Morgunblaðið - 30.12.1998, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Dreifbýlisstyrkir,
símenntun, fjarnám
UNNIÐ hefur verið markvisst að
því að hrinda hinni nýju skóla-
stefnu, sem kynnt var á íyrri hluta
ársins, í framkvæmd. Jafnrétti til
náms er meðal þeirra þátta, sem
einkenna stefnuna. I henni er lýst
yfir því, að eitt mikilvægasta úr-
lausnarefni skóla og skólayfirvalda
sé að finna leiðir til að koma til móts
við óh'ka getu og óh'k áhugamál
nemenda, það er að veita nemend-
um menntun við hæfi hvers og eins.
Eru ólíkar aðstæður vegna búsetu
meðal þess, sem taka þarf tillit til í
þessu sambandi.
Alþingi samþykkti nýlega frum-
varp mitt um breytingu á lögum um
ráðstafanir til jöfnunar á náms-
kostnaði. Þessi lög fjalla um svo-
nefnda dreifbýlisstyrki til þeirra,
sem stunda nám í framhaldsskóla
fjarri heimabyggð sinni og fjöl-
skyldu, enda sé ekki unnt að stunda
sambærilegt nám frá lögheimili.
Lagabreytingin fólst í því, að skapa
samræmi milli þessara styrkveit-
inga og úthlutunarreglna Lánsjóðs
íslenskra námsmanna (LIN).
Fyrir lagabreytinguna nutu þeir
ekki dreifbýlisstyrks, sem áttu rétt
á láni úr LÍN, en þar er um nem-
endur í sérnámi til starfsréttinda að
ræða. Eftir að breytingin hefur ver-
ið samþykkt geta nemendur í þessu
námi á framhaldsskólastigi hins
vegar valið á milli þess að sækja um
lán fi-á LÍN eða um styrkinn. Hér
er um brýnt mál að ræða, sem
snertir allt að 400 nemendur. Var
samþykkt að auka útgjöld á fjárlög-
um um 25 milljónir króna af þessu
tilefni. Þar að auki samþykkti al-
þingi að hækka almenna fjárveit-
ingu til að jafna námskostnað um 40
milljónir króna. Ber að skoða þá
hækkun sem mikilvægan lið í við-
leitni þingmanna til að styrkja for-
sendur búsetu um land allt.
Nýlegar ákvarðanir alþingis leiða
til þess, að námsstyrkjanefnd, sem
úthlutar dreifbýlisstyrkjum til
framhaldsskólanema, hefur 67,9
milljónum króna meira fé til ráð-
stöfunar á árinu 1999 en 1998. Fjár-
veitingar til að jafna námskostnað
og til skipulegs skólaaksturs á
framhaldsskólastigi eru 191 milljón
króna í fjárlögum 1998 og verða
258,9 milljónir á árinu 1999. Til
samanburðar má geta þess að árið
1996 nam þessi fjárhæð 111,5 millj-
ónum króna, nemur hækkunin því
um 130% á þremur árum.
Jafnrétti einkennir
skólakerfið
Fyrir skömmu var dreift á alþingi
skýrslu minni um framfærslukostn-
að og lögheimilisfiutninga íslenskra
námsmanna. Þar benda skýrsluhöf-
undar, sem eru frá Hagfræðistofnun
Háskóla íslands, á, að eitt af megin-
einkennum íslenska skólakei’fisins
sé, að hér hafí ríkt meira jafnrétti til
náms en víða annars staðar, hvort
sem litið er til kynferðis, efnahags,
búsetu eða annaira þátta. Liður í
þessari stefnu sé úthlutun dreifbýl-
isstyrkja til nemenda af landsbyggð-
inni, sem sækja nám fjarri heima-
byggð. Á árabilinu 1988-97 hafi ver-
ið varið um 900 millj. kr. í þessum
tilgangi en fjárveitingin hafi hækkað
jafnt og þétt frá 1990.
