Morgunblaðið - 30.12.1998, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLADIÐ
KFUM og
KFUK
100 ára
Hinn 2. janúar 1999 verða 100 ár
frá stofnun æskulýðsfélaganna sí-
ungu KFUM og KFUK. Hátíðahöld
vegna afmælisins hefjast strax
þann dag og munu síðan vara út ár-
ið. Rifjaðir verða upp atburðir úr
sögunni, afmælinu fagnað, Guði
þakkað um leið og félagsmenn búa
sig undir starf á meðal æskunnar í
framtíðinni. Gott verður í framtíð-
inni að hafa traustan grunn, trausta
100 ára fortíð í þjónustu æskunnar
fyrir frelsarann okkar Jesú Krist.
Þess vegna vonumst við til þess að
afmælisárið verði okkur hvatning
og til enn frekari eflingar öflugu
starfí á meðal barna og unglinga.
Árshátíð
Hátíðarhöldin hefjast 2. janúar
með árshátíð í aðalstöðvum KFUM
og KFUK við Holtaveg kl. 20. Að-
gangseyrir er 1.000 kr. og fást mið-
ar á skrifstofu félaganna við Holta-
veg. KFUM var stofnað 2. janúar
1899 af æskulýðsleiðtoganum sr.
Friðriki Friðrikssyni.
Hátíðarguðsþjónusta
Sunnudaginn 3. janúar kl. 11 efna
félögin til hátíðarguðsþjónustu í
Dómkirkjunni vegna 100 ára af-
mælisins. Hátíðarræðu flytur sr.
Sigurður Pálsson sóknarprestur í
Hallgrímskirkju og fyrrum formað-
ur KFUM í Reykjavík. Leikmenn
og börn úr æskulýðsstarfi félag-
anna munu koma fram í guðsþjón-
ustunni sem verður útvarpað í rík-
isútvarpinu.
Æskulýðsstarfíð
Afmælið mun ekki fara framhjá
börnum og unglingum sem taka
þátt í æskulýðsstarfí KFUM og
KFUK. I deildunum eru þrír fundir
í vetur sem taka sérstaklega mið af
tímamótunum.
Þau börn sem sækja munu sum-
arbúðir félaganna nk. sumar munu
einnig fá sinn skerf af fagnaðar- og
þakkargjörðarhátíðinni í tengslum
við afmælið.
Afmælishátið í Perlunni
Afmælishátíð verður í Perlunni í
Öskjuhlíð helgina 13.-14. mars. Af-
mælishátíðin í Perlunni og undir-
búningur hennar mun einnig setja
mark sitt á æskulýðsstarfið.
Á laugardeginum 13. mars verð-
ur fjölbreytt dagskrá í anda æsku-
lýðsstarfs félaganna. Börn og ung-
lingar munu leggja sitt af mörkum
bæði í dagskrá og skreytingum.
Lagt verður upp úr því að skreyta
húsið, með listaverkum frá börnun-
um og með ljósmyndum úr nútíð og
fortíð.
Sunnudaginn 14. mars verður
2. janúar 1999 verða
100 ár frá stofnun
KFUK og KFUM. Sig-
urbjörn Þorkelsson
rekur hvernig haldið
verður upp á þetta
merka afmæli.
fjölskylduguðsþjónusta og tónleik-
ar. Á hátíðinni verða hinar fjöl-
breyttu starfsgreinar KFUM og
KFUK kynntar í máli og myndum
frá ýmiss konar spennandi sjónar-
hornum.
Það er von stjórna og fram-
kvæmdastjóra KFUM og KFUK í
Reykjavík og þeirra annarra sem
að undirbúningi hátíðarinnar koma
að fá að sjá sem flest börn sem taka
þátt í starfí félaganna með einum
eða öðrum hætti og foreldra þeirra,
systkini, afa, ömmur og aðra gesti
og velunnara. Þá vonumst við til að
fá að sjá allar þær þúsundir sem
komið hafa nálægt starfí KFUM og
KFUK á einhvern hátt á liðnum
100 árum, vini þeirra og ættingja
sem og alla velunnara KFUM og
KFUK og kristilegs æskulýðsstarfs
á Islandi.
