Morgunblaðið - 30.12.1998, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Við
áramót
Ekki ætla ég að vera eftirbátur í úttektum
og mun nota tœkifœrið til að rifja upp
hvað bar helst til tíðinda á vettvangi
leikins efnis í sjónvarpinu.
'-s
Aramót eru tími út-
tekta. Árið sem er
að líða er tekið út og
dregið saman, farið
í saumana og rakið
upp. Valinkunnir einstaklingar
eru spurðir álits á árinu; varð
einhver áþreifanlegur árangur
af því, náðust einhver markmið,
breyttist eitthvað, varð hagnað-
ur eða tap? Hver tapaði, hver
græddi, hver er maður ársins
og hver er kona ársins? I við-
skiptum, listum, kjarabaráttu
og fiskvinnslu? Hver er
kynþokkafyllsta konan?
Kynþokkafyllsti karlmaðurinn?
Hver var greindastur, stærstur,
sterkastur? Mjóstur, feitastur,
flottastur? I öllu þessu felst ein-
föld sammann-
VIÐHORF
Eftir Hávar
Sigurjónsson
leg óskhyggja,
nefnilega sú að
það hlýtur að
vera einhver
tilgangur með þessu öllu sam-
an, ekki hefur árið bara liðið án
nokkurs sýnilegs tilgangs. Okk-
ur er nauðsynlegt að setja okk-
ur í samhengi við eitthvað og
hefja nýtt ár í þeirri fullvissu að
okkur sé ætlaður hlutur í gang-
verkinu; ef okkur tókst það
ekki á þessu ári þá höfum við
nýtt tækifæri núna, nýtt ár,
nýja möguleika, óskrifað blað.
Og heppni okkar er einstök því
ef okkur dugir ekki árið 1999 til
að verða stærst, feitust og flott-
ust þá er heil ný öld framundan
með ótrúlegt tilboð af fyrirheit-
um. Að veröldin sé hringlaga og
tíminn líka - vetur, sumar, vor
og haust - er frístundapæling
og hefur engan praktískan til-
gang, veruleikinn er þjóðvegur
og við erum vegfarendur, kom-
um úr þátíðinni, látum greipar
sópa um nútíðina og stefnum
ótrauð fram veginn á vit fram-
tíðarinnar. Alltaf áfram. Ekki
afturábak og þaðan af síður í
hring. Tilveran er ekki bara í
þróun heldur í „fram“þróun.
Ekki ætla ég að vera eftir-
bátur í úttektum og mun nota
tækifærið til að rifja upp hvað
bar helst til tíðinda á vettvangi
leikins efnis í sjónvarpinu. „Bar
helst til tíðinda á vettvangi leik-
ins efnis...“ er einmitt alveg
dæmigert áramótaorðalag og
vel viðeigandi þegar farið er í
saumana á svo mikilvægum
málaflokki.
Eitt fyrsta leikna verkið í
Sjónvarpinu á árinu var barna-
myndin Töfraskórnir eftir
Björn Emilsson. Heilbrigð
sjálfsgagnrýni höfundarins kom
ótvírætt fram í því að myndin
var ekki nema 14 mínútur að
lengd. Væri betur að aðrir
tækju sér svo fagmannleg
vinnubrögð til fyrirmyndar. Um
svipað leyti hóf Sunnudagsleik-
húsið nýtt ár með þriggja þátta
krimma, Hjartans máli, eftir
Guðrúnu Helgadóttur sem
þekktust er fyrir barnasögur
sínar. Krimminn var þó alveg
laus við barnaskap en glæpinn
vantaði í tvo seinni þættina.
Glæpurinn var bæði framinn og
upplýstur í fyrsta þætti og voru
nokkuð skiptar skoðanir um svo
frumlega uppstokkun
hefðbundinnar atburðarásar í
glæpaseríu.
