Morgunblaðið - 30.12.1998, Blaðsíða 46
v46 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
> ^ Ljósmyndir/Myndasafn Reykjavíkur
UPPHAF ’68 róttækninnar hérlendis er oftast miðað við töku ísl. námsmanna á sendiráði íslands í Stokkhólmi vorið 1970. Menntskælingar fylgdu
fordæminu eftir með því að yfirtaka menntamálaráðuneytið heima á íslandi. Á myndinni frá atburðinum má m.a. þekkja Össur Skarphéðinsson.
Baksvið '68-kynslóð-
arinnar á íslandi
s
Afram er haldið upprifjun vegna þess að
á þessu ári eru liðin þrjátíu ár frá stúd-
■U'U.HI.Mf
entauppreisninni svo-
til valda
nefndu. I fyrri grein
sinni fjallaði Leifur Reynisson um hinn
erlenda bakgrunn þessara atburða en
í þessari seinni grein segir frá því hvernig
y-----------
þessi hreyfíng barst til Islands.
RÓTTÆK ungmenni komu einatt saman á fundum og ræddu
ábúðarmikil baráttumálin.
AÐ ER skylda stúdenta
að tryggja, svo sem í
þeirra valdi stendur, að
Háskólinn sé hvorki óvirt-
ur í orði né verki. Það gera
stúdentar meðal annars með því að
taka ekki þátt í óspektum eða mót-
mælaaðgerðum og fordæma slíkt
athæfí.“ Svo segir í yfirlýsingu
stjórnar Vöku í júní 1968.
Astæða yfirlýsingarinnar voru
stúdentaóeirðir sem áttu sér stað
víða um hinn vestræna heim um
þessar mundir. Það var ekki annað
að sjá en stúdentaóeirðirnar ætluðu
gersamlega að fara framhjá ís-
lensku æskufólki. Islenskir fjölmiðl-
ar gerðu grein fyrir þróun mála en
létu þess gjarnan getið um ieið að
slíkar öfgar ættu ekki hljómgrunn
meðal íslenskra ungmenna. Rit-
stjóri Stúdentablaðsins greinir frá
stöðu mála heima á íslandi með eft-
irfarandi orðum: „Menn laga á sér
bindið, athuga hvort skyrtan er
hrein og fín.... Óeirðir? Kröfugöng-
ur? Stríð í Víetnam? Ekki er öll vit-
leysan eins ... I Háskóla Islands
gerist aldrei neitt. NATO eflir hér
alla dáð. Á forsíðu Stúdentablaðsins
frá apríl 1969 er sagt frá því á for-
A síðu að fjölmennur fundur stúdenta
hafí samþykkt ályktun þar sem
stúdentar lýsa „yfir fyllsta stuðn-
ingi við aðild íslands að [Atlands-
hafs]bandalaginu.“
Pólitísk róttækni var fjarri flestu
æskufólki fram yfir miðjan 7. ára-
tuginn. Heimdaliur þótti vænlegasti
. vettvangurinn fram að því en þau
*viðhorf tóku nú að breytast. Vax-
andi hópur ungs fólks missti trú á
flokkakerfið og tók að aðhyllast
óljósar umbótahugmyndir. „Pabba-
pólitík" varð að skammaryrði. Sér-
staklega tók að bera á róttækni
meðal mennta- og listaæskunnar.
Æskan var á þessum árum að
sækja í sig veðrið sem þjóðfélags-
hópur. Sífellt fleiri sóttu nám auk
þess sem námstíminn lengdist.
Menn voru ekkert að flýta sér að
verða fullorðnir heldur nutu þess
lífsstíls sem æskan hafði komið sér
upp. Með rokk- og síðan bítlaæðinu
hafði æskan fundið sér kröftugan
tjáningarmiðil. Unga fólkið tók í
auknum mæli að storka þeim sem
eldri voru með framkomu sinni,
klæðaburði og hártísku. í krafti
aukinnar velmegunnar var æskan
sjálfstæðaiá en nokkru sinni fyrr og
hún virtist ætla að njóta þess eins
vel og lengi og kostur væri á. Með
auknu sjálfstæði fór æskan að láta
til sín taka í þjóðmálaumræðunni og
hún tók til við að krefjast breytinga.
