Morgunblaðið - 30.12.1998, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landssíminn skoðar flutning á höfuðstöðvum frá Austurvelli
Viðræður við
Kópavog og
Reykjavík um
hentugar lóðir
LANDSSÍMINN skoðar nú mögu-
leika á að flytja höfuðstöðvar fyrir-
tækisins úr gamla Landssímahúsinu
við Austurvöll. Nokkrir möguleikar
koma til greina, og hefur fyrirtækið
bæði átt í viðræðum við Reykjavík-
urborg og Kópavogsbæ um hentug-
ar lóðir fyrir höfuðstöðvamar.
Olafur Stephensen, forstöðumað-
ur upplýsinga- og kynningarmála
Landssímans, segir að verið sé að
skoða möguleika á að byggja upp
höfuðstöðvar annars staðar meðal
annars vegna þess að núverandi
húsnæði sé of lítið auk þess sem það
sé óhentugt með tilliti til nýirar
tækni og vinnsluhátta.
„Við höfum átt í viðræðum bæði
við Kópavogsbæ og Reykjavíkur-
borg um lóð undir nýjar höfuðstöðv-
ar en þær eru fremur skammt á veg
komnar og liggja hvorki teikningar
né endanleg stærð á húsinu fyrir,“
segir Ólafur. Að hans sögn hefur
Kópavogur boðið fyrirtækinu lóðir í
Kópavogi.
Alþingi sýnt húsnæðinu áhuga
Ólafur segir að sala hússins hafi
verið nefnd við Alþingi, sem sýnt
hafi húsnæðinu áhuga, en það hafi
fleiri einnig gert. Landssíminn hefði
hins vegar ýmsa kosti sem fyrir-
tækið þyrfti að velja úr.
„Reykjavíkurborg vantar land
uppi í Grafarvogi og til tals hefur
komið að hún fái hluta af landinu
sem radíóstöðin í Gufunesi stendur
á, undir íþróttasvæði. Þar hugsan-
lega gætum við látið borgina hafa
eitthvað í staðinn fyrir góða lóð.
Einnig á fyrirtækið land við Vatns-
enda sem gæti komið til góða í við-
ræðum við Kópavog. En eins og
stendur þá er þetta allt á viðræðu-
stigi ennþá,“ segir Ólafur.
Ölafur G. Einarsson, forseti Al-
þingis, segir að ef Alþingi verði
formlega boðið húsnæði Landssím-
ans við Austurvöll muni það verða
skoðað. „Við höfum vitað af því und-
anfarna mánuði að Landssíminn
væri að líta í kringum sig og það er
ljóst að lega Landssímahússins
hentar vel fyrir Alþingi. Við höfum
hins vegar ekki gert neina full-
nægða úttekt á því, af eðlilegum
ástæðum, hvort það hentar. En
verði okkur boðið þetta fonnlega þá
munum við að sjálfsögðu skoða
það,“ segir forseti Alþingis.
Áhyggjuefni fyrir
starfsemi í Kvosinni
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjóm,
segir það áhyggjuefni ef jafn stór
vinnustaður og Landssíminn hverfi
úr miðborginni. Starfsemi i Kvos-
inni sé að verða mjög einlit, nánast
eingöngu veitingahús og önnur
kvöld- og næturstarfsemi.
„Verslun hefur verið á undan-
haldi og ýmsar aðgerðir í umferðar-
og skipulagsmálum hafa ekki verið
til þess fallnar að snúa þessari þró-
un við. Ég óttast að þegar svona
stór vinnustaður hverfur, þá ýti það
enn frekar undir þessa þróun og
gerir þeim sem eftir eru mun erfið-
ara að lifa af,“ segir Inga Jóna. Seg-
ir hún að brottflutningur Landssím-
ans, ef af honum verður, eigi sér að
einhverju leyti skýringar í því að
menn séu að gefast upp á að vera í
miðbænum.
