekið er í sólarátt, eitt myndarleg-
asta timburhús landsins frá gam-
alli tið þeirrar íslandssögu, sem
einu sinni var. Það hýsir nú meðal
annars glæsilega hársnyrtistofu og
einkar fallega blómabúð. Húsið
kom hingað vestan frá Búðardal
sumarið 1919, reist af langafa mín-
um, Boga Sigurðssyni, bónda og
kaupmanni árið 1899; flutt til-
höggvið frá Noregi. Bogi hætti
verslunarrekstri 1917 og seldi
Kaupfélagi Hvammsfjarðai- vöra-
geymsluhús og birgðir, bát og
bryggju, en Landsbankinn keypti
verslunar- og íbúðarhús hans.
Bankinn fékk Einar Einarsson,
byggingarmeistara og brúarsmið,
til þess að setja húsið upp á Sel-
fossi. Hann sendi nafna sinn, Einar
smið Runólfsson, austur á Selfoss
að steypa kjallara, en sjálfur fór
hann vestur til þess að rífa húsið.
Guðmundur Kristinsson segir í
merkri bók sinni Saga Selfoss (Sel-
fosskaupstaður 1991), að Einar
hafi gengið í öll herbergin og strik-
að þau með mislitri krít. Var húsið
síðan rifið og timbrið flutt með
mótorbát til Eyrarbakka og þaðan
upp að Selfossi. Mun hafa gengið
undrafljótt að setja það aftur upp
við Bankaveginn og þar var opnað í
því fyrsta bankaútibú fyrir austan
fjall.
Hinn 11. júlí síðastliðinn komu
saman niðjar Boga Sigurðssonar,
bónda og kaupmanns í Búðardal,
og áttu saman kvöldstund í Dala-
búð. Munir úr búi Boga vora skoð-
aðir, þar sem þeir era til sýnis í
Sýsluhúsinu í Búðardal, og daginn
eftir var sótt messa hjá sóknar-
prestinum í Hjarðarholtskirkju, sr.
Óskari Inga. Veður var með ein-
dæmum gott báða dagana og þótti
mótið takast ágætlega. Við Ágústa
höfðum þá ánægju að dvelja hjá
Kristjönu, ekkju Magnúsar Rögn-
valdssonar vegaverkstjóra, þeirri
glæsilegu og skemmtilegu konu.
Búðardalur hefur raunar ávallt
verið mér einkar kær frá því ég
dvaldi þar drengur á sumram hjá
Hennýju og Óskari Sumarliðasyni.
Dóttursonur Boga, sem jafn-
framt var uppeldissonur hans og
Ingibjargar, seinni konu hans,
Bogi Þorsteinsson, fyrram yfir-
flugumferðarstjóri á Keflavíkur-
flugvelli, kom því ekki við að sækja
mótið, enda orðinn gamall og las-
burða; varð áttræður þremur vik-
um síðar.
Bogi fæddist 2. ágúst 1918 að
Ljárskógaseli í Laxárdalshreppi og
vora foreldrar hans hjónin Þor-
steinn Gíslason bóndi þar og Al-
vilda Bogadóttir. Móðir Alvildu var
Sigríður Guðmundsdóttur frá
Kollugerði í Húnavatnssýslu. Sig-
ríður var síðar vinnukona hjá Ólafi
Möller, kaupmanni á Blönduósi.
Alvilda átti fyrr Rögnvald Magnús-
son á Neðri-Branná og með honum
soninn Magnús Skóg Rögnvalds-
son, vegaverkstjóra í Búðardal, en
síðar Þorstein Gíslason í Ljárskóg-
arseli.
BOGIINGIBERG
ÞORSTEINSSON
Bogi ólst upp frá því hann var
ársgamall hjá afa sínum, Boga í
Búðardal, og seinni konu hans,
Ingibjörgu Sigurðardóttur,
kennslukonu frá Kjalarlandi í
Vindhælishreppi. Bar hann nöfn
þeirra beggja: Bogi Ingiberg. Þau
áttu þá heima í svonefndu Thom-
senshúsi og enn stendur, en höfðu
áður búið í timburhúsinu, sem nú
gengur undir nafninu Gamla
bankahúsið á Selfossi, og fyrr er
getið.
