Morgunblaðið - 30.12.1998, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
LÍKKISTA eins gíslanna, sem voru myrtir í Tsjetsjníu, sett í þotu Brit-
ish Airways í Baku, höfuðborg Aserbaídsjans.
Gíslamálið í Tsjetsjníu
Lík gíslanna afhent
breskum yfirvöldum
Baku, London. Reuters.
LIK fjögurra manna, sem upp-
reisnarmenn í Tsjetsjníu myrtu á
hrottafenginn hátt, fundust á jóla-
lækninn kvaðst hann ekki geta
útilokað samræði sem kynni að
hafa átt sér stað fyrir fímm til tíu
árum.
„Ég tel þetta frábæran vitnis-
burð,“ sagði einn af níu lögmönn-
um Anwars. „Saksóknarinn innti
lækninn eftir merkjum um atvik
sem kynnu að hafa átt sér stað fyr-
ir fimm til tíu árum en Anwar var
aðeins ákærður fyrir meint sam-
ræði í apríl á þessu ári.“
Niðurstaða rannsóknar-
innar verði birt
Leiðtogi eins af stjórnarand-
stöðuflokkunum í Malasíu krafðist
þess í gær að Mahathir forsætis-
ráðherra birti strax niðurstöðu
rannsóknar á því hvers vegna
Anwar fékk glóðarauga og mar-
bletti þegar hann var í haldi lög-
reglunnar áður en hann kom fyrst
fyrir rétt í október. Mahathir ýjaði
að því að Anwar hefði sjálfur valdið
meiðslunum en fyrirskipaði
rannsókn á málinu. Æðsti lög-
fræðilegi embættismaður landsins
hefur þegar fengið skýrslu um
rannsóknina en sagði í nóvember
að hann þyrfti að rannsaka málið
frekar með hjálp réttarlækna.
dag eftir mikla leit og voru þau
flutt til Bretlands með flugi í gær.
Mennirnir, þrír Bretar og einn Ný-
sjálendingur, voru teknir í gíslingu
mannræningja í október síðastliðn-
um. Höfuð fjórmenninganna fund-
ust hinn áttunda desember en síð-
an þá hafði verið leitað að h'kunum.
Mennirnir voru starfsmenn
bresks fyrirtækis og unnu að lagn-
ingu símakerfís í stríðshjáðri
höfuðborg Tsjetsjníu þegar upp-
reisnarmenn tóku þá í gíslingu í
október.
Líkin flutt frá
Baku til London
Líkin voru flutt til Baku, höfuð-
borgar Aserbaídsjans, og komið
fyrir um borð í þotu British Airwa-
ys sem flutti þau til London.
Stjórnvöld í Aserbaídsjan
samþykktu að hafa milhgöngu um
flutning líkanna af mannúð-
arástæðum.
Rússnesk stjórnvöld og breska
sendiráðið í Moskvu vildu upphaf-
lega að líkin yrðu flutt frá höfuð-
borg Rússlands. En horfið var frá
þeirri ákvörðun vegna aukinnar
spennu í samskiptum Rússlands og
Tsjetsjníu.
Síðan stríðinu á milli Rússlands
og Tsjetsjníu lauk árið 1996 hefur
landið verið þjakað af mannránum
sem og deilum milli ólíkra hópa
uppreisnarmanna. Eins ríkir mikið
óvissuástand í stjórnmálum lands-
ins vegna stöðugs valdatafls
fremstu manna.
Irakar segjast fljúga á flugbannsvæðunum
Itreka að bandarískri
vél hafi verið grandað
Bagdad, París. Reuters.
TAHA Yassin Ramadan, varafor-
seti íraks, sagði í gær að íraski her-
inn hefði staðfest að vestræn flugvél
hefði verið skotin niður er Band-
aríkjamenn hafí gert árás á loft-
varnastöð í norðurhluta landsins á
mánudag.
Bandarískir embættismenn í
Washington og í bækistöð vélanna í
Tyrklandi hafa hins vegar sagt að
allar flugvélarnar hafí snúið til
bækistöðvarinnar heilu og höldnu.
„Pað hafa engar vestrænar flugvél-
ar verið skotnar niður í írak,“ sagði
fulltrúi varnannálaráðuneytisms í
gær. Bandaríkjamenn segja Iraka
hafa átt frumkvæðið að átökunum á
mánudag.
Ramadan sagði við fréttamenn að
Hóta að skjóta
á vestrænar
flugvélar
fulltrúi íraska hersins hefði sagt að
flugvélin hefði „að öllum líkindum“
verið skotin niður, en bætti við að
flak hennar hefði ekki fundist á því
svæði sem leitað hafi vérið á.
