Morgunblaðið - 30.12.1998, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Sjóræningjar í
máli og myndum
BÆKIIR
Karnabók
SJÓRÆNINGJAR
Eftir Philip Steele. Haraldur Dean
Nelson þýddi. Mál og menning.
Reykjavík, 1998.
SJÓRÆNINGJAR er aðgengileg
fræðibók um sjóræningja á ýmsum
tímum ætluð ungum lesendum. Mál
og menning gefur bókina út í stóru
broti með mörgum fallegum mynd-
um og fjöldi fólks kemur að henni á
ýmsan hátt, sem ráðgjafí, ritstjóri,
hönnuður, kápuhönnuður, með
myndefnisumsjón og við aðstoð á
myndavali.
I fyrstu virðist bókin nokkuð
tyrfín yfirlestrar en það er ein-
göngu ef maður gerir þau mistök að
ætla sér að lesa hana í einum rykk.
Miklu skemmtilegra er að opna
hana hér og hvar og lesa stutta
fróðleiksmola og skoða nákvæmlega
útfærðar myndir af skipum og fólki.
Júlíus Sesar var til dæmis tekinn
höndum af sjóræningjum árið 78
fyrir Krist. Sjóræningjarnir María
og Anna börðust af grimmd með
Nýjar bækur
• ÞJÓÐLÍF og þjóðtrú er afmælis-
rit helgað Jóni Hnefli Aðalsteins-
syni, prófessor í þjóðfræði við
félagsvísindadeild
Háskóla íslands.
I afmælisritinu
eru tuttugu og sjö
greinar eftir vini
Jóns Hnefils, sam-
starfsmenn og út-
skrifaða nemendur
hans úr Háskóla
Islands og einnig
eru nokkrar grein-
ar eftir starfsfélaga
hans í nágrannalöndunum.
I kynningu segir m.a. um efnið að
fjallað sé um vítt svið þjóðfræða.
Meðal annars eru greinar um huldu-
fólkstrú á okkar dögum, sagnamenn,
flökkusagnir í samtímanum, sögum-
ar af Sæmundi fróða, stjórnmál á
öðrum áratug aldarinnar, hestafórn-
ir í heiðnum sið, lífshætti og afdrif
höggsverðum, öxum og skamm-
byssum og það eina sem kom í veg
fyrir að þær yrðu hengdar eftir
handtöku var að þær vom barnshaf-
andi báðar tvær.
Margvíslegum skipum sjóræn-
ingja á ýmsum tímum em gerð góð
skil og myndir af þeim prýða bókina.
Par á meðal er grísk galeiða frá því
árið 500 fyrir Krist, víkingaskipið er
á sínum stað, korsari úr Barbaríinu
og kínversk djúnka. Sýnishorn era
einnig af sjóræningjafánum með til-
heyrandi hauskúpum, leggjum og
sverðum og jafnvel púkum og
blóðugum hjörtum.
í bókinni er stiklað á löngu tíma-
bili, eða frá því fyrir um 2500 áram
og fram á okkar tíð. Bókin höfðar
líklega heldur meira til stráka á
sjóræningja-aldri en stelpna á sama
reki, en á baksíðu hennar segir að
hún sé draumabók allra ævin-
týraþyrstra krakka. Ekki veit ég um
það, en hitt er víst að nákvæmlega
útfærðar myndirnar og fróð-
leiksmolarnir í textanum gera hana
að skemmtilegum og aðgengilegum
upplýsingabrunni um fræga eða öllu
heldur alræmda sjóræningja.
María Hrönn Gunnarsdóttir
geirfuglsins og áfram mætti lengi
telja áhugaverð efni.
Jón Hnefill Aðalsteinsson hefur
m.a. gegnt embætti prests á
Eskifirði og Reyðarfirði, verið
blaðamaður á Morgunblaðinu og var
um árabil kennari við Menntaskól-
ans í Hamrahlíð. Jón Hnefill hóf
kennslu við Háskóla íslands 1967 og
hefur einhendis byggt upp
þjóðfræðinám við skólann og alið
upp nýja kynslóð íslenskra
þjóðfræðinga. Hann hefur sent frá
sér fjölda bóka og greina, en í af-
mælisritinu birtist ritskrá hans.
Á dögunum þegar stofnað var
Félag þjóðfræðinga á íslandi var
Jón Hnefill kjörinn heiðursfélagi
þess á stofnfundinum ásamt
þjóðfræðingnum og íslandsvininum
Bo Almquist. Sá síðarnefndi á
einmitt grein í aímælisritinu um írsk
áhrif í íslenskum fomsögum.
Bókin er á fimmta hundrað síður
í stóru broti. Útgefandi er Þjóðsaga
ehf. Bókin fæst hjá útgefanda og í
bókaverslunum.
