Morgunblaðið - 01.07.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIIMGAR
ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 1997 43
HAFÞÓR VESTFJÖRÐ
SIG URÐSSON
+ Hafþór Vest-
fjörð Sigurðs-
son • fæddist í
Reykjavík 16. febr-
úar 1943. Hann lést
á heimili sínu í
Reykjavík 22. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Sigurður Hjálmar
Þorsteinsson frá
Neðri Miðvík í Aðal-
vík, f. 6. mars 1918
(iátinn), og Matt-
hildur Valdís Elías-
dóttir frá Elliða í
Staðarsveit, f. 21.
mars 1923. Hafþór
var elstur í hópi systkina sinna,
en þau eru Ragnar, Elías, Þor-
steinn, Sigþór (látinn) og Hjör-
dís.
Hinn 10. ágúst 1968 kvæntist
Hafþór eftirlifandi eiginkonu
sinni, Margréti Helgadóttur,
fulltrúa hjá Kennarasambandi
íslands, f. 3. febrúar 1942 í
Reykjavík. Foreldrar hennar
voru Helgi Guðmundsson frá
Ytra-Sveinseyri í Tálknafirði, f.
16. febrúar 1902 (látinn), og
Marta Jónsdóttir frá Suðureyri
í Tálknafirði, f. 11. júní 1907
(látin). Synir Hafþórs og Mar-
grétar eru: 1) Helgi, tölvunar-
fræðingur, f. 7. desember 1969,
kvæntur Guðlaugu Eddu Sig-
geirsdóttur, lyfjatækninema, f.
25. desember 1972, og eiga þau
eina dóttur, Ástu Margréti, f.
4. mars 1995. 2) Sig-
urður, B.A. í guð-
fræði, f. 5. ágúst
1972, sambýliskona
hans er Cecilia
Möne, jarðfræðing-
ur, f. 25. janúar
1969.
Hafþór lauk
kennaraprófi frá
Kennaraskólanum
1965. Hann hóf
kennslustörf við
Leirárskóla sama ár
og kenndi síðar við
Árbæjarskóla _ í
Reykjavík. Árið
1969 var hann ráð-
inn við nýstofnaðan skóla á
Húnavöllum í Austur- Húna-
vatnssýslu og starfaði þar í sex
ár, fyrst sem kennari og síðar
sem skóiastjóri. Þá kenndi hann
í eitt ár við Breiðholtsskóla i
Reykjavík, en fluttist síðan til
Hallormsstaðar þar sem hann
starfaði sem skólastjóri við
grunnskólann í fjögur ár.
Hafþór fluttist ásamt fjöl-
skyldu sinni til Reykjavíkur árið
1980. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og síðar við smíðakenn-
aradeild Kennaraháskólans.
Hann var ráðinn kennari við
Álftanesskóla 1985 og starfaði
þar til dauðadags.
Útför Hafþórs fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Kveðja frá nemendum og
kennurum í uppeldisvísinda-
deild Kennaraháskóla
íslands
Fyrir hönd nemenda og kennara
við uppeldisvísindadeild Kennara-
háskóla íslands vil ég minnast Haf-
þórs V. Sigurðssonar, kennara við
Álftanesskóla í Bessastaðahreppi.
Kynni okkar hófust síðastliðið
haust þegar Hafþór hóf nám til
meistaragráðu við Kennaraháskóla
íslands. Hann reyndist sérlega ljúf-
ur í viðkynningu, hæglátur og hugs-
andi, hlýr og geðþekkur.
Hafþór hafði góðar forsendur til
að hefja framhaldsnám, vandaður
skólamaður með mikla reynslu af
kennslu, bæði almennri kennslu,
mynd- og handmenntakennslu og
skólastjórn. Sem sérsvið í fram-
haldsnáminu valdi Hafþór sér list-
og verkgreinar, enda hafði hann
betri grunn en flestir aðrir til að
sækja fram á því sviði. Auk langrar
kennslureynslu hafði hann aflað sér
margháttaðrar viðbótarmenntunar,
bæði með því að setjast í Myndlista-
og handíðaskólann um tveggja ára
skeið, 1980-1982, og með því að
taka smíðar sem valgrein í almennu
kennaranámi við Kennaraháskóla
íslands veturinn 1990-1991. Þá
fylgdist Hafþór vel með þróun í
kennslu list- og verkgreina hér
heima og erlendis. Hann hafði mik-
inn áhuga á tölvum og nýtti sér
tölvutæknina í þekkingarleit sinni.