Bogi Sigurðsson var vel gefinn
og þjóðrækinn fróðleiksmaður.
Hann var fríður maður og fóngu-
legur, hið besta á sig kominn.
Hispurslaus í tali, en drengur góð-
ur og vinsæll. Vann hann traust og
virðingu við kynningu (Eylenda II,
Reykjavík 1996). Meðal systkina
hans vora Björn bankastjóri
Landsbankans og frú Margrét,
prestskona á Höskuldsstöðum, átti
sr. Jón Pálsson.
Bogi Þorsteinsson á einkar ljúf-
ar bernskuminningar frá uppvexti
sínum í afahúsi í Búðardal. Hann
minnist jólanna og hrifningar
bamsins af jólatrénu og kertaljós-
unum; stóra fjárhúsanna og ótelj-
andi augnanna í fénu, sem vora
eins og mergð gimsteina yfir ilm-
andi töðunni á garðanum; strand-
ferðaskipsins Súðarinnar, þegar
það lagði að landi í Búðardal og
Thomsenshús fylltist af gestum og
vindlareyk Bjarna frá Vogi; kirkju-
göngu afa síns og mömmu (en svo
kallaði hann ávallt Ingibjörgu) að
Hjarðarholti; fyrsta útvarpsvið-
tækisins í Dölum og starfsfólksins í
versluninni sem boðið var heim að
hlýða á messu á öldum ljósvakans;
og kvöldbæna afa síns og signingar
yfir litla rúmið undir svefninn.
Ingibjörg, sem var ákaflega
merkileg kona, greind og vel lesin,
og við bömin kölluðum Löllu,
geymdi merkan grip er staðið hafði
á heimili þeirra Boga, en það var
tréskurðarmynd, er lengi var talin
vera af Ólafi helga Noregskonungi.
Hét fólk á dýrlinginn og þótti
verða vel við en greitt var með
kertum, er loguðu glatt í marg-
arma stjaka fyrir framan myndina
í herbergi langömmu minnar og
frænku. Mér er í bamsminni, þeg-
ar ókunnugt fólk var að koma með
kertin, en afi mjög eldhræddur.
Síðar komst Kristján Eldjám þjóð-
minjavörður og síðar forseti Is-
lands að því, að myndi þessi hefði
verið hluti af þrenningarmynd og
sýndi sjálfan himnaföðurinn í skó-
síðri skikkju með kórónu, epli og
veldissprota. Var henni þá tafar-
laust komið í þjóðminjasafnið. Hin-
ar tvær persónur guðdómsins vora
og vísar og nú má ganga að mynd-
inni heilli í safninu og skoða sér til
fróðleiks og ánægju.
Ingibjörg Sigurðarðóttir andað-
ist 25. október 1970. Hún átti í ára-
tugi heimili hjá Ragnheiði stjúp-
dóttur sinni og Gunnari manni
hennar á Frakkastíg 6a í Reykja-
vík. Var Bogi mikið ræktarlegur
við Ingibjörgu og man ég vel, þeg-
ar þessi fríði og skemmtilegi
frændi minn var að koma í heim-
sókn upp á loft til Löllu, sem hann
kallaði auðvitað alltaf mömmu.
Um langt skeið kom Bogi til for-
eldra minn á aðfangadagskvöldið
ár hvert.
Móðursystkini Boga Þorsteins-
sonar, (og uppeldissystkini að
segja má, þótt hið yngsta þeirra
væri 15 áram eldra en Bogi), börn
Boga Sigurðssonar og fyrri konu
hans, Ragnheiðar Sigurðardóttur
frá Flatey Johnsen og konu hans,
Sigríðar Brynjólfsdóttur Bened-
icktsen (Staðarfellsætt) vora þau
Jón Sigurður Karl Kristján, bryti á
Dettifossi, átti fyrr Þórdísi Finns-
dóttur og síðar Friðmeyju Péturs-
dóttur, Sigríður, kona Jóns Hall-
dórssonar söngstjóra Karlakórsins
Fóstbræðra, Ragnheiður, amma
mín, átti Gunnar Olafsson nætur-
læknabílstjóra í Reykjavík og Sig-
urður, bæjarskrifstofustjóri í Vest-
mannaeyjum, kvæntur Matthildi
Ágústsdóttur.
Bogi stundaði nám í Reykholts-