„Núverandi meirihluti borgar-
stjómar hefur verið mjög áhugalaus
um uppbyggingu í miðborginni og
ég held því miður að þetta sé ein af-
leiðingin af því. Ég hef fullan skiln-
ing á því að fyrirtæki þurfi að laga
sig að nýjum þörfum og mæta
breyttum kröfum, en borgaryfirvöld
eiga að reyna eins og þau geta að
koma til móts við þau fyrirtæki sem
hafa verið hér í miðborginni og
tryggja með því móti áframhaldandi
starfsemi þeirra á svæðinu,“ segir
Inga Jóna.
Borgin vill halda
höfuðstöðvum í miðbænum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, segir að
Reykjavíkurborg reyni eftir fremsta
megni að mæta þörfum þeirra fyrir-
tækja sem vilja vera með aðsetur í
höfuðborginni. „Við áttum viðræður
við Landssímann í sumar þar sem
við báðum forsvarsmenn hans að
fai-a vel yfir það hvort fyrirtækið
gæti ekki verið áfram í miðborginni,
vegna þess að við leggjum áherslu á
að höfuðstöðvar fyrirtækja séu hér í
miðbænum. Þeir fóru vel yfir það
mál en telja að miklir vankantar séu
á því vegna þess að þeir ætla meðal
annars að vera með starfsemi sem
dregur að sér bflaumferð," segir
Ingibjörg Sólrún.
Ingibjörg segir að verið sé að
skoða hvernig borgin geti komið til
móts við þarfir Landssímans og til
dæmis sé verið að athuga hvort
hægt verði að koma höfuðstöðvun-
um fyrir við Suðurlandsbraut, í ná-
grenni við húsnæði sem fyrirtækið
starfrækir þar nú þegar. Borgar-
verkfræðingur, skipulagsstjóri og
forsvarsmenn Landssímans fari nú
yfir þá kosti sem bjóðast í Reykja-
vík. Ingibjörg staðfestir einnig að til
greina komi að Reykjavíkurborg fái
hluta af landi Landssímans í Graf-
arvogi til eigin nota.
Sýknaður
af ákæru
um ölvun-
arakstur
21 ARS gamall Reykvíkingur
var sýknaður af ákæru um ölv-
unarakstur í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Akærði var
próflaus þegar brotið átti að
hafa átt sér stað 28. júní sl. og
neitaði að hafa ekið bifreið
sinni undir áhrifum áfengis
þegai’ lögreglan hitti hann á
Reykjanesbraut. Hann var þá
ekki undir stýri heldur lá úti í
vegkanti og stóðu tveir menn
hjá sem höfðu elt hann frá bif-
reiðinni, sem stóð við Stekkjar-
berg þar sem ákærði var í
samkvæmi um nóttina. Við
mælingu reyndist ákærði hafa
0,840 vínandamagn í lofti eða
mg/1.
Þrátt fyrir
dtrúverðuga frásögn
Þrátt fyrir að dómurinn
teldi frásögn ákærða af máls-
atvikum ótrúverðuga, þar sem
hann hélt því fram að hann
hefði drukkið þegar hann
hefði yfirgefið bifreiðina eftir
að hafa sest í ökumannssætið
til að stöðva hana frá því að
renna stjómlaust út af bif-
reiðastæði fyrir framan
Stekkjarberg, taldi dómurinn
ekki vera komna fram lögfulla
sönnun þess að ákærði hefði
ekið undir áhrifum áfengis. I
málinu var deilt um hvort
ákærði hefði ekið bifreiðinni
örfáa metra á bifreiðastæðinu.
ÖUum vitnum, sem yfir-
heyrð voru, bar saman um að
vél bifreiðarinnar hefði verið í
gangi nema einu vitni, sem er
bróðir ákærða, en hvort vélin
hefði verið í gangi byggðist á
framburði þriggja vitna, sem
héldu fram að svo hefði verið.
A hinn bóginn voru fram-
burðir þeirra ósamhljóða í
mörgum atriðum.
„Ævintýri
líkast“
Sigurgeir Pétursson fiskaði tannfisk
fyrir 280 milljónir á 30 dögum
„ÞETTA var hörkutúr,
ævintýri likast,“ segir
íslenzki skipstjórinn
Sigurgeir Pétursson,
sem er nú á landleið til
Ástrálíu með mettúr af
tannfiski, 770 tonn auk
60 tonna af fisldmjöli.