Róttækni hefur innreið sína
Menntaskólai-nir tóku fyrstir við
sér og á árunum 1968-70 einkennd-
ust blöð þeirra af róttækni. Anark-
ísk uppreisn var boðuð, skólakerfið
var gagnrýnt og stríðsrekstur
Bandaríkjánna í Víetnam var for-
dæmdur. Róttæknin átti hins vegar
ekki eins greiða leið inn í Háskól-
ann. Vaka bar sigurorð af vinstri
mönnum allt til ársins 1971. Nokkuð
var þó farið að bera á róttækni við
Háskólann 1969 þegar félag vinstri
manna, Verðandi, stóð fyrir fjöl-
mennum fundi gegn Víetnamstríð-
inu í Háskólabíói haustið 1969.
Það voru hins vegar íslenskir
stúdentar erlendis sem íýrst létu að
sér kveða. Þeir höfðu sent málgögn-
um vinstri manna fréttir af stúd-
entaóeirðum erlendis. Þeir létu hins
vegar ekki sitja við orðin tóm. í apr-
íl 1970 hertók hópur íslenskra
námsmanna íslenska sendiráðið í
Stokkhólmi. Þeir kröfðust þess að
kjör námsmanna yrðu bætt auk
þess sem hvatt var til sósíalískrar
byltingar. Menntaskólanemar
fylgdu þessu fordæmi eftir með því
að yfirtaka menntamálaráðuneytið.
Nálægt hundrað ungmenni áttu
hlut að máli en af þeim voru einung-
is þrír háskólastúdentar.
Meirihluti mennta- og háskóla-
nema taldi sig til vinstri upp úr
1970. Kosningar til Stúdentaráðs
urðu pólitískari en áður hafði verið.
Vinstri menn báru loks sigur úr
býtum haustið 1971 undir kjörorð-
inu „Herinn burt“. Þeir yfirtóku
Stúdentablaðið og gerðu það að eig-
in áróðursriti. Á forsíðu Stúdenta-
blaðsins 1. des. segir eftirfarandi:
í dag minnast stúdentar fullveld-
is þjóðarinnar að gömlum sið en
með nýjum hætti. Stúdentablaðið er
að þessu sinni árangur að samstarfi
tveggja baráttuhópa stúdenta,
þeirra sem telja að brottvikning
bandaríska herliðsins sé skilyrði
fyrir fullkomlega sjálfstæðu þjóðlífi
Islendinga og þeirra sem telja að
sjálfstæði þjóðarinnar sé undir því
komið að við hefjum nú þegar öfl-
uga baráttu gegn þeim spillingaröfl-
um sem herja á lífið sjálft.
Rótækir námsmenn höfðu náð
forystu í námsmannahreyfingunni.
Markmiðið var sósíalískt þjóðfélag
sem koma átti á fyrir samstöðu
stúdenta og verkalýðs gegn fjand-
samlegu valdakerfi. Sósíalisminn
var orðinn að tískufyrirbrigði.
Neikvæð afstaða gagnvart „kerf-
inu“ leiddi eðlilega til minnkandi
virðingar. Við Alþingiskosningarnar
1971 gafst róttækum kjörið tæki-
færi til að láta skoðanir sínar í ljós.
Framboðsflokkurinn var stofnaður
af róttækum háskólanemum með
það að markmiði að hrista upp í
stöðnuðu stjórnmálakerfí. Fyrir
ungmennunum einkenndist pólitíkin
af stöðnun sem kæmi skýrt fram í
fastmótaðri stjórnmálaumræðu þar
sem menn fóru með „frasakenndar
tuggur". Framboðsflokkurinn var
„skopstæling starfandi stjórnmála-
flokka og gerði stólpagn'n að skipu-
lagi, málflutningi og kosningabar-
áttu þeirra." Ætlunin var „að vekja
fólk til vitundar um málflutning lýð-
skrumara... “ Því var haldið fram að
kosningarnar væru „bfialeikur
flokkanna“ þar sem stjórnarfárið
væri „peningalýðræði" enda lægju
allir þræðir þjóðfélagsins um
stjómmálaflokkana.
Deilur hægri og vinstri manna
snerust töluvert um hver umræðu-
efnin ættu að vera. Vinstri menn
litu svo á að hagsmunasamtök nem-
enda ættu að hafa afskipti af heims-
málunum en hægri menn kröfðust
þess að umræðan yrði einskorðuð
við hagsmunamál nemenda. I hug-
um vinstri manna fékk hugtakið
pólitík miklu víðtækari skírskotun
en áður hafði verið. „Það var pólitík
að hrófla við ævafornum hefðum,
rótgrónu valdi og vanahugmynd-
um... Það var pólitísk umræða að
sýna fram á tengsl aðskilinna sam-
félagssviða ... Mönnum varð ekki
skotaskuld úr því að sjá tengsl milli
Víetnamstríðsins og skólastefnu á
Vesturlöndum..."