Þessi skýrsla til alþingis er unnin
í samræmi við ályktun, sem alþingi
samþykkti í febrúar 1995. Með
henni var menntamálaráðherra falið
að láta gera úttekt á kjörum og
stöðu námsmanna, sem stunda nám
fjarri heimabyggð. Niðurstöður
skýrslunnar sýna m.a. að viðbótar-
kostnaður við að hafa nemanda á
framhaldsskólastigi eða háskóla-
stigi í skóla fjarri heimabyggð er á
bilinu 130-375 þús. kr. að teknu til-
liti til dreifbýlisstyrks. Við af-
greiðslu fjárlaga fyrir árið 1999 hef-
ur enn verið stigið skref til að draga
úr þessum viðbótarkostnaði með
hækkun styrkja.
Símenntun
I gi’einargerð, sem Rannsókna-
stofnun Háskólans á Akureyri
samdi fyrir stjórn Byggðastofnunar
um menntamál á landsbyggðinni,
Skólakerfíð er að taka
breytingum, sem auð-
velda að svara sífellt
fleiri kröfum allra nem-
enda. Björn Bjarnason
ræðir hér um ný
úrræði til að jafna
aðstöðu til náms.
segir: „Efling framhaldsskóla og há-
skóla á landsbyggðinni er ein skil-
virkasta aðgerð sem stjórnvöld geta
gripið til gegn búsetuflutningnum."
Um leið og undir þetta sjónai-mið
er tekið, er nauðsynlegt að árétta,
að ekki er líklegt, að ráðist verði í að
reisa fleiri framhaldsskóla eða há-
skóla á landsbyggðinni í bráð. Eg tel
því, að leita eigi allra leiða til að efla
þá skóla, sem fyrir eru og nýta hina
nýju upplýsingatækni til hins
ýtrasta í því skyni að gera mönnum
sem víðast kleift að stunda gott
nám. Til þess ber að nýta þann bún-
að, sem best dugar til að flytja þekk-
ingu á milli staða, og virkja ki-afta
þeirra til kennslu, sem mestu hafa
að miðla. Með því er innra starf
skólanna best styi’kt.
í fyrmefndri greinargerð segir
Stórgjafír til Krabba-
meinsfélags Islands og
Þj óðminj asafnsins
HINN 29. nóvember 1997 lézt í
Vacaville í Bandaríkjunum íslenzk
kona búsett þar, Ingibjörg Guð-
jónsdóttir Johnson frá Laugabökk-
um í Ölfusi. Hún sýndi ættlandi
sínu og þjóð þann mjög þakkar-
verða hlýhug að ánafna Krabba-
meinsfélagi Islands og Þjóðminja-
safni Islands myndarlegar pen-
ingagjafir úr dánarbúi sínu, 160
þúsund bandaríkjadali hvoru um
sig, sem jafngilda nú rúmum 11
ÉjsPitney Bowes
frímerkjavélar
Eðalmerki í póststimplun
og póstpökkun
Otto B. Arnar ehf.
Armúla 29, Reykjavík,
sími 588 4699, íáx 588 4696
milljónum íslenskra
króna og nemur því
gjöfin 22 milljónum
íslenskra króna alls.
Gjafimar vora
kvaðalausar að öðru
leyti en því að Ingi-
björg óskaði að féð
yrði notað í þágu
þeirra mála sem við-
komandi arfþegar
vinna að, baráttu
gegn krabbameini
og varðveizlu og
vernd þjóðminja.
Það er ætlun arf-
þega að gjöfin Ingibjörg Guðjóns-
myndi sjóði, er við- dóttir Johnson
Ralph E.
Johnson
komandi stofnanir
ráðstafi síðan afrakstri af í fyrr-
gi-eindum tilgangi.