ERLENDAR
BÆKUR
Spennusaga
„THE AX“
eftir Donald E. Westlake.
Warncr Books 1998. 339 síður.
BANDARÍSKI spennusagna-
höfundurinn Donald E. Westlake
er mörgum að góðu kunnur. Hann
hefur lengi stundað spennusagna-
skrif og sent frá sér aragrúa bóka,
eitthvað um fimmtíu í allt, og af öll-
um stærðum og gerðum, skáldsög-
ur, glæpasögur, unglingabók, gam-
ansögur, smásögur, vestra og jafn-
vel fréttatengdar frásagnir. Hann
er fæddur í Brooklyn árið 1933 og
var í bandaríska flughemum en
árið 1960 kom út hans fyrsta saga,
„The Mercenaries“. Síðan þá hefur
hann verið óstöðvandi og skrifað
einnig bækur undir fjölda dulnefna
eins og Richard Stark, Samuel
Holt og Timothy J. Culer svo
nokkur séu nefnd.
Atvinnuleysingi gerist
fjöldamorðingi
Nýjasta saga Westlakes heitir
Öxin eða „The Ax“ og vísar heitið
til þess þegar mönnum er sagt upp
vegna þess að skorið er niður í
mannafla stórfyrirtækja. Sagan
fjallar um mann sem þannig missir
vinnuna og gerist fjöldamorðingi í
kjölfarið. Hér er á ferðinni beitt
háðsádeila sem hlotið hefur mjög
góða dóma vestra en gagnrýnend-
ur hafa líkt sögunni við verk bæði
Dostojevskís og Hitchcocks og er
nú ekki leiðum að líkjast.
Sagan gerist öll í hugarheimi
manns að nafni Burke Devore, sem
grípur til óyndisúrræða til þess að
koma sér aftur inn á vinnu-
markaðinn. Hann upplifir þessa
martröð kominn á miðjan aldur
búinn að starfa hjá sama fyrirtæk-
inu frá ómunatíð, að honum er sagt
upp. Hann var í mjög góðu starfí
sem framleiðslustjóri hjá pappírs-
framleiðslufyrirtæki og taldi sig
hólpinn fyrir lífstíð. Honum er í
mun að vera fyrirvinna heimilisins
og geta útvegað bömum sínum
tveimur og elskulegri eiginkonu
það sem þau þarfnast og búa í rúm-
góðu húsi í útverfi og eiga allt það
sem millistéttin getur með góðu
móti eignast og leggja afganginn
fyrir til efri áranna. En enginn er
Tilgang-
urinn
helgar
meðalið
hólpinn, sérstaklega ekki þegar
stjórnendur fyrirtækjanna hugsa
eingöngu um að gleðja hluthafa en
minna um þá sem verða fyrir
barðinu á aðgerðum sem draga úr
kostnaði, auka sjálfvirkni, standa í
vegi fyrir samruna, hamla því að
fáist hámarksgróði úr fyrirtækinu.
Burke Devore er fullkomlega
venjulegur maður sem klikkast eft-
ir tveggja ára atvinnuleysi og ger-
ist fjöldamorðingi í mjög ákveðn-
um tilgangi.
Svartur húmor
I atvinnulausum heimi Devores
komast aðeins þeir hæfustu af svo
hann ákveður að koma þeim fyrir
kattamef sem hugsanlega era
hæfari en hann sjálfur. Hann
kemst að því hverjir í nágranna-
héruðum við hann eru líklegir til
TONLIST
Seltjarnarneskirkja
TRÍÓ SUNNU
GUNNLAUGSDÓTTUR
Sunna Gunnlaugsdóttir pianó, Gunn-
laugur Guðmundsson bassa og Scott
McLemore trommur. Verk og útsetn-
ingar eftir Sunnu Gunnlaugsdóttur.
Seltjarnarneskirkja sunnudaginn
27. 12. 1998.
UM JÓLIN flykkjast íslending-
ar heim, námsmenn jafnt sem aðr-
ir, og jafnan eru góðir djassistar í
þeim hópi. Tvo þeirra mátti heyra í
Seltjarnarneskirkju sl. sunnudag,
Sunnu Gunnlaugsdóttur píanista
sem starfar í New York með tríói
sínu, Sunna trio, og Gunnlaug
Guðmundsson bassaleikara sem
brátt mun ljúka námi frá Konung-
lega tónlistarskólanum í Haag og
hefur leikið og hljóðritað með ýms-
þess að sækja um sama starfið,
laust framleiðslustjórastarf hjá
pappírsfyrirtæki, og sér til þess að
þeir týni tölunni einn af öðrum.