Með tölvusamskiptum hafði hann
skapað sér sambönd við stofnanir
og sérfræðinga víða um heim. Þá
hafði Hafþór fengist talsvert við
námsefnisgerð, m.a. skrifað náms-
efni um viðarfræði, sem hann hafði
áhuga á að auka og þróa. Hafþór
var í stjórn Félags íslenskra smíða-
kennara og félagsmaður í Félagi
íslenskra myndmenntakennara.
I verkefnum sínum í framhalds-
náminu lagði Hafþór sig sérstaklega
eftir að kanna hvernig kennarar
gætu auðgað kennslu sína með því
að nýta lista- og minjasöfn með
markvissum hætti í skólastarfi.
Hann byggði á þekkingu sinni á
tölvutækni og bjó til vefsíður um
safnfræðslu á veraldarvefnum, svo
efnið gæti gagnast sem flestum. Á
vefinn setti hann ábendingar um
hvernig kennarar gætu notað söfn
í kennslu, hugmyndir að verkefnum
og kennsluleiðbeiningar, auk marg-
víslegs fróðleiks um safnamál. Þessi
verk vann Hafþór af sérstakri alúð,
áhuga og þekkingu.
Hafþór átti sér fjölmörg hugðar-
efni. Auk almennrar lista- og menn-
ingarsögu var saga íslensks hand-
verks honum sérstaklega hugleikin.
Sem dæmi má nefna að í tómstund-
um safnaði hann upplýsingum um
íslenskar fiðlur og langspil, skráði
þau hljóðfæri sem hann fann og
gerði af þeim vinnu- og smíðateikn-
ingar. Hann hafði mikinn áhuga á
hljóðfærasmíði og leitaði víða fanga
í því efni. Sumu af þessu kom hann
fyrir á vefsíðum sínum á veraldar-
vefnum.
Undir miðjan júní áttum við kenn-
arar og nemendur í meistaranáminu
saman nokkra ánægjulega daga í
Kennaraháskólanum. Þá sem fyrr
var Hafþór virkur í öllu okkar starfi
og lagði margt gott til málanna á
sinn ljúfmannlega máta. Hafþór
kom til mín í Kennaraháskólann
nokkrum dögum áður en hann varð
bráðkvaddur. Hann var nokkuð
þreyttur eftir annasaman vetur í
námi og kennslu, en samt fullur til-
hlökkunar að takast á við verkefnin
framundan. Hafþór ræddi hug-
myndir sínar um endurbætur á
safnafræðsluefni sínu og sagði mér
frá kennaranámskeiði um notkun
safna í kennslu sem hann hafði tek-
ið að sér að undirbúa og batt mikl-
ar vonir við. Ekki fór á milli mála
að hann hafði ákveðið að láta að
sér kveða á sviði safnafræðslu. Þar
var réttur maður á réttum stað.
Hafþór V. Sigurðsson hverfur frá
okkur langt um aldur fram. í djúpri
sorg er huggun í minningunni um
einstakan hagleiks- og hugsjóna-
mann, vitra og góða manneskju. Á
þá minningu fellur enginn skuggi.
Við þökkum kynni af góðum dreng.
Fjölskyldu hans sendum við okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Ingvar Sigurgeirsson, dósent
við Kennaraháskóla Islands.
Kveðja frá starfsfélögum
Á hátíðarstund við skólaslitin í vor
kvöddumst við starfsfélagarnir og
reiknuðum öll með að sjást aftur að
hausti. En skjótt skipast veður í lofti,
dauðinn kveður dyra og enn erum
við minnt á það hversu örstutt er á
milli lífs og dauða. Hafþór okkar er
horfinn, við fáum ekki að njóta ná-
vistar hans og starfa framar. Hann
var hrifsaður burt í blóma lífsins.
Hans verður sárt saknað af okkur
vinnufélögunum og nemendum sem
þótti sérstaklega vænt um hann og
töluðu oft um hversu góður kennari
hann væri.
Það var ljúft að vera í návist
Hafþórs, hæglæti hans og hógværð
kallaði á virðingu umhverfisins og
alltaf var stutt í kímnina og hlátur-
inn. Störf hans einkenndust af sam-
viskusemi, listrænum hæfíleikum,
fallegu handbragði og sköpunar-
gleði. Með þessum orðum viljum við
heiðra minningu Hafþórs, kveðja
hann og þakka fyrir að hafa fengið
að njóta starfskrafta hans og návist-
ar. Hlutirnir sem til eru í skólanum
eftir hann munu ávallt minna okkur
á góðan dreng, kennara og starfsfé-
laga. Margréti, Sigurði, Helga og
öðrum ástvinum Hafþórs sendum við
okkar dýpstu samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að styrkja þau.