Þessar áherslur komu skýrt fram
í Stúdentablaðinu. I marsmánuði
1973 birtist lesendabréf í blaðinu
þar sem fundið er að þessum vinnu-
brögðum: í blaðinu birtast æ færri
greinar um málefni stúdenta, um
leið og greinum um kommúnisma,
sósíalisma, marx-leninisma eða Maó
má vita hvaða isma, fjölgar svo, að
þær mynda nú aðaluppistöðuna í
efni blaðsins. Slíkt efnisval í blaði,
sem á að heita aðalmálgagn stúd-
enta í hagsmunabaráttu þeirra, er
fyrir neðan allar hellur.“
Deilt á Víetnam-
stríðið og NATO
Víetnamstríðið hafði verið eitt
helsta mótmælaefni ’68 mótmæl-
anna. Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins hafði hafið baráttuna
gegn stríðsrekstri Bandaríkjanna í
Víetnam sem einangraður en hávær
minnihlutahópur. Auk fylkingarinn-
ar voru ýmsar nefndir stofnaðar til
höfuðs Víetnamstríðinu. Þær urðu
skammlífar en með stofnun hverrar
nýrrar nefndar kom fram skelegg-
ari afstaða gegn hlutdeild Banda-
ríkjanna í stríðinu. Aukið líf var
fært í samtök herstöðvaandstæð-
inga með enduiTeisn samtakanna
vorið 1972. Slagorðið „ísland úr
Nato - herinn burt“ var tekið upp
og með það að vopni var skundað til
Keflavíkur í mótmælaskyni.
Róttækni festi sig í sessi meðal
stúdenta næstu árin. Vinstri menn
treystu stöðu sína með sífellt sterk-
ari slagorðum. í Stúdentablaðinu
frá 1. mai 1972 gat að líta eftirfar-
andi hvatningu á forsíðu:
„NÁMSMENN í REYKJAVÍK -
Fjölmennið á útifundinn og kröfu-
gönguna 1. maí og sýnið þannig
stuðning við verkalýðinn og baráttu
hans.“ og ennfremur: „Mætum öll á
morgun ... til að taka á móti
WILLIAM ROGERS, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og skósveini
Nixons. Þá sakar heldur ekki að
hafa það I huga í leiðinni að um
þessar mundir ... eru liðin tvö ár
síðan fjórir bandarískir stúdentar
voru skotnir til bana í mótmæla-
göngu gegn styrjöldinni í Víetnam.“
Daginn eftir meinuðu róttæk
ungmenni bandaríska utanríkisráð-
herrarium að skoða miðaldaskræður
í Árnagarði. Hægristúdentar
brugðust hart við með yfirlýsingu
sem Vaka sendi frá sér en í henni
segir meðal annars: ... þeir sem
aðhyllast skoðanir valdbeitingar-
manna og meiri hluta Stúdentaráðs,
eru fremur fámennur hópur öfga-
manna, og baráttuaðferðir þeirra
eru með allt öðru móti en en þorra
stúdenta. ... Stúdentaráð Háskóla
Islands hefur tekið upp þá stefnu að
styðja baráttu þjóðfrelsisfylkingar-
innar í Víetnam eða skæruliða
kommúnista þar í landi. ... Vaka
lýsir yfir samúð sinni með Ví-
etnömsku þjóðinni og átelur jafn-
framt harðlega þá menn, sem taka
upp hanzkann fyrir annan stríðsað-
ilann og fordæma hinn.“
Kommaklíkur
og hippamenning
Þó svo vinstri menn væru hávær-
ir í kröfugerðum sínum voru mark-
miðin fremur óljós. Upp úr 1972
tóku róttæklingar að bregðast við
því með stofnun kommúnískra sam-
taka. Smáklíkur menntskælinga
tóku að myndast utan um hug-
myndafræði kennda við Maó og
Trotský. Baráttan skyldi nú fá á sig
agaða og fræðilega mynd. Þeir rót-
tæklingar sem gengu þessum klík-