Morgunblaðið - 30.12.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurfjármögnun Flugfélags íslands að ljúka
Norðanmenn munu
eiga um 10% hlut
Morgunblaðið/Ásdís
BERGLIND Gunnarsdóttir verður fulltrúi á þingi jólasveinsins.
Fer á þing jóla-
sveinsins í Finnlandi
Á HLUTHAFAFUNDI í Flugfé-
lagi Islands í dag verður væntan-
lega gengið frá endurfjármögnun
félagsins. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins munu fyn-verandi
hluthafar í Flugfélagi Norðurlands
að mjög litlu leyti taka þátt í end-
uríjármögnuninni og verður hún að
langmestu leyti á vegum Flugleiða.
Eignarhlutfóll innan Flugfélags ís-
lands munu breytast sem þessu
nemur. Sigurður Aðalstejnsson,
stjórnannaður í Flugfélagi Islands
og fyrrverandi framkvæmdastjóri
Flugfélags Norðurlands, staðfesti í
samtali við Morgunblaðið í gær að
eftir endurfjármögnun gæti eign-
arhlutur norðanmanna í félaginu
orðið um eða innan við 10%.
Brann upp í herkostnaði
vegna samkeppni
Við stofnun Flugfélags íslands
snemma á árinu 1997 var eignar-
hlutur Flugleiða 65% en fimm ein-
staklingar í hópi fyi-rverandi hlut-
hafa í Flugfélagi Norðurlands áttu
35%.
Endurfjármögnun
að mestu leyti á
vegum Flugleiða
Sigurður Aðalsteinsson sagði að-
spurður í gær að segja mætti að
stofnframlag þeirra norðanmanna
hefði brannið upp í herkostnaði við
þá miklu samkeppni, sem ríkt hef-
ur í jnnanlandsflugi frá því Flugfé-
lag Islands tók til starfá.
Hann sagði að norðanmenn
hefðu tekið þátt í stofnun félagsins
í því skyni að búa sig undir að
mæta samkeppni á þessum mark-
aði. Áætlanir hefðu hins vegar ekki
gengið eftir að því leyti að sam-
keppnin hefði orðið mun harðari og
verð lægra en fyrirfram var búist
við.
„Það eru vonbrigði hvernig fé-
lagið hefur gengið síðustu tæplega
2 árin en hins vegar vora kringum-
stæður þannig að enginn gat séð
það fyrir,“ sagði hann.
Sigurður sagði að þótt hlutfalls-
leg eign norðanmanna í félaginu
minnkaði vegna endurfjármögnun-
arinnar breytti það litlu um raun-
veraleg, dagleg áhrif þeirra; þau
hefðu ekki verið umtalsverð. I raun
hefði það lítið að segja hvort hlut-
urinn væri um 10% eða 35%; í báð-
um tilvikum væri um minnihluta að
ræða.
Áhugasamir um að gangi vel
„En við vinnum hjá félaginu og
eram eins og aðrir starfsmenn
mjög áhugasamir um að því gangi
vel og geram okkar besta til þess,“
sagði Sigurður Aðalsteinsson.
Tap hefur verið á rekstri Flugfé-
lags Islands, sem tók til starfa 1.
júlí 1997. Vegna taprekstrar er eig-
ið fé félagsins neikvætt og hefur
verið unnið að endurfjármögnun
um skeið. Frá því að félagið tók til
starfa hefur það m.a. sagt upp um
10% starfsmanna, í lok síðasta árs.
Það hefur einnig hætt flugi til
Húsavíkur og Sauðárkróks og
fækkað ferðum til Egilsstaða.
UNG stúlka af Selljarnarnesi,
Berglind Gunnarsdóttir, hefur
verið valin sem einn af fimmtíu
þingmönnum jólasveinsins sem
koma saman á þingi sem haldið
verður í Helsinki 2.-6. janúar
næstkomandi. Það er Junior
Chamber hreyfingin í Finnlandi
sem stendur að þessu verkefni í
samvinnu við JC hreyfinguna víða
um heim, m.a. á Islandi.
Berglind hefur verið kjörin
þingmaður jólasveinsins til
þriggja ára, en hún er 15 ára
nemandi í Valhúsaskóla. Hún
sagði í samtali við Morgunblaðið
að á þinginu yrðu 50 krakkar frá
jafnmörgum löndum og hún
hlakkaði mjög til að taka þátt í
þessu verkefni.
„Þetta gengur út á að ræða
málefni barna og semja ályktun
til stuðnings börnum í heiminum
sem sennilega verður send Sam-
einuðu þjóðunum. Þá förum við til
Lapplands í einn dag og heim-
sækjum jólasveinalandið þar,“
sagði Berglind.
A
Ovissa um vinnustaðasamninga
hjá Landssímanum hf.
_ >
RSI stendur gegn
atkvæðagreiðslu
FLEST bendir til að ekkert verði af
atkvæðagreiðslu starfsmanna
Landssímans hf. um tilboð fyrir-
tækisins um gerð vinnustaðasamn-
ings. Verkamannasambandið og Fé-
lag íslenskra símamanna hafa sam-
þykkt að láta fara fram atkvæða-
greiðslu um tilboðið en Rafiðnaðar-
sambandið hafnar því. Þórarinn V.
Þórarinsson, stjórnarformaður
Landssímans, segir þessa afstöðu
RSI jafngilda höfnun á tilboðinu.