Blöðruveldið var misskilin til-
raun til sköpunar íslenskrar
sitúasjónskómedíu. Utlit þátt-
anna var fengið að láni úr
amerískum gamanþáttum og
sitúasjónin átti að ríma við ís-
lenskan heildsöluveruleika. Svo
amerísk/íslensk blöndun reynd-
ist veruleikafirrt og áhorfend-
um stökk varla bros á kostnað
furðusvipsins sem fraus framan
í þeim. Heiðurinn af framtakinu
áttu þeir dagskrárstjórar fyrr-
verandi og núverandi Svein-
björn I. Baldvinsson og Sigurð-
ur Valgeirsson. „Enginn er full-
kominn“ eða „Nobodýs per-
fect“, eins og það heitir á kvik-
myndamáli, sögðu þeir bara og
héldu áfram að blása í blöðrur.
Rót var snjallasta tillegg
Sjónvarpsins í kjarabaráttu
leikara á árinu og fólst í því að
gera heila sjónvarpsmynd með
þátttöku leiklistarnema og
greiða þeim engin laun fyrir
vinnuna. Hefur svo um samist
við Leiklistarskóla Islands að
þetta verði árlegur viðburður
hér eftir. Launaleysið heitir á
fagmáli „framlag Sjónvarpsins
til menntunar leikara" og var
enn ein skrautfjöður í hatt hins
öfluga og stéttvísa leik-
arafélags.
Svo kom vorið og þá var ekki
hægt að halda áfram með inn-
lenda dagskrárgerð, enda há-
bjargræðistíminn framundan.
Dagskrárstjórinn búinn að ráða
sig í kaupavinnu norður í Eyja-
fjörð eftir vetrarvertíðina í
Sjónvarpinu. „Sjáumst í haust,“
kallaði hann glaðbeittur og
stökk á bak Brúnblesa sem
hann hafði fengið lánaðan til
fararinnar. Brúnblesi var svo
notaður um sumarið til örvunar
og undaneldis og nýttist hluti
afrakstursins í jóladagskrá
sjónvarpsins. Sámur gamli tók
að sér sumardagskrána af
alþjóðlegu örlæti í fjarveru litla
frænda.
I haust komu allir endur-
nýjaðir til leiks og Friðrik Er-
lingsson reið á vaðið með þrjá
leikstjóra sér við hlið. Fyrst
Andaglas, svo Silfur og í þriðju
umferð birtist besta sjónvarps-
leikrit ársins Heimsókn, þar
sem handrit, leikur og leik-
stjórn féllu hvert að öðru eins
og hanski að hönd. Verulega
góður árangur. Hlín Agnars-
dóttir fylgdi fast á eftir með
satíruleik sinn Svannasöng og
hófst þar með óslitin röð
Pálmasunnudaga sem stóð út
nóvembermánuð. Annar satír,
Karl Agúst Ulfsson, átti síðustu
orðin fram að jólum og var
óvenjulega rómantísk kyrrð yf-
ir honum þessi sunnudagskvöld
enda móður af Spaugstofu-
sprettinum. Nú um jólin höfum
við svo séð tvær nýjar sjón-
varpsmyndir eftir tvo af okkar
reyndustu kvikmyndagerðar-
mönnum og hefur undirritaður
engu við að bæta nýbirtar um-
sagnir sínar um þær.
Niðurstaðan af þessari upp-
rifjun er auðvitað engin enda
eru ekki greinanleg nein
tímamót í gerð íslensks leikins
efnis við þessi áramót. Vonandi
gefst þó tækifæri til upp-
hrópana fyrr en síðar.
Rúmlega níutíu pör
á bridsmóti í Firðinum
SVIPMYNDIR frá Jólamóti Bridsfélags Ilafnaríjaröar sem var
fjölsótt að venju.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
BRIDS
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
HIÐ árlega jólamót Bridsfélags
Hafnarfjarðar og Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar var haldið mánudaginn
28. desember í veitingasölum
Hraunholts. Þátttaka var með
mesta móti, eða 91 par. Að venju
var spilaður Mitchell-tvímenning-
ur, 21 umferð með 2 spilum í hverri
umferð.