Gestgjafar Perluhátíðarinnar
Gestgjafar Perluhátíðarinnar
verða fígúrurnar Snjall og Snjöll
sem þátttakendur í barnastarfi
KFUM og KFUK kannast við.
Munu þær taka á móti gestum í
fullri stærð.
Afmælishátíðin í Perlunni er sá
dagskrárliður afmælisársins sem
snýr hvað mest að börnum, fjöl-
skyldum þeirra og öllum almenn-
ingi. Kynning hátíðarinnar mun
taka mið af því.
Eflum
Reykjalund
Þann fyrsta janúar
næstkomandi hefst
nýtt happdrættisár
hjá Vöruhappdrætti
SÍBS. Sem fyrr renn-
ur allur ágóði happ-
drættisins til Reykja-
lundar. Við erum að-
ildarfélagar að SÍBS
og njótum endurhæf-
ingar hjá frábæru
starfsfólki Reykja-
lundar.
Fyrirhugaðar eru
miklar framkvæmdir á
Reykjalundi, þar sem
byggja á nýtt íþrótta-
hús með fullkominni
æfíngaaðstöðu auk
sundlaugar. Á þessu er mikil þörf
þar sem eldri aðstaða svarar ekki
kröfum tímans. En þetta krefst
mikilla fjármuna. Segja má að
landssöfnunin fyj'ir Reykjalund í
haust hafi gengið vel, en meira
þarf ef duga skal.
Þar getum við landsmenn allir
látið gott af okkur leiða með því að
Stöndum sam-
an um Reykja-
lund, segir
Gísli J. Eyland,
og gerum veg
hans sem
mestan á nýju
happdrættisári
SÍBS.
kaupa happdrættis-
miða í SÍBS því eng-
inn veit hver þarf
næst á aðstoð að halda. Styðjum
Vöruhappdrætti SÍBS sjálfum
okkur og öðrum til góðs.
Stöndum saman, eflum Reykja-
lund.
Með hjartans kveðju.
Höfundur er formaður Landssam-
bands lijarUisjúklinga.
Gísli J.
Eyland
Hátíðarsamkoma
Afmælisdagur
KFUK er 29. apríl.
Þann dag, sem er
fimmtudagur, efna fé-
lögin til hátíðarsam-
komu í aðalstöðvum fé-
laganna við Holtaveg
kl. 20.30. Um opna
samkomu verður að
ræða og eru því allir
velkomnir.
Utgáfa á sögu
KFUM og KFUK
Þórarinn Björnsson
guðfræðingur hefur
um nokkurt skeið unn-
ið að skrásetningu 100
ára sögu KFUM og KFUK á ís-
landi. Áætlað er að sagan verði gef-
in út í veglegu bókarformi þegar
líður á haustið. Um mjög viðamikla
vinnu er að ræða og verður sérstak-
lega vandað til útgáfunnar.
Fólk getur gerst áskrifendur að
bókinni fyrirfram og fengið nafn
sitt skráð á heillaóskaskrá bókar-
innar. Nánari upplýsingar fást á
skrifstofu KFUM ög KFUK við
Holtaveg.
Sæludagar í Vatnaskógi
Hinn 30. júlí til 2. ágúst verða
Sæludagar í Vatnaskógi. í Vatna-
skógi hafa drengir komið til sumar-
dvalar í 75 ár. Um
verslunarmannahelg-
ina munu Skógarmenn
KFUM standa fyrir
Sæludögum í Vatna-
skógi eins og undan-
farin ár. Dagskráin að
þessu sinni verður til-
einkuð 100 ára afmæli
KFUM og KFUK. AIl-
ir eru velkomnir á
Sæludaga.
Nú er verið að leggja
síðustu hönd á nýjan
svefnskála í Vatnaskógi
sem tekinn verður í
notkun með viðhöfn áf
afmælisárinu.
Fleiri þættir eru í
undirbúningi. Non-ænt
unglingamót verður t.d. haldið í
Vatnaskógi 24.-30. júlí. Mótið er ætl-
að unglingum 11-16 ára. Einnig er í
undirbúningi ráðstefna um framtíð
æskulýðsstarfs sem KFUM og
KFUK munu efna til og eiga frum-
kvæði að í tilefni 100 ára afmælisins.