Ingibjörg var fædd að Lauga-
bökkum 2. júní 1901. Foreldrar
hennar vora Guðjón Magnússon
bóndi á Laugabökkum og fæddur
þar og Guðríður Sigurðardóttir
kona hans, frá Tannastöðum í Ölf-
usi. Ingibjörg var næstelzt sjö
bama foreldra sinna og ólst upp
með þeim til 12 ára aldurs, en þá
lézt faðir hennar. Fór hún þá að
Tannastöðum til Þórðar móður-
bróður síns, hins kunna fræði-
manns er þar bjó og margir þekkja
enn til.
Ingibjörg fór ung til Kaup-
mannahafnar og lærði þar sauma-
skap og vann jafnframt fyrir sér
Það er Krabbameins-
félaginu og Þjóðminja-
safninu mikils virði,
segja Guðrún Agnars-
dóttir og Þór Magnús-
son, að þeirra sé
minnst svo myndar-
lega.
sem skrifstofustúlka og á elliheim-
ili. Hún dvaldist þar ytra í 6 ár og
lærði þá einkum húllsaum og plís-
eringar svo og kúnstsaum af ýmsu
einnig: „Vænleg leið til
að efla framhalds- og
háskólamenntun á
landsbyggðinni virðist
geta verið að tengja
þessi tvö skólastig með
samningum milli fram-
haldsskóla og háskóla
um að hinir síðar-
nefndu taki ábyrgð á
ákveðnum námskeiðum
sem kennd eru í hinum
fyrrnefndu. Vilji nem-
andi síðan hefja nám í
háskóla getur hann
fengið þessi námskeið
metin að fullu inn í há-
skólanám sitt.“
Við afgreiðslu fjár-
laga ársins 1999 kom fram aukin
áhersla á að styrkja símenntun og
enduimenntun víða um land meðal
annars með þeim hætti, sem lýst er
hér að ofan. Menntamálaráðuneytið
undirbýr nú, hvemig best verði
staðið að því að nýta aukna fjánnuni
til símenntunar í samvinnu við skóla
og þá, sem þeir kalla til samstarfs
við sig. Á þessu ári hefur ráðuneytið
unnið að því með Fræðsluneti Aust-
urlands að hrinda góðum áformum
undir merkjum þess í framkvæmd.
Einnig hefur verið stuðlað að við-
gangi Miðstöðvar fyrir símenntun á
Suðurnesjum. Með staðfestingu rík-
isstjórnarinnar fyrr á þessu ári, um
að yfirstjórn símenntunar sé í hönd-
um menntamálaráðuneytisins hefur
það fengið nýtt umboð til að sinna
þessum mikilvæga og sívaxandi
þætti menntamálanna. Er sérstök
verkefnisstjórn vegna símenntunar
að hefja störf á vegum ráðuneytis-
ins.
Fjarkennsla
Út frá almennum sjónarhóli og
ekki síst frá bæjardyrum þeirra,
sem á landsbyggðinni búa, er æski-
legt, að fjölskyldur þurfi ekki að
flytjast búferlum til að fólk geti
stundað framhaldsnám eða aflað sér
endurmenntunar. Best er, að unga
fólkið geti dvalist sem lengst í
heimabyggð sinni og notið þar hinn-
ar bestu menntunar. Þróunin er í þá
átt, að æ meira nám verður í boði í
gegnum tölvur og hvers kyns fjar-
fundabúnað. Má hik-
laust orða það svo, að í
þessu efni sé um bylt-
ingarkenndar breyt-
ingar að ræða, er þá í
senn vísað til tækninn-
ar, námsframboðs og
námsefnis. Markmiðið
er, að landið verði einn
námsmarkaður á fram-
haldsskólastigi. Nem-
endur í einum skóla
geti lagt stund á nám í
öðrum skóla, ef henta
þykir.