Fyrir hönd starfsmanna Álftanes-
skóla,
Erla Guðjónsdóttir.
Það er skrýtið að hugsa til þess
að hann Hafþór, smíða- og mynd-
menntakennarinn okkar sem hefur
kennt okkur frá því í fyrsta bekk i
Álftanesskóla, sé allt í einu dáinn.
Hann var mjög góður kennari og
þótti okkur öllum mjög vænt um
hann. Við eigum ótal margar mynd-
ir og hluti sem minna okkur á frá-
bæra kennslu hans.
Svo þig langar til fiðrildalands?
Jæja, lærðu þá minn vængjaða dans
og flýttu þér;
síðan fylgirðu mér
í flugstigu regnbogans.
(Þorsteinn Vald.)
Hann Hafþór sagði okkur að hon-
um þætti afar vænt um þetta ljóð
og hann skrifaði það líka í allar
minningarbækur okkar.
En nú þurfum við víst að kveðja
hann en vonandi líkist sá staður,
þar sem hann er nú, fallega Fiðrilda-
landinu hans.
Að lokum viljum við votta að-
standendum hans og fjölskyldu,
okkar innilegustu samúð.
Stefjahreimur
Mitt verk er, þá ég fell og fer,
eitt fræ, mitt land, í duft þitt grafið,
mín söngvabrot, sem býð ég þér,
eitt blað í ljóðasveig þinn vafið.
En innsta hræring hugar míns,
hún hverfa skal til upphafs síns
sem báran, - endurheimti í hafið.
(Einar Ben.)
Nemendur Hafþórs í smíði og
myndmennt í 7. bekk í Álftanesskóla
Berglind Veigarsdóttir,
Freydís Guðný Hjálmarsd.,
og Sigríður Ása Júlíusd.
Legg ég nú bæði l!f og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pét.)
Litla stúlkan hlustaði: „Afi Haf-
þór er hjá Guði. Hann fór að sofa
og vaknar ekki aftur.“ Hún svaraði
brosandi: „Afi Hafþór vaknar til
Guðs.“
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni
sitji Guðs englar saman í hring,
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson)
Elsku afi minn.
Ásta Margrét Helgadóttir.
t
Elskulegur sonur okkar, faðir og bróðir,
HÁKON ARNAR HÁKONARSSON,
varð bráðkvaddur föstudaginn 27. júní.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 4. júlí kl. 13.30.
Hákon Sigtryggsson,
Oddný Gestsdóttir,
Margrét Arnarsdóttir,
Nina Dröfn Arnarsdóttir,
Sigrún Hákonardóttir,
Sólveig Hákonardóttir,
Karin Hákonardóttir,
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
EBBI JENS GUÐNASON,
Kópavogsbraut 1A,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að morgni
sunnudagsins 29. júní.
Guðbjörg Helga Sigurbjörnsdóttir,
Lind Ebbadóttir, Sigurveig Ebbadóttir
og Gerður Ebbadóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
DAGMAR GUÐNÝ BJÖRG STEFÁNSDÓTTIR,
Mánagötu 12,
Reyðarfirði,
lést á Sjúkrahúsi Neskaupstaðar föstudaginn 27. júní.
Einar Guðmundur Stefánsson, Birna María Gfsladóttir,
Stefán Þórir Stefánsson, Kristfn Guðjónsdóttir,
Guttormur Örn Stefánsson, Helga Ósk Jónsdóttir,
Sigfús Arnar Stefánsson,
Smári Stefánsson,
barnabörn og barnabarnaböm.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEINGRÍMUR PÉTURSSON,
frá Hjöllum,
lést á heimili sínu laugardaginn 28. júní.
Jarðarförin fer fram frá Ögurkirkju laugardaginn 5. júlí kl. 14.00.
Vilborg Ólafsdóttir,
Guðrún Dagný Steingrímsdóttir, Jóhann Snorri Arnarson,
Þorbjöm Steingrímsson, Guðfinna Birna Guðmundsdóttir,
Pétur Steingrímsson
og barnabörn.
*
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma og langamma,
INGA HAFDfS HANNESDÓTTIR,
Aragerði 7,
Vogum,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavaíkur 28. júní síðast-
liöinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helgi Axel Davfðsson.
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
u Sími 562 0200 u
rxnxxxixxxrl
t
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
frá Karlsskála,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópa-
vogi, föstudaginn 27. júní siðastliðinn.
Fyrir hönd afkomenda,
synir og tengdadætur.