Aflaverðmætið er um 4
milljónir dollara, um
280 milljónir íslenzkra
króna. Líklegt má telja
að þarna sé um að
ræða eitthvert mesta
aflaverðmæti eins
skips úr einni veiðiferð,
en skipið var 30 daga
að veiðum.
Sigurgeir er með
frystitogarann Southern Champion,
sem er í eigu Austral Fisheries. Áð-
ur var hann með togarann Austral
Leader og hefur hann verið skip-
stjóri hjá útgerðinni í sex og hálft
ár. „Ég er í fyrsta túr a nýju skipi
þeirra, Southern Champion, sem er
gamla Giljanesið frá Færeyjum og
hét upphaflega Jutland. Við höfum
verið við veiðar niður við Heard Is-
land, sem er ástralskt yfirráðasvæði
niður undir Suðurheimskautinu, um
miðja vegu á milli Ástralíu og Suð-
ur-Afríku. Miðin eru um 2.300 sjó-
mílur frá heimahöfn og
8 daga stím er á mið-
in.“
Troll frá Hampiðj-
unni og hlerar frá J.
Hinrikssyni
„Við veiðum tannfisk
(Patagonian Toothfish)
í troll frá Hampiðjunni
og notum hlera frá J.
Hinrikssyni. Aflinn er
um 775 tonn af afurð-
um, 1.300 tonn upp ur
sjó eftir 30 daga að
veiðum og aflaverð-
mætið sennilega rétt
rúmar 4 milljónir
bandaríkjadala. Við er-
um með 33 manna áhöfn og tvo eft-
irlitsmenn um borð. Við búum við
mjög strangar umhverfisreglur,
meðal annars er ekki leyfilegt að
henda neinum fiskúrgangi, slógi eða
matarleifum eða nokkru öðru fyrir
borð og varðar brot við því tafar-
lausri leyfissviptingu," segir Sigur-
geir.
Aflanum er landað í Albany í
Vestur-Ástralíu og fá yfirmenn frí
annan hvem túr á fullum launum.
Sigurgeir hefur stundað tannfísk-
veiðar undanfarin tvö til þrjú ár, en
Sigurgeir Pétursson
Morgunblaðið/Sigurgeir Pétursson
MEÐ 30 tonn af tannfiski á dekkinu í mettúrnum, en mokveiði var á hverjum degi. Myndin var send í gær
frá togaranum Southern Champion, þegar hann var um þúsund mflur suðvestur af Ástralíu.
Southern Champion er annað
tveggja ástralskra skipa, sem hafa
leyfi til veiða á þessum eftirsótta
fiski á þessum slóðum. Mikið er um
ólöglegar veiðar og hefur Sigurgeir
meðal annars tekið þátt í að stugga
við veiðiþjóðum á miðunum.
Með annað af tveimur
veiðileyfum
„Það eru bara tvö leyfi á þessu
svæði og kvótinn er 3.600 tonn alls.
Við höfum því leyfi til að veiða
1.800 tonn og erum því búnir með
tvo þriðju af því nú þegar. Svo höf-
um við leyfi til veiða á svokölluðum
ísfiski, sem er smár fiskur, á stærð
við síld.
Við heilfrystum hann, en tann-
fiskurinn er hausaður, slógdreg-
inn, sporðskorinn og loks frystur.
Hann fer nánast allur á markað í
Japan.“
„Það var nánast mokveiði hvern
einasta dag. Við vorum því á fullum
afköstum alla daga, en þai- er mikil
vinna við tannfiskinn, þannig að af-
köstin eru ekki nema um 30 tonn á
dag. Veðrið þarna niðurfrá, rétt
norðan við ísinn, er heldur leiðin-
legt. Það er kalt og snjóar nánast
hvern einasta dag, stöðugur kaldi
og haugasjór. Það verður gott að
koma í hlýjuna í landi en nú er 42
stiga hiti í Perth í Ástralíu," segir
Sigurgeir Pétursson.