Þess má að lokum geta að opin-
ber styrktaraðili KFUM og KFUK
á afmælisárinu er Landsbanki Is-
lands hf. Eru skilningsríkum og
framsýnum forráðamönnum Lands-
banka Islands hf. færðar einlæg-
ustu þakkir fyrir mikilvægt framlag
til eflingar þroskavænlegs æsku-
lýðsstarfs KFUM og KFUK. Opin-
berum styrktaraðilum mun vonandi
fjölga þegar í upphafí afmælisárs-
ins.
Guði séu þakkir
Okkur sem stöndum að starfí
KFUM og KFUK í dag, 100 árum
eftir stofnun félaganna er fyrst og
fremst þakklæti til Guðs í huga.
Þakklæti fyrir að hafa fengið að
kynnast frelsaranum Jesú vegna
starfa félaganna og þakklæti fyrir
að hafa fengið að verða að liði í
ómetanlegri mótun og uppeldi þús-
unda ungmenna, sem styrkir þau
og þau munu búa að allt lífið og
jafnvel inn í eilífðina með Jesú sem
þau lærðu að þekkja í KFUM og
KFUK.
„Því svo elskaði Guð heiminn, að
hann gaf son sinn eingetinn, til þess
að hver sem á hann trúir glatist
ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Jóh.
3:16.
F.h. KFUM og KFUK í Reykja-
vík þakka ég samborgurum okkar
og landsmönnum öllum fyrir góðar
viðtökur og farsæls samlífs og sam-
starf í 100 ár. Góður Guð blessi
áframhaldandi þjóð okkar og gefí
okkur náð til að hlúa að framtíðinni,
börnunum okkar.
„Guði séu þakkir sem gefur oss
sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú
Krist?
Höfundur er framkvæmdastjóri
KFVM og KFUK í Reykjavík.
Sigurbjörn
Þorkelsson
ISLENSKT MAL
HARALDUR Guðnason í
Vestmannaeyjum heldur enn
tryggð sinni við þáttinn, og sé
honum æra og þökk. Nú skal
gefa honum orðið um sinn:
„Sæll og blessaður Gísli Jóns-
son...
Nú eru menn farnir að leiða
framboðin. Þetta er svolítð
leiðigjarnt. Kannski ekki önnur
leið - stutt og laggott?
I morgunfrétt Ríkisútvarps-
ins: „Flokkinum vantaði at-
kvæði.“ Bágt er að heyra.
I sunnlensku dagblaði spurt:
„Verslaðirðu raftæki um helg-
ina?“
Á útvarpsstöð einni: „Þá er
komið að veður.“
í samtali við Hafró: „Þorskur
borðar smæiTÍ fisk.“ Mér finnst
líka smæn-i fískur bragðast bet-
ur en stór.“
Haraldur hefur áhyggjur af
stofnanaíslensku sem honum
finnst vera að festa rætur. Hon-
um er, eins og umsjónarmanni, í
nöp við „(ó)ásættanlegur“. Við-
unandi, þolanlegur væri betra.
Frétt í fjölmiðli: „Einnig
þurfa aðilar að gera sér grein
fyrir að þeir aðilar þurfa að
vera samtaka." Hvað hefði Vil-
mundur nefnt þetta orðafar?
[Stagl].
Bréfritari var að velta fyrir
sér eð í orðasambandinu þar eð.
Þetta eð er ævagamalt tilvísun-
arfornafn, og samtenging, kem-
ur t.d. fyrir í gömlum Maríuvís-
um og Lilju Eysteins.
Nú lifir eð líklega bestu lífí í
orðasambandinu hvort eð er.
Haraldur telur að „takk“ verði
varla rýmt í burtu, en leiðist að
sjá það á skjá Ríkissjónvarps-
ins. Út yfir tekur þó, þegar svo-
kallaðir stjórnendur þátta í
RÚV segja „bæbæ“ og „ókey“.
Umsjónarmaður vill gjarna
hnykkja þarna á nokkrum atrið-
um.
1) Um hruma framboðslista
hef ég áður talað.
2) „Flokkinum“ er rétt eins
verið sé að lesa Sturlungu, og
þess vegna verður þágufallsvill-
an enn ámátlegri.
3) Fiskar og dýr borða ekki.