Bestum árangri náðu eftirtalin
pör:
N-S
Garðar Garðarss. - Kristján Kristjánss. 1010
Jakob Kiistinsson - Asmundur Pálsson 1006
Sverrir G. Kristinsson - Ingi Agnarsson 1003
Pórður Bjömsson - Pröstur Ingimarsson 999
Gylfi Baldursson - Björn Theódórsson 976
Birna Stefnisd. - Aðalsteinn Steinþórsson 976
A-V
Guðrún Jóhannesd. - Jón Hersir Elíasson 1089
Páll Þór Bergsson - Magnús Ólafsson 1032
Porsteinn Joensen - Erlingur Einarsson 1011
Baldvin Valdimarss. - Hjálmtýr Baldurss. 988
Hrólfur Hjaltason - Sigtryggur Sigurðss. 980
Halldór Svanbergss. - Kristinn Kristinss. 979
Veitt voru peningaverðlaun fyrir
þrjú efstu sætin í hvora átt, kr.
40.000 fyrir fyrsta sætið, 24.000
fyrir annað sætið og 16.000 fyrir
það þriðja.
Einnig voru veitt sérstök verð-
laun, 10.000 kr. fyrir efsta sæti í
flokki spilara 25 ára og yngi-i.
Nokkrum vonbrigðum olli hversu
fá pör á þeim aldri mættu, en verð-
launin hlutu félagamir Guðmundur
Gunnarsson og Bergsteinn Ai-ason.
A meðan keppnisstjórar og að-
stoðarmenn þeima fóru yfir niður-
stöður, sá stjórn félagsins um ann-
ars konar uppákomu. Nöfn allra
spilara voru sett í pott og dregnir
út þrír happavinningar, sem voru
glæsilegii- flugeldar frá SVD flug-
eldum. Þeir heppnu voru Hrafn-
hildur Skúladóttir, Þórður Bjöms-
son og Vignir Hauksson og má telja
öraggt að mikil Ijósadýrð verði fyr-
ir utan heimili þeirra um áramótin.
Eins og margir eflaust vita hafa
Bridsfélag Hafnarfjarðar og Brids-
félag Selfoss att kappi sín á milli í
rám 50 ár án þess að fallið hafi úr
eitt einasta skipti. Spilarar frá Sel-
fossi hafa einnig verið duglegir við
að sækja jólamót félagsins frá upp-
hafi og svo var einnig nú. Það sem
sérstakt þótti að þessu sinni, var að
þennan dag átti einn þeirra, Gunn-
ar Þórðarson, fimmtugsafmæli. En
ekki nóg með það, heldur átti
spilafélagi hans, Sigfús Þórðarson,
einnig afmæli, og færði formaður
félagsins þeim blómvendi í tilefni
dagsins.
Að lokum vill félagið þakka
dyggan stuðning Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar við mót þetta í gegnum
árin. Það er litlum félögum ómetan-
legur styrkur að eiga slíkan bak-
hjarl.
Fyrsta spilakvöld Bridsfélags
Hafnaríjarðar eftir áramót verður
mánudaginn 4. janúar. Þá verður
spilaður eins kvölds tvímenningur.
Dagana 11., 18. og 25. janúar verð-
ur svo spiluð sveitakeppni með
Monrad-fyrirkomulagi og munu
þrjár efstu sveitirnar í þeirri
keppni fá í verðlaun frítt spilagjald
í sveitakeppni Bridshátíðar BSI og
Flugleiða, sem haldin verður um
miðjan febráar. Spilað er í Hraun-
holti, Dalshrauni 15, og hefst spila-
mennska kl. 19.30.
Hörkukeppni í jólamóti
Bridsfélags Suðurfjarða
SKÚLI Sveinsson og Þorvaldur
Hjarðar sigi-uðu í árlegu jólamóti
Bridsfélags Suðurfjarða sem spilað
var á Hótel Bláfelli 27. desember.