Fjarkennsla rýfur
ekki aðeins landfræði-
lega einangrun heldur
gefur hún sveigjanleika
í menntun, sem erfitt er að koma við
í hefðbundnu skólastarfi. Fjar-
kennsla eykur möguleika dreifbýlis-
ins til að bjóða sérhæfða námsá-
fanga og gerir skólakerfinu í heild
kleift að nýta sér aðgang að þekk-
ingu í öðrum löndum á markvissari
hátt. Mikilvæg forsenda þess, að
fjarkennsla þróist sem raunveruleg-
ur kostur í námi, er, að námskrár
séu það skýrar, að ekki fari milli
mála til hvers er ætlast af nemend-
um. í endurskoðuðum námskrám
verða námskröfur settar fram á
skýran og ótvíræðan hátt, þannig að
unnt sé að verða við þeim með fjar-
kennslu, þegar hún hentar.
Nýjar kröfur
Breyttar aðstæðui’ og nýjar
áherslur í menntamálum móta nýj-
ar kröfur. Með nýjum námskrám
fyrir þrjú fyrstu skólastigin, leik-
skóla, grunnskóla og framhalds-
skóla, hefur þegar verið lagður
gi’unnur að enn betri skóla í anda
nýrrar skólastefnu. Þar er leitast
við að koma til móts við þarfir hvers
einstaklings eins og frekast er kost-
ur.
Höfuðkrafan á að vera, að tíma
og fjármunum til menntunar sé vel
varið. Skólar eru til vegna nemend-
anna, þegar allt kemur til alls.
Skólakerfið er að taka breytingum,
sem auðvelda að svara sífellt fleiri
kröfum allra nemenda.
Höfundur er menntamálaráöherra.
Björn
Bjarnason
Frá hægri: Þór Magnússon, Guðrún Agnarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir
frænka Ingibjargar, Hjálmar Þórðarson frændi hennar, Guðríður
Pálsdóttir frænka hennar, Guðný Gerður Gunnarsdóttir frá Þjóð-
minjasafninu og Árni Árnason eiginmaður Guðrúnar Pálsdóttur.
tagi sem þá var næsta óþekktur
hér. Hún kom síðan heim með vél-
ar til saumaskapar og setti upp
saumastofu í Bankastræti 11 sem
hún flutti síðar á Grundarstíg 4.
Ingibjörg fluttist til Ameríku
1954 og giftist þar Ralph E. John-
son. Þau höfðu kynnzt er hann var
hér í bandaríska hernum á stríðs-
árunum og var orðinn ekkjumaður
er hér var komið. Þau bjuggu í far-
sælu hjónabandi í 32 ár, allt þar til
Ralph lézt 1986. Þau bjuggu fyrst í
San Francisco og síðar í Vacaville í
Kaliforníu og þar lézt Ingibjörg
fyrir rúmu ári.
Ingibjörg var mikil heilsurækt-
arkona og var lengi félagi í Ferða-
félagi íslands og fór oft með því fé-
lagi í fjallgöngur. Á vetram fór hún
á skíði og skauta og stundaði tíðum
sund, bæði hér heima og vestra.
Þau hjón vora bæði listfeng og
lærði Ingibjörg meðal annars þar
vestra mósaikmyndagerð. Gaf hún
Þjóðminjasafni sýnishorn mynda
sinna.
Þegar Ingibjörg seldi sauma-
stofu sína á Islandi gaf hún Þjóð-
minjasafni myndarlega peninga-
gjöf, sem safnið notaði tii að kaupa
fyrir útskorinn kirkjubekk frá 18.
öld, sem kominn var úr vestfirzkri
kirkju en barst til Noregs um alda-
mótin síðustu.
Það er Krabbameinsfélaginu og
Þjóðminjasafninu mikils virði að
þeirra sé minnst svo myndarlega.
Bæði vinna hvort með sínum hætti
í þágu þjóðarinnar og vantar
stöðugt fé til verðugra verkefna.
Undirrituð vilja fyrir hönd
Krabbameinsfélags íslands og
Þjóðminjasafns Islands minnast
Ingibjargar og þeirra hjóna með
hlýhug og þakka vinsemd þeiri’a og
veglegar minningargjafir.
Guðriín er forstjóri Krahbameinsfc-
lags íslands og Þór er þjððminja-
vörður.