Morgunblaðið - 30.12.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998 15
VÖRUSKIPTI
VIÐ ÚTLÖND
Verðmæti innflutnings og útflutr
igs i
jan. - nóv. 1997 og 1998 (fob virði í milljónum króna) 1997 jan.- nóv. 1998 jan.- nóv. Breyting á föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 1 18.939,8 122.400,1 +5,0%
Sjávarafurðir 85.653,9 91.525,8 +9,0%
Landbúnaðarvörur 1.652,1 1.962,3 +21,2%
Iðnaðarvörur 26.079,8 27.207,2 +6,4%
Ál 13.725,2 16.228,3 +20,6%
Kísiljárn 3.407,7 2.899,1 -13,2%
Aðrar vörur 5.554,0 1.705,0 -68,7%
Skip og flugvélar 4,282,4 328,5 -
Innflutningur alls (fob) 1 18.941,2 149.572,8 +28,3%
Matvörur og drykkjarvörur 10.382,7 13.655,7 +34,2%
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 30.598,5 37.978,3 +26,6%
Óunnar 1.412,5 1.591,9 +15,0%
Unnar 29.186,0 36.386,4 +27,2%
Eldsneyti og smurolíur 9.562,0 7.740,2 -17,4%
Óunnið eldsneyti 279,2 319,5 +16,8%
Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 1.881,7 1.580,2 -14,3%
Annað unnið eldsn. og smurolíur 7.401,2 5.840,5 -19,5%
Fjárfestingarvörur 29.322,3 38.663,3 +34,5%
Flutningatæki 15.787,0 24.114,8 +55,8%
Fólksbílar 7.898,9 10.287,7 +32,9%
Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.) 2.219,8 2.838,7 +30,5%
Skip 1.857,4 3.824,7 -
Flugvélar 158,1 3.502,5 -
Neysluvörur ót.a. 23.095,9 27.152,7 +19,9%
Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 192,8 267,8 +41,7%
Vöruskiptajöfnuður -1,4 -27.172,7
* Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðah/erð erlends gjaldeyris
í janúar-nóvember 1998 2,0% lægra en árið áður. Heirríld: HAGSTOFA ÍSLANDS
Vöruskiptin við útlönd
fyrstu 11 mánuði ársins
Ohagstæð um
27,2 milljarða
HALLI var á vöruskiptum við
útlönd sem nemur 27,2 milljörðum
króna fyrstu ellefu mánuði þessa árs
og er það nokkur breyting miðað við
sama tímabili í fyrra en þá stóðu
vöruskiptin í járnum, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá Hag-
stofu Islands. Fluttar voru út vörur
fyrir 122,4 milljarða króna á tímabil-
inu frá janúar til nóvember 1998, en
inn fyrir 149,6 milljarða króna fob.
Verðmætaaukning
vegna álútflutnings
I nóvembermánuði voru fluttar út
vörur fyrir rúma 10,4 milljarða og
inn fyi’ir tæpa 14,4 milljarða króna
fob. Vöruskiptin í nóvember voru því
óhagstæð um 3,9 milljarða en í
nóvember 1997 voru þau hagstæð
um 0,4 milljarða á föstu gengi, sam-
kvæmt fréttatilkynningunni.
Heildarverðmæti vöruútflutnings
fyrstu ellefu mánuði þessa árs var
5% meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Aukninguna má
meðal annars rekja til álútflutnings
en á móti kemur að í fyrra var seld
úr landi flugvél en engin slík sala
hcfur átt sér stað á þessu ári.
Utfluttar sjávarafurðir voru 75%
alls útflutningsins og var verðmæti
þeirra 9% meira en á sama tíma árið
áður. Pessa aukningu má einkum
rekja til útflutnings á frystum flök-
um.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ingsins fyrstu ellefu mánuði þessa
árs var 28% meira á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Mestan þátt í
aukningunni á innflutningur á
hrávöru og rekstarvöru, fjárfesting-
arvöru og á flutningatækjum. Þessii-
liðir skýra 80% heildaraukningar
vöruinnflutningsins, samkvæmt til-
kynningu Hagstofunnar.