Mótið er orðið fastur liður í jólahát-
ið austfirskra bridsara og jafnsjálf-
sagt og jólatréð.
Þetta var hörkumót og mjög
jafnt, sérstaklega í lokin, en þá áttu
5 pör möguleika á sigri en í þessu
móti er aðeins einn sigurvegari og
höfðu Skúli Sveinsson og Þorvaldur
Hjarðar sterkustu taugarnar. í síð-
ustu umferð áttu Skúli/Þorvaldur
við Pálma/Stefán og unnu þeir fyrr-
nefndu setuna með 7 stigum og
sendu þá síðamefndu niður í 4.
sæti.
Lokastaðan var annars þessi:
Skúli Sveinsson - Porvaldur Hjarðar 105
Pórarinn Sigurðsson - Porbergur Hauksson 96
Bj. Hafþór Guðmunds. - Magnús Valgeirss. 90
Pálmi Kristmannss. - Stefán Kristmannss. 88
Sveinn Heijólfsson - Porsteinn Bergsson 74
Sigurður Stefánsson - Sigurþór Sigurðsson 70
Til að byrja með leiddu Sigurður
og Sigurþór mótið, Pálmi og Stefán
tóku við af þeim, þá tóku Sveinn og
Þorsteinn sig á og leiddu í nokkrar
umferðir og loks skutust Þorvaldur
og Skúli á toppinn og vora
viðloðandi hann allt til loka. Minnti
þetta mjög á oddaflug hjá gæsum!
Þórarinn og Þorbergur skutust
eins og kafbátar í annað sætið í síð-
ustu umferð og höfðu aldrei komið
nálægt toppnum áður, sama gerðu
Hafþór og Magnús. Klókir menn
láta aðra um að þenja taugarnar.
Skúli Sveinsson frá Bridsfélagi
Borgarfjarðar eystra er greinilega
sigursælasti spilari á Austurlandi í
dag, er nánast áskiifandi að fyrsta
sætinu á öllum bridsmótum á Aust-
urlandi. Keppnisstjóri var Sigui-páll
Ingibergsson.
Gleðileg jól.
Sjá nánar heimasíðu sambands-
ins, http://www.eIdhom.is/bsa
Email: bridge@eldhom.is
Lífslindin
tekur til
starfa
NÝLEGA var opnað í Reykjavík
fyrirtækið Lifslindin. Þar er boðið
upp á ýmiss konar nudd, reiki-heil-
un, pólun, ljósaböð, gufu- og nudd-
potta. Einnig er boðið upp á
einkaráðgjöf um bætt heHsufar.
Lífslindin er til húsa að Kapla-
skjólsvegi 64. Opið er mánudaga
til föstudag kl. 10-21, laugardaga
og sunnudaga kl. 10-16. Eigendur
Lífslindarinnar era Jóhanna Har-
alds, meistari í nudd- og pólunar-
fræði, og Brynjólfur Einarsson
reiki-heilari.
LEIÐRÉTT
Vinnslumistök
Við vinnslu greinar Braga Ás-
geirssonar; „Hinn flekklausi getnað-
ur“, sem birtist í blaðinu í gær, urðu
þau mistök, að nokkrar línur urðu
ólæsilegar. Því er eftirfarandi kafli
birtur aftur um leið og beðizt er af-
sökunar á mistökunum:
„Tiepolo var fæddur inn í mótaða
erfðavenju, sem var ein hin
traustasta og rótgrónasta sem sögur
fara af og þó á stöðugri hreyfingu,
var líkast til undrabarn, sem náði að
viðhalda ferskri og frjórri sköpunar-
gleði til hins síðasta. Tæknina
meistraði hann af þeim léttleika að
fáu er til að jafna, en þó var hún
aldrei yfirdrifin né tilgerðarleg, þar
skilur á milli hins upprunalega og
sjálfsprottna og hins tillærða."