Þær verur éta (eta). Frægt var
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
986. þáttur
að í grein í íslensku tímariti fyr-
ir nokkrum árum stóð: „Bavían-
ar borða kaffi." Um smærri og
stærri fiska væri ómaksins vert
að lesa erfidrápu Bjarna
Thorarensens um Sæmund
Hólm, þótt ekki sé notuð þar
sögnin að éta og því síður
borða, um fiskana:
Sé eg sfltorfu,
sé eg þorska
taka síl úr torfu.
Ásækja síli
aðrir stærri
fiskar og fylgja torfu.
Allt fer sömu leið,
og ásækja smærri
fiska stærri fiskar,
sílum samferða
að sama náttstað
náhvals í gapanda gini.
4) Um ókey þyrfti ég að
skrifa heilan pistil. Það er eitt-
hvert ömurlegasta óyrði sem
við höfum þegið og lýsir ótrú-
legri hugsunarfátækt, því að
þetta orðkvikindi hefur margs
konar merkingu. Kannski gæt-
um við haft eina sögn í máli
okkar, t.d. „strumpa", og borið
hana fram á mismunandi vegu
til þess að fá merkingarbreyt-
ingu.
★
Hlymrekur handan kvað:
Mig langar svo mikið í Lúlú Matt,
að ég legði í aö klifra upp súlubratt,
glerungshált svell,
og ef ég hrasa og fell,
ekki klæðist ég neitt nema í kúluhatt.
★
I íslenzkri málfræði eftir
Halldór Halldórsson prófessor,
„Halldóru", eru greindar 16
gerðir af samlögun (tillíkingu,
lat. assimilatio). Samlögun er
fólgin í því, að tvö samhljóð
verða tvöfalt samhljóð, það er,
verða eins. Dæmi *ein-
kja>ekkja; góðt>gott;
friðla>frilla.
Ákaflega sjaldgæf mun sú
samlögun, þegar gð>gg.
Gísli Konráðsson á Akureyri
er maður mjög málglöggur.
Hann benti mér á dæmi um
þessa sjaldgæfu breytingu, og
er hreint ekki ánægður með
hana. Þetta er þegar sögnin að
bragðast>braggast = ná sér,
taka framförum. Víst er það
skrýtið hversu margir nota nú
orðið síðar nefndu gerðina, en
óvíst hvort unnt er að snúa
þessu til baka.
★
Enn hefur verið unnið þrek-
virki á sviði fræðanna. Komið er
út fjórða bindið af nafnalyklum
að manntalinu 1910. Dugnaður
og vandvirkni þeirra Hólmfríð-
ar Gísladóttur og Eggerts Th.
Kjartanssonar er hvort tveggja
stórlega lofsvert.
Þau hafa að vísu ekki verið
ein að verki, enda væru þá af-
köstin ekki mannleg, heldur
hefur fólk úr Ættfræðifélaginu
lagt þeim mikið lið með sjálf-
boðavinnu.
Þessi bók er ekki aðeins mik-
ill fengur ættfræðingum, heldur
og nafnagi’úskurum, eins og
umsjónarmaður telur sig vera.
Manntöl eru merkileg og góð,
en þá fyrst, þegar nafnalyklarn-
ir hafa verið smíðaðir, eru þau
gersemar.
Þeir, sem ofurlítið þekkja til
ættfræði og nafnfræði, vita best
hvaða afrek fyrrnefnt fólk hefur
unnið. Til þess þurfa menn að
hafa hugsjón og stefnu og vera
hviklausir og starfhæfir í besta
lagi.
★
Vilfríður vestan kvað:
Fyrir Lars voru lífssporin þung,
þótt hann liti ögn í Karl Marx og Jung,
og er hann hafði sig laugað,
dró hann annaðhvort augað
alla leið niður í pung.
Enn er að þakka Stöð tvö fyr-
ir „þriggja stjarna hótel“, Rík-
isútvarpinu fyrir „klukkuna
vantar fjórðung í sjö“ (svo tal-
aði amma mín, f. 1869) og
Kvótaþingi fyrir afgreiðslutími,
ekki „opnunartími". Ennfremur
fá stig Haraldur Ólafsson fyrir
meginland Evrópu og Þór
Jónsson fyi’ir „bíllinn stansaði",
hvorki „stoppaði" né því síður
„stöðvaði".
Gleðilegt nýár. Þökk fyrir
gamla árið.