Aukin umsvif hjá flugfélaginu Luxair
Hefur áætlunarflug
til Islands í mars
FLUGFÉLAGID Luxair í Lúxem-
borg hefur ákveðið að taka upp
reglubundið áætlunai-flug á milli
Keflavíkur og Lúxemborgar. Flugið
hefst 28. mars á næsta ári og verður
flogið tvisvar í viku í sjö mánuði, eða
til 28. október. Félagið mun nota 121
sæta vél af gerðinni Boeing 737-500
í verkefnið og verður flogið á
fimmtudögum og sunnudögum. Gert
er ráð fyrir að á fimmtudögum fari
vélin frá Lúxemborg klukkan 14:35
að staðartíma og lendi í Kefiavík
klukkan hálf fimm. Henni er síðan
snúið aftur rúmum hálftíma síðar
eða klukkan 17:05. A sunnudögum
er gert ráð fyrir að lenda í Keflavík
skömmu fyrir miðnætti og áætluð
brottför er klukkan hálf eitt aðfar-
anótt mánudags.
Eins og komið hefui- fram hafa
Flugleiðir ákveðið að hætta flugi til
Lúxemborgar 9. janúar næstkom-
andi en félagið hefur haldið uppi
áætlunarflugi á milli Islands og
stórhertogadæmisins í 43 ár.
Rene Rausch, blaðafulltrúi Luxa-
ir, sagði á kynningarfundi í gær að
niðurstaða markaðsrannsókna
félagsins hefði sýnt fram á rekstrar-
grundvöll á flugleiðinni yfir
háannatíma ársins, sem ákveðið
hefur verið að mæta. Hann benti á
að ferðamannastraumur til íslands
og frá hafi farið vaxandi undanfarin
ár, auk þess sem fjölmargar ís-
lenskar fjölskyldur væru búsettir í
Lúxemborg og nágrenni. „Þetta
fólk á ættingja og vini á íslandi og
samgangur á milli landanna af þeim
sökum því talsverður."
Aðspurður um fargjöld, sagði
Rauseh of snemmt að segja nokkuð
til um þau með vissu að svo stöddu,
en fullyrti að þau yrðu ekki langt
frá verðskrá Flugleiða.
Rausch sagði félagið hafa verið að
auka umsvif sín á síðustu árum með
áherslu á Lúxemborg sem tengi-
flugvöll á milli áfangastaða innan
Evrópu. Félagið á nú sem stendur
fimm Boeing 737-500-vélar auk
fjögmTa Fokker 50-flugvéla. Þá
hefur Luxair fengið afhentar þrjár
af átta 50 sæta farþegaþotum af
gerðinni Brazilia EM-4, sem þykja
henta vel á styttri leiðum.
Ætti að skila
viðunandi nýtingu
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri stefnumótunar- og stjómun-
arsviðs Flugleiða, sagðist fagna
þessari ákvörðun forsvarsmanna
Luxair. Hann ítrekaði að ákvörðun
Flugleiða um að hætta áætlunar-
flugi til Lúxemborgar hafi fyrst og
fremst verið viðskiptaleg ákvörðun,
þar sem sýnt var að áfangastaður-
inn féll ekki að þeirri tíðni og
vélastærð sem félagið gerir að
HUGBUNAÐARFYRIRTÆKIÐ
Memphis hefur gert þriggja ára
samning við breska markaðs-
rannsóknarfyrirtækið MORI um
sölu á markaðshugbúnaðarforritinu
Survey Explorer. Þá hefur fyrir-
tækið gert þróunarsamning við
markaðsrannsóknarfyrirtækið
Ipsos um viðbætur á forritinu.
Unnur S. Eysteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Memphis, sagði í
samtali við Morgunblaðið að samn-
ingar hefðu verið undirritaðir
skömmu fyrir jól. Hún vildi ekki
ræða samningana en sagði þá nema
um 5 milljónum króna á ári. Að
sögn Unnar eru bæði MORI og
Ipsos meðal virtustu markaðs-
rannsóknarfyrirtækja á Bretlandi.
Er Mori áttunda stærsta fyrirtækið
á sviði markaðsrannsókna í Bret-
landi.
Survey Explorer er framleiddur í
samvinnu við Gallup á íslandi, sem
hefur einkaleyfi á hugbúnaðinum
hér á landi. I forritinu er hægt að
vinna með flókin markaðsgögn á
einfaldan hátt.