Starfið er ekki laust þegar hann
byrjar morðin en hann hyggst
bæta úr því þegar hann hefur rutt
samkeppninni úr vegi. Hann gerir
það alls ekki sem geðsjúkur
morðingi sem nýtur þess að myrða
fólk heldur sem áhyggjufullur fjöl-
skyldufaðir sem sér enga aðra leið
út úr ógöngunum og finnur að at-
vinnuleysið er að leggja líf hans og
fjölskyldu hans í rúst; börnin eru
komin út í smáglæpi og eiginkonan
jafnvel komin með viðhald.
Sagan um þessa hræðilegu
sjálfsbjargarviðleitni er í senn
skopleg með sínum svarta húmor
sem hvarvetna skín í gegnum hug-
leiðingar mannsins og hrollvekj-
andi því auðvitað er verknaður
hans skelfilegur og gengur ekki
alltaf eins vel og hann hefði óskað
sér. Eigendur og forstjórar stór-
fyrirtækjanna, sem segja upp
hundruðum og þúsundum manna í
von um meiri hagnað, fá sérstak-
lega á baukinn í háðsádeilu West-
lakes sem sér til þess að lesandinn
telur sig verða að vita hvemig fer
fyrir Devore og ráðabruggi hans.
Endirinn er raunar mjög óvæntur.
Arnaldur Indriðason
um hollenskum djasssveitum s.s.
tríói Wolfert Brederode og Zen-
ker-Kappe kvartettinum. Þriðji
hljóðfæraleikarinn í Seltjarnanes-
kirkju var bandaríski trommarinn
Scott McLemore, lífsförunautur
Sunnu, sem hefur leikið í tríói
hennar undanfarin fjögur ár.
Sunnan hefur jafnan heimsótt
Island og haldið tónleika m.a. á
djasshátíðinni á Egilssstöðum í
fyrra, þar að auki hefur hún gefið
út geisladisk; Far Far Away, sem
fá má í betri hljómplötuverslunum.
Fyrsta lagið sem tríóið lék sl.
sunnudag var eftir Sunnu af fyrr-
nefndum diski, Hard To Say og
annað lag af diskinum var á efnis-
skránni, titillagið undurfagra.
Gulli Guðmunds var ekki í vand-
ræðum í sóló sínum þar frekar en
jafnan þegar fegurðin þarf að ríkja
öðru ofar.
Píanóstíll Sunnu er innhverfur
og fínlegur; jafnvel kvenlegur.
Hún byggir á skóla Bill Evans eins
og helftin af djasspíanóleikurum
nútímans. Bill gjörbylti djas-
spíanóleik samtímans. Impressjón-
isminn hafði að vísu þekktst í
djassi löngu áður, ekki síst í verk-
um Billy Strayhoms; en sá túlkun-
armáti var inngróinn í karakter
Bill Evans. Hann var einstakur
túlkandi ameríska söngdansins og
endurhljómsetti þá jafnan á eftir-
tektaverðan hátt.
Sunna var með tvo söngdansa
ameríska á efnisskránni: Just in
Time og I hear a Raphsody. Sveifl-
an í Just in Time var létt og átaka-
laus, rann áfram einsog lækur sem
hvergi steytir á steini og kannski
eru það átökin sem helst skortir í
leik Sunnu. Hún er lýrísk og tækn-
in ágæt, sveiflan létt en leikur
hennar of sléttur og felldur - það
kom ansi mikið að sök í lögum sem
lítið erindi eiga í djassmúsík
einsog Jólasveinninn kemur.
Heims um ból og Komdu inní kof-
ann minn voru heldur utangátta í
túlkun tríósins, en Höllukvæði
(Sofðu unga ástin mín) bætti það
upp.
Tríóið lék þrjú ný verk eftir
Sunnu og var það síðasta þeirra,
nafnlaust, sér 1 lagi áheyiilegt og
vel leikið af tríóinu. McLemore er
fínn trommari og náðu þeir Gulli
vel saman í rýþmanum. Það er
alltaf þokki yfir leik Sunnu og þótt
tónleikarnir væru hinir skemmti-
legustu voru þeir helst til Ijúfir.
Það vantaði samspil andstæðanna
er hið blíða blandast því stríða.
Vernharður Linnet
raií rtGRnesscn ,
Allt ab
30%
ódýrari
\ a n d *
1 1 OO Nýtt númer
tii útlanda.
Áskriftorsíml
NETSímons er
S75 1 100
www.netsiini.ls
Krisíín lónsdáítjr
igur v'ó starf' Síbedu.
i\\S
-& jF.
%. /
N£7S wnko/í n* c rekms.rkciri g n fasr - . = . S< is? s Hótækn ístel, Heimiiistækjuni og Simvirk janum
Jón Hnefill
Aðalsteinsson
SUNNUDJASS