Ramadan ítrekaði að Irakar
myndu halda áfram að skjóta á
vestrænar flugvélar sem notaðar
eru til eftirlits á flugbannsvæðunum
yfir norður- og suðurhluta landsins.
Þessar flugvélar ryfu lofthelgi
Iraks.
í viðtali við bandarísku fréttastof-
una AP í gær var Ramadan spurður
hvort írakar flygju flugvélum sín-
um á flugbannsvæðunum og svaraði
hann: „Við erum að því einmitt
núna.“ Hann sagði að íraskar flug-
vélar flygju óhindrað í íraskri loft-
helgi.
AP hafði eftir talsmanni band-
aríska varnarmálaráðuneytisins að
Bandaríkjamenn myndu halda
áfram að gæta flugbannsvæðanna
eins og ekkert hafí í skorist. Tals-
maður franska utanríkisráðuneyts-
ins sagði hins vegar í gær að Frakk-
ar hefðu ekki tekið ákvörun um það
enn hvort þeir myndu byrja aftur að
sinna eftirlitsflugi á svæðunum, en
því var hætt fyrr í mánuðinum er
Bandaríkjamenn og Bretar gerðu
loftárásir á Bagdad.
Til innflytjenda á sjávarafurðum
Fiskistofa vill vekja athygli innflytjenda á sjávarafurðum á því, að um n.k. áramót
taka gildi reglur um innflutning sjávarafurða, annars vegar frá ríkjum innan Evrópska
efnahagssvæðisins ( EES ) og hinsvegar frá ríkjum utan þess, sbr. lög 55/1998.
Samkvæmt þessum nýju reglum verða innflytjendur sjávarafurða að tilkynna Fiskistofu
um komu sendinga, stórra og smárra, með minnst 24 klst. fyrirvara.
Sérstök athygli skal vakin á því hvað varðar innflutning frá ríkjum utan EES, að frá
n.k. áramótum má ekki flytja inn sjávarafurðir nema frá löndum, framleiðendum og
vinnslustöðvum/skipum sem Evrópusambandið (ESB) hefur samþykkt.
Innfíutningur frá ríkjum utan EES verður einungis heimill þar sem Fiskistofa starfrækir
sérstakar landamæraeftirlitsstöðvar og heilbrigðisvottorð frá yfirvöldum viðkomandi
framleiðslulands verður að fylgja vörunni.
Læknir ber vitni í máli Anwars
Fann engin merki
um meint samræði
Kuala Lumpur. Reuters.
LÆKNIR, sem starfar fyrir lög-
regluna í Malasíu, sagði fyrir rétti í
Kuala Lumpur í gær að ekki hefðu
fundist neinar læknisfræðilegar
vísbendingar um að Anwar Ibra-
him, fyrrverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra landsins, hefði haft sam-
ræði við ættleiddan bróður sinn,
Sukma Darmawan.
Sukma var dæmdur í hálfs árs
fangelsi í september eftir að hafa
játað að Anwar hefði haft kynmök
við hann í apríl. Einn af ræðuritur-
um Anwars, Munawar Anees, fékk
sama fangelsisdóm fyrir meint
kynmök við ráðherrann fyrrver-
andi í mars 1993. Þeir hafa báðir
áfrýjað málinu, dregið játningam-
ar til baka og sakað lögregluna um
að hafa knúið þær fram með pynt-
ingum.
Anwar var hnepptur í varðhald
daginn eftir að mennirnir tveir
voru handteknir og síðar ákærður
fyrír kynmök við karlmenn og
spillingu. Hann hefur neitað öllum
sakargiftunum og sakar vini Ma-
hathirs Mohamads forsætis-
ráðherra um að hafa spunnið þær
upp til að geta vikið sér úr stjórn-
inni.
Læknir lögi-eglunnar, Zahari
Noor, tuttugasta vitnið í réttar-
höldunum yfir Ariwar, kvaðst hafa
skoðað Sukma í bak og fyrir 9.
september þegar hann var í haldi
lögreglunnar.
Verjandi Anwars spurði lækn-
inn hvort hann hefði komist að
þeirri niðurstöðu að svo virtist
sem hinn ákærði hefði ekki haft
mök við Sukma. „Ég myndi orða
Reuters
SUKMA Darmawan, ættleiddur
bróðir Anwars Ibrahims, fyrr-
verandi aðstoðarforsætisráð-
herra Malasíu.
það svo að engin merki um slíkt
samræði hefðu fundist,“ svaraði
læknirinn.
Þegar saksóknarinn yfírheyi'ði
mbl.is
Heldur þú að 5
C-vítamm sé nóg ? ~
NATEN Í
_______- er nóg /_5