„f upphafi gerir MORI samning
við Memphis um notkun á forritinu
fyrir sína viðskiptavini í Bretlandi,
en MORI er með starfsemi í 13
löndum víðs vegar um heiminn. Þá
felur þróunarsamningurinn við
Ipsos í sér að gerðar verði viðbætur
á forritinu til þess að mæla áhorf á
þætti hjá sjónvarpsstöðvunum BBC
og ITV,“ segir Unnur.
„Samingamir við MORI og Ipsos
eru góð auglýsing fyrir Memphis og
við gerum okkur vonir um að fleiri
samningar við erlend stórfyrirtæki
fylgi í kjölfarið. Bandarískir fjár-
festar hafa sýnt fyrirtækinu áhuga
en við stefnum á að koma okkur á
framfæri vestra. Til að svo geti
orðið þarf að auka hlutafé Memphis
um 200 milljónir króna.“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FLUGFÉLAGIÐ Luxair hyggst taka upp reglubundið áætlunarflug á
milli Islands og Lúxemborgar frá og með mars næstkomandi. Á mynd-
inni sjást Einar Sigurðsson lijá Flugleiðum t.v. og Rene Rausch, blaða-
fulltrúi Luxair, kynna rekstrareinkenni á flugleiðinni á blaðamanna-
fundi í gær.
mestu út á yfir Atlantshafið. „Dag-
leg flugáætlun okkar til Lúxem-
borgar á Boeing 757 vélum félags-
ins, sem taka tæplega 200 farþega í
sæti, stóðst einfaldlega ekki tekju-
legan samanburð við aukna tíðni til
Parísar og Frankfurt. Luxair mun
bæði gera út minni flugvél en við,
auk þess að fækka ferðum umtals-
vert frá því sem nú er, sem ætti að
tryggja þeim viðunandi nýtingu á
leiðinni."
Að sögn Einars koma Flugleiðir
til með að taka þátt í markaðssetn-
ingu og sölu farmiða fyrir Luxair
hér á landi jafnframt því sem félag-
ið muni áfram hafa sjálfstætt starf-
andi sölumann í Lúxemborg á sín-
um vegum, eftir að skrifstofum
Flugleiða í Lúxemborg verður
lokað.
Ford segir
upp fólki
í Brasilíu
Detroit.
FORD bílafyrirtækið hefur
ákveðið að segja upp 2.800
verkamönnum í Brasilíu, eða
35% starfsliðsins, sem er
skipað 8.000 mönnum.
Astæða uppsagnanna eru
efnahagserfiðleikar Brasilíu.
Flestum verður sagt upp í Sao
Bemardo bílaverksmiðjunni í
nágrenni Sao Paulo.
Hugbúnaðarfyrirtækið Memphis
Samningar við tvö erlend
markaðsrannsóknarfyrirtæki
ZJ/n arcíansfeiÁur
2j oníaÁíuS6sins
Zontaklúbbur Selfoss heldur nýórsfagnað laugardaginn 2. janúar 1999 ú Hótel Örk.
Hótíðin hefst kl. 19:00 með fordrykk.
Glæsilegur kvöldverður
• Fordrykkur: Zontasæla
• Suðrænt solat m/rækjum, olívum og fetoosti
• Nautakjötsseyði m/grænmetisstrimlum og ostastöngum
• Grísasneið „Gordon Bleu" fyllt m/skinku og gráðosti með snöggsteiktu
grænmeti, ofnsteiklum kartöflum og rauðvínssósu
• Nougat ís mAaromellusósu
Dagskrá
• Einsöngur Signý Sæmundsdóttir
• Undirleikari Anna Guðný Guðmundsdóttir
• Danssýning frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru
• L'fandi Vínartónlist, Veislutríóið ásamt Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara
• Dansleikur, hljómsveit hússins
Miðapantanir á Hótel Örk i sima 483 4700
Happdrætti, Rosemarie 486 6055
spennandi vinningar Bryndís 482 1022 og 482 1624
Björg 482 4075
Toril 486 8819
Verð aðgöngumiða kr. 5.300
Með gistingu kr. 6.800
(Hótel Örk býður upp á sértilboð á gistingu í tengslum við dansleikinn)
Takið með ykkur gesti
Samkvæmisklæðnaður
Dönsum saman (Vínarvalsa) ú nýju óri
Með kveðju
Zontaklúbbur Selfoss