Áformað var að hefja atkvæða-
greiðslu um tilboðið í dag. VMSÍ og
FÍS samþykktu í gær að leggja til-
boðið undir félagsmenn sína, en þeir
era um 2/3 starfsmanna Landssím-
ans. RSÍ hefur hins vegar hafnað
því að samtengja atkvæðagreiðslu
stéttarfélaganna þriggja og telur að
slíkt brjóti í bága við lög og kjara-
samninga.
Einar Gústafsson, formaður FÍS,
sagði að símamenn hefðu ekki haft
sérstakan áhuga á að tengja at-
kvæðagreiðslu félaganna saman, en
þeir hefðu engu að síður ákveðið að
heimila að atkvæðagreiðslan færi
fram ekki síst vegna þess að þeir
hefðu skilning á að markmið um
hagræðingu næðist ekki nema öll
félögin samþykktu tilboðið.
Þórarinn V. Þórarinsson sagði að
Landssíminn gæti augljóslega ekki
fallist á að gera samning um kaup á
kaffitímum og fleira ef aðeins hluti
starfsmanna samþykkti samninginn
og aðrir ekki. Þar með næðist ekki
fram sú hagræðing sem að væri
stefnt. Fyrirtækið hefði þá efnt til
kostnaðar án þess að hafa fengið
nokkuð í staðinn.
Jafngildir höfnun á tilboðinu
Þórarinn sagði slæmt ef Rafiðnað-
arsambandið kæmi í veg fyrir að
starfsmönnum yrði gefinn kostur á
að segja álit sitt á tilboðinu. Hann
sagðist hafa vonast eftir að atkvæða-
gi-eiðslan gæti farið fram milli jóla
og nýárs. Tilboð fyrirtækisins stæði
og það væri enn ekki of seint að láta
atkvæðagreiðsluna fara fram.
„Eins og þetta blasir við mér
núna er eini ágreiningurinn um
málið sá að forystumenn Rafiðnað-
arsambandsins segja að hvorki þeir
né þeirra félagsmenn muni standa
að atkvæðagreiðslunni ef það er
áfram forsenda af hálfu Landssím-
ans að það þurfi að fást sameiginleg
niðurstaða hjá öllum starfsmönnum
fyrirtækisins. Standi Rafiðnaðar-
sambandið við afstöðu sína felur
það í sér höfnun á þessu tilboði
Landssímans," sagði Þórarinn.
Johanna boðar fund
með stuðningsmönnum
JÖHANNA Sigurðardóttir alþing-
ismaður segist hafa áhuga á að fá
tækifæri til að keppa í prófkjöri
samfylkingar á jafnréttisgrand-
velli. Hún ætlar að halda fund með
stuðningsmönnum sínum í dag til
að fara yfir stöðuna í prófkjörsmál-
um samfylkingar í Reykjavík.
Stofnanir Alþýðuflokksins og
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
hafa samþykkt samkomulag flokk-
anna um prófkjör í borginni. Próf-
kjörið gerir ráð fyrir að kosið verði
um átta efstu sætin. Ekki er gert
ráð fyrir að þátttakendur í próf-
kjörinu geti kosið aðra en sína
flokksmenn, en tillögu um að opna
prófkjörið þannig að þátttakendur
geti kosið hvaða frambjóðánda
sem er var vísað frá á fundi kjör-
dæmisráðs Alþýðubandalagsfélag-
anna í Reykjavík í fyrrakvöld.
Samkomulagið gerir ráð fyrir að
Jóhönnu Sigurðardóttur verði boð-
ið fjórða sætið.
„Þetta er samkomulag sem er
gert á milli A-flokkanna. Ég á ekki
aðild að því. Þeir hafa hins vegar
vitað um ósk mína um að ég hef
viljað ásamt óháðum og Þjóðvaka-
fólki taka þátt í prófkjörinu á jafn-
ræðisgrundvelli á við aðra sem að-
ild eiga að samfylkingunni. Við
verðum aftur á móti að fara að
ljúka þessu verki og koma okkur í
kosningabaráttuna. Ég vil ekki
verða til að tefja málið, en ég vil
láta reyna á óskir okkar fólks. Það
mun ekki taka langan tíma því við
verðum að ljúka þessu verki,“
sagði Jóhanna.
Kristín Blöndal, fulltrúi Kvenna-
listans í framboðsnefnd flokkanna
þriggja, sagði að engar viðræður
hefðu farið fram milli Kvennalist-
ans og A-flokkanna í gær. Málin
stæðu því óbreytt gagnvart
Kvennalistanum. Hún sagðist hins
vegar vera ánægð með þann vilja
til samstarfs við Kvennalistann
sem hefði komið fram á fundi Al-
þýðubandalagsins í fyrrakvöld.
Kvennalistinn hlyti að láta reyna á
hann.
Morgunblaðið/Ásdís
Safnað
í bálkesti
SAFNAÐ er í áramótabálkesti af
krafti um þessar mundir um land
allt og einn þeirra stærri stendur
við Ægisíðuna og verður um fjög-
urra metra liár, að sögn Jóns
Bergvinssonar brennukóngs. Að
þessu sinni er kösturinn óvenju-
þungur, því gamla Skeljungs-
bryggjan við Skerjaíjörð verður
brennd ásamt vörubrettum og
öðrum tiinbunírgangi. Kveikt
verður í bálkestinum klukkan
20.30 á gamlárskvöld.
Örn Arnarson
íþróttamaður
ársins
C1
Chelsea nýtti *
ekki tæki- •
færið :
:
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is